Fréttir - Eyjafréttir - 21.03.1996, Blaðsíða 2
2
FRÉTTIR
Fimmtudagurinn 21. mars 1996
Fréttir
Þrjár og hálf stjarna
„Þetta var allt voða rólegt hjá okkur
eiginlega alveg steindautt enda
margir að vinna og flotinn allur á
sjó í blíðunni,“ sagði lögregluvarð-
stjóri sem rætt var við eftir helgina.
Gaf hann helginni þrjár og hálfa
stjörnu af fjórum mögulegum.
„Þetta er ein rólegasta helgin sem
ég man eftir í langan tíma og fátt
bókað nema eftirlitsferðir," bætti
hann við.
Stúlka fékk á kjaftinn
Um þrjú leytið á aðfaranótt laugar-
dagsins kom til ryskinga í hóp sem
safnaðist saman við Klett. Stúlka
,sem þar var, fékk á kjaftinn og
kærði hún það til lögreglu. Ekki
hefur hún fylgt kærunni eftir þannig
að reikna má með að ekki verði
meira úr því.
Til leiðinda á Pizza 67
Það eina sem kom inn á borð lög-
reglunnar nóttina eftir var að
manni, sem var til leiðinda á Pizza
67, var vísað þaðan út. Annars var
ekkert bókað nema eftirlit og aftur
eftirlit eins og nóttina áður.
13 umsóknir
Fyrir bæjarráði á þriðjudaginn lágu
13 umsóknir um starf atvínnu- og
ferðamálafulltrúa. Nú er gert ráð
fyrir því að leggja þetta starf niður
og ráða í staðinn forstöðumann
Þróunarfélags Vestmannaeyja sem
bæjarstjóm ætlar að koma á
koppinn. Bæjarstjóra var falið að
hal'a santband við umsækjendur og
gera þeim grein fyrir breyttri stöðu.
Jafnframt að bjóða þeim að vísa
umsóknum til væntanlegs Þróunar-
félags.
ísfélaginu þakkað
Bæjarráð tók heilshugar undir
þakkir félagsmálaráðs til eigenda
ísfélagsins, vegna púttvallar sem
félagið útbjó fyrir eldri borgara í
húsi sínu.
Selma sýnir í
Loftkastalanum
Selma Ragnarsdóttir. fatahönnuður
og stalla hennar efna til tísku-
sýningar í Loftkastalanum í
Reykjavík á ntorgun. Sýningin
hefst kl. 18:18 og þar kynna þær
nýja línu sem þær hafa verið að
hanna frá því í haust. Boðið verður
upp á ýmis skemmtiatriði og gestir
mega eiga von á óvæntum uppá-
komurn.
Hópferó á
leikÍBVá
laugardaginn
Flugleiðir hafa í samráði við
Handknattleiksráð kvenna ÍBV
ákveðið að efna til hópferðar á
leik IBV og Stjörnunnar á
laugardaginn.
Mæting á Vestmannaeyjaflug-
velli er kl. 12:30 á laugardaginn.
Leikurinn hefst klukkan 16:30.
Mætingíbrottförerkl. 18:30.
Þeir sem hafa áhuga hafi
samband við Flugleiðir í s. 481-
3300. Verðið er 4630 krónur með
skatti.
Bráðabirgðatölur Fiskistofu fyrir janúar og febrúar:
M fyjamaniw 30 þúsund
tonnum meiri enásíðosta ári
-72.180 tonn af fiski á land í Vestmannaeyjum á móti 42.248 tonnum á sama tíma í fyrra. Munar mestu um
loðnuaflann sem var 69.374 tonn fyrstu tvo mánuði þessa árs en 1995 var hann 38,066 tonn.
í lok febrúar sl. voru komin 72.180
tonn af fiski á land í Vestmanna-
eyjum á móti 42.248 tonnum á
sama tíma í fyrra að því er kemur
fram í bráðabirgðatölum Fiskistofu.
Munar þar mestu um loðnuaflann
sem var 69.374 tonn fyrstu tvo
mánuði þessa árs en í fyrra var
hann 38,066 tonn. Botnfískaflinn
hefur aftur á minnkað úr 4182
tonnum í 2806 tonn á milli ára.
Mestur hluti loðnuaflans núna, eða
62.061 tonn, kom á land í febrúar en
1995 var loðnuaflinn 37.072 tonn.
Sennilega er loðnuaflinn í ár sá mesti
sem borist hefur á land I Vestmanna-
eyjum í einum mánuði. Einnig hefur
síldaraflinn tekið stórt stökk upp á við
fyrstu tvo mánuði þessa árs miðað við
síðasta ár. Núna var hann 4518 tonn
en var 994 tonn í fyrra. Er síldaraflinn
í ár sá mesti sem borist hefur á land á
þessum árstíma í nokkra áratugi.
Ef botnfiskaflinn er borinn saman
fyrstu tvo mánuði áranna 1995 og
1996 kemur ljós að ufsa- og karfa-
aflinn hefur dregist verulega saman en
þorskaflinn er nánast sá sami. Árið
1995 komu 1131 tonn af þorski á land
í Eyjum en 1110 í ár. Ysuaflinn er
heldur upp á við, fer úr 374 tonnum í
389 tonn en ufsinn fer úr 1659 tonnum
í 692 tonn og karfmn úr 814 tonnum í
341 tonn. Annar botnfiskafli var 205
tonn árið 1995 en er 274 tonn í ár.
Tölur um botnfiskafla miðast við
óslægðan ftsk með haus.
