Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 21.03.1996, Page 15

Fréttir - Eyjafréttir - 21.03.1996, Page 15
IPRÓTTiR 19 Fimmtudagur 21. mars 1996 Logi með tvö íslandsmet - og varð þrefaldur Islandsmeistari. Logi fer af stað í íslandsmetsundinu í 200 m baksundi. Logi Jes Kristjánsson baksund- maður IBV kom alla leið frá Ari- zona í Bandaríkjunum á heima- slóðir til að gera atlögu að Islands- metunum í 200 og 100 m baksundi á Innanhússmeistaramóti Islands í sundi sein haldið var um helgina í Eyjum. Og þessi langþráði draum- ur Loga rættist því hann setti Isl- andsmet í báðum vegalengdum og varð þrefaldur Islandsmeistari því hann synti einnig til sigurs í 50 m skriðsundi. Logi varð jafnframt stiga- hæsti karlmaður mótsins, fékk 908 stig fyrir 200 m baksundið. Eydís Konráðsdóttir frá Keflavík sló einnig í gegn, setti tvö Islandsmet og var stigahæst kvenna. Hún fékk 843 stig fyrir 200 m skriðsundið. Frábær árangur náðist á mótinu því sex íslandsmet voru slegin og eitt heimsmet í flokki fatlaðra. Hið unga og efnilega Eyjasundfólk sem einnig tók þátt í mótinu stóð sig með mikill prýði og sýndi miklar framfarir frá því í fyrra. Þetta var áttunda Innanhússmeist- aramótið sem fer fram í Eyjum enda er hér eina boðlega innisundlaug landsins og sú „hraðskreiðasta" þar sem hún er saltblönduð og gerir kep- pendur „léttari” í vatninu. Logi keppti fyrst í 200 m baksundi á laugardeginum, synti á 2:00,37 mín og bætti Islandsmetið um tæpa hálfa sekúndu. Daginn eftir synti hann til Islandsmets í 100 m baksundi á tímanum 56,23 en Islandsmet Eðvarðs Þórs Eðvarðssonar var 56,26. Eydís Konráðsdóttir frá Keflavík vann fjögur einstaklingsgull. Hún sló eigið Islandsmet í 100 m flugsundi en bætti 9 ára gamalt met Bryndísar Olafsdóttur í 200 m skriðsundi, synti á 2:04,40 sek. og bætti metið um hálfa sekúndu. Auk þess sigraði hún í 200 m flugsundi og 100 m baksundi. Ríkharður Ríkharðsson Ægi gerði sér lítið fyrir og setti íslandsmet í 100 m flugsundi, synti á 56,69 sek. og sló met Magnúsar Más Olafssonar. Hann vann einnig í 100 m skriðsundi en fékk silfur í 50 m skriðsundi. Amar Freyr Olafsson varð þrefaldur Islands- meistari, vann í 200 m fjórsundi, 200 og 400 m skriðsundi. Magnús Kon- ráðsson varð Islandsmeistari í tveimur greinunt, 100 og 200 m bringusundi, en varð í 2. sæti í 200 m fjórsundi. Halldóra Þorgeirsdóttir Ægi 200 vann tvö gull, í 100 og 200 m bringusundi. Og Olafur Eiríksson bætti eigið heimsmet í 100 m flugsundi í flokki fatlaðra en það var orðið íjögurra ára gamalt. Sem fyrr einokaði Ægisfólk boðsundin. Karlasveit Ægis gerði sér lítið fyrir að synti til íslandsmets í 4x200 m skriðsundi. Smári Harðarson, þjálfari ÍBV, var mjög sáttur við árangur síns fólks. „Þetta var náttúrulega stórkostlegt hjá Loga. Millitími hans í báðum sundum gaf ekki til kynna að hannværi að fara setja íslandsmet. En endaspretturinn hjá honum var frábær. Hinir krakkam- ir stóðu sig flest vel og bætingar hjá fleslum í boðsundunum. Elva Lind. Rannveig, Þórey Guðmunds, Gísli Birgir og Borgþór bættu sig öll verulega en önnur vom frekar stressuð enda á fyrsta stórmótinu sínu. Við munum ömgglega tefla fram enn ijöl- mennara liði á næsta móti því nokkrar stelpur vom rétt við lágmörkin. Eg er