Hafnarfjörður - Garðabær - 08.08.2014, Qupperneq 4

Hafnarfjörður - Garðabær - 08.08.2014, Qupperneq 4
4 8. ágúst 2014 Sumarstarfsfólk á Ísafold Í sumar fengu starfsfólk og íbúar á Ísafold í Garðabænum liðs við sig þrjá starfsmenn sem eru í sumarátaki Garðabæjar fyrir ung- menni. Þar á meðal eru þau Hörður Fannar Þórsson, Íris Hafþórsdóttir og Sigurjón Daði Sigurðsson, en birt var viðtal við þau á vefsíðu Ísafoldar fyrr í sumar. Þar segir meðal annars að þeim hafi þótt vinnan ánægjuleg og sagði Hörður að vinnan hafi verið þægileg og andrúmsloft gott og Sig- urjón talaði um að sér hafi fundist gaman að vera í kringum heimilisfólk og dagdvalargesti. Íris tók undir það og sagði að það hafi verið rosalega gaman í sumar, þetta sé mjög gefandi vinna og hún finni hvað verið sé að gera mikið gagn, jafnvel bara með nærveru. Kynntu spjaldtölvur Verkefni þeirra á Ísafold voru fjölbreytt, segir í umfjölluninni. „Við höfum verið að aðstoða í sjúkraþjálfun og dagdvöl, verið með gönguhópa, upplestra og aðstoðað í bingó og boccia“ er haft eftir Herði. „Við höfum líka unnið ýmis verk eins og uppvask og frágang, fara með rusl, aðstoða við verkefni sem tengj- ast húsnæðinu, garðvinnu og fleira“ sagði Sigurjón við. Íris greinir frá því á vefsíðunni frá því að þau hafi verið að kynna nýju I-Padana fyrir heim- ilisfólki og dagdvalargestum og sýna hvaða möguleika þeir bjóða upp á. Gönguhóparnir segja þau að hafi verið skemmtilegastir; fólk hafi verið ánægð með þá og góð tilbreyting, þrátt fyrir veður. Íris nefndi sérstaklega saumaklúbbana. Kvíða ekki ellinni Þremenningarnir segjast vera sammála um að sumarið hafi verið lærdóms- ríkt. „Ég hef lært að ég þarf alls ekki að kvíða ellinni“ segir Íris í samtali við vefinn og segist þakklát fyrir tækifærið. „Eins mikið og ég hef kannski gefið þeim, þá hafa þau gefið mér rosalega mikið í staðinn“. Sigurjón segist annars hafa lært uppvaxt og ýmislegt fleira, en Hörður nefnir sérstaklega að lærdóms- ríkt hafi verið að hlusta á íbúa ræða um lífið og tilveruna. HAFNARFJÖRÐUR / gARÐAbæR 14. TbL. 4. ÁRgANgUR 2014 Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@fotspor.is. framkvæmdastjóri: Ámundi Steinar Ámundason, netfang: as@fotspor.is. auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. Auglýsingasími 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is, Veffang: fotspor.is, Ritstjóri: Ingimar Karl Helgason, sími: 659-3442 netfang: ingimarkarlhelgason@gmail.com, Matarblaðamaður: Svavar Halldórsson. Sími. 869-4940. Netfang. svavar@islenskurmatur.is, Umbrot: Prentsnið, Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 13.500 eintök. dreifing: Póstdreifing. Fríblaðinu er dreiFt í 13.500 e intökum í allar íbúðir í HaFnarFirði / Garðabæ Fulltrúar minnihlutans í bæjarráði Hafnarfjarðar gagnrýna aðferð við ráðningu bæjarstjóra. Fullyrt er að þrátt fyrir sameiginlegan vettvang til að fjalla um umsækjendur, hafi meirihlutinn í bakherbergi, tekið ákvörðun um að ráða bæjarstjóra. Oddviti Sjálfstæðisflokksins blæs á þetta í samtölum við fjölmiðla. Þetta er áhugavert, því í orðum oddvitans og ekki síður bókun oddvita Samfylk- ingarinnar í bæjarráði er fólgið að annar segir ósatt. Kannski fæst botn í þetta einhvern tímann. Fulltrúar minnihlutans virðast hins vegar sannfærðir um að Haraldur L. Haraldsson, sem ráðinn var, sé vel hæfur til starfans, enda reyndur