Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 21.03.1996, Qupperneq 10

Fréttir - Eyjafréttir - 21.03.1996, Qupperneq 10
14 Fréttir Fimmtudagurinn 21. mars 1996 Vel heppnuð kynning Vinnslustöðvarinnar á steikingarsaltfiski á Hótel Sögu: Sigurður Hall leiðbeinir gestum á Sögu við val á saltfiskréttum en alls gátu gestir valið um 30 til 40 rétti. Ljósmyndir: Rasi. Saltfískur í hótíðabúningi Kynning Vinnslustöðvar á steikingarsaltfiski á Hótel Sögu hefur farið fram úr björtustu vonum. Boðið er upp á 30 til 40 uppskriftir af saltfiski sem Sigurður Hall, matreiðslumeistari, Þorbergur Aðalsteinsson og Ragnar Wessman, yfirmatreiðslumeistari á Hótel Sögu, eiga heiðurinn af. Steikingar- saltfiskurinn, sem framleiddur er í Vinnslustöðinni undir merkinu 200 mílur, hefur fengið mjög góðar við- tökur. Er þetta stærsta átak sem gert hefur verið til að kynna fyrir Islendingum hvaða möguleika salt- fiskur býður upp á sem hráefni í veislurétti. Er leitað í smiðju Spánverja en á Spáni er saltfiskur mikilsmetinn, ekki síst fiskur frá Islandi. Er hann hráefni í ótal veislurétti hjá Spánverjum og voru 30 til 40 þeirra kynntir á Sögu. Kynningin hófst á fimmtudaginn í síðustu viku og henni lýkur í dag að því er Þorbergur Aðalsteinsson, fram- leiðslustjóri, tjáði blaðinu. Fer hún fram á veitingastaðnum Skrúð sem er á neðstu hæð Hótel Sögu. Þorbergur segir að þar séu í boði milli 30 og 40 réttir úr steikingarsaltfiski á hlaðborði. „Hann er, soðinn, hrár, marineraður og steiktur á allra handa máta. Auk þess er boðið upp á salöt og eggja- kökur þar sem saltfiskurinn er uppistaðan. Þetta hefur líkað mjög vel og viðtökurnar eru miklu betri en nokkurþorði að vona. Um helgina var fullt út úr dyrum. Sjálfur ætlaði ég að smakka á krásunum á laugardaginn og varð ég að bíða í einn og hálfan klukkutíma áður en ég komst að,“ sagði Þorbergur. Upphafið að samstarfmu við Sigurð Hall má rekja til þess að hann vann sjónvarpsþátt um saltfisk fyrir SÍF. Þátturinn var tekinn upp á Spáni og sýndur á Stöð 2. í framhaldi af því var efnt til kynninga á steikingarsaltfiski í Hagkaup í Reykjavík, Garðabæ og Akureyri sem Sigurður stóð fyrir. „Þær heppnuðust mjög vel en fyrir- myndin að steikingarsaltfiskinum er sótt til Spánar. Þetta er í fyrsta skipti sem Islendingar fá að kynnast þeim möguleikum sem saltfiskurinn býður upp á sem veisluréttur. Þegar ákveðið var að kynna hann í Hagkaups- verslunum vildum við fylgja því myndarlega eftir. Sögumenn voru strax til í slaginn og hafa þeir staðið myndarlega að hlutunum. Eftir því sem ég kemst næst hafa almenningi á Islandi ekki staðið til boða eins margir réttir úr saltfiski og á Hótel Sögu. Þetta er okkur mikil hvatning og er ekki annað að sjá en að steikingarsalt- ftskur, sem Vinnslustöðin framleiðir undir merkinu 200 mflur, eigi eftir að slá í gegn,“ sagði Þorbergur að lokum. Sigurður Hall segir að nýr heimur hafi opnast fyrir sér þegar hann fór að kynna sér matargerðarlist Spánveija. „Ég sem hélt að ég vissi allt um matargerð. Það skemmtilegasta var, að þarna er íslensk afurð sem er svo mikils metin í spænskumælandi löndum. Ég fylltist stolti og gleði og fór að velta því fyrir mér af hverju Islendingar nýta sér ekki saltfiskinn meira. Ég sá að þama var ég kominn með verkefni og ég er í því ennþá,“ sagði Sigurður. I framhaldi af því fór hann í samstarf við Vinnslustöðina sem hefur borið góðan árangur. „Saltfiskur hefur í gegnum aldirnar verið hluti af okkar daglega kosti en útvötnun er ekki Sigurður ásamt kokkunum á Hótel Sögu sem báru hitann og þungann af kynningunni. meiri en svo að hann er alltaf brimsaltur. Spánverjar taka nánast allt salt úr honum og þannig fisk er Þorbergur er að framleiða í neytendapakkningar. Þá er hægt að steikja hann og sjóða og krydda með hverju sem er og útbúa úr honum sannkallaða veislurétti.