Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 21.03.1996, Page 12

Fréttir - Eyjafréttir - 21.03.1996, Page 12
Fréttir Skýrsla Hafrannsóknastofnunar: Astand humarstofnsins 1995 og horfur 1996 Humarvertíðin 1995 Áárinu 1995, fiskveiðiárinu 1994 til 1995, var úthlutað 2200 tonnuni af humri en veiðin nam hins vegar að- eins 1026 tonnum. Afli á sóknar- einingu (kg/klst/ eitt troll) var einnig lélegur á vertíðinni eða 27 kg ntiðað við 38 kg 1994 og 51 kg 1993. Þetta má sumpait rekja til þekktra orsaka eins og þriggja vikna sjómannaverk- falls frá 25. maí til 15. júní auk hugsanlegra áhrifa af seinkun humarvertíðar frá hefðbundinni byrjun þann 15. maí til 21. maí. Hið síðarnefnda kom til við framlengingu skólahalds í landinu vegna verkfalls kennara um veturinn, en sem kunnugt er taka skólanemar virkan þátt í humarvinnslunni. Áður en sjómannaverkfallið hófst náðu flestir humarbátar einum róðri frá 21. maí til 24. maí. Aflabrögð voru alls staðar fremur dræm miðað við byrjun vertíðar en þó sýnu verst á miðunum við Reykjanes, þar sem meðalafU var aðeins rúm 20 kg á tog- tíma. Á Selvogsbanka og við Vestmannaeyjar var meðalafli þessa fáu daga í maí 46 kg á togtíma og á suðausturmiðum 42 kg, sem er undir meðallagi í upphafí vertíðai'. Þrátt fyrir þetta veiddust tæp 200 tonn þessa fjóra daga í maí eða næstum 20% af heildarafla vertíðarinnar. Þetta gefur nokkra vísbendingu um hversu mikilvægar fyrstu vikur frá miðjum maí fram í júní eru fyrir út- komu veiðanna í heild. Af ástæðum sem áður voru raktar féllu hurnar- veiðar 1995 hins vegar niður á tímabilinu 15. maí til 15. júní nema í fjóra daga, sem verður að telja helstu ástæður fyrir því að aðeins veiddust 50% af aflakvóta ársins. Minni veiðanleiki humarhænga, sem eru uppistaða aflans, veldur því hins vegar að afíabrögð verða ávallt verri þegar kernur fram í júní og júlí. þannig að frestun vertíðar eða slæleg byrjun í maí og frarnan af júní leiðir þannig undantekningalaust til lélegs afla á togtíma í heild. Má þar nefna humarvertíðir fyrir Suðausturlandi 1968 (10 kg á klst í maí) og 1979 (10- 20 kg klst í maí), auk drærnra aflabragða í upphafi vertíðar á öðrum svæðum, t.d. í maí árin 1967,1968 og 1990. Aflinn 1995 skiptist þannig eftir svæðum: Við Suðvesturland (Jökul- djúp-Selvogsleir) voru veidd 510 tonn miðað við 540 tonn árið áður og á Selvogsbanka og við Vestmanna- eyjar 325 tonn (495 tonn 1994). Við Suðausturland (Skaftárdjúp-Lóns- djúp) veiddust aðeins 190 tonn samanborið við 1200tonn 1994enda hættu flestir Hornafjarðarbátar veiðurn í júní-júlí og bátar frá Suð- vesturlandi sóttu lítið austur vegna lélegrar veiði. Helst má líkja ver- tíðinni á Suðausturmiðum við árið 1979 þegar þar voru aðeins veidd 295 tonn. Alli á togtíma 1995, sem er að- eins 26,28 og 26 kg á ofangreindum svæðum, er þó ekki samanburðar- hæfur við fyrri ár vegna seinkunar veitíðar í tíma. Lífshættir humars og umhverfisskilyrði Humarinn við sunnanvert ísland, en hann er á norðanmörkum útbreiðslu tegundarinnar í Norður-Atlantshafi, er mjög viðkvæmur fyrir breyúngum í umhverfisþáttum, auk þess sem vissir lífshættir greina hann frá suð- lægari stofnum þessarar tegundar. Nægir þar að nefna miklar sveiflur í aflabrögðum eftir árstímum og árum sem oft má rekja til breytileika í botn- hita og því hversu vel veiðist hér við land. Ferill hrygningar og klaks er einnig ólíkur hjá humrinum við ís- land miðað við heimildir frá suðlægari slóðum, því