Fréttir - Eyjafréttir - 30.01.1997, Qupperneq 2
2
Fréttir
Fimmtudagur30. janúar 1997
Fréttir
Laus höndin á fullu tungli
Síðasta vika var í annasamara lagi
hjá lögreglu. Þar hafði veðrið sitt að
segja og eins var nokkrum laus
höndin um helgina. Lögreglumaður
hafði á reiðum höndum skýringu á
slagsntálagleðinni. Fulll tungl var
um helgina og segir hann að það
fari ótrúlega oft saman, fullt tungl
og slagsmál. Margt fólk var að
skemmta sér á föstudagskvöldið og
fylgdi því talsverður erill. Kvartað
var yfír hávaða í heimahúsum og í
tvígang barst kvörtun vegna sama
hússins.
Skemmdir í roki
Ekki var lögreglu kunnugt urn
nema tvö óhöpp í veðrinu sem gekk
yfir á fimmtudag í síðustu viku. í
fyrra tilfellinu fauk fiskikar inn á
lóð í Foldahrauninu. Ekki vissi
lögreglan hvaða erindi fiskikar átti
uppi í miðjum bæ.
Seinna tilvikið varð þegar móta-
flekar í nýbyggingu við Birkihlíð
fuku á nærliggjandi hús. Brutu þeir
m.a. þakkassa, blómakassa og
skemmdu trjágróður. Ekki var
tjónið alvarlegt að sögn lögreglu.
Tveir árekstrar
Tveir árekstrar urðu um helgina.
Ekki voru þeir alvarlegir og ekki
urðu slys á fólki. Sá fyrri varð um
miðnætti á föstudagskvöldið og sá
seinni eftir hádegi á laugardaginn.
Líkamsárásir
og slagsmál
Fyrsta líkamsárásin sent kærð var
um helgina kom til kasta lögreglu
klukkan 2 á aðfaranótt laugar-
dagsins. Stúlka kærði mann sem
hún sagði að hefði slegið sig inni á
Pizza 67. Fékk hún blóðnasir.
Rétt fyrir klukkan 2 nóttina á eftir
vtir kærð líkamsárás sem átti sér
stað á Lundanum. Lögreglan fór á
staðinn og fjarlægði þann sem sök
átti á látunum og fékk hann að
launum gistingu í fangageymsl-
unni.
Rétt fyrir klukkan 3 var tilkynnt
um slagsmál við Amigo. Sá sem
þar gekk vasklegast frant var
færður á lögreglustöð. Ekki var um
alvarleg slagsmál að ræða.
Klukkan 4 sömu nótt barst til-
kynning um slagsmál á HB-pöbb.
Þegar lögreglan kom ú staðinn voru
slagsmálin afstaðin og slagsmála-
hundamir farnir svo notuð séu orð
þess sem skráði dagbókina.
Ekki innbrot
Um klukkan hálf þrjú á aðfaranótt
laugardagsins var lögreglu tilkynnt
að verið væri að brjótast inn í hús.
Við eftirgrennslan kom í Ijós að þar
var leigjandi á ferð. Hafði hann
gleymt lyklinum og bjargaði sér
með því að fara inn um glugga.
Rúða brotin á Reynistað
A laugardagsmorguninn var lög-
reglu tilkynnt um rúðubrot í
versluninni Reynistað. Ekki er vitað
liver þar var að verki og eru allar
upplýsingar vel þegnar segir
lögregla.
Innbrot í Dalabúið
Á mánudagsmorguninn var til-
kynnt um innbrot í Dalabúið þar
sem stolið var bensíni. Ekki er vitað
hver þar var að verki og er málið í
rannsókn.
í fyrradag fór fram útskrift á fiskvinnslunámskeiðum Starfsfræðslunefndar fiskvinnslunnar í
Vestmannaeyjum en þau hófust 8. janúar. Alls luku 25 manns námskeiðum fyrir fiskvinnslufólk
og fimm fyrir bræðslumenn. Starfsmennirnir voru 15 frá ísfélaginu og 15 frá Vinnslustöðinni.
Á námskeiðunum fer fram bókleg kennsla í tíu fjögurra klukkustunda einingum.
Á þeim tíu árum sem liðin eru frá því að fiskvinnslunámskeiðin hófust hafa 877 lokið þeim í
Eyjum. Langflestir Ijúka öllum tíu einingunum í einni lotu en nú hagaði svo óvenjulega til að
einn þátttakandinn, Guðrún Hauksdóttir, lauk sjö námskeiðum árið 1987 og kláraði þau þrjú
sem eftir voru nú tíu árum síðar.
