Selfoss - 27.02.2014, Side 9
927. febrúar 2014
sumarbústaðalöndum í Grímsnesi,
en einnig á Selfossi, Tumastöðum
í Fljótshlíð og sjálfsagt víðar. Enn
einn landneminn, hinn agnarsmái
glókollur, sækir ekki í fóðurgjafir,
frekar en okkar gamli skógarfugl,
músarrindillinn.
Talningar
Nú er nýlokið hinni árlegu vetrar-
fuglatalningu, þar sem fuglaáhuga-
menn, lærðir og leikir um land allt,
telja fugla á sínum heimaslóðum.
Það er Náttúrfræðistofnun sem
hefur haldið utanum þennan at-
burð frá upphafi árið 1952. Víða er
talið hér á Suðurlandi. Til dæmis er
strandlengjan öll frá Þjórsárósi í Her-
dísarvík talin, Heimaey öll og margir
staðir inntil landsins, svo sem Sog-
ið, Ölfusforir, hluti Ölfusár, Hvítár
og Rangánna, Tumastaðir, garðar
á Selfossi og svo mætti lengi telja.
Upplýsingar um talningar síðustu
12 ára má finna á: http://www.ni.is/
dyralif/fuglar/vetrarfuglar/
Það er augljóst að veturinn hefur
sinn sjarma og ekki hvað síst vegna
ríkulegs fuglalífs á stöðum sem eru
þeim hagstæðir og þeir ná sér í æti.
Fuglaskoðun er því hægt að stunda
á veturna, ekki síður en á öðrum
árstímum og þurfum við sunn-
lendingar ekki að sækja langt yfir
skammt, til að komast í návígi við
þessa fiðruðu vini okkar.
Ljósmyndir og texti: Jóhann Óli
Hilmarsson, www.johannoli.com
Gráhegri við opinn læk hjá Núpum í Ölfusi.
Silkitoppa í garði á Selfossi. Silkitoppan er vetrargestur, en mikil áraskipti
eru af komum hennar.
bjartmáfurinn er nettur og spengilegur þar sem hann vakir yfir æti í Þorlákshöfn.
Skrautlegur æðarkóngur í Þorlákshöfn.
Krossnefur á Selfossi. Hann er nú orðinn alltíður varpfugl í barrskógum á Suðurlandi.