Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 21.03.1996, Blaðsíða 14

Fréttir - Eyjafréttir - 21.03.1996, Blaðsíða 14
18 Fréttir Fimmtudagur 21. mars 1996 LANDAKIRKJA Fimmtudagur 21.3. Kl.17:00 T.T.T. æskulýðsstarf fyrir tíu til tólf ára- leikir og létt gaman Laugardagur 23.3. Krakkar úr T.T.T halda á T.T.T. mót í Vatnaskógi þessa helgi. KI.KcOO Sameiginlegir tónleikar Kórs Landakirkju, Samkórs Vestmannaeyja, Lúðrasveitar Vestinannaeyja og Harmonikku- félags Vestmannaeyja. Sunnudagur 24.3. Kl. 11:00 Sunnudagaskóli Kl. 14:00 Almenn Guðsþjónusta- Messukaffi Kl. 20:30 KFUM & K fundur- BINGÓ - veglegir vinningar, spjaldið ákr.200,- Þriðjudagur 26.3. Kl. 16:00 Fenningartímar - Bamaskólinn- Munnlegt próf Kl. 17:00 Kirkjuprakkarar - fyrir 7 til 9 ára! Kl. 20:30 Biblíulestur í heimahúsi Upplýsingar á skrifstofu. Miðvikudagur 27.3. Kl. 10:00 Mömmumorgunn Kl. 12:10 Kyrrðarstund í hádegi Kl. 16:00 Fermingartími - Hamarskólinn- Munnlegt próf Kl. 20:30 Opið hús fyrir unglinga í KFUM & K húsinu. Hvítasunnukirkjan Fimmtudagur 20:30 Biblfulestur. Föstudagur 20:30 Samkoma fyrir ungt fólk. Laugardagur 13:00 Krakkaklúbbur 20:30 Brotning brauðsins Sunnudagur 15:00 Vakningarsamkoma Fjölbreyttur söngur, lifandi orð! Þriðjudagur kl. 20:30 Samfélagshópur. Samkomurnar eru öllum opnar. Aðventkirkjan Laugardagur: kl. 10:00 Biblíurannsókn kl. 11:00 Guðsþjónusta Ræðumaður: Ólafur V. Þóroddsson. Þriðjudagur: kl. 20:00 Biblíurannsókn Efni: Opinberunarbókin Verið velkontin í Aðventkirkjuna. Áhugafélag UM BÖRN OG BRJÓSTAGJÖF Opið hús í Safnaðarheimili Landakirkju alla mánudaga milli kl. 16 og 17. Baháí samfélagið Opið hús að Kirkjuvegi 72B, fyrsta föstudag hvers mánaðar kl. 20:30. Almenn umræðuefni. Allir velkomn- Góður endasprettur hjá 2. deildarliði ÍV í körfubolta: Nýtt PC kerfi hjá Bæjarveitum Þessa dagana er verið að setja upp PC kerfi á Bæjarveitunum en tæknideild bæjarins hefur flutt þar inn. Verður öll grafísk vinna Bæjarveitna og tækni- deildar sameiginleg sem hefur marga mjög góða kosti í för með sér. 1 síð- ustu viku voru teknar í hús Bæjar- veitna öflugar Hyundai Pentium tölv- ur en nú er einnig verið að tölvuvæða Ráðhúsið. Þá er verið að vinna að því að setja upp örbylgjusamband á milli Ráðhússins, Ahaldahússins og Tölv- unar sem sér um tölvukeyrslu fisk- vinnslustöðvanna og skapast við þetta ótrúlegir mögulegar en hér er um brautryðjendastarf að ræða. Davíð íTölvun og Sigurjón skrifstofustjóri Bæjarveitna við nýju PC tölvurnar. Unnu báðtt andsiæðinga sína 2. deildarlið ÍV. Þriðja og síðasta umferð í Suðurlandsriöli 2. deildar í körfu- bolta fór fram um helgina. ÍV gerði sér lítið fyrir og vann báða and- stæðinga sína. Hins vegar dugði það ekki til þess að komast í úrslita- keppnina en ÍV lenti í 2. sæti. Mótið átti að fara fram 9. mars en var frestað vegna veðurs. ÍV lék gegn Hvergerðingum á fös- tudaginn og við Laugdælinga á sunnudaginn. Aðeins sjö leikmenn komust með í ferðina enda greiða leik- menn sjálftr ferðakostnað. Spiluðu þeir báða leikina, nema