Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 30.01.1997, Qupperneq 10

Fréttir - Eyjafréttir - 30.01.1997, Qupperneq 10
10 Fréttir Fimmtudagur 30.janúar 1997 Eru útgerðarstaðir eins og Vestmannaeyjar dæmdir til Slagurinn um fólkið harðnar á næsiu árum ■Verðlag, skólamál, samgöngur, læknisþjónusta og fjölbreyttmannlíferu atriðisem fólk horfir tilþegarþað velur sér búsetu, ekki síður en atvinna. Með meiri stöðugleika skiptir ekki síður máli hvað fæst fyrir peningana Árið 1996 var í flestu tilfelli Vestmannaeyjum og Vestmannaeyingum hagstætt og er það mest að þakka góðum sjávarafla. Hefur afli Eyjamanna sjaldan eða aldrei verið betri og afkoma ísfélags og Vinnslustöðvar var betri en dæmi eru til áður. Sama má segja um einkaútgerðirnar í bænum sem eru að skila góðum arði. Þetta hefur skilað sér í meiri veltu í bænum og atvinnuleysi hefur verið hverfandi allt árið. Þrátt fyrir þetta höfum við mátt horfa upp á fækkun í bænum. Þann I. desember 1995 voru íbúar í Vestmannaeyjum 4.805 en samkvæmt bráða- birgðatölum Hagstofu voru þeir komnir niður í 4.749 þann I. desember sl. Hér verður reynt að meta stöðu Vestmannaeyja í dag, hvað veldur fólks-fækkun og hvort hægt sé að snúa þessari þróun við. Ekki einangrað fyrirbrigði Vestmannaeyjar eru ekki einangrað dæmi um fækkun íbúa því sama þróun er undantekningalítið á landsbyggð- inni. Þar hefur ibúum fækkað á undanförnum árum á meðan fólki fjölgar við Faxaflóann. Þetta gerist þrátt fyrir að atvinnuleysi er óvíða meira en í Reykjavík og er því eðlilegt að staldrað sé við og spurt hvað Reykjavík haft fram yftr bæi á landsbyggðinni? Auðvitað kemur margt til, fjölmennið býður upp á fjölbreyttara mannlíf, meiri og betri þjónustu á ýmsum sviðum en hin mannlega fjarlægð eykst í réttu hlutfalli við stærð samfélaganna. I fjölmenni er auðvelt að týnast og hvergi getur einmanaleikinn orðið meiri. Þá er óupptalið hvað erfitt getur verið að nálgast atriði sem á minni stöðum er hægt að bjarga með einu símtali. Ekki hef ég á reiðum höndum tölur um fólksflutninga til Reykjavíkur en þeir hafa staðið nær alla öldina með mismiklum krafti þó. Helsta mótvægið við Reykjavík hafa verið öflugir útgerðarstaðir og þar hafa Vestmannaeyjar verið í fremstu röð. Nú hefur þetta breyst og nú eru það helst staðir eins og Egilstaðir og Selfoss sem eru að sækja í sig veðrið auk þess sem fjölgun hefur orðið á Akureyri. Vinnuletjandi skattakerfi Til að skoða þetta nánar verður að fara aftur í tímann og skoða hvernig ástandið var þegar uppgangur var mestur í Vestmannaeyjum. Þá voru hér vertíðir sem stóðu undir nafni og vinna til sjós og lands gaf góðan pening. Hingað fluttist fólk sem á nokkrum árum gat komið ár sinni vel fyrir borð fjárhagslega. Hluti þess notaði Vestmannaeyjar sem stökkpall á leið sinni til Reykjavíkur en margir settust hér að og hafa unnið bæjar- félaginu mikið gagn. Það sem breyst hefur síðan er að vinna er jafnari yfír árið fyrir utan toppa á loðnu- og síldarvertíð. Þrátt fyrir þessa breytingu verður ekki annað sagt en að sjómenn hafí haldið sínum hlut en fólk í fiskvinnslu hefur setið eftir í launum. Er nú svo komið að fískvinnslufólk, og reyndar fleiri stéttir, þarf að sætta sig við fáránlega lág laun. Takist því með mikilli vinnu að ná sér upp í tekjum tekur ekki betra við því þá bíður skatturinn með útréttan hraminn, tilbúinn til að hrifsa til sín tæplega helminginn af laununum í formi staðgreiðslu. Staðgreiðslan var mikið framfaraspor á sínum tíma en ffamkvæmd hennar er fáránleg. 