ntjög ánægður hvemig til tókst á mótinu og viðtökur gesta vom rosa- lega góðar,“ sagði Smári. Þær geta, vilja og þara - ÍBV stelpurnar komnar í undanúrslit eftirsigur í oddaleik gegn Víkingi í Eyjum, 29-27. „Ég sagði við stelpurnar fyrir leikinn að það væri kominn tími til fyrir þær að sýna sitt rétta andlit. Það býr svo mikið í þessu liði og mér fannst þær ekki hafa spilað vel í tveimur fyrstu leikjunum. Og þær sýndu nú sitt rétta andlit og allt liðið spilaði í heild mjög vel. Við vorum einfaldlega betri í kvöld. Okkar bíða nú spennandi undanúrslita- leikir við Stjörnuna. Við getum alveg slegið þær út. Þetta er spurn- ing urn rétt hugarfar. Formið er í góðu lagi þannig að ég hef engar áhyggjur af því. Ég vil þakka áhor- fendum fyrir frábæran stuðning. Það hleypti þvílíkum fítonskrafti í stelpurnar að sjá fulla höll af fólki styðja við bakið á þeim,“ sagði Sigbjöru Oskarsson Jjjálfari IBV við Fréttir eftir sigur IBV á Víkingi í oddaleik liðanna á þriðjudaginn í Eyjum, 29-27. ÍBV lagði gmnninn að sigrinum í fyrri hálfleik en staðan í hálfleik var j 4-10 fyrir ÍBV. I seinni hálfleik hafði ÍBV undirtökin. Á tfmabili vom Andrea og Malin teknar úr umferð en þá tók Helga Kristjánsdóttir til sinna ráða. I lokin spmngu svo ungu homa- stúlkurnar Elísa og María Rós út og röðuðu mörkunum. ÍBV náði 6 marka forystu þegar 5 mín. voru eftir en Víkingsstelpur minnkuðu muninn í tvö mörk. Ingibjörg fór á kostum en hún hefur aldrei leikið betur en í vetur og er orðinn lykilmaður liðsins í vöm og sókn. Helga átti einnig skínandi leik og Malin er ótrúlegur leikmaður. Hún skorar ekki mikið en á hverja stoð- sendinguna á fætur annarri, fiskar vítaköst og fær andstæðingana rekna útaf! Og loks létu Elísa og María Rós að sér kveða og sýndu að þær em mjög efnilegar. Minna bar á Andreu enda var hennar sérstaklega vel gætt og tekin úr umferð á tímabili. Dögg Lára var sterk í vöminni sem fyrr. Mörk ÍBV: Mörk ÍBV: Ingibjörg JónsdóJtir 8, Helga Kristjánsdóttir 6, María Rós Friðriksdóttir 5, Elísa Sigurðardóttir 4, Andrea Atladóttir 3, Malin Lake 2, Dögg Lára Sigurgeirs- dóttir I. • IBV sigraði fyrstu viðureign liðanna í Eyjum á föstudaginn, 24-23, eftir að Víkingur hafði yfir í hálfleik, 12-11. Leikurinn hvar hnífjafn og spennandi allan tímann. ÍBV skoraði tvö síðustu mörk leiksins. Sigurmark- ið gerði Ingibjörg Jónsdóttir af línunni og kórónaði þar með frábæra frammi- stöðu. Hetja IBV var hins vegar Lauf- ey Jörgensdóttir markvörður sem tók fram skóna fyrir skömmu í forföllum Mörk IBV: Ingibjörg 8/3, Andrea 5/2, Malin 4, Sara 3, Helga 2, Unnur I, Elísa I. • Annar leikur liðanna fór fram í Víkinni á sunnudaginn. Eftir jafnan leik framan af sigldi Víkingur fram úr í lokin eftir að Andrea Atladóttir fékk að líta rauða spjaldið en við það hmndi sóknarleikur IBV. Lokatölur urðu 27-21 fyrir Víkingi. Mörk IBV: Ingibjörg 6, Helga 4, María Rós 3, Andrea 4, Malin 2, Sara I, Elísa 1. 