maður við stjórnvölinn hjá sveitarfélögum. Gagnrýni þeirra virðist sprottin af vinnubrögðum meirihlutans í málinu. Það er ekki gott til þess að hugsa ef nýr meirihluti, með Bjarta framtíð inn- anborðs, sem öðru fremur talar um breytt og bætt vinnubrögð, skuli byrja á baktjaldamakki. Það er ekkert sérstaklega bjart við það. En svo er annað. Það skiptir í sjálfu sér ekki höfuð máli hvort laun bæjar- stjóra hækka um 20 eða 30 prósent. Spyrja þarf hvers vegna hækka þarf laun bæjarstjórans um tugi prósenta yfir höfuð. Ef marka má Rósu Guðbjartsdóttur voru laun bæjarstjóra um 1.250.000, eða 1,25 milljónir á mánuði. Ætti það ekki að duga nokkurn veginn hvaða launamanni sem er? Samkvæmt minnisblaði sem birt er með fundargerð bæjarráðs þar sem gengið var frá ráðningunni segir að launin eigi að vera 1.480.000 krónur á mánuði. Þetta er hækkun upp á 230.000 krónur á mánuði, eða ríflega 2,8 milljónir króna á ári. Bæjarstjórinn er ráðinn út kjörtímabilið, með fyrirvara um sex mánaða uppsagnarfrest. Á kjörtímabilinu öllu leggur einungis hækkunin sig á ríflega 11 milljónir króna. Hvaða óbreyttur launamaður sem er yrði vafalaust alsæll með 11 milljóna króna bónus á fjórum árum. Rétt eins og minnihluti bæjarráðs segir í bókun sinni sem fjallað er um hér í blaðinu: Það er sannarlega mjög umhugsunarvert hvaða skilaboð er verið að senda með þessari hækkun. Hvað á bæjarbúum að finnast? Á tímum þegar almennu launafólki eru boðin 2,8 prósent ofan á kaupið, sem lítið var fyrir, menntastéttir þurfa að leggja niður störf til þess að fylgja sanngjörnum kröfum sínum eftir, á meðan þau glíma á sama tíma við niður- skurð og gjaldskrárhækkanir, er ekki hægt að segja að svonalagað skapi gott fordæmi. Ekki frekar en stórfelldar hækkanir á launum stjórnenda fyrirtækja, sem fjallað hefur verið um í tekjublöðum og fréttum. Kannski er þetta bara jákvætt. Kannski eru skilaboðin þau að stjórnin sem fór frá í síðustu kosningum hafi staðið sig svo vel í fjármálum bæjarfélagsins að nú sé nóg til skiptanna? Eiga þá leikskóla- og grunnskólakennarar, eða aðrir starfsmenn bæjarins von á 20 prósenta launahækkun? Eða meiru. Eiga þeir starfsmenn von á 11 milljóna króna innspýtingu í heimilisbókhaldið úr sjóðum bæjarins? Er von að spurt sé? Ingimar Karl Helgason 11 milljónir Leiðari Snyrtilegustu lóðirnar í Garðabænum Eigendur sjö einbýlishúslóða og einnar fjölbýlishúsalóðar fengu á dögunum afhentar viðurkenn- ingar fyrir snyrtilegt umhverfi 2014. Jafnakur var valin snyrtilegasta gatan og viðurkenningar fyrir lóð fyrirtækis eða stofnunar fékk fyrirtækið Þykkva- bæjar, Austurhrauni 5. Forsvarsmenn Stjörnunnar og garðyrkjustjóri Garða- bæjar fengu viðurkenningu fyrir snyrti- legt opið svæði á Stjörnutorgi. Einbýlishúsalóðirnar sem veittar voru viðurkenningar fyrir í ár eru: Ásbúð 26, Bæjargil 65, Gullakur 6, Norðurtún 9, Smáratún 17, Sunnakur 2 og Sunnuflöt 3. Auk þess var veitt viðurkenning fyrir fjölbýlishúsalóðina við Löngulínu 33-35. Umfjöllun dóm- nefndar má finna á vef Garðabæjar, en þaðan koma þessar myndir af lóðunum sem fengu viðurkenningu. Hörður, Íris og sigurjón. ásbúð. Bæjargil. sunnuflöt. Bæjargil. Norðurtún. smáratún.

x

Hafnarfjörður - Garðabær

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hafnarfjörður - Garðabær
https://timarit.is/publication/1080

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.