Hafnarfjörður - Garðabær - 21.02.2014, Blaðsíða 12
Glæsilegur undirfatnaður frá
Vanity Fair og Lauma.
HAMRABORG 20A • KÓPAVOGI 544-4088 • YNJA.IS
Útsalan í fullum gangi 1
10-50% afsláttur
HAFNARFJARÐARBÆR
AUGLÝSIR
BÆJARBÍÓ
Auglýst er eftir rekstraraðila að Bæjarbíói. Framlag
Hafnarfjarðarbæjar er í formi eftirgjafar á leigu og rafmagns-
og hitunarkostnaði. Útboðsgögn eru afhent í Þjónustuveri
Hafnarfjarðarbæjar. Umsóknarfrestur er til 10. mars.
BÆJARLISTAMAÐUR HAFNARFJARÐAR
Hafnarfjarðarbær útnefnir bæjarlistamann og veitir tvo
hvatningarstyrki til listamanna. Óskað er eftir umsóknum
eða rökstuddum ábendingum sem hafðar eru til hliðsjónar.
Umsóknarfrestur er til 17. mars.
STYRKIR BÆJARRÁÐS
Bæjarráð Hafnarfjarðar auglýsir styrki til starfsemi og þjónustu
sem fellur að hlutverki sveitarfélagsins. Umsóknarfrestur er
til 10. mars 2014
BJARTIR DAGAR 24.-27. APRÍL
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir dagskráratriðum fyrir Bjarta
daga sem haldnir verða að þessu sinni 24.-27. apríl í
tengslum við Sumardaginn fyrsta.
MENNINGARSTYRKIR TIL
VERKEFNA OG VIÐBURÐA
Umsóknarfrestur um styrki til verkefna og viðburða á sviði
menningar- og lista í Hafnarfirði rennur út 24. febrúar.
Allar nánari upplýsingar á www.hafnarfjordur.is
Náttúrulækningastofur
Strandgötu 33, 2. hæð, Hafnarfirði
Vilt þú öðlast góða heilsu og viðhalda henni ævilangt
með náttúrulegum aðferðum sem koma jafnvægi á
huga, líkama og sál?
Upplýsingar og tímapantanir:
Heilsumeistarar ND
Ásta Ólafsdóttir
asta.olafsdottir@gmail.com
899 2239
Katrín Níelsdóttir
katrinniels@gmail.com
864 2560
12 21. febrúar 2014
Leikur upp á líf og dauða
„Ég er mjög spennt fyrir stóru helginni. Þetta er ein skemmtilegasta keppnin og umgjörðin alveg
stórkostleg,“ sagði Hanna G. Stefáns
dóttir, fyrirliði kvennaliðs Stjörnunnar
í handbolta og einn reyndasti leik
maður deildarinnar.
Nú styttist í undanúrslit í Coca Cola
bikarnum, en Stjörnustúlkur mæta
Gróttu í Laugardalshöll 27. febrúar.
Vinni þær leikinn hafa þær tryggt sér
sæti í úrslitaleiknum, sem verður leik
inn sömu helgi.
Stjörnustúlkur hafa staðið sig fram
úrskarandi vel í vetur. Þær eru tap
lausar og tróna á toppi deildarinnar.
Í hópnum eru bæði þrautreyndar
landsliðskonur og yngri og efnilegri
leikmenn.
„Það er mikil tilhlökkun í hópnum,“
segir Hanna. „Þetta er líka svo góð
blanda af eldri og yngri leikmönnum
sem eru að fara stíga sinn fyrsta dans
á stóra sviðinu sem er leikurinn við
Gróttu. Bikarinn er einn sá skemmti
legasti. Stemningin í kringum hann,
hver leikur uppá líf og dauða, sjá alla
stuðningsmennina í stúkunni gefur
manni auka kraft og að komast í höll
ina er asskoti góð tilfinning sem allir
verða að upplifa á ferlinum. „
Hanna hvetur allt Stjörnufólk til að
fjölmenna í Höllina 27. febrúar, en leik
urinn, sem hefst klukkan 17:15 þennan
dag mun einnig verða sýndur í beinni
útsendingu á Rúv.
