Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 17.11.1994, Blaðsíða 16

Fréttir - Eyjafréttir - 17.11.1994, Blaðsíða 16
Fimmtudagurinn 17. nóvember 1994 Ekki komið fyrir áóur, segir framkvæmdastjórinn. Fyrlr skömmu hurfu með dular- fullum ha'tti töluverð verðmæti ár tösku farþega á Herjólfí. Taskan var í þar til gerðrl geym- slu fyrir farangur fólks. Úr töskunni var stolið skartgripum; fjórum hrlngum, úri, armhandí og hálsmeni, allt úr sílfri og er verðmætiö töluvert. Eigandinn kom aó máli vió FRÉTTiR og vildí benda fólki á að skilja ekki eftir verörnæta hiud í töskum sem eru geymdar í „almenn- ingi“ um boró. Þaö hefði verið mikið áfall aó uppgötva þetta og lík- lega lengist ekkertbætt. Magnús Jónasson, framkvæmda- stjóri Herjólfs, sagði í samtali við FRÉTTIR að hann vissi ekki til að þetta heföi áöur gerst um borð í Herjólfi. Ekki væri tekin ábyrgð á farangri farþega og fannst honum afar ieitt að þetta hefði komið fyrir. Hann vijdi, eins og farþcginn, bcnda fólki á að vera ekki með mjög verö- mæta hluti i farangri sem fólk léti frá sér um boró í Herjólfi. 33.600 króna reikningur frá Löggildingarstofunni fyrir 15 mínútna vinnu: „Blöskrar verðlagningin“ - segir Helgi Hjálmarsson kaupmaóur. Fulltrúi Löggildingarstofunnar segir ráðuneytió bera ábyrgóina á verðlagningunni og bendir á að verslunum beri skylda til aó hafa löggiltar vogir. Bíóleikur Frétta og Bíósins Fimmtudag kl. 9: Wolf. Sýnd í síðasta sinn. Sunnudag kl. 9: The Client (Skjólstæðingurinn) með Tommy Lee Jones og Susan Sarandon. Spumingin: Hver skrifaði söguna The Client? Svarió er að finna á símsvara Bíósins, 12123. Svörum skal skílað inn í miðasölu Bíósins, 1klst. fyrlr sýningu eða í póstkassa Frétta. Vinningshafar síðustu viku eru: Kolbrún I. Auðunsdóttír Hátúni 4 og Hjörvar Gunnarsson Vestmannabraut 68. Helga Hjálmarssyni, kaupmanni í Eyjakaupum, segist blöskra verð- lagning Löggildingarstofu ríksins sem hefur einokun á þessu sviði í landinu. I haust komu tveir full- trúar frá Löggildingarstofunni og prófuðu og löggiltu fimm vogir í Eyjakaupum. Reikningurinn hljóðaði upp á 33.600 kr. Fulltrúi Löggildingarstofunnar segir að gjaldskráin sé gefin út af viðkont- andi ráðuneyti og á ábyrgð þess en hún þurfi að standa straum af rek- stri hennar eftir að ríkið hætti bcinum fjárframlögum til hennar. Helgi í Eyjakaupum segir verðlagningu Löggildingarstofunnar með miklum ólíkindum. Tveir starfs- menn hennar hefðu skoðað og löggilt vogimar og þaó hefði tekiö um 15 mínútur. Fyrir minni vogirnar hefðu þeir tekið 6.300 kr. á hverja vog og fyrir þá stærri 8.400, eða samtals 33.600. Enginn virðisaukaskattur er lagður á upphæðina. Helgi segir að borið saman við bílaskoðun væri greinilegt að taxti Löggildingarstof- unnar væri margfalt hærri og fróðlegt væri að vita hvaö þessir herrar ! PIZZA - PIZZA c? Bjössabar Aukin áhersla á heimsendinga- þjónustu. Við erum ódýrari og bjóðum bestu pizzurnar í bænum. Hawai I I I I I I I I I | I I I ' I I I I L NYJAR PIZZUR: Don Pepe: Ostur, sósa, skinka, pepperoni, nauta- hakk, sveppir, laukur, paprika, ananas og aukaostur: Verð: 9" kr. 852 - 12" kr. 1252 - 16" kr. 1552 Piri Piri: Ostur, sósa, piri piri, pepperoni, sveppir (mjög sterk); Verð: 9" kr. 664 - 12" kr. 1064 - 16" kr. 1364. Sjávarrétta Pepperoni 9" kr. 510 12" kr. 910 16" kr. 1210 9" kr. 652 12" kr. 1052 16" kr. 1352 9" kr. 664 12" kr. 1064 16" kr. 1364 OPIÐ: Fimmtudaga frá kl. 18-01. Föstudaga frá kl. 18-04. Laugardagafrákl. 