Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 17.11.1994, Qupperneq 6

Fréttir - Eyjafréttir - 17.11.1994, Qupperneq 6
Fimmtudagurinn 17. nóvember Prentsmiðjan Eyrún á hálfrar aldar afmæli: Menningarsamtök á vegum þeirra sem Eyjarnar byggja Núvcrandi' starfsmenn Prcntsmiðjunnar Eyrúnar, f.v. Óskar Ólafsson, Guðmundur Eyjólfsson prcntsmiðjustjóri og Ómar Einarsson. Eitt af mcrkari fyrirtækjum bæjarins, Prentsmiójan Eyrún, cr 50 ára um þcssar mundir. Hún spannar því stóran hluta af prentsögu Vestmannaeyja. Ekki löngu fyrir síöustu aldamót kom fyrsta prentvélin til Eyja. Var hún keypt notuó og heföi ckki talist tæknileg á nútma mælikvarða. En hún prentaói það sem hcnni var ætlað, og þar meó var tilganginum náð. Þessi vél gekk kaupum og sölum í bænuni og prentsmiójurek- stur ansi skrykkjóttur. A árunum upp úr 1940 var starfrækt ein prentsmiöa í Eyjum og mátti heita aö hún væri mjög svo bundin einum stjóm- málaflokki. Það var til þess aö blöö annarra flokka leituöu til Reykjavíkur eftir prentun sinna blaða. Þetta þótti mönnum í Eyjum að vonum ótækt ástand og bundust samtökum aö stofnun nýrrar prentsmiðju með aðild ýmissa áhrifamanna í öllum stjóm- málaflokkum auk verkalýðsfélagsins. Stofndagurinn var 25. október 1944 og prentsmiðjan hlaut nafnið Prentsmiðjan Eyrún. Húsnæði hal'ði prentsmiöjan fengið að Heimagötu 15, á neðri hæð í íbúðarhúsi stærsta eiganda hennar, Gísla heitins Gíslasonar, stórkaupmanns. Prcnt- smiðjustjóri var ráðinn Gunnar Sigurmundsson, sem áður hafði star- l'að scm setjari hjá Þjóðviljanum, blaði SósíalistaHokksins, í Reykja- vík. Fram að gosi var prentsmiðjan starfrækt við Heimagötuna. Þá var allt sett í blýi, ýmist handsett eða vélsett og prentað í flatpressu. Blýsctningavélin var geysi mikið tæki, þung stór og steypti letrið í blý, scm síðan var brætt á ný, eftir notkun. Handsetningin fór hinsvegar þannig fram, ietur var tínt upp úr þar til gerðum skúffum, þar sem hver stafur átti sitt hólf og síðan varð að raða þcim aftur á sinn stað eftir notkun. Auðvitað var þetta seinlcgt verk, en vanir menn voru samt ótrúlega lljótir að handsetja og var Gunnar prentari eins og hann var kallaóur, cinn af þcim. Hann var auk prent- smiðjustjórastarfans, umsvifamikill útgcfandi, gaf meöal annars út blöðin SOS, Bláa ritið, Rcvíuna og Bergmál. Þessum blöðum var dreift út um allt land og var talsveróur hluti af prentun fyrirtækisins auk pólitísku blaðanna sem þá komu út reglulega og voru fimm talsins. Húsnæði prentsmiðjunnar fór undir hraun í gosinu 1973. Vélar prentsmiðjunnar og nánast allar eignir hennar fóru undir hraunið. En eftir að m önnum þótti byggilegt í Eyjum á ný, var prentsmiðjan opnuð og nú í fyrrum bílaverkstæði við Hlíðarveg þar sem hún er enn. Ný tækni í prentun var þá farin aó ryðja sér til rúms, svokölluð offsetprentun og var slík vél keypt í prentsmiðjuna. Ný blýsetningarvél vareinnig keypt, sú tækni var þó á hröðu undanhaldi og innan skamms var keypt tölvu- setningarvél sem tók við mestallri setningunni, enda mun fullkomnari og betri tækni. Gunnar Sigurmunds- son hætti sem