Fréttir - Eyjafréttir - 17.11.1994, Qupperneq 19
Fimmtudagurinn 17. nóvember 1994 í Þ R Ó T TI R
Hópakeppni Týs/Þórs/Frétta:
Tipparar í vandræðum
Það fór ckki á milli mála að tipparar áttu í vandræðum mcð gctraunascðilinn
um síóustu helgi. Meðalskor var lágt eða á bilinu 6-7 réttir. En fyrir vikið
dró til tíðinda á nokkrum vígstcjðvum.
1 A-riðli náði Munda óvænt forystunni en þarerhöfuðpaurinn Ólí Guðna
með 56 rétta. Hann er í miklu formi þessa dagana. Púiaramír Biggi Sveíns
og Kristó eru einnig með 56 réíta. Cantona, Wembley Kings, Babar fíla-
konungí og Austurbæjargengið eru með 55 rétta, Vinstri bræðingurinn 54,
Tveir á toppnum 53, Niggaragengið, Nafnamir og Kókó Mókó hans Jóshúa
Steinars með 52 og Guðbrandur Stígur með 51. Þeir Birgir Hafsteinsson og
Kristinn Ólafsson í Babar fílakonungur hafa kvartað yfir því að ekkert sé
minnst á þá í þessum dáiki og mun það ekki verða gert nema þeir hafi unnið
til þess. Þá hefur bortist kvörtun um að nafn Jóshúa Steinars sjáist of oft en
hann er sem fyrr næst neðstur.
í B-riðli er Snorri Rúts með Tvístana í efsta sæti sem fyrr með 60 rétta.
Bullumar og Bæjarins bestu eru með 58. Þess má geta að Kári Fúsa í
Bullunum var aðeins með 1 réttan um síðustu helgi og hel'ur þaó ekki gerst
áóur í sögu íslenskra gctrauna. Kollcgi hans Gunnar Kristjánsson bjargaði
andliti þeirra með 7 réttum. UMF. Kjartan í Djúpadal, Dubliners og Börkur
em með 57 rétta, Highbury 55, Poolham 54, Krókódílamaðurinn og Silli og
Valdi hf. 52,3ab 50 og Vánir mcnn (Elías Jörundur Friðriksson) rcka lcstina
mcð 48.
í C-riðli em Tveir meó öllu, Bjamólfur Lámsson og Markús Orri Más-
son, og Sigbræðumir Ingi og Magnús, efstir með 59 rétta. Reynistaður,
feðgununr Hugin og Hclga Lása, er heldur betur að fatast flugið. Líklega
kunna þeir ekki við sig svona hátt uppi! Klaki og Þorskhausar eru með 56,
ER, Speglarnir og Ásinn nteð 55 rétta, Bræðumir nteð 54, Leicester 52,
Svcinssynir40 og Golfdúkurinn hans Sigfúsar Gunnars í FOTO 39. Þcss má
geta að hinn andlegi stuðningur við Sigtusar Gunnar sem auglýst var eftir í
síðastu blaði virðist hafa skilað sér því hann náði 6 réttum. Sigfús biður um
áframhaldandí andlega uppörvun.
í D-riðli, sem er langsterkasti riðillinn, erPalóma með Top Gun enn efst
nteð 60 rétta. Pörupiltar og Agnes okkar em með 59, Ljónið og strúturinn,
Man. Utd. og Klapparar með 58, Feögamir 56, Gamla skinkan,
Matreiðslukl. 13 réttir og Tveir á þurum með 54, Jólasveinarnir og BG og
Ingibjörg meó 51. Síðasttalda liðið skipa Guómann skipstjóri og Bergur
stýrimaður á Ófeigi. Þeir mættu sncmma í Týsheimilið á laugardaginn,
reyndar t fyrsta skiptið, og sátu í 7 tíma yfir seölinum. Það gaf af sér 7 rétta
þannig að þaö kom einn réttur á hvem klukkutíma. Búist er við aö þeir verði
enn fyrr á iérðínni í næstu viku!