18-04. Sunnudaga frá kl. 18-01. Frí heimsendingaþjónusta. Fljót og góð þjónusta þar sem gæðin skipta máli. Biö jössabar ATH! Ef keyptar eru 2 eða fleiri 12" pizzur fæst 20% afsláttur Ef keyptar eru 2 eða fleiri 16" pizzur fæst 30% afsláttur. Sími12950 og 13171 T I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I J miðuðu gjaldskrána við. „Mér hreint út sagt blöskrar þetta en við þessu er lítið hægt að gera. Þetta er einoku- narfyrirtæki á þessu sviði og þar að auki ríkisfyrirtæki. Ég held að það þurfi ekki að orðlengja þetta neitt frekar, verðlagningin segir alla söguna. Hún cr varla siðleg.“ Þór Gunnarsson, fulltrúi för- stjórans hjá Löggiidingarstofunni, segir Löggildingarstofuna hina ísl- ensku mælifræðistofnun og hún hafi þá skyldu að reka sig fyrir þann pening sem kemur inn. „Það er pól- itísk ákvörðun að þetta sé ekki rekið af ríkinu. Þar af leiðandi verða útsendir reikningar að duga fyrir rekstrinum." Aðspurður hvort gjaldskráin væri þá í höndum Löggildingarstofunnar, sagði Þór að opinberar gjaldskrár væru ávallt gefnar út af viðkomandi ráðuneyti og þar með á ábyrgð þess. En auðvitað væri leitað eftir tillögum hjá þeirri stofnun sem um ræddi hverju sinni. Því væri útgáfa gjald- skrárinnar ekki óviðkomandi Lög- gildingarstofunni. Tvö stór skref hefðu verió tekin í hækkunum á undanfömum árum. Annars vegar þegar ríkið, sem greiddi helming rekstrarkostnaðarins, dró sitt framlag til baka og hins vegar þegar EES samningurinn tók gildi en þá heföu kröfur til stofnunarinnar aukist verulega og hún væri mun dýrari í rekstri. Þór sagði þaó ekki rétt, eins og kaupmaður Eyjakaupa heldur fram, að það sé undir hælinn lagt hvaða vogir væru löggiltar hverju sinni þegar starfsmenn stofunnar færu út á landsbyggðina. „Við ætlum sann- arlega að taka allan pakkann í hvert skipti. Við erurn loksins að tölvu- væða hjá okkur. Verið er að koma verkefnaskránni í tölvutækt form. Það átti ekki að skilja neitt eftiren við erum að vinna að því að skráin verði tæmandi. Það er engum tilviljunum háð hvar við komum, heldur frekar ef okkur yfirsést eitthvað. Hitt er svo annað mál að kaupmaðurinn ætti aó vita að verslunum er bannað að nota annaó en löggiltar vogir. Annars er verið að brjóta lög. Og hann ætti líka að vita að um það eru skýr lagafyrir- mæli að sá sem notar löggild- ingarskylt tæki á að sjá um aö þaö sé meó gilda löggildingu," sagói Þór. Um tíðni prófana og löggildinga sagði hann að ekki væri búið að senija nýja reglugerð vegna EES samningsins. Því væri enn unnið eftir gömlu reglugeróinni sem gerði ráð fyrir að hjá kaupmönnum væru vogir löggiltar á a.m.k. þriggja ára fresti. Sú hefð hefði skapast að gera það á tveggja ára fresti en sem dæmi væri löggiit árlega í fiskvinnslu og á ben- sínstöðvum. Tónleikar Bubba Morthens ✓ - Aritar plötu sína í Eyjakaup á morgun kl. 16. Bubbi Morthens hefur verið mikið á ferðinni í tilefni útgáfu nýju plötu hans, 3 heimar, sem hefur fengið frábærar viðtökur gagnrýnenda. Næstu daga verður hann í Eyjum með tónleika og mun liann einnig árita ný ju plötuna. Þessi nýjasta plata Bubba þykir ansi fjölbreytt að efni en á henni má merkja áhrif frá rap, hip-hop og ska tónlist og einnig má finna rólegar ballöður, rífandi rapplög og dans- takturinn er ekki langt undan í flestum laganna. Sem fyrr eru text- amir nokkuð pólitískir. 3 heimar er langmesta selda platan í dag og hefur hún að geyma lög eins og Brotin lof- orð og Bleikir þríhymingar sem prýtt hafa efstu sæti vinsældalistanna að undanfömu. Fyrstu tónleikar Bubba verða í Framhaldsskólanum í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 21:00. A morgun, föstudag, mun Bubbi á- Bubbi Morthens. rita plötu sína í Eyjakaup kl. 16:00. Um helgina verður Bubbi með tvenna tónleika á Skútanum, föstu- dags- og laugardagskvöld og hefjast þeir bæði kvöldin kl. 23:00. MANNAKORN Gamla góða hljómsveitin Mannakorn sér um fjörið hjá okkur um helgina: Föstudagskvöld á HB PÖBB. Laugardagskvöld á Höfðanum. MANNAKORN

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.