Fiskvinnslufyrirtækin, Verkalýðsfélagið og Snót hafa í sameiningu annast undirbúning og
framkvæmd námskeiðanna í Eyjum frá upphafi. „Að sjálfsögðu er það gert í góðri samvinnu
við Starfsfræðslunefnd fiskvinnslunnar. Slíkt fyrirkomulag er að engu síður óvíða og hefur það
gert alla framkvæmd þeirra mun auðveldari," sagði Arnar Sigurmundsson.
Fréttir
Leiðrétting
Þau mistök urðu við tölvuvinnslu
síðasta blaðs að mynd af Sigrúnu
Karlsdóttur, fyrsta félagsráðgjafa
sem starfaði hjá Vestmannaeyjabæ,
féll niöur. í stað hennar kom hluti af
annarri mynd sem var annars staðar
í blaðinu. Þetta uppgötvaðist ekki
fyrr en búið var að prenta blaðið.
Eru viðkomandi beðnir velvirð-
ingar á þessum mistökum.
Bjöllur á kettina
Kona hafði samband við blaðið í
síðustu viku og var með þarfa
ábendingu. Vill koma því á
framfæri við kattaeigendur að þeir
sjái til þess að kettimir beri ólar
með bjöllu í. Segir hún það
nauðsynlegt vegna fuglanna sem
geti ekki forðað sér þegar
bjöllulausir kettir læðast að þeim.
O)
Q)
T3
O
Af víðsýni og réttsýni
íslensk lögmannastétt er allt í senn, vel
menntuð, víðsýn og réttsýn. Slíkt er enda við
hæfi þegar tekið er tillit til þess að úr þeirri stétt
eru valdir æðstu dómarar okkar. Þá er
nauðsyn að til slíks veljist víðsýnir menn og
réttsýnir. Lögmenn munu og yfir höf'uð einkar
vammlitlir menn sem hæfir starfinu. Að vísu
koma fyrir stöku undantekningar á borð við
það þegar upp kemst að lögmenn hafi gerst
fjölþreifnir um sjóði er þeir skyldu hafa til
umsjónar og sömuleiðis þegar það þykir orka
tvímælis að lögmaður sé þvoglumæltur, af
annarlegum ástæðum, eins og einum var borið
á brýn nú á dögunum. En þama er um að ræða
undantekningartilfelli í stéttinni sem sýna þó
að víða leynast svartir sauðir.
Skrifara hefur oft þótt það einkennilegt hve
sjaldan þessi víðsýna og réttsýna stétt sér
ástæðu til að stinga niður penna urn hin ýmsu
málefni þjóðfélagsins og gæti verið gott fyrir
okkur hina að fá innlegg frá jafn fróðum
mönnum og víðsýnum um mannlífið. Þó
gerist það stöku sinnum. T.d. minnist skrifari
þess að fyrir bæjarstjómarkosningamar 1994
ritaði lögmaður nokkur í Vestmannaeyjum
mjög svo gagnmerka grein í Fréttir og deildi
þar á meirihluta sjálfstæðismanna. En þá fann
einn andstyggðar íhaldsmaður hjá sér þörf til
að andmæla þessari prýðisgrein lögmannsins
sem var samin bæði af víðsýni og réttsýni.
Skrifari getur vel skilið að menn verði af því
pennalatir ef skrif þeirra em rökkuð niður á
þann hátt sem þar var gert. Sömuleiðis getur
slíkt haft slæm áhrif á sálarlíf viðkomandi og
skiljanlegt að þeir heykist á því til lengdar að
kasta perlum fyrir svín.
En nú sá skrifari það í síðustu Fréttum að
hinn sami lögmaður hefur aftur tekið fram
pennann, hartnær þremur ámm frá síðustu
grein. Og það gladdi skrifara enda greinin vel
skrifuð og af víðsýni og réttsýni. Aftur á móti
hryggði það skrifara nokkuð þegar hann las
greinina að persóna skrifara virðist undinót
öldugangs í sálarlífi lögmannsins. Bullið sem
kemur úr penna skrifara hefur nefnilega þau
áhrif á lögmanninn að hann getur vart á heilum
sér tekið. Skrifara þykir þetta einkar miður,
hann hefur vendilega reynt að gæta þess í
sínum skrifum að þau kæniu ekki til með að
raska sálarró lesenda. En nú hefur það einmitt
gerst og er skrifara ekki til álitsauka.
