Selfoss - 22.05.2014, Page 2
2 22. maí 2014
Börn og fjölskyldur eiga
að vera í 1.sæti í Árborg!
Hlutverk sveitarfélaga er að hlúa að velferð íbúa sinna og gæta að félagslegu rétt-
læti. Þar getur Árborg orðið í forystu
með því að standa vel að þjónustu
við fjölskyldur, svo hér sé gott að
búa með börn og gaman að vaxa
upp. Vellíðan fólks felst í samfélagi
þar sem fólk stendur saman og sýnir
hvert öðru virðingu og umhyggju.
Í Árborg er margt sem þarf að
bæta til þess að við getum boðið
ungum barnafjölskyldum samb-
ærileg lífskjör og annars staðar. Við
erum með lægstu endurgreiðslurnar
til foreldra sem nota þjónustu dag-
mæðra. Samfylkingin vill hækka
endurgreiðslurnar í 40.000 kr. ásamt
því að vinna að fjölgun leikskóla-
plássa svo börn komist yngri inn á
leikskóla. Í Árborg þarf að bjóða for-
eldrum fatlaðra barna upp á öflugri
stoðþjónustu. Foreldrar eiga ekki
að þurfa að sækja þessa þjónustu á
höfuðborgarsvæðið eins og nú er.
Íþrótta- og tómstundastarf
fyrir öll börn óháð efnahag
Virk þátttaka í félagsstarfi er hluti
af lífsgæðum barna. Árborg hefur
gott tækifæri til að verða í forystu á
því sviði með samstarfssamningum
við fjölbreytt félög í bæjarfélaginu
á sviði menningarmála, frístunda-
og íþróttastarfs. Þar má nefna öflug
félög á borð við ungmennafélög,
hestamannafélag, skáta, golfklúbb,
leikfélag, skákfélag og björgunar-
sveitir. Samfylkingin ætlar að halda
áfram markvissri uppbyggingu á að-
stöðu til íþróttaiðkunar og forgangs-
raða þeirri uppbyggingu í samráði
við íþróttafélög í sveitarfélaginu.
Frístundaskóli og
frístundastrætó
Við viljum bjóða upp á frístunda-
strætó sem jafnar aðgengi barna til
þátttöku í frístundum allsstaðar í
sveitarfélaginu því ekki geta allir
foreldrar staðið í stanslausi skutli.
Auk þess þarf að bæta almennings-
samgöngur innan sveitarfélagsins.
Við viljum koma á frístundaskóla
í samfellu við skólastarf í samstarfi
við íþrótta- og æskulýðsfélög, þar
sem börn geta stundað fjölbreytt
áhugamál, hvort sem það eru íþrótt-
ir, félagsstarf eða skapandi greinar.
Við viljum hækka frístundastyrki í
26.000 kr. á ári fyrir barn til þess að
stuðla að því að öll börn geti tekið
þátt óháð efnahag foreldra.
Frí námsgögn næsta haust
Árborg er í lykilaðstöðu til þess að
bjóða upp á framúrskarandi þjón-
ustu í leik- og grunnskólum sín-
um. Samfylkingin ætlar að leggja
grunnskólabörnum til frí námsgögn
frá og með hausti 2014. Slíkt jafn-
ar aðstöðumun og léttir foreldrum
lífið. Við ætlum að efla móður-
málskennslu fyrir börn sem eiga
annað móðurmál en íslensku og
viljum bæta tölvukost og upplýs-
ingakerfi skólanna.
Við þurfum jafnframt að standa
þétt við bakið á fjölskyldum ung-
menna sem eiga erfitt með að fóta sig
í námi og veita þeim strax úrræði til
að fá verðug hlutverk í samfélaginu.
Með samstarfi milli Árborgar og FSu
er hægt að auka samfellu í námi.
