Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 30.01.1997, Síða 8

Fréttir - Eyjafréttir - 30.01.1997, Síða 8
8 Fréttir Fimmtudagur30. janúar 1997 Þorsteinn Þorsteinsson lítur yfir farinn veg: Kommúnistí hei ég aldrei verið -en ég þarfað tala við Árna Johnsen áður en ég ákveð hvort ég kýs Sjálfstæðisflokkinn næst segir íhaldsmaðurinn Doddi í olíunni. Doddi með yngsta afkomandann, Guðrúnu Báru, sem er dótturdóttir Eiríks sonar hans. Doddi í olíunni er hann kallaður sem má rekja til þess að hann vann í mörg ár hjá Skeljungi. Hann er Vestmannaeyingur í húð og hár, stundaði sjó áður en hann byrjaði hjá Skeljungi og íhaldsmaður er hann fram í fingurgóma. Sótti fyrsta landsfund Sjálfstæðisflokksins þegar Ólafur Thors var kosinn formaður flokksins. Reyndar er hann ekki alveg sáttur við sinn ágæta flokk þessa stundina en kennir Framsóknarflokknum um. Doddi er ekki bara sjálfstæðismaður, hann er líka mjög sjálfstæður maður sem kom fram þegar hann átti 70 ára afmæli 17. janúar. Flestir hefðu annað hvort haldið stóra veislu eða látið sig hverfa en ekki hann Doddi. Hann tók sér far með Herjólfi fram og til baka þar sem hann naut gestrisni áhafnarinnar. Hann segist hafa skroppið í Karabíska hafið í tilefni afmælisins og lék hann sama leikinn núna og fyrir tíu árum, þegar hann varð sextugur. Hefur ekki enn fengið borgað fyrir fyrsta starfið Fullu nafni heitir hann Þorsteinn Þor- steinsson. Fæddur í vesturendanum á Lambhaga í Vestmannaeyjum 17. janúar 1927. „Þó pabbi hafi komið úr Landeyjum og mamma að austan kalla ég mig Vestmannaeying því hér hef ég alltaf átt heima. Pabbi fór á hausinn árið 1932, átti smáhlut í einhverjum kopp og missti kofann í framhaldi af því.“ Doddi gekk í Bamaskólann og stefndi á nám í Gagnfræðaskólanum þegar örlögin gripu inn í. „Pabbi dó skömmu áður en ég fermdist og þá varð ég að fara að vinna,“ segir Doddi og ber ekki á öðru en honum fmnist það sjálfsagður hlutur. En í fyrsta starfmu kom fram það sem hefur einkennt Dodda, hann lætur ekki vaða ofan í sig á skítugum skónum. „Strax eftir fermingu fékk ég vinnu á Tanganum en ég sagði fljótlega upp. Ástæðan var sú að ég hafði fengið frí til að fara með skátunum að Úlfljótsvatni. Þá bað annar um frí og fékk. Var mér sagt að ég fengi því ekki frí en ég sagðist ætla að fara og sagði upp. Þetta var mitt fyrsta starf en ég er ekki farinn að fá uppgjörið ennþá," segir Doddi og hlær. Eftir þetta lá leiðin á sjóinn. Fyrst fékk hann pláss hjá Jóni Guð- mundssyni á Ver. „Við vomm á snurvoð. Það var gott að vera með Jóni. Um haustið lá leiðin til Reykjavíkur þar sem ég fékk vinnu við hitaveituna. Hitaveitan í Reykjavík var mikið verk og dró til sín menn af öllu landinu. Eg bjó t.d. ásamt hundrað öðmm í Ingimarsskóla og öll hótel voru fúll. Skólinn byrjaði svo 1. október og þá varð ég að fara út og þá lá leiðin aftur til Eyja og þar hef ég verið síðan,“ segir Doddi með áherslu. Góður hlutur á síldinni Vertíðina á eftir reri hann með Eyjólfi á Bessastöðum sem var með litrikari formönnum í Eyjum á þessum ámm. „Það var gott að vera með Eyjólfi. Hann var góður sjómaður og er með eftirminnilegri mönnum sem ég man eftir. Fimmtán ára fór ég á sfld með Sighvati Bjamasyni. Það voru svokallaðar tvflembingsveiðar og vom Gullveig VE og Ársæll VE saman með nót þetta sumar. Við fiskuðum heilt helvíti, 19.000 mál og tunnur sem þótti mikið á þessa koppa. Var kaupið mikið eftir því.