Hafnarfjörður - Garðabær - 17.10.2014, Side 6
17. Október 2014
Hefðbundnir og óhefðbundnir skartgripir
„Gullsmiðir vinna að margs konar verkefnum, mest er þó unnið að skarti,
en nafnið Prýði lýsir vel vinnuumhverfi gullsmiða, þ. e. allt sem prýðir
manninn, heimilið og umhverfi.“ segir Halla Bogadóttir gullsmiður. Á
morgun opnar sýningin Prýði í Hönnunarsafni Íslands en sýningin er
samtarfsverkefni safnsins og Félags íslenskra gullsmiða sem fagnar 90 ára
afmæli á árinu.
Smíðsgripir fátíðari
Á sýningunni verða verk eftir 40 gull-
smiði á öllum aldri, bæði þeir sem
unnið hafa við fagið í áratugi og einnig
nýútskrifaða. Ætlunin er að sýna þá
breidd sem ríkir í íslenskri gullsmíði
í dag og fengu þeir sem eiga verk á
sýningunni frjálsar hendur varðandi
muni sýninguna og máttu einnig velja
gripi úr eigin safni. Þannig fá gestir
að sjá hver eru sérkenni hvers og
eins. Skartgripirnir á sýningunni eru
annars vegar hefðbundnir hvað varðar
efnisval en einnig má þar sjá gripi úr
óhefðbundnari efnum og formum.
Smíðisgripi eða korpus verða einnig
til sýnis. „Korpus , stærri munir eins
og kirkjumunir eru fátíðari í dag en
var hér á árum áður. Ástæðan er fyrst
og fremst verð á slíkum gripum og
verðmætamat. Í dag er hráefnisverð
á silfri hærra en oft áður og svo eru
handverkið dýrara en sú verksmiðju-
framleiðsla sem gullsmiðir keppa
við.“
Tískan fer í hringi
Halla segir miklar tískubylgjur vera
í umhverfi gullsmiða sem sjáist á
framboðinu á hverjum tíma. Í dag
séu margir hlutir dregnir fram sem
smíðaðir voru fyrr á tímum, þannig
fari tískan í hringi. Aukin tækni í
umhverfi gullsmiða hafi þó áhrif á
hönnunina og það sem í boði er.
Félag með sögu
Í Félagi íslenskra gullsmiða eru um það
bil 80 skráðir félagsmenn og áætlar
Halla að um 50 þeirra starfi við fagið.
„Þess má geta að Félag íslenskra gull-
smiða er eitt elsta iðnaðarmannafélag
á landinu og fundargerðir félagsins frá
upphafi hafa varðveist.“
Sýningin Prýði opnar kl. 15 á morgun
laugardag og stendur til 25. janúar.
Rúnar
Geirmundsson
Þorbergur
Þórðarson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Fjarðarási 25 • 110 Reykjavík • Sími 567 9110 • 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Fjölskyldufyrirtæki
í 21 ár
Þær kistur sem við bjóðum, eru framleiddar í Danmörku
og hafa staðist allar væntingar um fagleg vinnubrögð
og góðan frágang.
Markmið okkar
hefur ávallt verið
að veita bestu faglegu
þjónustu varðandi
undirbúning
og framkvæmd útfarar.
6
menningin
Hildur
björgvinsdóttir
Helgi
Björns í
Bæjarbíói
Helgi Björnsson fagnar þriggja áratuga söngafmæli þessa dagana og heldur upp á tíma-
mótin með 30 tónleikum víðs vegar
um landið. Hann kemur í Bæjarbíó í
Hafnarfirði 19. október klukkan 21.
Yfirskriftin er „Kvöldstund með Helga“.
Þar rifjar hann upp ferilinn í tali og
tónum, segir frá tilurð laganna, rifja
upp einhverjar rokksögur og tekur
fram gamlar poppflíkur og nokkur
góð dansspor.
Húsið verður opnað klukkan átta en
miðinn kostar 2.990.
30 ár eru síðan fyrsta hljómplatan
kom út með Helga björns, en það var
Grafík - Get ég tekið sjéns. Þar voru
m.a. lögin Mér finnst rigningin góð
og Þúsund sinnum segðu já. Helgi
hefur einnig sungið í Síðan Skein Sól,
reiðmönnum Vindanna og einnig átt
sólóferil í tónlist.
Fyrsta verkefni ungmennadeildar Gaflaraleikhússins:
Heili hjarta typpi
Framtíðin, ungmennadeild Gaflaraleikhússins, frum-sýnir nýtt íslenskt verk, „Heili
hjarta typpi“ 24. október næstkom-
andi. Verkið er eftir tvo tvítuga pilta
en Björk Jakobsdóttir leikstýrir.
Verkið fjallar um 3 stráka sem eru
að reyna að semja handrit saman.
Verkið tekur á skemmtilegn máta
á tilverukreppu þeira eftir mennta-
skóla. Hvernig á handrit framtíðar-
inna að verða, segir í kynningu á
verkinu. Heili hjarta og typpi eru
ekki alltaf sammála og sitt sýnist
hverjum.
Framtíðin stefnir að því að setja
upp 1-2 sýningar á ári sem samdar
eru og leiknar af ungmennum.
Í janúar verður svo sýnt verkið
Konubörn. Höfundar eru sex stelpur,
en munu gefa „drepfyndna innsýn í
heim unglingsstúlkna,“ segir í kynn-
ingu á framtakinu.
Gaflaraleikhúsið fetar hér
ótroðnar slóðir með sérstakri
unglingadeild, en leikhúsið stóð á
síðasta ári að metsölusýningunni
Unglingnum. Verkið var gríðarlega
vel sótt, en þúsundir sáu verkið á
sviði og hlaut það jafnframt tvær
Grímutilnefningar, auk þess sem
Ríkissjónvarpið mun ætla að sýna
verkið í vetur.