Hafnarfjörður - Garðabær - 17.10.2014, Síða 4
4 17. Október 2014
Sýkillinn Svakalegi
Í erindi sem Pasi Sahlberg flutti á ráðstefnunni Future Teachers í ágúst s.l. varaði hann við sýkl-
inum sem geisar um skólakerfi heims-
byggðarinnar þar á meðal í Banda-
ríkjunum, Englandi, Ástalíu, Asíu og
Svíþjóð.
Hann segir það hafa komið öllum
í opna skjöldu þegar í ljós kom fyrir
rúmum áratug síðan að Finnland væri
með bestu skóla í heimi. Með tilliti til
þess að Finnar líta á menntun sem
almenningseign, gæði sem allir hafa
ókeypis aðgang að, kom þetta á óvart.
Þar eru ekki stöðluð próf né einka-
skólar sem taka þátt í samkeppni.
Þegar Sahlberg skoðar þjóðir heims
segist hann sjá hvernig samkeppni,
frjálst val og mælingar á nemendum
og kennurum eru nýtt sem aðferðir
til að bæta menntun. Þessi alþjóðlega
markaðsvæðing hefur komið mörgum
opinberum skólum í Bandaríkjunum
og víðar í vanda, en það á ekki við um
Finnland.
Það má spyrja hvað hafi gert
finnsku skólana svo sérstaka. Svarið
hefur komið mörgum á óvart, segir
Sahlberg. Í fyrst lagi þá hafa Finnar
aldrei stefnt að því að verða bestir í
menntun, heldur hefur markmiðið
verið góðir skólar fyrir öll börn. Með
öðrum orðum þá skiptir jafnræði í
menntun meira máli en samkeppnin
um toppinn.
Í öðru lagi líta Finnar kennslu alvar-
legum augum og hafa því gert kröfur
um að allir kennarar njóti góðrar
þjálfunar í akademiskum háskólum.
Litið er svo á að allir kennarar eigi
að njóta faglegs sjálfstæðis og trausts
í störfum sínum. Þetta hefur leitt til
þess að kennsla er eftirsóttur starfs-
vettvangur meðal ungra Finna. Í dag
fer 30 sinnum meiri tími til faglegar
þróunar kennara og skólastjórnenda
en í það að prófa nemendur.
Í þriðja lagi þá hafa Finnskir
skólamenn markvisst lært af reynslu
annarra þjóða hvað varðar skóla-
þróun. Bandaríkin hafa verið Finnum
sérstakur innblástur allt frá dögum
John Dewey. Kennsluaðferðir eins og
samvinnunám, lausnarmiðað nám
og portfolio eru dæmi um nálganir
sem eru mjög algengar í finnskum
kennslustofum, og eiga rætur í Banda-
ríkjunum.
Sahlberg segir það hafa vakið athygli
hans hve menntakerfum þjóða svipar
mikið saman. Umbætur menntamála
í mismunandi löndum fylgja einnig
svipuðu mynstri sem Sahlberg telur
vera svo augljóst að hann kallar það
„The Global Educational Reform
Movement“ eða GERM þ. e. sýkil.
Þetta er eins og faraldur sem dreif-
ist um menntakerfinn líkt og sýkill.
Hann dreifist með menntamönnum,
fjölmiðlum og stjórnmálamönnum.
Skólakerfi fá lánaðar stefnur hvert hjá
öðru og smitast. Afleiðingarnar eru
þær að skólarnir veikjast, kennurum
líður illa og nemendur læra minna.
Samkvæmt Sahlberg hefur sýkill-
inn þrjú megin einkenni.
Einkenni nr. 1. Aukin samkeppni
innan skólakerfa, milli skóla, milli
kennara, milli nemenda. Þeir sem trúa
á mátt samkeppninnar halda því fram
að skólarnir þurfi aukið sjálfstæði en
því fylgir sjálfkrafa meiri krafa um
að skólarnir standi skil á starfi sínu.
Það er gert með stöðluðum prófum,
eftirliti og mati á gæðum kennara.
Þegar áherslan verður á samkeppni
þá dregur úr samvinnu.
Einkenni nr. 2. Það er litið á for-
eldra sem viðskiptavini og áhersla
er á frelsi foreldra til að velja skóla
fyrir börnin sín. Þetta kallar á mark-
aðsvæðingu skólanna. Alþjóðlegar
rannsóknir hafa sýnt að þjóðum sem
ganga hvað lengst í þessu fer aftur í
námsárangri og munurinn milli ár-
angurs skólanna eykst.
Einkenni nr. 3. Meiri krafa til
skólanna og aukinn ábyrgð er sett á
þá og kennara um að skila árangri.
