Fréttir - Eyjafréttir - 21.03.1996, Blaðsíða 4
Sœlkeri víkunnar
Ódýr ha
Ég þakka ekki fyrir
þessa áskorun því
Sigurjón var búinn
að handsala loforð
um að skora ekki á
mig. En ég læt mig
samt hafa og það og
býð upp á góðan
hakkrétt.
HAKKRÉTTUR VIKTORS
I /2 kg nautahakk
1 egg
1 msk sinnep
Hvítlaukur að vild
Slat
Pipar
1 dlrasp
2 dl kjötsoð (2 súputeningar í heitt
vatn)
1 laukur í sneiðum
3 tómatar (eða Vi dós tómatar)
1 lítil paprika í sneiðum
Rifinn ostur
Hakkið hrært með eggi og kryddi.
Raspið látið drekka í sig kjötsoðið.
Síðan er öllu hrært saman. Kjötbland-
an sett í eldfast mót og ofan á hana enr
Fréttir
- Viktor Hjartarson
kkréttur
settar tómatsneiðar (eða marðir
tómatar), paprika, laukur og að lokum
er osti stráð yfir. Bakað í hálfa
klukkustund við 200 til 225 gráðu
hita.
Rétturinn er borinn fram með hvít-
lauksbrauði og hrásalati. Þetta er mjög
ódýr réttur fyrir fjóra en hann kostar
aðeins um 600 kr.
Ég skora á Guðjón Kjartansson sem
er rosalega góður kokkur.
Verði ykkur að góðu!
ORÐSPOR - ORÐSPOR
Fréttir af hrakförum rollu einnar í Reykjavík um helgina
vöktu athygli enda ekki á hverjum degi sem rollum er rænt
á þennan hátt til brúks. Onefndur úteyingur hafði samband
við blaðið og sagði lausnina á þessari ráðgátu fundna. Sú
saga fljúgi nefnilega fjöllunum hærra að Suðureyingar hafi
verið með árshátíð í Reykjavík um helgina!!!
Kennarinn: Hefur þú ekki lesið bréf Páls postula til Korintuborgarmanna?
Nemandinn: Onei, ég legg það ekki í vana minn að hnýsast í bréf annarra
manna!
Frábær stemmning
og skemmtun
A nýafstöðnu
Innanhússmeistaramóti í sundi
sem haldið var 1' Eyjum, lögðu
margir hönd á plóg við undirbúning
og starf meðan mótið stóð yfir.
Blaðafulltrúi mótsins var Helga
Tryggvadóttirog hafði hún í nógu að
snúast allan tímann og þótti standa
sig vel í sínu starfi. Helga er
Eyjamaður vikunnar að þessu sinni.
Fulltnafn? Helga Tryggvadóttir.
Fæðingardagur og ár? 22. febrúar
1966.
Fæðingarstaður? Reykjavík.
Fjölskylduhagir? Sjálfstæð móðir
tveggja dætra, Rósu Sólveigar og
Karenar Rutar.
Menntun og starf? Stúdent af
fjölmiðlabraut Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti og BA
gráða í sálfræði frá Háskóla
Islands. Núverandi starf er
uppeldi dætranna.
Laun? Engin veraldleg.
Helstigalli? Égkugeta
verið með afbrigðum morgun-
fúl.
Helsti kostur? Þarna fórstu alveg
með það.
Uppáhaldsmatur? Ég held mikið
upp á kjötrétti sem innihalda mikið af
grænmeti.
Versti matur? Súrmatur.
Uppáhaldstónlist? Sálartónlist,
Sinatra og eiginlega allt nema sveita-
tónlist. Svo eru tónleikarnir, sem
Rósa dóttir mín heldur, alveg
frábærir.
Hvar myndir þú vera ef þú yrðir
fluga á vegg í einn dag? Hjá
ákveðinni vinkonu minni, sem er í
FÍV, þegar hún tekur þá ákvörðun að
„læra heima” þann daginn.
Uppáhalds stjórnmálamaður?
Össur Skarphéðinsson er ágætur.
Getur þú bent á einhvern
forsetaframbjóðanda? Formaður
sunddeildar ÍBV, Elías Atlason, upp-
fyllir öll skilyrði, alla vega þetta með
aldurinn. Svo er hann líka einstak-
lega virðulegur.
Uppáhalds íþróttamaður? Logi
Jes, að sjálfsögðu.
Hvert er eftirlætissjónvarpsefnið
þitt? Fréttatengt efni og sjúkrahúsa-
vandamálaþættir, t.d. Chicago
^ Hope.
Hvaða sjón-
varpsras
horfir þú mest á?
Líklega Stöð 2.
Uppáhaldsleikari? Ektaparið Susan
Sarandon og Tim Robbins klikkar
aldrei.
Uppáhaldskvikmynd? Forrest
Gump.
Uppáhaldsbók? Égámérfrekar
uppáhaldshöfunda en einhverja ein-
staka bók. T.d. fyrri bækur eftir Tom
Clancy. í dag er það Oliver Sacks
taugalæknir sem skrifar um sérstök
taugafræðiieg fyrirbæri sem á vegi
hans verða.
Hver eru helstu áhugamál þín?
Sálfræði, sund, lestur og svo er
ákaflega notalegt að grípa í prjónana
þegar tími gefst til. Einnig hef ég
mjög gaman af að stússa í eldhúsinu.
Hvað metur þú mest í fari annarra?