Almenningur
sýningarstjóri
í Hafnarborg
Sýningin Þitt er valið stendur nú í Hafnarborg í Hafnarfirði. Sýningin stendur til 9. mars en hún er
þeirrar náttúru að almenningur getur
valið hvaða verk eru til sýnis. Um fimm
tíu manns hafa þegar tekið þátt í að velja
verk á sýninguna.
Leiðsögn um sýninguna verður á
sunnudaginn klukkan þrjú.
Valið fer fram í gegnum heimasíð
una Sarpur.is en þar má nálgast lista
verkaskrá Hafnarborgar og munaskrá
margra annarra íslenskra safna. Með
sýningunni er öllum boðið að hafa bein
áhrif á sýningarstarf safnsins, en allir
sem vilja hvar sem þeir eru staddir í
veröldinni – eru hvattir til að taka þátt,
segir á heimasíðu Hafnarborgar.
Ný verk allan tímann
Sýningin er í aðalsal Hafnarborgar og
mun taka stöðugum breytingum allt sýn
ingartímabilið, segir á vef Hafnarborgar.
Reglulega verði ný verk sett upp og önnur
tekin niður. Reynt verður að verða við
óskum allra en umskipti í salnum fari
eftir þátttöku. Leitast verði við að láta
verkin njóta sín og gera þeim jafnframt
skil með hugmyndalegu og sögulegu
samhengi í uppsetningu.
1400 verk í eigu safnsins
Safneign Hafnarborgar er fjölbreytt
en stór hluti hennar eru málverk og
höggmyndir frá síðari hluta 20. aldar.
Stofnendur Hafnarborgar, þau Sverrir
Magnússon lyfsali og kona hans Ingi
björg Sigurjónsdóttir lögðu grunn að
safninu með listaverkagjöf sinni árið
1983 en einnig skipa verk eftir listamann
inn Eirík Smith stóran sess í safneigninni.
Hafnarborg á verk eftir innlenda og er
lenda listamenn unnin í ýmsa miðla, má
þar meðal annars nefna nokkurn fjölda
leirlistaverka. Safnið á nú rúmlega 1400
listaverk og reglulega bætist eitthvað við.
Fjölmargir listamenn
Þeir listamenn sem eiga verk á sýn
ingunni núna, að því er segir á vef
Hafnarborgar, eru: Alberto Gutierrez
Chong, Arngunnur Ýr Gylfadóttir,
Astrid Kruse Jensen, Auður Vésteins
dóttir, Ásgrímur Jónsson, Bjarni H
Þórarinsson og Guðmundur Oddur
Magnússon, Bjarni Sigurðbjörnsson,
Einar Már Guðvarðarson, Eiríkur
Smith, Gestur Þorgrímsson, Greta
Björnsson, Guðmundur Ómar Svav
arsson, Gunnar Þ. Jónsson, Gunnar
Örn Gunnarsson, Gunnlaugur Blön
dal, Gunnþórunn Sveinsdóttir, Hall
dór Pétursson, Hartmut Eing, Helgi
Þorgils Friðjónsson, Hjörtur Marteins
son, Jessica Holt, Jóhannes Kjarval, Jón
Engilberts, Kristín Geirsdóttir, Kristján
Davíðsson, Kristján Pétur Guðnason,
Magnús Ársæll Árnason, Magnús
Björnsson, Manuel Mendive, Margrét
Reykdal, Nína Tryggvadóttir, Patrick
Huse, Rúna, Sigfús Halldórsson, Snorri
Arinbjarnar, Stefán Jónsson, Susanne
Christensen, Temma Bell, Tróndur
Patursson og Vignir Jóhannsson.
Þessi mynd, án titils, er eftir eirík Smith. Hún er máluð árið 1971 og er meðal
margra verka hans í safni Hafnarborgar. Þetta er olíumálverk á spónaplötu
en verkið er talið vera með þeim síðustu sem eiríkur málaði í „félagslega
meðvitaða“ flokknum. Ströng umgjörð og stöðluð form láta undan síga fyrir
frjálslegri dráttum. Þessa mynd má ásamt mörgum fleiri verkum Hafnarborgar
skoða á vefnum sarpur.is en þar getur fólk valið myndir á sýninguna.
Stjörnustelpur fagna deildarmeistaratitlinum.