SKEMMDIST I OVEÐRI: Húsið sem skátarnir eru að byggja austan við Þorlaugargerði
skemmdist talsvert í óveðri fyrir um viku síðan. Húsið er klætt með gipsplötum og virðist sem
vindurinn hafi náð að komast inn í húsið. Var þrýstingurinn það mikill að plöturnar sprungu út á
nokkrum stöðum. Samkvæmt upplýsingum Bjarna Sighvatssonar, er enn ókannað hvað tjónið er
mikið en skátarnir verða að bera það sjálfir því húsið er ótryggt.
Af bjartsýni
Um árabil hefur verið rekin óopinber vinnu-
miðlunarskrifstofa í Eyjabúð við Strand-
veginn. Þar hafa skipstjórar og útgerðarmenn
fengið að hengja auglýsingar í glugga ef vant-
að hefur mannskap á flotann. Fyrir svo sem
tveimur áratugum var ekki óalgengt að
gluggarnir í Eyjabúð væru svo þétt setnir af
slíkum auglýsingum að lítt sást inn um þá. Til
að mynda man skrifari eftir einni auglýsingu
þar sem auglýst var eftir skipstjóra og skips-
höfn á ákveðið skip.
Þetta var á þeim árurn sem atvinnuleysi var
óþekkt hugtak í Vestmannaeyjum og framboð
á störfum meira en eftirspumin. En síðan
hefur mikið vatn mnnið til sjávar og margt
breyst í þjóðfélaginu. Nú hin síðari ár hefur
meira verið um að auglýsingamar í
gluggunum í Eyjabúð hafi verið frá atvinnu-
lausum sjómönnum sem hefur vantað
skiprúm.
En í síðustu viku sá skrifari þess merki að
eitthvað hafði breyst. Upp voru komnar þrjár
auglýsingar þar sem óskað var eftir sjó-
mönnum til starfa, alls vantaði fimm sjómenn
á Eyjaflotann. Bogi í Eyjabúð sagði að þetta
væri nýnæmi og til að mynda væri mjög langt
síðan auglýst hefði verið eftir hásetum. En
hann var líka hinn ánægðasti með Jtessa þróun
mála eins og líklega flestir.
Þróun í útgerðarmálum í Vestmannaeyjum
hefur verið mönnum nokkurt áhyggjuefni á
síðustu árum. Tilkoma kvóta og eignarhald á
honum hefur orðið til þess að útgerð hefur
færst á æ færri hendur og sá möguleiki nánast
úr sögunni, eins og tíðkaðist fyrir nokkrum
árum, að ungir og áltugasamir menn hefðu
tækifæri til að stofna eigin útgerð. Skrifari
minnist þess til dæmis að fyrir nokkrunt áruni
komu þingmenn kjördæmisins í heimsókn upp
í Stýrimannaskóla, rétt fyrir kosningar, til að
ræða við nemendur. Margrét Frímannsdóttir
spurði nemendur m.a. þeirrar spumingar
hvemig horfur væm fyrir unga ntenn að
komast í útgerð í dag. Einn nemendanna
svaraði þeirri spumingu þannig að einungis
væru tveir möguleikar til slíks. Annað hvort
fæddust menn inn í útgerð eða þeir.... sig inn í
hana, (þarna notaði nemandinn orð sem ekki
þykir prenthæft enda kom nokkuð á þingmenn
við þetta skorinorða svar). En þama hitti hann
líka naglann á höfuðið. Þeir einir hafa komist
inn í útgerð sem geta státað af einhverjum
ættartengslum í því sambandi.
Þangað til nú á þessu ári. Þau gleðilegu
tíðindi hafa nú gerst að ungir og bjartsýnir
menn hafa sagt kerfmu stríð á hendur og
ákveðið að reyna sig í útgerðaiTekstri. Þetta er
ánægjuleg þróun. í stað þess að skipum fækki
í byggðarlaginu, sjást nú í fyrsta sinn í langan
tíma rnerki þess að flotinn sé að stækka. línu-
ritið er aftur farið að stíga upp á við, hægt að
vísu enda em þessi tvö skip ekki stór að rúm-
lestatölu. En þetta er rétta leiðin og til að
mynda munu þessi skipakaup eiga sinn þátt í
áðumefndum auglýsingum í Eyjabúð.
Ekki hafa allir spáð vel fyrir jxssum nýju út-
gerðamtönnum, sumum þykir þetta óðs manns
æði og segja dæmið ekki geta gengið upp.
Þeir em aftur á móti fullir af trú á sjálfa sig,
framtíðina og atvinnugreinina, staðráðnir í að
gera sitt besta með hjálp guðs og góðra manna.
Skrifaii óskar þessum bjartsýnu og áræðnu
ungu mönnum, sem flestir em nemendur hans,
bæði úr bamaskóla og stýrimannaskóla, alls
hins besta í útgerðinni. Hann þykist þess full-
viss að útgerðin verði ekki eintómur dans á
rósum frernur en annar atvinnurekstur en hann
fagnar því að enn skuli finnast í Vestmanna-
eyjum menn sem neita að láta kerfið múlbinda
sig og leita þeirra möguleika sem gefast. Til
hamingju með það. Sigurg.
\
FRÉTTIR
Útgefandi: Eyjaprent hf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Fréttastjóri: Þorsteinn
Gunnarsson. Abyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson. Prentvinna: Eyjaprent hf.
Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481 -
1293. Netfang/rafpóstur frettir@ismennt.is. Heimasíða FRÉTTA:http://vey.ismenntis/~frettir
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti,
Novu, Skýlinu, Tvistinum, Pinnanum, Kránni, Búrinu, Vöruval, Herjólfi, Flugvallarversluninni,
Eyjakaup, Eyjakjör og Söluskálanum. í Reykjavík: hjá Esso Stóragerði og í Flugteríunni á
Reykjavíkurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum. FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum
bæjar- og héraðsfréttablaða.