Fylgjendur þessarar hugmyndafræði
líta svo á að með því að gera kennara
ábyrga fyrir árangri nemenda þá muni
árangur nemenda aukast. Stöðluð próf
eru sú aðferð sem mest er notuð til að
leggja mat á gæði skóla og kennara.
Rannsóknir hafa sýnt að áherslur á
stöðluð próf stuðla að kennsluháttum
sem miða að því að undirbúa nem-
endur undir próf og draga jafnframt
úr áherslum á uppeldishlutverk skól-
ans.
Eins og fram kom á fyrrnefndri
ráðstefnu þá hvetur Sahlberg Norður-
löndin til að verjast sýklinum með því
að leggja áherslu á styrkleika sína. Þar
nefndi hann sérstaklega samábyrgð,
samvinnu, félagslegan jöfnuð, sköpun
og frumkvæði. Norðurlöndin eiga að
hans mati að vinna meira saman að
því að greina styrkleika sína og þróa
nám og kennslu sem eflir þessa þætti.
Það eru þeir sem gera okkur sterk á
hinum alþjóðlega vinnumarkaði. Í
rauninni er þetta sama hugmynda-
fræðin og sú sem leggur áherslu á að
greina styrkleika hvers einstaks nem-
anda og leggja áherslu á eflingu þeirra
í stað þess að leita að veikleikunum og
beina allri athyglinni að þeim.
Birtist áður á www.kritin.is
HAFNARFJÖRÐUR / gARÐAbæR
19. TbL. 4. ÁRgANgUR 2014
Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466,
netfang: amundi@fotspor.is. framkvæmdastjóri: Ámundi Steinar Ámundason, netfang:
as@fotspor.is. auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík.
Auglýsingasími 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is, Veffang: fotspor.is, Ritstjóri:
Ingimar Karl Helgason, sími: 659-3442 netfang: ingimarkarlhelgason@gmail.com,
Matarblaðamaður: Svavar Halldórsson. Sími. 869-4940. Netfang. svavar@islenskurmatur.is,
Umbrot: Prentsnið, Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 13.500 eintök. dreifing: Póstdreifing.
Fríblaðinu er dreiFt í 13.500 e intökum
í allar íbúðir í HaFnarFirði / Garðabæ
Fátt hefur verið meira rætt í vikunni en talan sem hér er í fyrirsögn. Fullyrt hefur verið í fjölmiðlum að þetta sé sú tala sem fjármálaráðu-neytið áætli að manneskja verji í máltíð, í forsendum frumvarps um
hækkun matarskattsins.
Fáum sögum fer hins vegar af því hvaðan talan er komin og hvernig hún varð
til. Er talan rétt?
Nú vil ég taka fram að ég er mjög andvígur hækkun á neðra þrepi virðis-
aukaskattsins. Ríkisstjórn sem leggur þetta til er að lýsa yfir stríði á hendur
öllu almennu launafólki. Þótt eitthvað lækki á móti, þá eru fullyrðingar um
áhrif á heildarhaginn brenndar marki óskhyggju. Hitt blasir við að aðgerðin
eykur ójöfnuð.
Í frumvarpi fjármálaráðherra eru tekin nokkur dæmi af ólíkum heimilum með
ólíkar tekjur. En ekkert dæmanna lýsir láglaunafólki eða atvinnulausum. Ekkert
dæmi lýsir fjárhagsstöðu þeirra sem þurfa að draga fram lífið á örorkubótum
eða fjárhagsaðstoð sveitarfélaga. Í Hafnarfirði einum erum 220 manns í síðast
nefnda hópnum.
Því lægri sem tekjurnar eru, því hærra hlutfall þeirra fer til þess að kaupa mat.
En það var þessi tala.
Talan 248 krónur finnst ekki í sjálfu frumvarpinu. Heldur ekki í greinargerðinni.
Þegar reiknað er útfrá dæmunum í þar, þá verður talan ekki fundin heldur.
Því er svo við að bæta að í dæmum fjármálaráðherrans eru matarinnkaup
beint úr búðinni sérstakur liður. Önnur matarútgjöld fólks eru tiltekin undir
öðrum lið í töflum greinargerðarinnar, líka mötuneyti, þótt ekki hafi það
komið fram í fréttum vikunnar.
Það er því rétt hjá fjármálaráðherra þegar hann segir „Hvergi segir að venjuleg
máltíð kosti 248 krónur.“
En svo má líka spyrja. Hafi Bryndís Loftsdóttir, varaþingmaður Sjálfstæð-
isflokksins eða blaðamaður Fréttablaðsins sem fyrst fleytti tölunni, reiknað
skakkt. Er þessi tiltekna krónutala eitthvert aðalatriði? Hvað ef hún hefði verið
330 krónur sem kannski er nálægt verði á skólamáltíð í grunnskóla? Eða 650
krónur, eins og heimsend máltíð til eldri borgara í Hafnarfirði?
