Fréttir - Eyjafréttir - 17.11.1994, Blaðsíða 18
Fimmtudagurinn 17, nóvember 1994
Landakirkja
$unnuctegur20. nóv.
Kl. 11:00 Sunnudagaskóli í
klrkjunni
Kl. 13:15 Sunnudagaskóli á
Hraunbúðum
Kl. 14:00 Almenn Guösþjónusta
- Bamasamvera meóan á prédikun
stendur.
- Aðalfundur Kórs Landakirkju að
messu lokinni. Messunni verður
útvarpaó á ÚV 104 kl. 16:00.
Kl. 20:00 Poppmessa.
- Létt sveifla I helgri alvöru.
- Heltt á könnunni I safnaðarheimil-
inu að lokinni messu.
Mánudagur 21. nóv.
Kl. 20:00 Saumafundur Kvenfélags
Landakirkju
Þriöjudagur 22. nóv.
16:00 Fermingartímar -
Bamaskóllnn.
Mlðvlkudagur 16. nóv.
Kl. 10:00 Mömmumorgunn
Kl. 12:10 Kyrróarstund I hádegi.
Einfalt, fljótlegt, innihaldsríkt.
Kl. 16:00 Fermíngartimar -
Hamarsskólinn.
Kl. 17:30 T.T.T.-fundur. Allir
grunnskólakrakkar undír fermingar-
aldri velkomnir.
20:30 Helgisamkoma í kirkjunni
þar sem minnst verður allra þeirra
sem látist hafa í prestakallinu á
liðnu ári. Að samkomu lokinni
veróur boðió upp á stutt fræðslu-
erindi um sorg og sorgarvibrögð.
Fimmtudagur 24:11.
10:30 Kyrrðar- og baenastund á
Hraunbúðum.
Betel
Fimmtudagur kl. 20:30
Biblíukennsla
Föstudagur kl. 17:30
Krakkaklúbburinn. Ef foreldrar
versla geta börnin komið i Betel.
Kl. 20:30 Unglingasamkoma fyrir
13áraogeldri.
Laugardagur kl. 20:30
Brauðsbrotning.
Sunnudagur Kl. 16:30
Vakningasamkoma. Vérvitum að
þeim sem Guð elska, samverktar
allt til góðs, þeim sem kallaðir eru
samkvæmt ákvöróunum Guðs.
Allir hjartanlega velkomnir í Betel.
xK
|. ^
Aðventkirkjan
Föstudagur:
kl. 20:00 Samvera fyrir unga fólkið
Laugardagur:
kl. 10:00 Bibliurannsókn
kl. 11:00 Guósþjónusta
Ræðumaður; Ólafur V. Þóroddsson
kl. 14:00 Ungskátar
Sunnudagur:
kl. 20:30 Bænastund
Verið velkomin í Aðventkirkjuna.
Bahá'í samfélagiö
Opíð hús að Kirkjuvegi/2B,
fyrsta flmmtudag hvers
mánaðar kl. 20:30. Almennt
umræðuefni. Allir velkomnir.
Heitt á könnunni.
Aðalfundur Golfklúbbs Vestmannaeyja varhaldinn um síðustu helgi:
Vantar fíármagn til að ljúka við völlinn
Aöalfundur Golfklúbbs Vest-
mannaeyja var haldinn um síðustu
hclgi. Stjórnin var öll endurkjörin
og verður Bergur Sigmundsson
áfram formaður. Einu breytingar-
nar urðu að Sigfríður Þórsdóttir
verður varaformaður í stað Hall-
gríms Júlíussonar sem verður
meðstjórnandi.
Að sögn Bergs Sigmundssonar fór
aðalfundurinn friðsamlega fram. Á-
nægja hefði verið með sumarið og
reksturinn verið réttu megin við
núllið þrátt fyrir aó skuldir væru
nokkrar. „Okkur vantar enn 4-5
milljónir til að kiára völlinn endan-
lega á næsta ári og þá pcninga þurf-
um við aö ná í, hvernig sem við
förum að því. En nú þegar byggingu
vailarins og skálans er að mestu lokið
er hægt að snúa sér að uppbygging-
unni í sjálfu golfstarfinu sem hefur
þurft að sitja á hakanum. Það sem
aðallega var samt rætt á aðalfundin-
um var landsmótið í golfi sem hér
veröur haldið sumarið 1996. Þetta er
stórt og mikið mót sem við verðum
aö vanda ti!.“
Á fundinum kom fram að GV
hefur gert samning við Urval-Utsýn
um markaðssetningu á golfvellinum
fyrir næsta sumar en hann verður
kynntur í bæklingi ferðaskrifstofunn-
ar. I framhaldi af því hefur verið
gerður samningur við Flugleiðir um
að flytja farþegana til Eyja en þeir
munu bjóða upp á pakkaferðir. Mark-
aðssetningin er aðallega ætluð út-
lendingum en einnig hér innanlands.