Góð aðsókn cr í Týsheintilinu og fcngist lausnur á ýmsum vandamálum
þjóðarinnarí kat'fispjallinu þar.
Týr og Þór hafa að undanfömu verið í 10. sæti á landsvisu í sölunni á get-
raunum, mcð um 15 þúsund raðír. Tiþparar eru hvattir til að setja 900 á
getraunaseðilínn svo umboðslaunin renni til Týs og Þórs t stað þess að fara í
hítina í höfuóborginni.
Þess má geta að hópur manna, sem tippar undirnafninu Týr, er í efsta sæti
í hópakeppni í ítalska boltanum. Þetta er 10 vikna getraunaleikur og veró-
launin eru fiugmiðar fyrir fjóra á einhvem góðan ieik.
ÍBV vann Breiðablik íæsispennandi leik í2. deild karla, 30-29:
IBV tU aUs líklegt í vetur
- Sigurður þjálfari greinilega á réttri leió meó IB V lióió.
ÍBV lagði Breiðablik 30-29 í topp-
slagnunt í 2. deiid í Eyjum sl.
föstudagskvöld. Leikurinn var
mjög harður en fjörugur og alveg
sérlega áhorfcndavænlcgur. I lokin
var stiginn stíðsdans þar sem tvcir
Eyjamenn og þjálfari Brciðabliks
fengu að líta rauða spjaldið.
Breiðabliksliðið byrjaði betur og
virtist alveg sama úr hvaða færi þeir
skutu, allt lá í netinu. Gunnar Berg
Viktorsson hélt ÍBV á floti í sóknar-
leiknum með góðum mörkum.
Sóknarleikur ÍBV var mjög beittur og
mörg leikkerfin mjög skemmtileg.
Reyndar tóku sum full langan tíma en
liðið er tiltölulega nýbyrjað að keyra
þau í gegn og því tekur tíma að slípa
þau saman. Eyjamenn sóttu í sig
veðrið þegar leið á hálfleikinn og
tókst að jafna metin. Breiðablik hafði
yfir í hálfleik, 16-15 en Sigmar
Helgason, markvörður ÍBV, varði
vhakast þegar leiktíminn var liðinn.
I seinni hálfleik tóku Eyjamenn
leikinn í sínar hendur. Þar munaði
mestu um frumkvæði Elliða Vignis-
sonar í sóknarleiknum sem skoraði
þrjú mörk í röð en var samt tekinn
útaf! Þegar um 5 mínútur voru til
leiksloka hafði IBV yfirhöndina með
fjögurra marka forskot og allt virtist
stefna í öruggan sigur. En þá kom Jón
Þórir Jónsson loks inn á hjá Breiða-
bliki en hann gerði garðinn frægan í
hominu hjá Selfyssingum. Hann
gjörbreytti gangi leiksins og það tók
Breiðablik aðeins tvær mínútur að
jafna metin. I lokin gekk mikið á.
Zoltan Belanyi fiskaði mjög umdeilt
vítakast sem varð til þess að þjálfari
Breióabliks, Brynjar Kvaran, missti
stjóm á skapi sínu og fékk rauða
spjaldið. Belanyi skoraði úr víta-
kastinu og Breiðabliksmenn brunuðu
í sókn en Elliði Vignisson stöðvaði
hana með bolabrögðum en samt fékk
Gunnar Berg Viktorsson að líta rauða
spjaldið! Enn voru þrjár sekúndur
eftir og Elliði sá til þess að fá rauða
spjaldið sjálfur meó því að keyra
nióur Breiðabliksmann á síðustu
sekúndunni en sigurinn var IBV.