Enda þótt fjármálaráðherra hafi rétt fyrir sér með eina ranga tölu í umræðunni,
þá blasir við að hann hefur rangt fyrir sér um afleiðingar aðgerðarinnar. Hann
vanmetur áhrifin af hækkun skattins á útgjöld þúsunda og jafnvel tuga þúsunda
íslenskra fjölskyldna. Það verða seint taldar góðar fréttir.
Ingimar Karl Helgason
248 krónur
Leiðari
Höfundur er
Nanna Kristín Christiansen,
ritstjóri Krítarinnar
Umboðsmaður Hafnfirðinga
Á síðasta fundi bæjarráðs lögðum við fram tillögu um að stofnað verði embætti umboðsmanns
Hafnfirðinga sem bæjarbúar geti leitað
til um leiðbeiningar, ráðgjöf og álit ef
þeir eru ósáttir við málsmeðferð og
ákvarðanatöku bæjarins í þeirra málum.
Hafnarfjörður hefur verið braut-
ryðjandi íslenskra sveitarfélaga í op-
inni stjórnsýslu. Á síðasta kjörtímabili
ákvað bæjarstjórn að birta ætti gögn
með fundargerðum allra ráða, nefnda
og bæjarstjórnar. Þannig geta bæjarbúar
fylgst betur með. Nú er rétti tíminn til
að stíga næsta skref í átt að opnari,
vandaðri og gagnsærri stjórnsýslu með
því að stofna embætti umboðsmanns
Hafnfirðinga.
Af hverju umboðsmaður?
Tillagan gerir ráð fyrir að hlutverk um-
boðsmanns Hafnfirðinga sé að leiðbeina
um mögulegar kæruleiðir og heimildir
til að mál séu tekin til endurskoðunar.
Hlutverk umboðsmanns væri líka að
útskýra og aðstoða við túlkun á efnis-
legu innihaldi ákvarðanatöku Hafnar-
fjarðarbæjar og jafnvel að bjóða sátta-
miðlun í þeim tilvikum sem líkur eru
á að ágreining megi sætta með slíkri
aðkomu. Umboðsmaður hefði líka stöðu
til að rannsaka einstök mál og skila áliti
um lögmæti þeirra og hann gæti tekið
mál til athugunar að eigin frumkvæði.
Jafnframt væri mikilvægt að umboðs-
maður Hafnfirðinga gæti tekið á móti,
rannsakað og komið á framfæri upp-
lýsingum frá starfsfólki, viðsemjendum
bæjarins og öðrum um réttarbrot, van-
rækslu, mistök eða óeðlileg afskipti kjör-
inna fulltrúa af málum í stjórnsýslu og/
eða þjónustu Hafnarfjarðarbæjar.
Bætt aðgengi
að stjórnvöldum
Með tilkomu umboðsmanns Hafn-
firðinga yrði aðgengi bæjarbúa að
stjórnvöldum bætt og tryggt að allir
Hafnfirðingar og viðsemjendur
bæjarins geti fengið leiðbeiningar,
upplýsingar og komið á framfæri
athugasemdum og kvörtunum. Um-
boðsmaður á að vera til staðar fyrir
fólkið í bænum og vinna gegn þoku-
kenndri stjórnsýslu, sérhagsmunagæslu
og spillingu. Umboðsmaður á þannig
líka og ekki síður að stuðla að aukinni
skilvirkni í stjórnsýslu bæjarins, jafn-
ræði og betri nýtingu fjármuna.
Vonumst við til að hægt verði að ná
samstöðu meðal fulltrúa allra flokka í
bæjarstjórn um að málið.
Höfundar eru:
Guðrún Ágústa
Guðmundsdóttir
Adda María
Jóhannsdóttir
Gunnar Axel
Axelsson
Hljóðdeyfir á álverið. Vegfarendur kynnu að hafa tekið eftir krönum við híf-
ingar við Álverið í Straumsvík nú í vikunni. Unnið hefur verið að endurnýjun
lofthreinsistöðva, en það er liður í að auka framleiðslugetu, samkvæmt
upplýsingum frá álverinu. tilgangur þessa er að draga úr flúorlosun. Hávaði
hefur valdið ónæði sums staðar á lóð álversins og var því ákveðið að panta
hljóðdeyfa, enda þótt hávaðamælingar færu ekki fram úr mörkum starfsleyfis.
Hljóðdeyfirinn er 8 tonn. Hann var hífður yfir kerskála keflavíkurmegin og
svo slakað ofan í strompinn. Verkið gekk vel er okkur sagt og tók innan við
klukkustund að koma hljóðdeyfinum fyrir. Sams konar verk verður unnið
Hafnarfjarðarmegin á næstu dögum.