Heiðarleika, umburðarlyndi og gott
skap. Annars er erfitt að gera upp á
milli góðra eiginleika fólks.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fariannarra? Hroki.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á? Banff í Kanada og svo
auðvitað Eyjar
Hvað liggur mikil vinna á bakvið
móteinsog IMÍ? Mjögmikil. Núna
voru tveir og hálfur mánuður til stefnu
frá því að ákvörðun vartekin um
að halda mótið hérna. Það er
ítill tími en með mikilli vinnu
tókst allt mjög vel. þetta var í 8.
sinn sem sunddeildin er
framkvæmdaaðili mótsins þannig
að fólk er orðið þjálfað í þessu og
gengur beint til verks.
En hversu margir sjálfboðaliðar
koma nálægt mótinu? Um40
manns.
Hvernig var þetta mót samanborið
við önnur? Þetta mót var mjög gott.
Líklega það besta frá 1992.
Nær Logi Jes Ólympíulág-
mörkunum? Því býst ég fastlega
við. Að hann skyldi bæta sig bæði í
100 og 200 m sýnir að hann er á réttri
leið og er að gera góða hluti. Auk
þess er andlega hliðin í lagi og það
hefur ekki lítið að segja. Hann hefur
sjálfur trú á sér og við verðum bara
að senda honum góða strauma og
standa með honum.
Hvað dettur þér í hug þegar þú
heyrir eftirfarandi orð?
-Sund? Maggi bróðir.
- Logi Jes? Frábær íþróttamaður og
manneskja sem við getum verið stolt
af.
- Sunddeild ÍBV? Duglegir krakkar.
- IMÍ? Stemmning og frábær
skemmtun
Eitthvað að lokum? Hvar er 50
metra innilaugin???
Fimmtudagur 21. mars 1996
Dagur tónlistarfólks á laugardaginn:
Sameiginlegir
tónleikar
- Samkórsins, Kórs Landakirkju,
Harmonikkufélagsins og Lúðrasveitarinnar.
Tónlist, tónlist, tónlist. Á laugar-
daginn sameinast Lúðrasveit Vest-
mannaeyja, Harmonikkufélag
Vestmannaeyja, Kór Landakirkju
og Samkór Vestmannaeyja í
miklum tónlistarviðburði í
Safnaðarheimilinu kl. 16:00.
Þetta er dagur tónlistarfólks í Vest-
mannaeyjum og hefur verið unnið að
undirbúningi frá því í haust. Hug-
myndin mun hafa kviknað þegar Kór
Landakirkju og Samkórinn unnu sam-
an að jólatónleikum.
Tónleikarnir verða þannig upp
byggðir að Kór Landakirkju flytur
fyrst nokkur lög, þá Harmonikku-
félagið, Samkórinn og síðast Lúðra-
sveitin. f lok tónleikanna munu kór-
amir syngja saman nokkur lög við
undirleik Lúðrasveitarinnar.
Hér er um einstæðan tónlistar-
viðburð í Eyjum að ræða því hér
leggst tónlistarfólk í Vestmannaeyjum
á eitt í sameiginlegum tónleikum.
Efnisskráin er fjölbreytt eins og við er
að búast þegar fjórir hópar listafólks
sameinast um tónleika. Sérstök ástæða
er til þess að hvetja fólk til að fjöl-
menna í Safnaðarheimilið á laugar-
daginn til að sýna í verki að það kunni
að meta framlag sem þetta. Miðaverð
á tónleika er kr. 800.
Tónlistarfólk mun um kvöldið
halda sameiginlega veislu í Kiwanis
þar sem án vafa verður glatt á hjalla
og lagið tekið! Þar mun að sjálfsögðu
Eyjahljómsveit leika fyrir dansi,
hljómsveitin Dans á rósum.
Góð aésókn í pútt eldri borgarn
Mjög góð aðsókn er að púttvelli eldri borgara í ísfélaginu sem opnaður var
um þar síðustu helgi.
Kristjana Þorfinnsdóttir, formaður Félags eldri borgara segir að enn sakni hún
fleiri félaga sem viti kannski ekki alveg hvað pútt er. Hér sé ekki um að ræða að
slá goifkúlur með golfkylfu langar vegalengdir heldur eru þetta stuttar brautir
þar sem reynt er að koma golfkúlu niður með smá lagni og henti sérlega vel
fólki á besta aldri!
Auk þess er einnig boðið upp á boccia sem er íþrótt sem allir hafa gaman af.
Opnunartími púttvallarins er eftirfarandi:
Mánudagar, miðvikudagar og fimmtudagar ki. 14 til 16.
Þriðjudaga kl. 13 til 15 en þá er líka boðið upp á boccia.
Eldri borgurum er velkomið að líta inn og kynnast golfíþróttinni í glæsilegum
húsakynjtum. Alltaf er heitt á könnunni.
NÝFfEDDIR VESTMfiNNfiEYINGfiR
Drengur
Þann 15. mars sl.
eignuðust Þórunn
Jónsdóttir og Hlynur
Geir Richardsson dreng.
Hann vó 16 merkur og
var 54 sm á lengd .
Ljósmóðir:
Guðný Bjamadóttir.
FRÁ ODDINUM
Páskavörur - Páskaskraut í úrvali.
Mikið úrval al bast- og tágakörfum í
mörgum stærðum.
RITFANGA- OG GJAFAVÖRUVERSLUNIN
ODDURINN
STRANDVEGI 45 - SÍMI 481 1945