Bergur segist bjartsýnn á að þetta
verði helsti vaxtarbroddurinn í ferða-
mannaiðnaðinum í Eyjum.
„I fyrsta skipti var boðið upp á 18
holu golfvöll í Eyjum í sumar. Völl-
urinn þykir mikil náttúruperla og
gestir sem hingað koma eru berg-
numdir. Þetta þurfum við að notfæra
okkur en það liggur mikil vinna á bak
við uppbyggingu vallarins. Oðruvísi
gerist þetta ekki og stjómin hefur
verið mjög samhent í sínum
verkum,“ sagði Bergur. Hann vildi
jafnframt hvetja fólk til að styrkja
GV í gegnum getraunirnar en félags-
númerið er 902.1 skála GV er gervi-
hnöttur og jafnframt góð aðstaða til
að horfa á beinar útsendingar.
Ragna Birgisdóttir tekur fram handboltaskóna á ný:
„Undirverktaki“
Það vakti athygli á leik ÍBV og
Stjörnunnar að gamla(l) kempan
Ragna Birgisdóttir var á bckknum
hjá IBV og hoppaði nokkrum
sinnum inn í vörnina. Ragna lagði
skóna á hilluna fyrir tveimur árum
en hún er orðin 33 ára.
Ragna sagði í samtali við
FRÉTTIR að hún hcfði ekki hugsað
sér að fara spila aftur en vegna mann-
fæðar á æfingum hjá IBV hefði hún
tekið frani skóna á ný sér til gamans.
í framhjáhlaupi
Vegna nijög dræmrar þátttöku í At-
skákmóti TV vcrður reynt að hafa það
næstkomandi föstudag en aðeins fjórir
mættu til leiks síðasta föstudag. Varð
því ckkert úr því að það hæfist og voru
því bara tcknar nokkrar æfingaskákir.
Vonandi verður betri niæting næst en
nú stendur síldarvertíðin yfir eins og
allir vita og niá kannski kenna því' uni.
Ég hef því lítið að segja núna og ætla
því að gamni mínu að leggja fyrir
ykkur skákþraut sem ég rakst á fyrir
skönimu og heillaði mig. Hvítur á að
máta svartan í þriðja leik, en eins og
meö allar góðar skákþrautir er ekki
alltaf allt sem sýnist í fljótu bragði.
Mcð skákkvcðju Stebbi Gilla.
Stöðumyndin í skákþruutinni.
Fimm leikmenn ÍBV búa í Reykavík
og allir eru þeir í byrjunarliði og því
er oft frekar fámennt á æfingum
liðsins í Eyjum. Að undanförnu
hefðu þrjár stelpur verið frá vegna
meiðsla, Sara, Vigdís og María Rós
og við það hefði hópurinn þynnst enn
frekar.
„Ég álít mig sem einskonar undir-
verktaka í þessu. Ég kom inn í þetta
því það voru frekar fáar stelpur á
æfingum og til að berja þetta saman
móralskt. Það er mjög góóur andi í
hópnum. Ég kom inn á í síðasta leik
því Bjössi þjálfari var að láta okkur
spila nýja vöm, 3:2:1. Hún er mjög
erfið og hann þurfti að hvíla Judit,
Andreu og Stefi í vörninni af og til.
Þær stóðu sig frábærlega vel, sérstak-
lega Stefí sem var nánast á annarri
löppinni allan leikinn. En þær eru í
mjög góðu formi og þetta er allt að
smella saman hjá liðinu. Vonandi
fara stelpumar að ná sér af meiðsl-
unum svo liðið sleppi viö að senda
undirverktakann inn á,“ sagði Ragna.
Ragna Birgisdóttir.
Huginn Helgason skrifar um þreksalinn í íþróttamiðstöðinni:
Hvað með almenning?
Ég rita þessar línur vegna óánægju
minnar og margra annarra sem ég.hef
rætt við (þar á meðal starfsfólk
íþróttamiðstöðvarinnar) varðandi
opnunartíma þreksalar í Iþróttahúsinu
fyriralmenning.
Ef ég tek sjálfan mig sem dæmi, þá
vinn ég frá kl. 7:30-17:15. Ef ég
ætlaði að fara í þreksalinn og svitna
aðeins á virkum dögum, hefði ég
samtals um fjórar klukkutíma á viku,
eða þar um bil, á föstudögum frá kl.
17-20:30. Aðra daga er þreksalurinn
upptekinn. Það verður að segjast eins
og er að þetta er ekki mikill tími fyrir
vinnandi fólk sem vill nýta salinn sér
til heilsubótar. Ástæðan fyrir þessum
fáu tímum er sú ^ð þreksalurinn er
upptekinn fyrir kvennaleikfimi og
karate. Það má ekki skilja þessi skrif
mín sem svo að ég hafi eitthvað á
móti kvennaleikfimi eða karate, síður
en svo. En að hertaka salinn svo til
alla virka daga þannig að almenn-
ingur komist varla að, finnst mér
alveg út í hött. Með þessum skrifum
langar mig til að vekja athygli á þessu
óréttlæti.
