Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 30.01.1997, Qupperneq 4

Fréttir - Eyjafréttir - 30.01.1997, Qupperneq 4
Sælkeri vikunnar - Sigrún Þorláksdóttir Ofnbakaður fiskréttur Sælkeri síðustu viku, Unnur Katrín Þórarinsdóttir, skor- aði á Sigrúnu Þor- láksdóttur að taka við í þessari viku. Hér hefur hún orðið. Eg hélt bara að enginn ætlaði að skora á ntig að vera sælkeri vikunnar og mikið þakka ég henni vinkonu ntinni, henni Unni Kam'nu, fyrir að benda á mig. Ég ætla að korna með fiskrétt fyrir íjóra. Ofnbakaður fiskur með banönum: 600 g ýsa 2-3 tsk. salt 1/2 tsk. pipar hveiti 1 púrrulaukur 2 msk. matarolía I tsk. karrý 1 tsk. picanta 1 peli rjómi 2 bananar salthnetur Skerið fiskinn í sneiðar og veltið upp úr hveiti sem kryddað er með salti. Léttsteikið fiskinn upp úr matarolíu á pönnu. Setjið fiskinn síðan í eldfast mót. Brytjið púrru- laukinn og setjið hann ásamt matar- olíu í pott og látið krauma þar til laukurinn verður meyr. Þá er krydd- inu bætt út í pottinn ásamt rjómanum og hitað örlítið. Hellið þessu nú yfir fiskinn í mótinu, setjið það í ofn og bakið við 180° C í 10-15 mínútur. Þegar sá tími er liðinn eru niður- sneiddir bananar settir yfir réttinn og hann áfram bakaður í 5 mínútur til viðbótar. Að lokurn er söxuðum salthnetum stráð yfir. Rétturinn er borinn fram með kartöflum, hrís- grjónum og salati. Ég ætla að skora á vin minn, Þröst Árna Gunnarsson í Sparisjóðnum, að vera næsta sælkera. Þannig vil ég tryggja að sælkerinn haldist enn um sinn innan veggja Sparisjóðsins. ORÐSPOR Eina nótt í litlum svefnbæ úti á landi kviknaði eldur í lítilli en verðmætri efnaverksmiðju. Slökkvilið úr nærliggjandi sveit- um kom á vettvang og eftir að hafa barist við eldinn í klukkutíma, sagði fram- kvæmdastjóri efnaverksmiðjunnar: „Allar efnafræðiformúlurnar okkur og leyndar- mál eru í peningaskáp í miðri verk- smiðjunni. Það verðurað bjarga þeim. Ég greiði því slökkviliði fimm milljónir sem tekst að bjarga formúlunum.” Þetta varð til þess að slökkviliðs- mennirnir tóku á öllu sem þeir áttu. Tveimur klukkustundum síðar hafði ekkert gengið. Framkvæmdastjórinn, hækkaði verðlaunin í tíu milljónir. í fjarska heyrðist veikt sírenuvæl og svo svo sást gamall og lúinn slökkviliðsbíll koma á fljúgandi siglingu. Einn slökkviliðsmaðurinn hrópar að þetta sé slökkviliðið Gamlir jaxlar sem samanstendur einungis af eldri borg- urum sem eigi þennan eina slökkvibíl. sést Öllum til mikillar furðu æðir bíllinn áfram í gegnum hliðið að efnaverksmiðjunni og beint inn í verksmiðjuna, í mitt eldhafið. Fjöldi fólks fylgdist með Gömlu jöxlunum hoppa úr slökkvibíln- um og berjast við eldinn á hetjulegan hátt og höfðu önnur eins hetjuleg vinnubrögð aldrei áður í slökkvistarfi. Aðeins klukkutíma síðar höfðu Gömlu jaxlarnir ráðið niðurlögum eldsins og tókst þeim einnig að bjarga öllum efnafræðifor- múlunum og leyndarmálum efnaverk- smiðjunnar. Framkvæmdastjóri verk- smiðjunnar varð svo hrifinn af framgöngu Gömlu jaxlanna að hann tvö- faldaði björgunarlaunin og borgaði þeim 20 milljónir króna! Eftir að hafa þakkað Gömlu jöxlunum fyrir hetjulega framgöngu gat fram- kvæmdastjórinn ekki stillt sig að spyrja hvað gömlu slökkviliðsjaxlarnir ætluðu að gera við verðlaunaféð? - „Ætli við látum ekki verða okkar fyrsta verk að láta gera við helvítis brems- urnar á bílnum”. Pabbi Jónasar dó og mamma hans tók því mjög illa. Hún var óhuggandi í marga daga og sat inni hjá sér og talaði ekki við nokkurn mann. Loks tók hún sér tak og fór að blanda geði við aðra. Þá sá Jónas sér til hrellingar að gamla konan var farin að ganga með buxurnar af pabba hans um hálsinn. Hann kom því að máli við prestinn og bað hann um að gera eitt- hvað í málinu. Séra Guðmundur kom þá að máli við gömlu konuna og reyndi að fá hanatil að sleppa buxunum, en það var sama hvað hann sagði, sú gamla vildi það ekki. „En af hverju ertu þá með buxurnar hans Jóns um hálsinn?” spurði prest- urinn. „Það er vegna þess að þær veita mér mikla huggun,” sagði gamla konan. „En þá ættir þú frekar að ganga um með Biblíuna. Þar er miklu meiri huggun að finna.” sagði presturinn. „Já, en,” sagði gamla konan, „það stendur ekki í Biblíunni sem stóð í bux- unum hans Jóns míns." Meðvitaðri