1 dag miðast hún við rúmlega 60 þúsund krónur og eftir að þeim tekjum er náð er tekur skatturinn um 42%. Upphaflega var staðgreiðslan 35% en hefur smátt og smátt verið að hækka og er nú 42% og þó hækkunin sé ekki nema sjö prósentustig, svo notuð séu orð hagfræðinnar, er hækkunin hvorki meira né minna en 20%. Á sama tíma hefur virðis- aukaskatturinn hækkað úr um 20% í rúm 24% þannig að umtalsverður skattur er greiddur af þeim 60 þúsund krónum sem launamenn fá að valsa með skattfrjálst í hverjum mánuði. Uppgötvun forsætisráðherra Nú hefur forsætisráðherra uppgötvað að staðgreiðslukerfið sé vinnuletjandi. Þetta hafa flestir séð fyrir löngu og til voru menn sem óttuðust strax j upphafi að þetta gæti orðið raunin. í heild má segja að skattheimta á íslandi sé komin út fyrir allt velsæmi og full ástæða til að staldra við. Hún er þannig upp byggð að fólki, sem að jafnaði er með um 60 þúsund á mánuði, fínnst það hefndargjöf þegar topparnir koma og helmingurinn fer í skatta eftir fyrstu vikuna. Kemur þetta hvergi betur fram en í fískvinnslunni og ekki síst í loðnu og sfld. Sjómenn njóta skattaafsláttar og er ekkert nema gott um það segja en spurningin er hvort ekki sé kominn tími til að athuga hvort fólk í fískvinnslu eigi ekki að njóta skattaafsláttar í einhverju formi. Þjóðfélagið stendur í mikilli skuld við fiskvinnslufólk og á mikið undir því að einhver kæri sig um að vinna í físki yfirleitt. Skattaafsláttur ásamt hærri launum í fiskvinnslu gerði búsetu í sjávarplássum eins og Vestmanna- eyjum eftirsóknarverðari og gæti komið landsbyggðinni til bjargar. Von um góðar tekjur laðaði fólk til búsetu í sjávarplássunum upp úr 1970 en það hefur breyst. Þetta er atriði sem þarf að skoða áður en heilu bæimir og jafnvel heilu fjórðungamir leggjast í auðn. Hvað hefur áhrif á búsetu fólks? Þegar kemur að þvf að fólk velur sér búsetu em nokkur atriði sem það hefúr í huga. Fram til þessa hefur atvinna verið efst á blaði en nú skoðar fólk líka hvemig skólamálum er háttað, stöðu heilbrigðisþjónustu, almenna þjónustu og hvað hún kostar. Þar komum við að atriðum eins og almennu vöruverði, hvað kostar að kynda húsin, hvað kostar að komast úr og í vinnu og samgöngur og ferðakostnaður er líka inni í myndinni þegar sest er að úti á landi. Þegar kemur að atvinnu er það fjölbreytnin sem fólk skoðar fyrst og síðast. Því miður fyrir landsbyggðina hefur Reykjavík vinninginn á flestum þessum sviðum. Þar er hitunarkostn- aður helmingi lægri en t.d. í Vestmannaeyjum, vömverð lægra þó sá munur hafi minnkað á síðustu ámm. Er nú svo komið að matvara fæst hér á svipuðu verði og á stórmörkuðum og á Reykjavíkur- svæðinu, þó ekki þeim alódýrustu eins og t.d. Bónus en við getum samt vel við unað. Hvað hitaveituna varðar þá er hún tvöfalt dýrari hér en það em forsendur til lækkunar með lengingu lána og er von til þess að svo verði gert. Munur á fasteignaverði hér og í Reykjavík er um 30% samkvæmt upplýsingum fasteignasala hér í bæ. Þegar menn skoða fasteignaverð horfa menn oftast frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur. Bera þá saman hvað stóra eign þeir fá á Reykjavíkursvæð- inu fyrir það verð sem þeir fá fyrir hús eða íbúð í Vestmannaeyjum. Horfi menn aftur á móti á þetta frá Reykjavík til Eyja er lægra fasteignaverð kostur. Mismunurinn er fundið fé ætli menn sér að setjast að í Eyjum. Skólamál skipta líka máli í skólamálum em Vestmannaeyjar vel settar, með Framhaldsskóla sem útskrifar stúdenta og nema á iðnbrautum og vélstjómarbraut. Það nýjasta í skólamálum er stofnun Listaskóla sem taka á til starfa á næsta ári. Reyndar verður sú breyting á næsta ári að Stýrimannaskólinn í Vestmannaeyjum verður lagður niður í því formi sem við þekkjum hann. Verður hann deild innan Framhaldsskólans frá og með næsta hausti. Hvaða áhrif breytingin kemur til með að hafa á framhald skipstjómamáms í Vestmannaeyjum mun framtíðin skera úr um. En þar þurfa forráðamenn Framhalds-skólans og bæjarins að halda vöku sinni. Á siðasta ári yfírtóku sveitarfélögin rekstur gmnnskólanna af ríkinu sem, ef rétt verður á haldið, gæti orðið mikið gæfuspor fyrir bæjarfélagið. Það ríður á miklu fyrir hvert sveitar- félag að myndarlega verði staðið að skólamálum. Það hlýtur að vera kappsmál bæjarstjómarmanna hér að sjá til þess að hér verði öflugir grunnskólar því þeir verða eitt af því sem fólk mun skoða þegar kemur að því að það velji sér búsetu. Fjölbreytt atvinna skiptir líka máli Hvað atvinnumálin varðar þá geta staðir eins og Vestmannaeyjar ekki státað af