Við eigum að gefa nemendum í 9.og
10. bekk grunnskóla kost á að hefja
einstaklingsbundið list- eða verk-
greinanám til þessa að minnka líkur
á brotthvarfi og auka vægi slíks náms
í samræmi við áhuga nemendanna
og menntunarþarfa atvinnulífsins.
Arna Ír Gunnarsdóttir bæjarfull-
trúi og í 2.sæti S-lista í Árborg.
Morgunblaðið greinir frá því 12. maí sl. að af 12 fjölmennustu sveitarfélögum landsins hafi 3 verið rekin með halla á síðasta ári (2013). Eitt þeirra er Árborg, hin Reykjanesbær og Mosfellsbær.
Mogginn minntist ekki á að þessi sömu þrjú sveitarfélög hefðu öll verið
rekin með halla undir meirihlutastjórn Sjálfstæðisflokksins.
Það hefur mátt skilja á máli Eyþórs Arnalds, fráfarandi oddvita sjálfstæð-
ismanna í Árborg að hér væri allt á uppleið. „Við teljum að við séum að
auka gæði samfélagsins og þar með muni fasteignaverð hækka,“ sagði hann
á fundi flokksráðs Sjálfstæðismanna í apríl sl. En hvað hefur gerst?
Sama Morgunblað segir frá því 16. maí sl. að fasteignaverð hafi lækkað á
tveimur stöðum frá seinni hluta árs 2008 til fjórða ársfjórðungs 2013. Mest
hafi lækkunin orðið í Árborg eða um 10,2%. Það virðist ekki fara saman
gæði og gjörvileiki. Þannig fer um fleiri tölur sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur
dregið fram úr pússi sínu í Árborg. Þar hefur ríkt forsendubrestur. Réttar
tölur sem gefa glögga mynd af stöðu mála í Árborg snúa á allt annan veg.
Það hefur vissulega tekist að greiða niður skuldir. Það lá alltaf fyrir að yrði
að einbeita sér að því. Það er ekki rekstur bæjarins sem hefur stjórnað því
heldur miklu fremur auknar „álögur“ á íbúa. Skuldir á hvern íbúa hafa ekki
lækkað. Jákvæðar tölur úr rekstri eru allar fengnar að láni hjá fráveitum
og vatsnveitu bæjarins. Peningum sem ekki eru á lausu skv. sveitarstjórn-
arlögum. Í fyrra voru t.d. tekjur af fráveitum og vatnsveitu 462 milljónir
króna. Og sáralitlar framkvæmdir. Framlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga
hefur stórum aukist og nemur nú um 20% af heildartekjum sveitarfélagsins.
Á uppgangstímum sveitarfélagsins fjölgaði nemendum í leik og grunnskól-
um gífurlega. Það varð til þess að byggja varð tvo grunnskóla og nokkra
leikskóla á þeim vöktum. Þá var fólk spennt að flytja inn í sveitarfélagið.
Fasteignaverð varð hærra á Selfossi en á Akureyri. Það sagði nokkuð um
samkeppnishæfni sveitarfélagsins. Nú hefur fasteignaverð lækkað á allri
vakt Sjálfstæðisflokksins. Það segir sína sögu. Nú fjölgar nemendum í
grunnskólum ekki neitt. Nákvæmlega jafn margir nemendur eru í grunn-
skólum í Árborg á skólaárinu 2013-2014 og voru í fyrra. Íbúasamsetning
gefur ótvírætt til kynna að ungum foreldrum fækki sem hlutfall af heild.
Því miður. Það hefur ekki verið uppgangur á vakt Sjálfstæðisfloksins í
Árborg. Framkvæmdir hafa verið næstum engar. Það er rétt núna á síðustu
metrunum sem kosningavíxlar líta dagsins ljós.
