Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 21.03.1996, Qupperneq 13

Fréttir - Eyjafréttir - 21.03.1996, Qupperneq 13
Fimmtudagur 21. mars 1996 Fréttir AUGLYSENDUR ATHUGIÐ! o Blaðaauki Frétta um fermingar miðvikudaginn 3. apríl nk. Aukablað í lit með fjölbreytilegu efni og fallegum auglýsingum sem tengjast fermingunum. Aukablaðinu verður að sjálfsögðu dreift með Fréttum. Nöfn allrafermingarbama í Vestmannaeyjum verða birt íblaðinu. Auglýsendur em hvattir til að auglýsa í blaðinu. Hajið samband við Fréttir (Þorstein eða Ómar) og tryggið ykkur auglýsingapláss. Síminn er 4813310 I FRETTIR Vinsælu vörumar íazrðu hjá ohhurl IÍSLENSKUR MASCARPONE RJÓMAOSTUR 250 GR. MASCARPONE er ítalskur rjómaostur, ein af skrautfjöðrum ítalskrar matargerðarlistar. Hann er ýmist notaður í pastarétti eða sem óbætisostur enda er hann uppistaðan í hinum fræga Tiramísú óbæti. Mascarpone er oft bragðbættur með líkjör og borðaður með ferskum óvöxtum eins og perum eða jarðarberjum og sykri. Einnig er blandað saman við hann gróðaosti, ansjósum, sinnepi og/eða kryddi og þannig er hann borðaður með brauði og kexi. Mascarpone hentar ekki í ostakökur og þykkir ekki sósur. LAPY FM KEXIO VINSÆLA LOKSINS KDMfE) AFTUR TIRAMISU 150 g suðusúkkulaði, rifið eða saxað 24 stk Ladyfingers eða hrærðir tertubotnar 2 bollar sterkt, kalt kaffi 6 egg, aðskilin 6 msk sykur 500 g mascarpone Leggið kexið í bleyti i kaffið. Ef þið notið botna er best að skera þó út eftir skólinni sem ó að nota og hello kaffinu yfir. Einnig mó draga úr kaffimagninu og nota kaffilíkjör i staðinn. Hrærið eggjarauður og sykur þar til það verður létt og Ijóst og blandið saman við ostinn. Stífþeytið hvíturnar og blandið þeim varlega saman við ostahræruna með sleikju. Setjið helminginn af kexinu eða botninum í botninn ó skól. Setjið helminginn af ostahrærunni yfir, því næst helminginn af súkkuloðinu, þó kexið, siðan ostahræruna og að síðustu súkkulaðið sem eftir er. Lótið réttinn standa í minnst 1 -2 klst óður en þið berið hann fram. Ibúð til sölu 3ja herbergja íbúð, Áshamar 67 2. hæð, er til sölu. Skemmtileg íbúð. Skipti á 2ja herbergja íbúð möguleg. Upplýsingar í síma 481-1456 eftir kl. 19 (Áa). I-------------------------------------------------1 Hið risavaxna sjónvarpsverkefni Jason stofnunarinnar frá Eyjum: Tiianit teygir tmga sína til Eyja - Frumkvöðull Jason stofnunarinnar fann fyrstur manna flak Titanic á hafsbotni. Eins og greint var frá í Fréttum í síðustu viku er risavaxið sjón- varpsverkefni í undirbúningi þar sem sýnt verður m.a. frá Vest- mannaeyjum á næsta ári til skólabarna víðs vegar um heim. Sjónvarpssendingarnar eru í tengslum við svokallað Jason verkefni sem Dr. Robert D. Ballard er upphafsmaðurinn að. í raun og veru er hér um ævin- týralegt verkefni að ræða því Dr. Ballard er einhver þekktasti neð- ansjávarkönnuður heims í seinni tíð. Hans kunnasta afrek í seinni tíð var að finna fiak Titanic árið 1985. Því má segja að angar Titanic teygi sig til Eyja! Auk þess hefur Dr. Ballard unnið að fjölmörgum rannsóknum neðan- sjávar í hátt í f jóra áratugi og eftir hann liggja margar bækur og greinar. Hann er virtur fræði- maður og fyrirtæki hans er umfangsmikið og veltir ótrúlegum fjárhæðum, samanber verkefnið hér á Islandi sem áætlað er að kosti um 150 milljónir kr. Ráðgert er að vera með fimm beinar útsendingar á degi hveijum frá Eyjum og ofan af landi í klukkutíma í senn í tvær vikur. Utsendingarnar verða í apríl á næsta ári en inn á mitli verða sýndar upptökur sem teknar verða í sumar frá fugla- og náttúmlffi Eyjanna og fleiri áhugaverðum stöðum á landinu. Einskis er látið ófreistað við að ná sent bestum myndum. Sem dæmi er ráðgert að setja myndavélar ofan í lundaholur og neðansjávar! Búist er við að fimm milljónir