Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 30.01.1997, Page 1

Fréttir - Eyjafréttir - 30.01.1997, Page 1
24. árgangur • Vestmannaeyjum 30. janúar 1997 • 4. tölublað • Verðkr. 130,- • Sími: 481 3310 • Myndriti:481 1293 , Flensan aðeins í rénun Ovenju mörg luntjnabolgutilfelli Flensan sem hér herjar er aðeins í rénun. Hún hefur leikið suma grátt, einkum vegna lungnabólgu sem fólk á öllum aldri hefur verið að fá. „Magapest,, sem er að ganga,, hafa menn hrist af sér á einum sólarhring en flensan sem er að ganga tekur lengri tíma. Henni fylgir hiti, höfuðverkur, beinverkir og hálsbólga og er fólk veikt að meðaltali í fjóra til fimm daga. Er þetta mesti faraldur í þijú ár,“ segir Hjalti Kristjánsson heilsugæslulæknir. Hann hvetur fólk til að fara vel með sig og fara ekki út fyrr en það hefur verið hitalaust í sólarhring. „Fólki er að slá niður og fólk á öllum aldri er að fá “V* lungnabólgu. Hef ég aldrei séð eins mörg lunganbólgutilfelli á þeim sex til sjö árum sem ég hef starfað hér,“ sagði Hjalti. Vertíðin hefur farið rólega af stað. Einkum hefur loðnan látið bíða eftir sér en það er ekki óalgengt á þessum tíma. Þá hafa stöðugar brælur undanfarið sett strik í reikninginn. Nýjasti báturinn í Eyjaflotanum, Surtstey VE, var í startholunum á mánudaginn en hann er á trolli. Báturinn hét áður Stakkur en skömmu áður en haldið var til veiða voru skipverjar að mála nýja umdæmisbókstafi á skrokkinn og þurfti til all nokkra leikfimi, eins og sést á myndinni að ofan! Enska fyrstudeildarliöið Crystal Palace: Gerir líklega fil- boð í Hermann Hermann Hreiðarsson, varnar- maður ÍBV, hefur dvalið hjá 1. deildarliðinu Crystal Palace í Englandi undanfarna tíu daga. Til stóð að hann yrði þar í viku en dvölin var framlengd um viku þar sem Dave Basset, framkvæmda- stjóri Crystal Palace, vildi skoða Hermann nánar. Fréttir náðu sambandi í gær við Steve Kemper, þjálfara varaliðs Crystal Palace, en Hermann hefúr nú spilað þrjá leiki með varaliði félagsins, nú síðast æfingaleik gegn Fulham í gær, en áður gegn Chelsea og Swansea. Kemper hrósaði Hermanni mjög fyrir frammistöðu sína í leikjunum. „Hermann hefur staðið sig mjög vel. Hann hefur leikið sem ntiðvörður í leikjunum og Dave Basset, framkvæmdarstjóri, hefur fylgst með honum í öllum leikjunum. Basset og stjórnar-for- maður félagsins hafa rætt saman unt framtíð Hermanns og það kæmi mér ekki á óvart þótt gert yrði tilboð í hann. Segðu mér annars, hversu mikils virði er Hermann,” sagði Kemper og hló glatt. Var að heyra á Kemper að talsvert miklar líkur væru á því að boðið yrði í Hermann, ekki síst vegna þess að félagið þarf á vamarmanni að halda. Framtfð Hermanns hjá Crystal Palace ræðst á morgun en þá kemur í Ijóst hvort félagið hyggst gera honum tilboð, að sögn Kempers. Tillögur um 6% niðurskurð til Sjúkrahússins: Elriri gerf neimr skeria þjóiwstu í tillögu sem lögð var fyrir forsvarsmenn Sjúkrahúss Vest- mannaeyja er gert ráð fyrir að skerða framlag ríkisins um 6% á næstu þremur árum, eða um 11 milljónir króna. í ár og á næsta ári á að skera niður um rúmar 4 milljónir og rúmar 2 milljónir 1999. Framkvæmdastjóri Sjúkrahússins segist ekki sjá hvernig hægt verði að bregðast við nema með skertri þjónustu. Reynt hafi verið að spara og hagræða eins og kostur er undanfarin ár og hefur tekist að halda rekstrinum innan ramma fjárlaga. Nú segir hann að það sé að koma í bakið á mönnum þar sem ekkert tillit sé tekið til þess. Á fjárlögum þessa árs var gefið út að skera á niður framlög til sjúkrahúsa á landsbyggðinni um 160 milljónir í áföngum á þremur árum. Nefnd, sem skipuð var til að koma með tillögur til spamaðar og hagræðingar, kallaði forsvarsmenn sjúkrahúsanna á sinn fund á þriðjudaginn þar sem tillagan var lögð fram. „Samkvæmt henni er gert að spara um 6%, eða 11 milljónir í áföngum á næstu þremur árum. í ár og á næsta ári eru það rúmlega 4 milljónir hvort ár og rúmar 2 milljónir 1999,“ segir Gunnar Gunnarsson, framkvæmda- stjóri. „Á þeim tveimur árum frá því ég byrjaði og í mörg ár á undan hefur verið reynt að spara og hagræða í rekstrinum eins og kostur er. Ég sé ekki að lengra verði gengið nema að þjónustan verði skert." Hann segir að tekist hafi að halda rekstrinum nokkum veginn innan ramma fjárlaga og stjórnendur hér haft unnið að hagræðingu í fullu samstarfi við ráðuneytið. Það segir hann að hafi haft lítið að segja. „Það borgar sig greinilega ekki að vera góði strákurinn. Það virðist hafa verið betri leið að keyra fram úr og fá aukafjárveitingar því það sem við höfum verið að gera er einskis metið.“ Nefndin lagði fram tillögur um spamað en Gunnar segir að þar komi ekkert nýtt fram. „Eini kosturinn sem ég sé þó við þetta er að við fáum að vinna úr þessu sjálfir sem er betra en fá einhvem utanaðkomandi. Þetta er þó erfitt verk en fyrir 15 febrúar eigum við að koma með tillögur á móti og um mánaðamótin febrúar mars kemur í ljós hvort við höfum haft erindi sem erfiði," sagði Gunnar að lokum Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f. RÉTTINGAR OG SPRAUTUN: Flötum 20 - Sími 481 1535 VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ: úræðisbraut 1 - sími 481 Frá Eyjum: Frá Þorl.höfn: Alla daga n/sunnudaga Kl. 08:15 Kl. 12:00 Sunnudaga Kl. 14:00 Kl: 18:00 Aukaferö Föstudaga Kl: 15:30 Kl: 19:00 31 BRUAR BILIÐ •HeríOlfUr Sml4íl2800Fax4ít2991

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.