Greinilegt er að IBV kemur til með
að eiga góða möguleika á að endur-
heimta sæti sitt í I. deild miðað við
þennan leik. Reyndar þarf að slípa
markvörsluna til og þétta vömina en
sóknarleikurinn lofar góðu. Reyndar
væri óskandi að sjá fleiri mörk fyrir
utan en þau voru 13 í leiknum, 7
komu úr homum, 5 af línu og 5 úr
vítaköstum. Þá var vamarleikurinn
full grófurá köflum. Einnig voru inn-
áskiptingar mjög örar hjá liðinu og
varla að sumir leikmenn næðu að
hitna að þá var þeim kippt út af. En
það leikur enginn vafi á því að
Sigurður Gunnarsson þjálfari er á
réttri leið með þetta unga og efnilega
lið.
Mörk ÍBV: Zollan Belanyi 8 (5
víti), Erlingur Richardsson 5, Elliói
Vignisson 4, Cunnar Berg Viklorsson
4, Sigurður Friðriksson 4, Arnar
Pétursson 3, Daði Pálsson 1 og
Davíð HaHgrímsson 1.
Gleraugnaþjón-
usta frá Optik
Sérfræðingur verður staddur í skóverslun Axel Ó.
frá þriöjudeginum 22. nóv. til föstudagsins 25. nóv
og frá miðvikudeginum 30. nóv. til föstudagsins 2.
des.
ÍBVgerði jafntefli við efsta liðið, Stjörnuna, 20-20
Frábær endasprettur
Hvers veana tekurJón Braai Arnarsson fram handboltaskóna eftiröára hlé?
Ekki að
eigin ósk
Jón Bragi Arnarsson, varnar-
jaxlinn snjalli i vörninni hjá IBV í
fótboltanum, hefur tekið fram
skóna í handboltanum að nýju og
mun standa í markinu hjá IBV í
næstu leikjum. Jón Bragi cr
enginn nýgræðingur í hand-
boltanum. Hann var í mörg ár í
markinu hjá Tý og síðar hjá IBV í
handboltanum og lék til að mynda
eitt ár sem hálfatvinnumaður í
Noregi. Með handboltanum Iék
Jón Bragi einnig í fótbolta en árið
1989 lét hann handboltaskóna á
hilluna og snéri sér alfarið að fót-
boltanum og hefur leikið þar við
góðan orðstír síðan. Þess má geta
að Jón Bragi mun ásamt Friðrik
Friðrikssyni sjá um æfingar hjá
knattspyrnuliði IBV í vetur þess á
milli seni Atli Eðvaldsson er ekki í
bænum. Jón Bragi er að verða 32
ára gamall, kvæntur Hclcnu Jóns-
dóttur. I>au eiga tvö börn, Þorgils
Orra og Margréti Steinunni. Fyrst
berst talið að því hvers vegna Jón
Bragi sé að hefja æfingar í hand-
boltanum á nýjan leik.
„Það kemur einfaldlega til af því
að handknattleiksráðið hafði sam-
band við mig og bað mig um það.
Það var því ekki að eigin ósk að ég er
byrjaður aftur en ég sló til því ég hef
gaman af handbolta."
- Var það út af því að þeir hafa
ekki verið nógu ánægðir með
markvörsluna hjá IBV í vetur?
„Þetta eru ungir og efnilcgir
strákar sem eru í markinu en þeir
hafa ekki náð sér á strik. Ég á að
koma inn í þetta og aðstoða þá og
jafnvel spila ef því er aó skipta. En
ég á ekki von á því að þeir vilji láta
einhvem gamlan karl koma og taka
stöðuna sína. Ég mun leiðbeina
markvörðunum eins og ég get enda
kem ég ekki alveg að tómum
kofanum þar.“
- Verður þú með í allan vetur?
„Það er alveg óráðið. Þetta kom
upp á í síðustu viku og ég var
nokkuð efins. Það eru fimm leikir
fram ab áramótum og ég ætla alla
vega að klára þá. Þá sé ég hvort ég á
eitthvað erindi í þetta. Ef þetta
gengur vel er aldrei að vita hvað ég
geri en eins og staðan er núna verður
þetta fram að áramótum í bili.“
- Er ekki rosalega mikið að gera
hjá þér?