“ Um haustið fór Doddi f Vélskólann sem lauk um áramót og á vertíðinni var hann aftur með Eyjólfi en sem háseti. „Á vertíðinni lærbrotnaði vélstjórinn, Bjöm ffá Bólstaðarhlíð, og þá var ég gerður að vélstjóra. Reri ég næstu 14 eða 15 vertíðir með Eyjólfi og flest sumur. Sumarið 1945 fór ég þó aftur á sfld með Sighvati Bjama en þá var öldin önnur. Þetta var sfldarleysissumar og fengum við ekki nema 5000 mál og fór öll sfldin í grút.“ Árið 1953 fór Doddi til Danmerkur að ná í Tjaldinn með Kjartani á Hrauni og var þar til ársins 1958 eða í fimm ár. Næst var hann á Lagarfossi með Jóni í Sjólyst og í framhaldi af því fór hann í sitt síðasta pláss til sjós. ,,Ég var með Sigga Ella frá Varmadal í tvær vertíðir og tvö sumur. Þá var ég orðinn svo sjóhræddur og hætti. Mér fannst Siggi heldur kærulaus á sjó.“ Meðvitundarlaus í 14 daga Af sjónum lá leiðin til Skeljungs en þar hafði Doddi reyndar unnið milli þess sem hann stundaði sjóinn. „Eg var í útivinnu hjá Skeljungi þangað til ég meiddi mig. Það gerðist upp við Draumbæ. Það datt rör ofan á hausinn á mér með þeim afleiðingum að hann brotnaði. Ég lá meðvitundarlaus í 14 sólarhringa. Auk þess var ég alveg máttlaus. Á 15. degi átti að höggva upp á mér hausinn. Læknirinn, Bjami Jónsson, sonur Jóns seglasaumara, sá þá að ég var að koma til meðvitundar. Bauð hann mér sígarettu en ég sagðist ekki reykja en mundi þiggja í nefið. Sendi hann hjúkrunarkonu eftir neftóbaki og kom hún með heila krukku.“ Ekki tók Bjami í mál að Doddi borgaði neftóbakið og hélt áfram rannsóknum. „Ég sagði við hann að mér fyndist hann vera líkur pabba sínum. Þá sannfærðist hann um að ég væri ekki ruglaður. Hann hafði þó áhyggjur af beinflís í hausnum á mér en varð ánægður þegar ég byrjaði að hnerra af neftóbakinu. Hann sagði að það ýtti á eftir flísinni að koma út.“ Varð íhaldsmaður í sveitinni Menn ganga ekki að því gruflandi hvar Doddi stendur í pólitíkinni. Hann er og verður sjálfstæðismaður og sjálfur segist hann vera rakið íhald af gamla skólanum. ,Úg var á landsfúndi Sjálfstæðisflokksins þegar Óli Thors var kosinn formaður. Síðan hef ég setið landsfundi nema þann síðasta,“ sagði Doddi. Hann hefur séð formenn koma og fara, karla eins og Bjama Benediktsson, Jóhann Hafstein, Geir Hallgrímsson, Þorstein Pálsson og nú síðast Davíð Oddsson. Hann kaus þó ekki alltaf þá sem urðu ofan í formannsslagnum. „Ég kaus Matta Bjama þegar hann bauð sig ffam. Eins kaus ég Gunnar Thor og fótbolta- manninn,“ segir Doddi og á þar við Albert Guðmundsson. „Kommúnisti hef ég aldrei verið. Ég varð íhaldsmaður þegar ég var í sveit sem unglingur. Ég var í því að fara með mjólkina sem var flutt í brúsum á klökkum. Ég gerði ekki meira en að ráða við brúsana og svo þegar þeir komu til baka vom þeir fullir af skyri, mysu, ostum og undanrennu sem kom frá Mjólkurbúi Flóamanna. Þetta fengu bændumir sent heim án þess að þeir væra að biðja um það. Mér fannst þetta mikið óréttlæti og kenndi framsóknarmönnum um. Ég hélt að þeir réðu öllu í Mjólkurbúinu." Doddi segist alltaf hafa kosið Sjálfstæðisflokkinn en hann er ekki ánægður með flokkinn sinn í dag. „Ég verð að tala yfir hausamótunum á honum Áma Johnsen. Mér finnst alþingismenn ekki vera að gera rétt,“ segir Doddi og vísar til þess að bætur til hans hafa verið skertar um 12 þúsund krónur. „Alþingismenn era líka of kæralausir en svona er þetta alltaf þegar helvítis ffamsóknar- mennimir komast í ríkisstjóm. Þeim er aldrei treystandi.“ Með Herjólfi á stórafmælum Doddi varð sjötugur 17. janúar sl. sem bar upp á föstudag. í tilefni dagsins tók hann sér far með seinni ferð Herjólfs þar sem áhöfnin bar hann á höndum sér. í nesti hafði hann einn wiskýpela. „Það var tekið mjög vel á móti mér um borð. Lalli skipstjóri

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.