Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.11.2014, Page 27
2.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
G
uðmundur Ingi Úlfarsson, graf-
ískur hönnuður sem sérhæfir
sig í leturgerð, hefur selt tíma-
ritunum New York Times og
The Wire leturhönnun sína. Guðmundur
vakti athygli fyrr í mánuðinum þegar
hann hannaði letur sem notað er í allt
kynningarefni fyrir hina virtu Sundance-
kvikmyndahátíð. „Hönnunarstofan sem sá
um Sundance-útlitið, Mother í New York,
hafði samband við mig í gegnum vefsíð-
una okkar og hafði áhuga á letrinu,“ út-
skýrir Guðmundur. Guðmundur vann letr-
ið, sem ber heitið L10, út frá leturhönnun
sem hann gerði upphaflega fyrir afmæl-
isbók Lunga árið 2010.
Guðmundur lærði grafíska hönnun við
Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam og
rekur nú fyrirtækið Or Type ásamt Mads
Freund Brunse sem sérhæfir sig í letur-
hönnun. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga
á letri. Síðan voru leturgerðaráfangar í
skólanum sem ég tók mjög alvarlega og
hafði gaman af. Þetta hefur blundað í
mér lengi, síðan ég byrjaði að hafa áhuga
á grafískri hönnun,“ segir Guðmundur
Ingi.
Tímaritið The Wire keypti L10-letrið,
það sama og var notað í kynningarefni
Sundance Film festival.
New York Times keypti óútgefið letur
af Guðmundi sem verður notað í næstu
sérútgáfu New York Times-tímaritsins,
„The Innovation issue“. „Þetta er letur
sem er í vinnslu og þau höfðu áhuga á
að sjá letur frá okkur sem þau gætu
mögulega notað í blaðið og þá sendi ég
þeim þetta og þau höfðu mikinn áhuga á
að nota það,“ útskýrir Guðmundur og
segir New York Times hafa haft samband
í kjölfar Sundance-kvikmyndahátíðarinnar.
Guðmundur segir söluna á letrinu hafa
mjög mikla þýðingu. „Þetta er í raun
bara besta auglýsingin sem leturhönnuður
getur fengið.“ Guðmundur vinnur nú að
uppfærslu á sýningar- og sölusíðu sinni
Or Type og segir jafnframt nokkur
spennandi verkefni í vinnslu.
Guðmundur Ingi Úlfarsson segist lengi hafa haft
áhuga á leturhönnun.
Morgunblaðið/Golli
Hannar fyrir New York Times
Leturhönnun Guðmundar, L10, á kynningarefni kvikmyndahátíðarinnar Sundance Film festival.
TÍMARITIN NEW YORK TIMES OG THE WIRE KEYPTU NÝLEGA LETUR-
HÖNNUN GRAFÍSKA HÖNNUÐARINS GUÐMUNDAR INGA ÚLFARSSONAR.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Laugardaginn fyrsta nóvember verður opnuð
sýningin Endurbókun í Gerðubergi.
Þar verða verk sýnd sem eiga það sameig-
inlegt að vera öll unnin úr gömlum bókum.
Þar öðlast bækurnar nýtt líf en bækurnar eru
flestar fengnar af Gerðubergssafni.
Listahópurinn ARKIR, sem stendur fyrir
sýningunni samanstendur af listakonunum
Önnu Snædísi Sigmarsdóttur,
Arnþrúði Ösp Karlsdóttur, Áslaugu Jóns-
dóttur, Ingiríði Óðinsdóttur, Svanborgu Stef-
ánsdóttur og Kristínu Þóru Guðbjartsdóttur.
Allar hafa þær stundað bókverkagerð af ýms-
um toga um margra ára skeið. Sýningin
Endurbókun stendur til 11. janúar 2015.
Listahópurinn ARKIR sýnir verk sín, sem unnin
eru úr gömlum bókum, á sýnungunni Endurbókun.
Gamlar bækur
öðlast nýtt líf
Sy ru sson Hönnunar hús
Síðumúla 33
Fallegar vörur fyrir heimilið