hvert kvendýr hrygnir aðeins annað hvert ár og til- tölulega færri hrognunt en sunnar við Evrópu. Af þessu leiðir að viðkoma og nýliðun er hlutfallslega lítil við ís- land miðað við stofnstærð og sömuleiðis afrakstur þegar til lengri tíma er litið. Samkvæmt niðurstöðum sjórann- sókna (vorleiðangur maí til júní 1995, sjá Hafrannsóknastofnun Fjölrit nr. 44 1995) var árferði í sjónum við fs- land mjög slakt vorið 1995. Meðalbotnhiti á humarslóðum mældist lægri en nokkru sinni á síðastliðnum 20 árum og þörunga- gróður var hvergi mikill fyrir Suðurlandi. í þessari úttekt var gerður vemlegur samanburður á samhengi botnhita og sjóndýpis (mælikvarði á þörunga- magn) annars vegar og humarafla á sóknareiningu hins vegar. í ljós kom nákvæmari staðfesting á því en áður, að veiðanleiki humars virðist minnka við lágan botnhita og mikið sjóndýpi. Humarinn, sem að eðlisfari býr í holum á leirbotni og veiðist þá alls ekki, fer hins vegar í auknum mæli úr holunum í ætisleit við hærra hitastig og „kjörbirtu“ við botn. Lágur botn- hiti á humarslóðum 1995 og mikið sjóndýpi, þ.e. tær sjór vegna lítils þörungamagns, hefur því hugsanlega dregið úr veiðanleika humars miðað við meðalárferði þannig að afli á tog- tíma var við neðri mörk 1995 án tillits til núverandi ástands humarstofnsins. Sókn á humarmiðum Meðalsókn humarbáta árin 1991 til 1995 var um 48 þúsund togtímar á ári. Þetta samsvarar því að humartroll fari að meðaltali yfir 70% til 75% allra þekktra humarsvæða á ári. Ef þessi sókn er skaðleg fyrir stofninn umfrain það sem nemur veiði, liggur það í hlutarins eðli að hagkvæmast sé að veiða tiltekið magn með sem minnstri sókn á besta veiðitíma, sem þá samræmist vissum þáttum hvað arðsemi varðar. Við óbreyttar að- stæður er hins vegar oft verið að veiða vemlegan hluta kvótans á óhag- kvæman hátt síðari hluta surnars sem hins vegar kann að samræmast vel vinnslu og mörkuðum. Engar óyggjandi upplýsingar liggja fyrir um óbeinan fiskveiðidauða, sem humar- trollið veldur til viðbótar við þekkta veiði. Vísbendingar frá stofnstærðar- útreikningum, auk neðansjávar- mynda, benda þó ekki til þess að óbein fiskveiðidánartala á humri sé hátt hlutfall af heildardánartölu humars. Eins og kunnugt er hafa spunnist verulegar umræður um hugsanleg áhrif annarra veiðarfæra, einkum dragnótar, á þróun humarstofnsins undanfarin ár. Af gefhu tilefni var því gerð úttekt á þróun sóknar rneð drag- nót, auk fiski- og rækjulrolls, því ekki þótti ástæða til að undanskilja önnur togveiðarfæri. Tekin voru saman öll köst og tog með þessum veiðarfæmm á humarveiðisvæðum samkvæmt aflaskýrsludagbókum árin 1991 til 1995. í ljós kom að á þessu tímabili hafa veiðar með fiskitrolli á humar- slóð farið minnkandi en sókn með rækjutrolli hefur stóraukist árin 1994 til 1995 , að vísu aðeins bundin við eitt veiðisvæði, þ.e. norðvestur af Eldey. Dragnótarsókn á humaimiðum hefur nær þrefaldast að meðaltali frá 1991 til 1995, en hún hófst einkum með langlúmveiðum frá og með 1987. Nú er svo komið að heildaryfirferð drag- nótakasta á ári er næstum jafnmikil og yfirferð með humarvörpu. enda þótt yfirferð dragnótarinnar sjálfrar sé ntun minni. Veruleg breyting hefur einnig orðið á sóknarmynstri með dragnót eftir mánuðum, þannig að hlutdeild sóknar hefur aukist veralega fyrir hluta árs (mars til maí) árin 1993 til 1995. Óverulegur humarafli er skráður með öðmm veiðarfæram en humar- trolli á hveiju ári, enda þótt gera megi ráð fyrir