nemenda geti fylgst með þessu í beinni útsendingu. Þar að auki em fjölmiðlarisar eins og BBC, morgunþátturinn frægi Good Moming America og National Dr. Robert D. Ballard. Geographic ávallt í startholunum og fylgjast vel með þessum verkefnunt. Ef allt gengur upp og af verkefninu verður, eins og alll bendir til, ættu Vestmannaeyjar að geta fengið stærstu auglýsingu sína í sjónvarpi sem um getur. Fann fyrstur flak Titanic Samkvæmt upplýsingum á heima- síðu „The Jason Project”, var verk- efnið sett á laggirnar 1989 af Dr. Robert D. Ballard eftir að hann fyrstur manna fann flak hins sögufræga Titanic á hafsbotni, en það sökk í apríl 1912 eftir að hafa rekist á ísjaka. Alls fómst 815 af 1348 farþegum og 688 af 860 í áhöfn. Eftir margar árangurslausar tilraunir til að finna flakið var það leiðangur á vegum Dr. Roberts D. Ballard sem fann flakið árið 1985. Eftir að hafa fengið þúsundir bréfa frá bömum um allan heim sem vildu fá meiri upplýsingar um uppgötvun Ballards og hans aðstoðarmanna, ákvað hann að að þróa aðferðir til að gera kennur- Málverk af hinu fræga Titanic sem sökk 1912. um og nemendum um allan heim kleift að taka þátt í alþjóðlegum rannsóknum með því að nota nútíma fjarskiptatækni, eins og t.d. beinar sjónvarpsútsendingar um gervihnött. Þetta varð að vemleika I989 og það er „The Jason Foundation for Education” sem fjármagnar og sér um þessa vísindaleiðangra um allan heim. Þetta er sniðið að þörfum grunnskólanemenda sem geta tekið þátt í rannsóknunum með því að fylgjast með beinum stjónvarpsút- sendingum, taka þátt í gagnvirkum samskiptum og síðast en ekki síst í gegnum veraldarvefmn. Kennarar eru verkefnisstjórar og gegna lykil- hlutverki í virkri þátttöku nemenda og að miðla þeim fróðleik sem fyrir augu ber. A vegum Jason stofnunar- innar eru gefnar út vandaðar og ítarlegar kennsluleiðbeiningar fyrir kennara sem hafa áhuga á þessu verkefni. Hingað til hafa skólar í Banda-ríkjunum, Bretlandi, Mexíkó og Bermuda getað tekið þátt í verkefn-um stofnunarinnar. Risavaxið verkefni Þegar heimasíða Jason stofnunar- innar er skoðuð á veraldarvefnum fer ekkert á milli mála að hér er um ótrúlega stórt og mikið verkefni að ræða því stofnunin sinnir einungis því sem henni finnst áhugavert og vekur athygli fjölmiðla. Dr. Ballard hefur stjórnað um 65 neðansjávar- leiðöngrum um allan heim síðustu áratugi. í nokkmm leiðangrum hefur verið um langa dvöl að ræða í bæk- istöðvum neðarsjávar og hefur Ballard gert margar athyglisverðar uppgötvanir. Til að finna flak Titanic notaði Ballard lítinn fjarstýrðan kafbát, Jason Jr. Meðal verkefna sem Jason stofnunin hefur fengist við er að rannsaka hinar frægu Galapagos- eyjar ofansjávar og neðan. Verkefni næsta árs verður svo að öllum líkind- um ísland. Að sögn Páls Marvins Jónssonar, forstöðumanns Rannsóknasetursins í Eyjum, skoðaði fulltrúi Jason stofn- unarinnar, Monica Hindmarch, einn- ig Grímsvatn, Mývatn, Lónsvík og Reykjavík í ferðinni til Islands. Spurningin er fyrst og fremst hvar aðalbækistöðvar útsendinganna verða en um Vestmannaeyjar eða Reykjavík er að ræða. Hins vegar er öruggt að kvikmyndatökulið mun koma til Eyja í sumar og mynda. Páll Marvin hefur undir höndum mynd- band sem íjallar um hvemig verkefnið er sett upp og skýrir út hvemig verkefnununt er komið til skólakrakkanna. Þeir sem hafa áhuga geta fengið að sjá myndbandið hjá Páli. ÞoGu Háskóli Islands - Rannsóknasetrið Vestmannaeyjum Almennur fyrirlestur Almennur fyrirlestur um náttúrufriðun og friðlönd á íslandi verður haldinn Sunnudaginn 24. mars n.k. kl. 14:00 í Rannsóknasetrinu að Strandvegi 50, 3ju haeð. Erindið flytur Sigrún Helgadóttir líffræðingur og þjóðgarðsfræðingur hjá Náttúruverndarráði - Allir velkomnir

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.