Hafnarfjörður - Garðabær - 17.10.2014, Síða 14
14 17. Október 2014
Vegna þess að ég er stelpa
Í jafnréttis- og kynjafræðslu hafa nemendur 7. bekkjar í Öldutúnsskóla
fengið kynningu á stöðu og réttindum stúlkna í þróunarríkjunum. Saga
pakistönsku stúlkunnar Malölu Yousafzai var skoðuð sérstaklega.
Saga hennar hefur vakið heims-
athygli, en hún varð fyrir árás öfga-
manna fyrir það eitt að vilja ganga
í skóla.
Malala fæddist 12. júlí 1997 og er
17 ára. Hún er úr Khyber Pakhtunk-
hwa héraði í Norð-vestur Pakistan,
en Talibanar sem fóru með völdin í
héraðinu bönnuðu stúlkum að ganga
í skóla. Hún hóf að skrifa blogg á vef-
síðu BBC þegar hún var 11 ára, undir
dulnefni, þar sem hún lýsti lífinu
undir stjórn Talibana.
Fyrir tveimur árum þegar hún var
á leiðinni til skóla var hún skotin
þremur skotum. Hún særðist lífs-
hættulega, en lifði árásina af. Hún
var í kjölfarið flutt til Englands þar
sem hún býr nú og les undir próf, ef
marka má breska fjölmiðla.
Barátta hennar hefur vakið heims-
athygli og ekki síst ræða sem hún flutti
á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna
í fyrra, þar sem hún kallaði eftir því að
allir fengju aðgang að menntun. Það var
svo á föstudaginn var sem tilkynnt var
að hún hlyti Friðarverðlaun Nóbels í ár.
Óvænt tíðindi
„Fréttin um Nóbelsverðlaunin kom bara
á föstudagsmorgninum, þegar við vorum
að ljúka verkefninu,“ segir Anna Lára
Pálsdóttir, kennari í 7. Bekk Öldutúns-
skóla.
Anna Lára segir að krakkarnir séu
mjög áhugasamir um verkefnið. Í þessu
tilviki hafi þau tengt sérstaklega vel við
Malölu, en hún var á aldur við þau þegar
hún byrjaði að skrifa um ástandið í
heimalandinu.
Bókin Ég, þú og við öll eftir Kolbrúnu
Önnu Björnsdóttur og Fatimu Hossaini
er notuð við kennsluna, en í henni er
einmitt kafli um Malölu. En í jafnréttis-
fræðslunni hefur sérstaklega verið fjallað
um stöðu stúlkna í mörgum löndum
heims, og segir Anna Lára að fræðsla
um að stúlkur fái ekki að ganga í skóla,
séu neyddar í hjónabönd eða fái jafn-
vel aðeins að borða afganga, hafi vakið
jafnaldra þeirra mjög til umhugsunar.
Hér má sjá nokkrar myndanna úr ver-
kefni krakkanna í Öldutúnsskóla sem
birtar eru með góðfúslegu leyfi.
Með hverri pantaðri ferð styrkir þú verkefni Krabbameins-
félagsins til að berjast gegn krabbameinum hjá konum.
Af því tilefni höfum við sérmerkt bílana okkar enn á ný
með bleikum taxaljósum
og munu bílstjórarnir taka fagnandi á móti þér.
Taktu bleikan bíl næst þegar þú pantar leigubíl!
„Bleika slaufan” er til sölu í bílunum okkar frá 1. – 15. október.
Styrkjum starfsemi
Krabbameinsfélagsins
Hreyfill / Bæjarleiðir er styrktaraðili árvekniátaks
Krabbameinsfélagsins í október og nóvember
Tökum
bleikan bíl!