um starfið Útskrift á fiskvinnslunámskeiðum í Eyjum fyrir fiskvinnslufólk og bræðslufólk fór fram si. þriðjudag. Alls luku 30 manns námskeiðinu að þessu sinni. Ein þeirra sem lauk námskeiðinu var Guðrún Hauksdóttir. Það tók hana tíu ár að Ijúka námskeiðinu. Hún byrjaði á námskeiðinu 1987 og lauk þá sjö einingum en hætti þá að vinna í fiskvinnslu. Hún fór aftur í fiskinn í haust og lauk svo námskeiðinu í janúar sem hún hafði byrjað á fyrir tíu árum. Guðrún er Eyjamaður vikunnar. Fullt nafn? Guðrún Hauksdóttir. Fæðingardagur og ár? 8. júní 1963. Fæðingarstaður? Vestmannaeyjar. Fjölskylduhagir? Ég er í sambúð með Jóni Gísla Ólasyni og við eigum tvö börn. Menntun og starf? Ég er búin að taka einhverja áfanga í fjölbraut og er orðin sérhæfður fiskvinnslumaður. Laun? Þau eru ósköp lág enda vinn ég fjóra tíma á dag. Helsti galli? Ég veit ekki um neinn! Helsti kostur? Skapgóð. Uppáhaldsmatur? Nautapiparsteik. Versti matur? Hjörtu. Uppáhaldstónlist? Mér finnst diskurinn með Björk sem heitir Gling gló alltaf jafn góður. Hvar myndir þú vera ef þú yrðir fluga á vegg í einn dag? Ég vil ekki vera fluga. Uppáhalds stjórnmálamaður? Enginn sérstakur. Uppáhalds íþróttamaður? Vala Flosadóttir. Ertu meðlimur í einhverjum félagsskap? Nei. Hvert er eftirlætissjónvarpsef nið þitt? Ég reyni alltaf að horfa á Ráðgátur. Hvaða sjón-1 varpsrás horfirþú mest á? Stöð 2. Uppáhaldsleikari? Enginn sérstakur. Uppáhaldskvikmynd? Gaukshreiðrið er alltaf jafn minnis- stætt. Uppáhaldsbók? Þær eru svo margar góðar. Hver eru helstu áhugamál þín? Fjölskyldan og mér finnst rosalega gaman í útilegum í góðu veðri. Hvað metur þú mest í fari annarra? Hreinskilni. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Frekja og leti. Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Skaftafell, að sjá and- stæður gróðurs og auðnar. Hefur þetta námskeið eitthvað að segja fyrir þig í starfi? Ég held að fólk verði meðvitaðra um hvað fiskvinnsla snýst. Gætir þú hugsað þér að mennta þig meira í þínu fagi? Alveg eins. Ert þú tilbúin í verkfallsátök ef því er að skipta ef verkalýðshreyfingin '^samþykkir slíkt? Ég ætla •! 'íiWa að vona að ekki verði verk- föll Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir þessi orð: - Námskeið? Fræðsla. ■ Þorskurinn? Ekki séð hann í 9 ár, enda var ég að byrja í haust, þegar síldin kom, eftir öll þessi ár. -Loðnan? Peningalykt. - Verkföll? Atök við samningaborðið. Eitthvað að lokum? Vonandi er góð vertíð framundan. Hvað er a5 gerast um helgina? Visamánaðamótin! Jæja þá, nú eru JÓLAVISA/EURO reikningamir komnir í allri sinni dýrð. Vissuð þið að 25% lands- manna sem eru með fynnefnd kreditkort láta setja jólasummuna á raðgreiðslur? Nei, ekki ég heldur, en þetta ntun vera dagsatt. Dýr jól það. En skemmtanafíkill Frélta kann gott ráð við visa/eurohöfuðverknum. Skellum okkur út á lífið um helgina, gleymum ávísanaheftinu, kreditkort- um og gluggaumslögum og hressum upp á sálartetrið. Framundan eru mikil uppgrip í loðnu. En hvað er þá urn að vera? Á Lundanum verður hin sívinsæla hljómsveit 66. Enginn þarf að vera svikinn af henni enda kennir hún sig við flott- asta árgang sem sögur fara af! Á Höfðanum verður 16 ára ball á föstudags- kvöldið. Hljómsveitin Herramenn sér um að halda trukki í húsinu. Á laugardagskvöldið verða Herramenn á HB Pöbb en þá er 18 ára aldurstakmark. Á Mánabar ætlar Jón Óli að bjóða upp á diskóstemmningu um helgina. Sá/sú sem mætir í flottustu diskó- lörfununt fær óvæntan glaðning á barnum. Pizza 67 er auðvitað með opið fram eftir nóttu, Hertoginn er rómaður, Lanteman klikkar aldrei og Cafe María er á sínum stað. NýfOzddir Vestmannaeyingar 9 Stúlka Þann 27. janúar sl. eignuðust Matthildur María Eyvindsdóttir og Georg Eiður Arnarson stúlku. Hún vó 15 merkur og var51 sm. Ljósmóðir: Guðný Bjarnadóttir Drengur Þann 28. janúar sl. eignuðust Alda Jóhannsdóttir og Óskar Ólafsson dreng. Hann vó 17 merkur og var55 sm. Drengurinn er í fangj systkina sinna, Birnu Óskar og Ólafs. Ljósmóðir: Drífa Björnsdóttir Stúlka Þann 17. janúar sl. eignuðust Dagrún Sigurgeirsdóttir og Hafþór Snorrason stúlku. Hún vó 16 merkur og var55 sm. Ljósmóðir: Drífa Björnsdóttir

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.