“ Kynningin á Hótel Sögu hefur heppnast mjög vel að mati Sigurðar. „Það hefur verið fullt hús alla daga og ég hef sjaldan fengið eins mikið hrós fyrir matreiðslu. Það er gaman að fá tækifæri til að kynna fisk frá Vestmannaeyjum með þessum hætti. Samstarfið við Þorberg og hans fólk í Vinnslustöðinni og Ragnar Wessman og annað starfsfólk á Hótel Sögu hefur verið einstaklega ánægjulegt. Allir hafa lagst á eitt til að gera þetta sem best,“ sagði Sigurður að lokum. Sveinbjöm Friðjónsson, fram- kvæmdastjóri veitingasviðs, er mjög ánægður með hvemig til tókst og við- tökur gesta. „Kynningin hefur gengið ljómandi vel. Við höfurn verið með gítartónlist til að skapa réttu stemmninguna og kynnt spænsk Riojavín, rauð og hvít og fleiri huggulegheit. Hótelgestum höfum við boðið að smakka á saltfiski og vín- unum til að æsa upp í þeim bragðlaukana og hefur líkað vel.“ Sveinbjöm hafði ekki á reiðum höndum hvað margir hafa komið á kynninguna en hann segir að þeir skipti hundmðum. Við verðum áfram með saltfisk í hátíðarbúningi hér í Skrúð þannig að gestir okkar geta áfram fengið að kynnast þessu hnossgæti," sagði Sveinbjöm að endingu. Frá tæknideild Tæknideild Vestmannaeyjabæjar hefur flutt aðstöðu sína að Tangagötu 1 (Bæjarveitum). Símanúmer tæknideildar er 481 -1323. Húsaleigustyrkir námsfólks Umsóknir um húsaleigustyrki á vorönn 1996 skulu berast bæjarskrifstofunum eigi síðar en 31. mars nk. Framvísa verður Ijósriti af húsaleigusamningi. Umsækjendur skulu eiga lögheimili í Vestmannaeyjum og stunda starfsmenntunarnám utan Eyja, sem ekki er unnt að stunda heima í héraði. , FRÁ FÉLÓ , Árshátíð FÉLÓ Árshátíð FÉLÓ verður haldin 12. apríl nk. og verður hún fyrir þá sem eru í 7. bekk og ofar. Margt verður gert til skemmtunar, þar á meðal söngkeppni „Karokee" þar sem vegleg verðlaun verða veitt. Kosið verður í nýtt Unglingaráð svo og verða ungfrú og herra FÉLÓ valin. Þeir sem hafa áhuga á að skemmta á hátíðinni eru beðnir um að láta okkur í FÉLÓ vita sem fyrst. Þeir sem ætla að keppa í söngkeppninni geta skráð sig í lúgunni í FÉLÓ og fá allir þátttakendur að æfa sig í kerfinu öll þriðjudagskvöld fram að árshátíð. Þeir sem gefa kost á sér í nýtt unglingaráð eiga að skrá sig í lúgunni í FÉLÓ. Fatnaður í óskilum í Félagsheimilinu er fatnaður í óskilum og ef hann verður ekki sóttur fyrir 22. mars nk. verður hann gefinn. DANSARAR 12 ÁRA OG ELDRI Danslistamót verður haldið í þriðja sinn á vegum Listdansskóla íslands og fer mótið fram á Selfossi 1. og 2. júní nk. Boðið er upp á fría gistingu og fæði meðan á mótinu stendur. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér málið frekar geta haft samband við undirritaðan. Ræðukeppni GRUNNSKÓLANNA OG DISKÓ Á morgun föstudag verður ræðukeppni milli Barnaskóla og Hamarsskóla og fer keppnin fram í Félagsheimilinu klukkan 20. Að lokinni keppni verður diskó í opnu húsi í Féló fyrir 8., 9. og 10 bekk. Tómstunda- og íþróttafulltrúi.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.