Jónatan Guðbrandsson sem lék aðeins þann fyrri vegna anna heima fyrir. Sást svo til hans í körfubolta við Bamaskólann á sunnudeginum! ÍV bættist góður liðsauki fyrir síðustu umferðina. Friðrik Stefánsson, fyrrum unglingalandsliðsmaður, er kominn heim frá Akureyri og spilaði með liðinu. Var hann mikill styrkur fyrir þetta unga Eyjalið þar sem alla ógnun hefur vantað undir körfuna í vetur. Væri fróðlegt að sjá hvar liðið væri statt núna ef hann hefði spilað hina leikina. ÍBV byrjaði leikinn gegn Hamri af miklu krafti og yfirspilaði Hvergerð- ingana gjörsamlega í fyrri hálfleik. Staðan var þá orðin 52-26! I seinni hálfleik einsettu strákamir sér að hafa gaman af þessu og var sigurinn aldrei í hættu þrátt fyrir að þeir hefðu aðeins Ingibjörg K. Gísladóttir Sveinn Gíslason Guðbjörg Gísladóttir Runólfur Gíslason Gísli Gíslason slakað á f lokin enda kornin þreyta í þá. Örn Eyfjörð, Amsteinn Jóhanns- son og Friðrik Stefánsson vom atkvæðamestir en aðrir börðust einnig vel. ÍV sigraði Hamar 91-79. Stig IV: Örn Eyfjörð 32, Arnsteinn 26, Friðrik 21, Jónatan 7, Sigurjón A. 3 og Gísli Gunnar 2. Á sunnudaginn fóm strákamir á Laugarvatn og spiluðu við heima- menn sem þegar höfðu tryggt sér sæti í úrslitakeppni 2. deildar. Laugvetn- ingar byijuðu leikinn án síns sterkasta leikmanns sem lá í bæli sínu heima fyrir. IV byrjaði með látum og tróð Erling A. Ágústsson Ragnar Jónsson Margo J. Renner Amsteinn glæsilega strax í íyrstu sókn og gaf tóninn. IV komst í 19-4 eftir 5 mínútna leik. Þá tóku Laugvetningar til sinna ráða og vöktu lykilmann sinn sem mætti með stírumar í augunum eflir örfáar mínútur. Hann hefði betur haldið sig í rúminu því kraftakarlamir Friðrik og Sigurjón tóku hann í kennslustund og tróð Friðrik t.d. fjómm sinnum yfir hann! Staðan í hálfleik var 48-36 fyrir IV. Laugvetn- ingar vöknuðu aðeins til lífsins í seinni hálfleik en áttu engin svör við þriggja stiga skotum Amsteins sem var í miklum ham og skoraði alls 6 slíkar. Sem fyrr var það þríeykið sem skoraði mest fyrir ÍV. Vert er þó að geta Gísla Gunnars sem spilaði sérlega vel fyrir liðið, og Sigurjóns sem sýndi enga miskunn í vöminni! Kristinn Týr fékk loks tækifæri eftir að hafa vermt bekkinn í allan vetur og sýndi það og sannaði að hann er einn besti varnar- maður liðsins og dreif liðið áfram með baráttu sinni. Lokatölur urðu 75-63 íyrir ÍV. Stig ÍV: Amsteinn 37, Örn 18, Friðrik 16, Sigurjón A. 4. Lokastaðan í riðlinum varð þessi: Laugdælir 6 5-1 10 ÍV 6 4-2 8 Hamar 6 0-6 0 Óljóst er hvemig næsti vetur verður hjá ÍV. Öm Eyijörð hyggst reyna fyrir sér hjá sterku liði næsta vetur og sömu sögu er að segja um Friðrik. Þá er Amsteinn á leiðinni til útlanda í náin. t Hjartans þakkir til allra þeina fjölmörgu sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vinsemd við andlát og útför ástkærs bróður okkar og mágs MAGNÚSAR GÍSLASONAR frá Hvanneyri Guð blessi ykkur öll Úrslitakeppnin um helgina! Riðlakeppni hópaleiksins er nú lokið og áttu margir möguleika á að komast áfram fyrir síðustu