Málfríður - 15.10.2011, Síða 12

Málfríður - 15.10.2011, Síða 12
djúpt í efnið, þá sem unnu allt en ekki af jafnmikilli dýpt og þá sem þurftu mjög á aðstoð kennara að halda. Með þessu móti gátu kennarar komið til móts við mis- munandi þarfir nemenda og jafnframt voru dæmi um að góðir nemendur hjálpuðu samnemendum sínum. Einnig kom snemma í ljós að oft virtust nemendur með leshamlanir eiga auðveldara með að lesa af skjá en af pappír auk þess sem þeir virtust eiga auðveld- ara með að setja saman texta á rafrænu formi. Þetta er atriði sem vert væri að rannsaka nánar. 3. Kennslufræðilegur bakgrunnur Í tímans rás hefur ýmsum aðferðum verið beitt við tungumálakennslu og ýmsar stefnur náð hylli og útbreiðslu ekki síður en kenningar um tungumálanám og tileinkun erlendra tungumála. Þörf fyrir tungumálakunnáttu og notkunarsvið þeirrar kunnáttu er annað í heimsþorpi nútímans en fyrir hundrað árum. Fræðimenn á sviði máltöku og tungumálakennslu aðhyllast flestir þau viðhorf að tungumálið sé einkum tæki til tjáskipta og markmiðið með tjáskiptamiðaðri tungumálakennslu sé að nem- endur öðlist tjáskiptahæfni sem taki til eftirtalinna þátta: málhæfni, orðræðu- og textahæfni, málnotkun- arhæfni, úrræðahæfni, flæðis og félags- og menningar- hæfni.4 Það er ærið verkefni að skipuleggja nám þar sem lögð er áhersla á alla þætti tjáskiptahæfninnar og borin von að eitt námskeið rúmi þetta allt. Einn af grundvallarþátt- um bættrar tungumálakunnáttu er stöðug þjálfun færni- þáttanna fjögurra, hlustunar, tals, lesturs og ritunar. Auk þess er meðvituð og markviss aukning orðaforða mikil- væg. Miklu máli skiptir að setja þessa þjálfun í raunhæft samhengi sem gerir nemendum ljóst að hverju er stefnt og að þeir beri ábyrgð á eigin námi. Í því sambandi er mikilvægt að læra á tæki og tól sem geta létt kennurum starfið en ekki síður að nota hugvitið til að þróa aðferðir og leiðir til að nýta tæknina betur. Háskóli Íslands hefur enn ekki mótað opinbera fjar- kennslustefnu en í nokkrum greinum hefur fjarkennsla tíðkast, t.d. í íslensku, og á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, sem áður var Kennaraháskóli Íslands, er nokk- uð löng reynsla, bæði hvað varðar hreina fjarnámshópa og blandaða hópa. Fjarkennsla á háskólastigi hefur gefið góða raun og m.a. leitt til betri kennaramennt- unar á landsbyggðinni og til er dæmi um að skólastarf hafi tekið stakkaskiptum þegar hópur leiðbeinenda úr sama skóla fór samtímis í fjarnám meðfram kennslu.5 4 Auður Hauksdóttir, „Straumar og stefnur í tungumálakennslu“. Mál málanna, ritstj. Auður Hauksdóttir og Birna Arnbjörnsdóttir, Reykjavík: Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungu- málum, 2007, bls. 155–199, hér bls. 172–179. 5 Þuríður Jóhannsdóttir. „Mótun stefnu í fjarkennslumálum hins sam- einaða háskóla – kynning á niðurstöðum verkefnahóps“, fyrirlestur á Málþingi um fjarkennslu og fjarnám við Háskóla Íslands, 6. mars 2009. 4. Námskeið fyrir grunnskólakennara Með fyrirhugaðri breytingu á námskrám og tilfærslu á námsefni frá framhaldsskóla til grunnskóla þótti sýnt að efla þyrfti menntun grunnskólakennara til þess að þeir yrðu betur í stakk búnir til að takast á við breyttar forsendur. Kennurum á unglingastigi var boðið að bæta við sig 30 eininga6 námi á háskólastigi í nokkrum námsgreinum og margir þáðu það. Þar sem margir þeirra störfuðu úti á landi skapaðist eftirspurn eftir námskeiðum í dönsku í fjarkennslu. Haustið 2007 tóku kennarar í dönsku við Háskóla Íslands að sér að halda fjarnámskeið fyrir grunnskólakennara í samstarfi við Kennaraháskóla Íslands (nú Menntavísindasvið Háskóla Íslands) og menntamálaráðuneytið og hefur eitt fjarnámskeið verið í boði á hverju misseri síðan, einkum ætlað starfandi kennurum en líka opið öðrum. Hér verður gerð grein fyrir þremur ólíkum nám- skeiðum sem voru skipulögð hvert í framhaldi af öðru þrjú misseri í röð, 2007–2008. Ekki var ljóst fyrr en hvert kennslumisseri var hafið hversu margir þátttak- endurnir yrðu og á hvaða getustigi en þó mátti ætla að kennarar sem óskuðu eftir að bæta við sig í greininni hefðu talsverða kunnáttu og reynslu. Þegar litið er til baka má sjá að þessi námskeið mynda ákveðna heild og hafa ákveðinn stíganda. Í fyrsta námskeiðinu „Dönsk dægurmenning“ var miðað að því að efla kunnáttu og færni kennaranna í tungumálinu. Í öðru námskeiðinu „Unglingabækur og kvikmyndir í dönskukennslu“ var fjallað um kennslu- fræði tungumála og gerð námsefnis. Þriðja námskeiðið „Unglingamenning og miðlar“ snerist einkum um nemendur sem félagsverur og hluta af menningarheild eða menningarkima af einhverju tagi. 4.1 Dönsk dægurmenning „Dönsk dægurmenning“ var yfirskriftin á fyrsta nám- skeiðinu sem samið var síðsumars og kennt á haust- misseri 2007. Eftirtalin markmið voru höfð að leiðar- ljósi við skipulagningu þessa fyrsta námskeiðs: • Þjálfun í tungumálinu. • Nemendur námskeiðsins áttu með þessum hætti að efla tungumálakunnáttu sína og auka þekk- ingu sína á dægurmálum og menningu almennt. Nemendur nýttu tölvu og net til að vinna með eigin málfærni, afla upplýsinga og miðla þeim. Val á verkefnum og útfærsla þeirra byggðist á hug- myndum um að draga sjálfsmatsramma Evrópuráðsins7 6 Áður en einingakerfinu var breytt til samræmis við ECTS-kerfið voru þetta 15 einingar. 7 Skilgreind kunnáttustig í færniþáttum tungumáls sett upp í sjálfs- matsramma með sex kvörðum. Sjá: Evrópsk tungumálamappa fyrir framhaldsskóla, Reykjavík: Council of Europe/Menntamálaráðuneytið, 2006, bls. 5, http://www.nams.is/pdf/elp_upper_disa_3.pdf [sótt 19. júní 2009]. 12 MÁLFRÍÐUR

x

Málfríður

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.