03 1 % *wv.. Ingibjörg Jónsdóttir hefur farið hamförum upp á síðkastið með ÍBV og átt hvern stórleikinn á fætur öðrum. Hér brýst hún inn af línunni í leik ÍBV og Víkings sl. föstudagskvöld. Mynd: Ingi Tómas. IBV og Stjarnan í Eyjum á mánudaginn Annað árið í röð mætast ÍBV og Stjarnan í undanúrslitum. í fyrra sigraði Stjaman fyrst í Garðabæ og svo mjög sannfærandi í Eyjurn og varð svo Islandsmeistari eftir auð- velda sigra á Fram. Fyrsti leikur Stjömunnar og ÍBV fer fram í Garðabæ á laugardaginn. Ann- ar leikurinn verður í Eyjum nk. mánu- dag kl. 20:00. Ef ÍBV ætlar sér að komast í úrslitaleik verður liðið að sigra þann leik. Ef til oddaleiks kernur fer hann fram nk. miðvikudag í Garðabæ. Vestmannaeyingar eru að sjálfsögðu hvattir til að styðja vel við bakið á stelpunum á mánudaginn. 2. flokkur ÍBV vann örugglega 2. Ilokkur ÍBV vann fjórða og síðasta fjölliðamótið sem haldið var um helgina. ÍBV vann þar með tvö fjölliðamót og Haukar tvö. Þrátt fyrir að ÍBV sé með mun hagstæð- ari markatölu og betri árangur í innbyrðis viðureignum liðanna rnunu þau eigast við í aukaleik um deildarmeistaratitilinn. Sjálf úrslilakeppnin um íslands- meistaratitilinn fer fram 20. apríl og keppa 10 lið til úrslita. ÍBV sigraði Val og KR um helg- ina en gerði jafntefli við Hauka og IR. Eyjamenn eru án vafa með besta lið Iandsins í 2. ílokki en strákamir urðu sem kunnugt er bik- armeistarar fyrir skömmu. Gunnar Berg Viktorsson, sem meiddist í síðasta leik meistaraflokks, lék á öðrum fæti í mótinu og helst að það geti komið í veg fyrir meistara- vonir. En Valdimar Pétursson fór á kostum hjá ÍBV og skoraði 17 mörk í tveimur síðustu leikjunum. ÍBV sigraði Gavle í vítaspyrnu- keppni á Kýpur Knattspymulið ÍBV fór til Kýpur sl. sunnudag í viku æfinga- og keppnisferð. ÍBV leikur þrjá æfingaleiki í móti sem fer frant í tveimur riðlum. IBV lék fyrsta leikinn sinn sl. þriðjudag og sigraði Gavle, sem er I. deildarlið í Svíþjóð, 9-8 í vítaspyrnukeppni. Staðan eftir venjulegan leiktúna var markalaus. Að sögn Jóhannestir Olafssonar, formanns knattspymuráðs, sem er með liðinu á Kýpur, var ÍBV sterkara liðið á vellinum en nýtti illa dauðafæri. Þá var dómari leiksins, sem var sænskur, okkar mönnum erfíður. Það var Friðrik Friðriksson markvörður sem var hetja ÍBV. Hann varði þrjár vítaspymur í vítakeppninni og sko- raði svo sigurmarkið sjálfur! Lið ÍBV var þannig skipað að Friðrik var í markinu. Jón Bragi og Hermann miðverðir, Friðrik og Heimir bakverðir, Ingi, Leifur Geir, Hlynur og Bjamólfur á miðjunni og Tryggvi og Steingrímur frammi. I seinni hálfleik komu inn á Rútur, Magnús, Lúðvík og Nökkvi. „Við æfum við frábærar aðstæð- ur. Æfmgasvæðið er til fyrirmyndar og hótelið l'yrsta flokks. Og ekki má gleyrna veðrinu en hér er yfir 20 gráðu hiti. Það má alveg nefna að norska knattspymusambandið borgar fyrir norsku liðin sem hér eru og stuðningsaðilar sænsku liðanna borga fyrir sín lið. Strák- amir okkur bónuðu hins vegar bfla til að komast út,“ sagði Jóhannes. í dag á ÍBV að leika í undanúrslit- um mótsins og á laugardaginn er keppt um sæti. Liðið er svo vænt- anlegt heim á sunnudaginn og þá tekur við deildarbikarkeppnin hér heima. Björn til liðs við ÍBV úr KR Knattspyrnulið ÍBV hefur fengið liðsstyrk. Bjöm Jakobsson, 18 ára KR-ingur, er kominn í raðir ÍBV. Hann er sóknarmaður og er í unglingalandsliðinu. Bjöm er á öðru ári í 2. flokki og fór með ÍBV til Kýpur. Eina skilyrðið fyrir því að ÍBV tæki hann var að hann klippti hárið en hann var nokkuð síðhærður!

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.