Selfoss - 27.02.2014, Page 2

Selfoss - 27.02.2014, Page 2
Innritun í grunnskóla skólaárið 2014−2015 Innritun barna sem eru fædd árið 2008 og eiga að hefja skólagöngu í Sveitarfélaginu Árborg haustið 2014 fer fram 3.−12. mars næstkomandi. Hægt er að innrita rafrænt á Mín Árborg eða á eyðublöðum sem eru aðgengileg á heimasíðum grunnskólanna og í Ráðhúsinu. Þeim umsóknum á að skila í viðkomandi skóla. Upplýsingar um skólahverfi hvers skóla er að finna á www.arborg.is Nánari upplýsingar er hægt að fá í grunnskólunum og á skrifstofu fræðslusviðs. Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri Sunnulækjarskóli Vallaskóli 2 27. febrúar 2014 Verðandi Ólympíufarar í Sunnulækjarskóla? Íshokkí er meðal keppnisleikja víða um lönd. Á þriðjudaginn var vígt glænýtt þythokkíborð í Sunnulækjarskóla. Foreldrafélag Sunnulækjarskóla færði skólanum borðið og það kom í hlut 5. RG að vígja borðið. Nemendur skemmtu sér hið besta í þythokkíinu og senda foreldrafé- laginu bestu þakkir fyrir svo frábæra gjöf. (Heimild: vefur Sunnulækjarskóla) Lengra verður ekki komist „Ég tel að ekki verði komist lengra í þessari lotu,“ segir Halldóra Sigríður Sveinsdóttir, formaður Bárunnar, um samning þann sem náðist í kjaradeilunni. Samningurinn er talinn vera nokkru hagstæðari sen sá sem hafnað var í samfloti. Munar þar um einar 2600 krónur á mánuði þegar tekið er tillit til hærri orlofsuppbótar og desem- beruppbótar. Samningurinn gildir til loka febrúar 2015. VG í Árborg undirbýr framboð Þessa dagana eru Vinstri Græn í Árborg að vinna að framboðsmálum sínum fyrir komandi sveitarstjórnarkosn- ingar. Uppstillinganefnd, sem skip- uð er Þorsteini Ólafssyni, Mar- gréti Magnúsdóttur og Hilmari Björgvinssyni, hefur auglýst eftir áhugasömu fólki til starfa og fólki til að skipa framboðslistann í vor. Frestur til að skila inn hugmyndum til uppstillinganefndar er til 5. mars og áætlað er að framboðslistinn verði tilbúinn í byrjun apríl. Halldóra Sigríður Sveinsdóttir. Bindandi kauptilboð liggur fyrir í tvær blokkir Íbúðalánasjóðs á Selfossi. 44 íbúðir í leigu fyrir vorið! „Umfangsmesta sala á íbúðarhúsnæði á Suðurlandi nokkru sinni,“ segir Snorri Sigurfinnsson, fasteignasali á Selfossi. Fyrir liggur bindandi tilboð í 44 íbúðir í tveimur blokk-um á Selfossi. Um er að ræða tveggja til fjögurra herbergja íbúðir að Eyravegi 48 og Fossvegi 8. Fast- eigningarnar eru í eigu Íbúðalána- sjóðs og hafa bæjaryfirvöld í Árborg þrýst á að Íbúðalánasjóður losi sig við þær íbúðir og þær komist í leigu. Talið er að um 100 leiguíbúðir vanti á Árborgarsvæðinu til að koma til móts við brýna þörf á húsnæði. „Gangi sala þessara 44 íbúða Íbúðalánasjóðs eftir verður það umfangsmesta sala á íbúðarhúsnæði á Suðurlandi nokkru sinni,“ segir Snorri Sigurfinnsson fasteignasali á Selfossi. Það er fasteignasalan Bær sem hefur milligöngu um söluna, en Snorri er eigandi hennar. 15-20 manns starfa á fasteignasölunni sem er með höfuðstöðvar í Reykjavík en útibú á Selfossi. Snorri Sigurfinnsson telur að það muni styrkja fasteignamark- aðinn fyrir austan fjall ef framboð á íbúðum til sölu og leigu í Reykjavík aukist ekki til muna. Fólk muni þá leita enn frekar hófanna á Sel- fossi og víðar á Suðurlandi. „Við verðum vör við vaxandi eftirspurn. Ekki með látum en fjölgun þinglýs- inga segir sína sögu,“ segir Snorri. Íbúðalánasjóður hefur samþykkt tilboð í íbúðirnar 44. Nú liggur fyrir að meta greiðslugetu væntan- legs kaupanda. Fái hann grænt ljós gætu íbúðirnar farið í útleigu fyrir vorið, segir Snorri Sigurfinnsson fasteignasali. ÞHH Snorri Sigurfinnsson. Eitt sameinar oddvita stjórnarflokkanna: við vorum kosin til að ... Lengra nær samkomulagið ekki. Sigmundur Davíð telur upp sitthvað og Bjarni annað eins. Allt eftir geðþótta. Það hentar til dæmis ekki núna að segja að flokkarnir hafi verið kosnir út á það að þjóðin kæmi að Evrópumálum. Við erum með meirihluta. Þjóðin kaus okkur. Við erum með meirihluta á þingi. Það er boðskapurinn. Flokkarnir sem eru á móti ESB aðild eru í miklum meirihluta á þingi. Þingræði heitir það – reyndar af verstu tegund. En lýðræði er það ekki. Stutt er í flokksræðið. Ríkisstjórnin stillir mönnum upp á tafl- borðinu. Þing gegn þjóð. Andmælin magnast. Það gæti endað í nýrri búsáhaldabyltingu. Ríkisstjórnin mun ekki komast hjá því að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu. 25 þúsund og ærið betur haft sagt sitt. Greinar- gerð utanríkisráðherra með tillögunni að draga umsóknina tilbaka er ótæk. Látið er í veðri vaka að þingmenn hafi kosið gegn samvisku sinni og þar með brotið gegn stjórnarskrá lýðveldisins. Ærumeiðandi segir stjórnarandstaðan, þingtækt segir forseti Alþingis. 7 af hverjum 10 vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra. Tillögu hans um að slíta viðræðum og loka fyrir. Þjóð- inni var lofað að kjósa um framhald viðræðnanna. Sjálfstæðisflokkurinn lofaði því fyrir Alþingiskoningar í fyrra að þjóðin yrði spurð. Nú segja formenn ríkisstjórnarflokkanna að það þurfi ekki að spyrja þjóðina frekar. Hún hafi sagt sitt þegar hún kaus (yfir sig) flokkana í fyrra. „Tek ekki þátt í þessu leikriti,“ sagði formaður Sjálfstæðisflokksins á kynningarfundi í Valhöll sl. þriðjudag. Tjaldið er fallið. Þjóðin á næsta leik. Hún hlýtur að semja nýjan texta. Þorlákur Helgason Þingræði, flokksræði, lýðræði. LEIÐARI eyravegur 48. fossvegur 8. Auglýsingasíminn er 578 1190 Netfang: auglysingar@fotspor.is S U Ð U R L A N D

x

Selfoss

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.