„Alveg nóg, þakka þér fyrir. Það
verða æfingar á hverjum degi næstu
vikumar, í handbolta og fótbolta.
Jón Bragi í markinu hjá ÍBV árið 1987,
Þetta mun auðvitað rekast töluvert á
en það verður að hafa það. Ég hef
einnig þurft að treysta nokkuð á vin-
nufélaga mína í lögreglunni til að
hlaupa í skarðið og þeir hafa staðið
sig frábæriega vel. Án þeirra væri
þetta ómögulegt."
- Kemur þctta ekki niður á
fjölskyldulífinu?
„Það má geta nærri um það.“
- Er ekki átak að byrja í handbolta
að nýju eftir 5 ára hlé?
„Jú, auðvitað eru það viðbrigði
eftir að hafa verið í fótboltanum. En
málið er að ég er í góðu líkamlegu
formi en ég verð bara að vona að
snerpan sé enn til staðar."
- Þær sögur hafa heyrst að þú ætlir
að Icggja skóna á hiliuna í fót-
boltanum. Er það rétt?
„Nei, sögur af skóleysi mínu eru
stórlega ýktar. Ég ætla að vera með
a.m.k. eitt sumar í viðbót en ætli ég
láti það ekki gott heita eftir það.“
- Fcrðu þá ekki í handholtann á
fullu næsta haust?
„Þegar stórt er spurt verður oft fátt
um svör,“ sagði Jón Bragi Amarsson
í BV stelpurnar sýndu loksins hvað
í þcim býr þegar þær gerðu jafn-
tefli við Stjörnuna í síðustu viku
20-20 í 1. deild kvenna. Stjarnan
hafði unnið allar sínar viðureignir
fyrir þennan leik og tapaði því
sínum fyrstu stigum.
Stjarnan hafði yfirhöndina framan
af og hafði yfir eitt mark í hálfleik,
9-10. í seinni hálfleik tók ÍBV frum-
kvæðið en í lokin komst Stjaman í
20-18. En með ótrúlegri seiglu tókst
IBV að jafna metin í lokin og átti
meira að segja síðustu sókn lciksins
en tókst ekki að nýta sér hana. Loka-
tölur urðu því 20-20.
Allt annað var að sjá leik IBV en
að undanfömu og svo virðist sem
Bjöm Elíasson þjálfari, hafi haft rétt
fyrir sér þegar hann sagði í síðustu
viku að þetta væri allt að smella
saman hjá liðinu. Gífurleg barátta var
í vöminni, markvarslan mjög góð hjá
Laufeyju Jörgensdóttur og sóknar-
leikurinn nokkuð beittur þar scm
Andrea Atladóttir fórá kostum. Hún
kórónaði frammistöðuna með
skondnu marki þegar hún skaut yfir
hálfan völlinn eftir miðju, yfir vöm-
ina og markvörðinn sem var
steinsofandi. Judit lék sinn besta leik
í vetur og Stefanía sýndi og sannaði
að hún er góð skytta og á skilið fleiri
tækifæri í sókninni en hingað til.
Þessar þrjár skomðu nánast öll mörk
IBV í leiknum. Homin vom ekki
nógu beitt og sömu sögu má segja
um línuna.
Þess má geta að IBV lék án
fjögurra leikmanna, Maríu Rósar
Ériðriksdóttur, Vigdísar Sigurðar-
dóttur, Söm Guðjónsdóttur og
Rögnu Jennýjar Friðriksdóttur, sem
eiga við meiðsli að stríða.
Mörk ÍBV: Andrea Atladóttur 8 (1
víti), Judit Eztergal 6, Stefanía Cuð-
jónsdóttir 5, Ingibjörg Jónsdóttir 1.
Laufey varði 14 skot.