mikilli fjölbreytni því hér er lífið fískur og aftur fiskur. Það em þó ýmis teikn á lofti um að á því geti orðið breyting. Auðvitað verður fiskurinn undirstaðan en með aukinni framleiðslu í neytendapakkningar gæti vinna í fiski orðið íjölbreyttari og eftirsóknarverðari en nú er. En til þess þurfa launin að hækka hvort sem það er í formi skattalækkana eða beinna kauphækkana. Fólksfækkun þrátt fyrir uppgang Umræða um fólksfækkun í bænum, sem sumir vilja kalla fólksflótta hefur verið svolítið undarleg og á skjön við atvinnuþróun síðustu ára. Fréttir af rótgrónum Eyjamönnum, sem bíða bara eftir að losna við húsin sín og em svo famir, fá menn eðlilega til að staldra við og spyija hvað veldur? Það sem almennt kemur fram hjá fólki er ótti við framtíðina í Eyjum, segir atvinnuástand ótryggt sem kemur á óvart miðað við að síðasta ár var eitt það gjöfulasta sem hafið hefur gefið Vestmannaeyingum. ísfélag og Vinnslustöð hafa náð sér á strik og em aftur komin í hóp öflugustu sjávarútvegsfyrirtækja landsins. Þau ásamt einkaútgerðum í Eyjum ráða sennilega orðið milli 11% og 12% af öllurn aflaheimildum landsmanna. Aðeins þetta atriði ætti að vera nóg til þess að fólk hér héldi ró sinni ekki síst í ljósi þess að íbúar Vestmannaeyja em ekki nema 1,8% þjóðarinnar. Liggur vandinn í hagræðingunni? Þrátt fyrir þetta er ekki hægt að horfa fram hjá nokkmm atriðum og það fyrsta sem kemur upp í hugann er hagraeðing sem virðist lausnarorðið í dag. f vaxandi samkeppni er öllum nauðsynlegt að hagræða en það þýðir líka að færri hendur þarf til að vinna hvert verk, tæki af öllum gerðum em að taka við af mannshöndinni. Sjávarútvegur er þar engin undan- tekning, skipin hafa stækkað og færri hendur þarf til að koma hverju tonni í gegnum vinnslusalina. Það em ekki mörg ár síðan nótabátar bám 200 til 250 tonn og í áhöfn vom tíu til tólf karlar. Fjóra til fimm bfla þurfti til að koma aflanum í hús auk þess sem tveir til þrír menn úr landi vom við löndunina. Nú er algengt að burðargeta skipanna sé frá 1000 tonnum upp í 1500 og jafnvel meiri og þegar komið er í land er einum barka stungið niður f lest og aflanum dælt í land. í dag skilar einn sjómaður sama magni að landi og fimm til sex áður og umsvifin á bryggjunni em horfin. I landi hafa afköstin tvöfaldast og í sumum tilfellum meira á hvem starfsmann. Þetta em staðreyndir sem ekki er hægt að líta framhjá þegar horft er til mannljöldaþróunar í Vestmannaeyj- um því um helmingur alls vinnuafls hér starfar við sjávarútveg. Mótvægi við þessa þróun gæti orðið frekari fullvinnsla á sjávarafla sem kallar á fleira starfsfólk. Reyndar er fúllvinnsla komin í gang í Vestmannaeyjum, sérpökkun í Vinnslustöðinni hefur verið vaxandi og er framleitt bæði fyrir erlenda og innlenda markaði. Eins verður að stefna að því að hér rísi upp minni fyrirtæki í fiskvinnslu. Þau hafa mikla möguleika í sérvinnslu ýmiss konar. Slík starfsemi kallar oft á mörg störf sem gætu fyllt upp í það skarð sem myndast við hagræðingu í stóm frystihúsunum. Því miður hafa lítil fyrirtæki verið að týna tölunni en önnur lifa enn. Rekstur þeirra er ekki auðveldur en tilvera þeirra sýnir að þetta er hægt. Þróunarfélagið er kjör- inn vettvangur fyrir þá sem hafa áhuga á að stofna ný fyrirtæki hvort sem er á sviði sjávatútvegs eða í öðmm grein- um. Hlutverk lánastofnana skiptir líka miklu máli þó fmmkvæðið komi ekki frá þeim. Björtu hliðarnar Þrátt fyrir þetta og ugg gamalgróinna Vestmannaeyinga um framtíðina er ýmislegt jákvætt að gerast. Sem dæmi má nefna að aldrei hefur fleira háskólamenntað fólk búið í Vestmannaeyjum. Vestmannaeyingar hafa snúið heim úr námi og er þá að finna t.d. í skólunum og heilbrigðis- geiranum, Bæði ísfélag og Vinnslu- stöð hafa ráðið til sín fólk með góða menntun, hér er risið öflugt tölvu- fyrirtæki, í Rannsóknasetri Háskólans starfa fimm til sex manns með háskólapróf, Fréttir hafa yfir einum háskólamenntuðum manni að ráða, auk þess hefur ungt kennaramenntað

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.