helgi og er óhætt að segja að spennan haft verið mikil. Sú regla gildir að efstu liðin 4 í A og B riðli og efstu 4 í C og D riðli mætast í 2 úrslitariðlum. Efstu hópar úr undanriðlum taka með sér 4 stig, hópamir í 2. sæti 2 stig og hópamir í 3. sæti taka með sér I stig. Þeir hópar sem verma 4. sæti riðlanna taka ekki með sér stig í úrslitariðlana. Spilað verður í 4 umferðir og munu efstu hópar að þeim loknum spila hreinan úrslitaleik. Vinstri bræðingurinn sigraði í A-riðli með 70 stigum, Smástrákar lentu í 2. sæti með 68 stig, H.H. - flokkurinn í 3. sæti með 66 stig. Bæj- arins bestu, sýndu gamalkunnan endasprett og brugðu sér úr efstu sætunum í það fjórða. ER sigraði í B-riðli með 65 stig og geta menn rétt ímyndað sér ástandið á kaffistofu FÍV. Litla Heiði varð í öðru sæti með 63, Kaffi og koníak í 3. sæti með 62 stig ásamt Hárunum, en voru með fleiri útileiki rétta. Þessir 4 hópar mæta hópunum úr A-riðli í úrslitariðli. Asinn vann C-riðil með 67 stigum og næstir komu Babar fflakonungur og Feðgamir með 64 stig. Babar nær öðra sæti á fleiri réttum útileikjum. Silli og Valdi hf náðu 4. sæti með 63 stig. Perlusultan vann D-riðil með 67 stig, Bónda- sonurinn og Doddamir vora í 2.-3. sæti með 63 og hlýtur Bóndasonurinn 2. sætið vegna fleiri réttra útileikja. Austurbæjargengið náði að skjótast í 4. sæti með 62 stig. 32 hópa úrslit bikarkeppninnar voru á laug- ardag. Heimir Hallgr. sló út Kaffi og koníak á fleiri útileikjum réttum en báðir hópar vora með 7 rétta. Jakob Möller sló út Sigurbjöm Ingólfsson 6-5, Villta vestrið vann Klaka 74, Magnús Steindórsson og Þorsteinn Trausta vom jafnir með 5 stig en Magnús fer áfram á fleiri útileikjum. FRY var slegið út af Begga United 6-5, Oskar Öm sló út Bæjarins bestu 6-5, Pörupiltar slóu út Grundaiprinsa á réttum útileikjum eftir að báðir voru með 5 rétta. Sibbi Óskars vann Silla 7-4, Bjartur vann Ekki EF 5-4, Jói Ragg sló út Vögg Jónasson 5-4, Cantona vann Amar Baldv. 7-5. Þorsteinn Hallgn'msson sigraði Reynistað 8- 5, Vinir Ottós slógu út Vinstri bræðinginn á réttum útileikjum eftir að báðir fengu 5 rétta. Siggi Braga vann loks Hausana 7-6. Ekki er búið að draga í bikamum en það mun að sjálf- sögðu liggja fyrir á laugardagsmorgunn. Þeir sem eiga eftir að greiða þátttökugjald bikarkeppninnar eru beðnir um að gera það strax, því þessi þátttökugjöld á í raun ekki að lána því allur potturinn rennur í 1. vinning. Af beinum útsendingum er það að frétta að á laugardag sýnir RUV frá leik Arsenal og Newcastle kl. 15:00 og á sunnudag kl 16:00 sýnir SKY-sports frá leik Man. United og Tottenham Hotspur. Tipparar eru beðnir um að skila röðum inn fyrir kl. 13:00 og þess ber að geta að sölukerfi getrauna lokar kl. 12:45. Tipparar eru svo minntir á félagsnúmer Týs ogÞórssemer900. Sjáumst á laugardag. Elsku pabbi! Til hamingju með 50 ára afmælið. Lifðu heill. Þín Harpa - (JXB iAiKT irnMHUIBIlKJM. -mmm&mBm OTnmcpaLLDPtoiio - dtoBitoa Mm JiŒjaiira ú OTnmtPM FRETTIR

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.