prentsmiðjustjóri nokkrum árum síðar og við tók Oskar Olafsson sem nam fræðin hjá Gunnari í gömlu Eyrúnu. í riti sem prentsmiðjan gaf út í tilcfni 30 ára afmælis hennar segir m.a.: Nú hefur þetta fyrirtæki starfað hér í þrjátíu ár, ekki með hagnaðar- vonina að leiðarljósi, heldur sem menningarsamtök á vegum þcirra sem staðinn byggja”. Þá segir í þessu riti, að stjóm fyrirtækisins sé bjartsýn og trúi á framtíð þessa byggðarlags og treystir jafnframt, að Eyjamenn vilji ekki hverfa til baka aó því ófremdarástandi, sem hér ríkti áður og minnst hefur verið á, heldur muni þeir hver og einn gera sitt besta til að hlúa að þeim menningarverómætum sem þeir eiga best. Það er því greini- legt að frumherjar þessa fyrirtækis hafa átt sér og draum og verið hugsjónamenn. Núverandi prentsmiðjustjóri er Guðmundur Eyjólfsson og hjá fyrirtækinu starfa 3 fastir starfsmenn. Guórún Sveinbjamardóttir, ekkja Gísla heitins Gíslasonar, er rekstr- araðlili Eyrúnar og sú kjölfesta sem hverju fyrirtæki er nauðsyn. Fjölskylda hennar er eigandi prentsmiðjunnar að mestu leyti. Fram að gosi var prcntsmiðjan til húsa að Heimagötu 15. Það hús fór undir hraun í gosinu 1973. Myndin hér að ofan sýnir örlög þess húss. Gísli heitinn Gíslaon og Gunnar Sigurmundsson. Þeir báru hitann og þungann af upphafsámm fyrirtækisins. Atvinna Vantar nú þegar tjónaskoðunarmann til að méta bifreiðatjón fyrir tryggingafélögin. Skilyrði er aó viðkomandi sé bifreióasmiður, bifreiðavirki eó vélvirki. Þeir sem hafa áhuga á; starfinu vinsamlega leggið inn nafn og símanúmer hjá umboðsskrifstofu Sjóvá-Almennum tryggingum hf. Birkihlíð 1, Vestmannaeyjum, sími 12550. Atvinna Okkur vantar pizzasendla, karla eða konur, um helgar. Þurfa aö hafa bíl til umráða. Upplýsingar í síma 12950 eða 11263 (Grétar) og 13350 (Bjarni). Basar Hinn árlegi basar Systraafélagsins Alfa, veróur á sunnudaginn, 20. nóvember kl. 15:00 - 17:00, í skóladagheimilinu við Brekastíg. Margt góðra handunnina muna aó venju, ásamt kökum og öðru góðgæti. Öll innkoma rennur til liknarmála. Systrafélagiö Alfa, Vestmannaeyjum Basar- kökur- basar Styrktarkúbburinn „VORIГ heldur sinn árlega prjóna- og kökubasar sunnudaginn 20. nóvember n.k. kl. 15:00, aó Kirkjuvegi 19 (Þinghól). Margt góðra muna. Styrkið gott málefni. Styrktarklúbburinn Vorið. Svæðisskrifstofa Suðurlands um málefni fatlaðra auglýsir eftir starfskrafti á sambýli fatlaóra í Vest- mannaeyjum. Um er að ræða hlutastarf (vaktavinna). Æskilegt er að umsækjendur hafi menntun eöa reynslu af störfum meö fötluðum. Nánari upplýsingar gefur forstöóumaður í síma 11211 eða 12126. Jólakortaefni Þótt enn séu rúmar fimm vikur til jóla, er fyrirhyggju- sömum krökkum bent á aó jólakortaaefnið er komió í hillurnar hjá okkur. FRÉTTIR ÞAKKIR TIL EYJAMANNA ÉG vil þakka frábæran studning og þátttöku í PRÓFKJÖRI SJÁLFSTÆDISMANNA VEGNA NÆSTU ALÞINGIS- KOSNINGA. ÞAD VAR STÓRKOSTLEGT I ANNARS RÓLEGRI KOSNINGABARÁTTU, HVERNIG STÓR HLUTI KJÓSENDA í EYJUM FLYKKTIST Á KJÖRSTAD OG TRYGGDI OKKUR GOTT GENGI. Barátturkvedjur, Árni Johnsen

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.