Hvað er þá til ráða? Ekki skortir framboð á flokkum í sveitarstjórnarkosn-
ingunum. Og ekki vantar spennuna í skoðanakannanir þar sem sáralitlu
munar milli Samfylkingar, Bjartrar Framtíðar, Vinstri grænna og Fram-
sóknar þegar kemur að því að álykta hvaðan síðasti fulltrúi til bæjarstjórnar
muni koma. Minnihlutinn í bæjarstjórn Árborgar var afar kurteis síðasta
kjörtímabil. Andmæltu fáu og sýndu sjálfstæðismönnum yfirmáta um-
burðarlyndi. Nú er það spurningin hvað kjósendur hugsa sér að gera í
kjörklefanum annan laugardag. Veltur síðasta atkvæðið úrslitum um hvaða
meirihluti verður myndaður í Árborg?
Þorlákur Helgi Helgason
Hvað tekur við?
LEIÐARI
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Flott föt fyrir flottar konur
stærðir 38-58
Flugsögusafn og samgöngumiðstöð!
Eggert Valur Guðmundsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinn-
ar viðraði þá hugmynd í ávarpi
á flugdegi Flugklúbbs Selfoss að
byggja upp samgöngumiðstöð í
Bjarkarlandinu rétt við flugvöllinn.
Eggert Valur taldi margt mæla
með samgöngumiðstöðinni. Það
myndi rýma vel við flugsögusafnið
sem nú yrði að raunveruleika.
Bjarkarlandið væri ákjósanlegt.
Landrými væri nægt, landið
væri í eigu sveitarfélagsins. Bein
tenging og örstutt í flugvöllinn
myndi styrkja reksturinn. Rútu-
og strætóstoppistöð væri í örskots
fjarlægð. Íbúabyggð þegar skipu-
lögð allt í kring. Góð tenging við
suðurstrandarveg. Skipulagt tjald-
stæði innan seilingar. Taldi hann
engan vafa á því að hraða bæri
endurskoðun skipulags. Hygðist
hana kynna hugmynd sína um
samgöngumiðstöðina strax í bæj-
arstjórninni. ,,Við eigum að taka
flugið,“ segir Eggert Valur í við-
tali við Selfoss-Suðurland. „Bæði
munu vekja athygli, verða aðdrátt-
arafl fyrir sveitarfélagið og skapa
atvinnu beint og óbeint í tengslum
við ferðamennsku. Æfingaflugið
kemur líka austur, trúi ég. Þetta er
aðeins spurning um tíma og tíminn
vinnur með okkur.”
Fyrr um flugdaginn höfðu full-
trúar Íslenska flugsögufélagsins,
Sveitarfélagsins Árborgar og Flug-
klúbbs Selfoss sammælst um að
stofna flugsögusafn á Selfossi. Og
undirritað vilja yfirlýsingu því til
staðfestingar. Rætt er um að flug-
sögusafnið fái aðstöðu í þrjú þúsund
fermetra nýbyggingu sem muni rísa
á flugvallarsvæðinu.
Flugklúbbur Selfoss hélt upp á 40
ára afmæli sl. laugardag. Með fjöl-
breyttri flugsýningu sem fjöldi fólks
gat fylgst með.
Mynd: ÞHH
Samfylkingin ætlar að
leggja grunnskólabörnum
til frí námsgögn frá og með
hausti 2014. Slíkt jafnar
aðstöðumun og léttir foreldr-
um lífið. Við ætlum að efla
móðurmálskennslu fyrir börn
sem eiga annað móðurmál
en íslensku og viljum bæta
tölvukost og upplýsingakerfi
skólanna.
arna ír Gunnarsdóttir.
Bæjarfulltrúarnir Eyþór arnalds og Eggert Valur Guðmundsson undirrituðu
viljayfirlýsinguna ásamt Sigurjóni Valssyni, formanni Flugsögufélagsins og
Helga Sigurðssyni, formanni Flugklúbbs Selfoss.
margir lögðu leið sína út á flugvöll
á Selfossi. Þær stöllur voru ekki síst
forvitnar að sjá þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar með eigin augum.