einhverjum lönduðum afla sem ekki er skráður í afladagbækur. Það á við um öll umrædd veiðarfæri og ekki síður humartrollið sjálft. Hins vegar er því ekki að leyna, að aukin sókn með dragnót er viðbótar „skark“ á humaimiðum án þess að hugsanleg áhrif þess séu þekkt. Því má þó bæta við að samdráttur í humarafla á tog- tíma árið 1995 var engu minni á svæðum þar sem litlar eða engar dragnótaveiðar hafa verið skráðar árin 1967 til 1995. Rannsóknir á dragnót á humarmiðum em á áætlun hjá Hafrannsóknastofnun á komandi vori. Ástand humarstofnsins Humarafli á togtíma náði síðast há- marki árin 1992 til 1993, einkum á austustu svæðunum við Suðaustur- land, þar sent árgangar áætlaðir frá 1984 til 1985 vom mjög sterkir. í kjölfarið komu mun lélegri árgangar frá tímabilinu 1987 til 1989 eins og greint var frá í síðustu skýrslu um nytjastofna sjávar 1994 til 1995 og aflahorfur 1995 til 1996, Haf- rannsóknastofnun Fjölrit nr. 43 1995). Þessir árgangar hafa leitt til minnkandi nýliðunar, sent á snaran þátt í minni afla á togtíma árin 1994 og 1995, án tillits til utanaðkomandi atriða sem greint var frá að frarnan. Nýjasta úttekt á humarstofninum staðfestir það að árgangar frá tíma- bilinu 1987 til 1989 virðast allir vera í sögulegu lágmarki. Hins vegar bendir flest til þess að árgangar 1990 til 1991 séu mun betri, einkum á suðaausturiniðum eins og árgangar 1984 og 1985 höfðu verið áður. Nokkrar vísbendingar em því fyrir hendi um batnandi aflabrögð vegna þessa, einkum frá og rneð 1997. Þar eð humarstofninn er nú áætlaður heldur minni en gert var ráð fyrir í síðustu skýrslu, leggur Hafrann- sóknastofnun til að leyfilegur hámarksafli verði 1500 tonn á humarvertíð 1995. Þetta mun leiða af sér sókn sem er aðeins innan við kjörsókn í stofninn, en þar er tekið tillit til þess að hlutdeild smáhumars verður talsverð vegna batnandi nýliðunar á austustu iniðunum. Hafrannsóknastofnun, janúar 1996. Fimmtudagurinn 21. mars 1996 FróðiÁR: Lengsta rifan var 70 sm í Fréttum í síðustu viku var sagt frá lélegum vinnubrögðum á Fróða ÁR sem í desember kom frá Pól- landi eftir miklar breytingar. Þegar báturinn var tekinn upp í Skipa- lyftunni kom í 1 jós að gleymst hafði að sjóða á nokkrum stöðum á botni hans. Sigmar Þór Sveinbjömsson, skipa- eftirlitsmaður, fékk menn frá Sigl- ingamálastofnun til að kanna málið og kom í ljós að gleymst hafði að sjóða utan frá á þremur stöðum. Lengsta rifan var 70 sm en hinar vom 24 sm og 17 sm. „Plötumar em soðnar bæði innan frá og utan en á þremur stöðum hafði gleymst að sjóða að utan. Allar suður vom myndaðar og komu í ljós spmngur út frá þessum þremur rifum. Þetta var allt lagað í Skipalyftunni. Annars staðar reyndust suður vera í fullkomnu lagi,“ sagði Sigmar Þór. Kæru Vestmanna* eyingar! Þar sem Þorbjörg Sigurfinnsdóttir, verkakona og góður félagi okkar, hefur átt við alvarleg veikindi að stríða höfum við, vinir hennar, ákveðið að heija söfnun henni til handa. Er það gert til að létta henni og fjölskyldu hennai' erfiðan róður. Því treystum við á samkennd og vinarþel sem einkennir okkur Vestmannaeyinga. Stöndum saman og styrkjum hana. Margt smátt gerir eitt stórt. Bankabók Þorbjargar er nr. 81375 í íslandsbanka. Með fyrirfram þökk. s Arnað heilla Á þriðjudaginn, 19. mars varð Grétar Þorgilsson, Sólhlíð 21 í Vestmannaeyjum, sjötugur. Grétar tekur á móti gestum í Oddfellow húsinu kl. 20:00 á laugardaginn.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.