Sérstaklega þykir lögmanninum það slæmt að
fjallað skuli um sömu hluti og gert var á
síðasta ári, þ.e. um útkomu jólablaða og þó
sýnu verst að farið skuli lofsamlegum orðum
um framsóknarmenn. Skrifari getur alveg
tekið undir það að óvenjulegt er að
framsóknarmönnum sé hrósað og skiljanlegt
að það setji sálarlíf manna á annan endann.
Og skrifari getur alveg tekið undir það að
óverjandi sé að minnast á útgáfu jólablaða í
Vestmannaeyjum þegar ekki líða nema 52
vikur á milli. Lágmarkstími milli slíkra
umfjallana ætti að vera þrjú til fjögur ár,
jafnvel áratugur.
En nú þegar skrifari hefur séð hvílíkur óláns-
og vandræðamaður hann er í skrifum sínum,
að fjalla um sama efni og hann gerði fyrir ári,
þá vill hann íyrir alla muni reyna að finna fleiri
syndaseli á borð við sjálfan sig. Öll slík
endurtekning virðist nefnilega falla hluta
lögmanna illa í geð. Nú hafa forsvarsmenn
atvinnurekenda og launþega til dæmis hafið
sama söng og þeir sungu í fyrra og raunar líka
í hitteðfyna og árið þar áður. Skerðing
kaupmáttar, segir verkalýðurinn; kaupið
verður að hækka. Stöðugleiki í þjóðfélaginu,
segja atvinnurekendur, kaupið má ekki hækka.
Þetta var líka sagt í fyrra og líka í hitteðfyrra
og þetta hlýtur að fara illa með sálarlíf
lögmanna að mega hlusta á þennan sama söng
ár eftir ár. Beinast liggur því við að leggja til
við verkalýð og atvinnurekendur að þeir
annaðhvort finni nýjan söng eða hætti að
öðrum kosti að hrella blásaklaust fólk með
eilífum endurtekningum.
Nú þekkir skrifari ekki hvort lögmenn eru
upp til hópa kirkjurækið fólk. Þó hefur hann
um það grun að sumir úr stéttinni séu það ekki
og af skiljanlegum ástæðum. Skrifari hefur
nefnilega uppgötvað að jól eftir jól er hann
búinn að hlusta á sama guðspjallið endurtekið,
jarðarför eftir jarðarför eru sungnir sömu
sálmar og sunnudag eftir sunnudag er sama
faðirvorið lesið. Að vísu hefur skrifari ekki
orðið fyrir óþægindum vegna þessa en hann
getur fyllilega skilið að slíkt og annað eins geti
tekið á sálarlíf viðkvæmra manna, víðsýnna og
réttsýnna að hlusta á sama hlutinn
margendurtekinn. Spuming hvort ekki sé rétt
að beina því til næsta kirkjuþings að lagfæra
þennan ágalla sem stefnt getur sálarró manna
í óefni.
Og nú er skrifari í vanda staddur. Nefndur
lögmaður, ásamt stómm hópi áhangenda og
vina, hefúr beint því til hans að hann láti af
skrifum sínum og lini þar með sálarhrellingar
þeirra. Nú er áhangenda- og vinahópur
skrifara að mun minni í sniðum. Engu að síður
hafa þeir að honum lagt að halda áfram iðju
sinni. Eftir að hafa lagst undir feld og hugsað
málið vandlega, hefur skrifari ákveðið að
skrifa áfram enn um sinn. Lögmönnum og
öðrum þeim sem telja sig geta beðið tjón á sálu
sinni af lestri þeirra skrifa, bendir skrifari á að
hlaupa yfir síðu tvö og jafnvel fjarlægja hana
úr blaðinu sem er enn betra svo að óvitar
komist ekki í efnið.
Að svo mæltu óskar skrifari lögmönnum og
öðm góðu, réttsýnu og víðsýnu fólki guðs
friðar og rósemi í sálarlífi.
Sigurg.
\
FRÉTTIR
Útgefandi: Eyjaprent hf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Fréttastjóri: Þorsteinn
Gunnarsson. Abyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson. Prentvinna: Eyjaprent hf.
Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481 -3310. Myndriti: 481-
1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í
áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Novu, Skýlinu, Tvistinum, Amigo, Kránni, Búrinu,
Vöruval, Herjólfi, Flugvallarversluninni, Tanganum, Amigo og Söluskálanum. í Reykjavík: hjá Esso
Stóragerði og í Flugteríunni á Reykjavíkurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum
FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun
Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.