Að lokum langar mig að beina
tveimur spumfngum til stjórnar
Iþróttamiðstöðvar:
1. Finnst ykkur rétt að leigja salinn
svon út þannig að almenningur
komist ekki í hann þegar því langar
til?
2. Stendur til að bæta eitthvað úr
þessu?
Virðingarfyllst.
Huginn Helgason
IÞROTTIR
Liðsstyrkur?
Tveir knattspymumenn, Anthony
Karl Gregory sem áður lék með
Val, og Ivar Bjarklind /rá KA,
skoöuðu aðstæöur hjá IBV um
síðustu helgi. Að sögn knatt-
spyrnuráðsmanna leist báðum
mjög vel á sig í Eyjum. Hins vegar
eru litlar líkur taldar að Anthony
Karl komi til Eyja en bundnar
nokkrar vonir vió að ívar klæðist
hvítu treyjunni næsta sumar. Svar
er að vænta frá þeim félögum á
allra næstu dögum.
Þess má geta að um síðustu
helgi kom Atli Eðvaldsson, þjálf-
ari IBV, ásamt líffræðingi úr
Háskólanum. Þeir tóku alla leik-
menn IBV í mjólkursýrupróf sem
er oróið algengt í knattspyrnunni.
Tilgangur þess er að rnæla í hve
góöu líkamlcgu ásigkomulagi leik-
menn ÍBV eru.
Aðalfundur
Framherja
Aðalfundur íþróttafélagsins Fram-
herja verður haldinn í
I>órsheimilinu nk. sunnudag, 19/11
kl. 13:00. Dagskrá er heföbundin
en auk þess mun Hjalti Kristjáns-
son, þjálfari, ræða um markmið
nk. árs og halda fyrirlestur um
mataræði knattspymumanna. Allir
sem áhuga hafa á aó vera með nk.
ár eru hvattir til aö mæta.
Mætt hefur veriö á æfingar í
íþróttahöllinni á laugardögum kl.
17 og sunnudögum kl. 18. Auk
þess mæta félagar hjá Hjalta á
föstudagskvöldum kl. 20:00 og
tippa (getmr. 904).
Drcgið hefur vcrið í riðla í 4.
deíld Islandsmótsins innanhúss í
Gerðubergi í janúarnk. Framherjar
voru frekar óhcppnir mcö riðil,
mæta Ámtanní, Leikni F. og Þrótti
N., en hafa æft mun markvissaren
í fyrra og eru alls óhræddir.
(Fréttatilkynning)
3. fl. IBV vann í
3. fiokkur ÍBV karla vann Val i
bikarkeppní HSÍ í Eyjum í síðustu
viku í framlengdum leik, 22-21.
Leikurinn var jafn og spennandi
allan tímann og staóan í hálfleik 8-
8. Aó loknum venjulegum leiktíma
var staðan 16-16 og þurfti því að
grípa til framlengingar. Þar reynd-
ust Eyjastrákamir sterkari og unnu
með einu rnarki, 22-21.
Mörk ÍBV skoruóu: Sigurður Bragason
6, Reynir Hjálniarsson 6, Þorsteinn
Þorsteinsson 4, Gottskálk Þ. Agústsspn
3, Jóhannes Egilsson 2 og Jóhann Ö.
Friðsteinsson 1. Þá varói Gunnar Geír
Gústafsson 22 skot og var rnaóur
leiksins. Mikill hiti var í leik-
mönnum því einn leikmaöur Vals
fékk brottvísun og lcikmenn IBV
voru utan vallarí 10 mínútur. Ekki
hefur verió dregið í 8 lióa úrslitin.
4. fiokkur Þórs lék í síðustu viku
í bikamum og burstaði Hauka. 4.
fiokkur kvenna IBV er hins vegar
úr leik því stelpumar töpuðu fyrir
Fram.
Heiður
í íþróttaþætti RÚV, Syrpunni, sl.
Fimmtudag heimsótti Sarnúel Om
Erlingsson handboltastelpumar í
ÍBV og sagði frá því öfluga starfi
sem handknattleiksráð kvenna á
heiðurinn að. Var þetta mikill
heiður fyrir stelpumar og voru þær
vel að því komnar.
FRETTIR
Útgefandi: Eyjaprent hf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Fréttastjóri: Þorsteinn
Gunnarsson. Abyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson. Prentvinna: Eyjaprent hf.
Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47 II. hæð. Sími: 98-13310. Myndriti: 98-
11293. FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum,
Kletti, Novu, Skýlinu, Tvistinum, Pinnanum, Kránni, Búrinu, Vöruval, Herjólfi, Flugvallarversluninni,
Eyjakaup, Eyjakjör og Söluskálanum. FRÉTTIR eru prentaðar í 1850 eintökum. FRÉTTIR eru
aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða.
- Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.