Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 30.01.1997, Qupperneq 11

Fréttir - Eyjafréttir - 30.01.1997, Qupperneq 11
Fimmtudagur 30.janúar 1997 Fréttir n verða undir í baráttunni við þéttbýlið við Faxafíóa:? Koma þessi börn til með að velja sér búsetu í Vestmannaeyjum? fólk verið að flytja heim að loknu námi og í Framhaldsskólanum em kennarar með góða menntun. Þá em ótaldir læknar, tannlæknar og starfsfólk Sjúkrahússins sem hefur lokið háskólaprófi. Þessi upptalning er ekki tæmandi en hún sýnir að menntað fólk sér framtíð í að setjast að í Vestmannaeyjum. Því til stað- festingar skal bent á að langstærsti hluti þeirra býr í eigin húsnæði. Er það breyting frá því fyrir nokkmm ámm þegar t.d. læknar og tannlæknar sem hingað komu vom í leiguhúsnæði sem þeim var skaffað. Þurfum á menntuðu fólki að halda Til em þeir sem hafa hom í síðu þessa fólks, telur að það sé að setja sig á háan hest gagnvart þeim sem hér búa fyrir. Þessi gagnrýni á við engin rök að styðjast. Þau kynni sem við á Fréttum höfum af þessu fólki sýna að þama er fólk sem vinnur af fullum heilindum og er tilbúið til að takast á við ný verkefni. Vestmannaeyingar eiga að taka vel á móti þessu fólki því það á eftir að styrkja þetta litla samfélag okkar í framtíðinni. Það er hverju bæjarfélagi nauðsynlegt að hafa á að skipa sem mestu mannavali ætli það að standast aukna samkeppni. í þessu sambandi verður fróðlegt að fylgjast með því sem verður að gerast í Rannsóknasetrinu, ísfélagi, Vinnslu- stöð, Vestmannaeyjabæ og Fram- haldsskólanum. Forráðamenn þessara stofnana og fyrirtækja em stöðugt að gera sér betur grein fýrir nauðsyn þess að fylgja sem best eftir framþróun á öllum sviðum. Hún ásamt þekkingu er lykill að velferð í framtíðinni. Takist forráðamönnum að aðlaga fyrirtæki sín og stofnanir að stöðugt harðnandi samkeppni er bjart framundan. I framhaldi af því munu einstaklingar koma meira til sögunnar. Möguleikar þeirra liggja víða, ekki síst vegna þeirra möguleika sem fjarvinnsla býður upp á. Þar gæti nýstofnað Þróunarfélag komið að góðum notum. Eins þyrftu forstöðumenn banka- stofnana að fylgjast vel með þróun mála og taka á móti fólki sem til þeirra leita með nýjar hugmyndir með opnum huga. Hvert er hlutverk bæjarstjórnar? Fari þetta saman þurfa Vestmanna- eyingar ekki að kvíða framtíðinni en nái svartsýnin yfirhendinni verður stöðnun í Vestmannaeyjum og áframhaldandi fækkun íbúa með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Margir horfa til bæjarstjómar þegar hallar undan fæti í atvinnumálum en það er engin lausn að bæjarsjóður taki beinan þátt í atvinnumálum. Það er aftur á móti hlutverk bæjarstjómar að sýna fram á þá möguleika sem fyrir hendi em. Stofnun Þróunarfélags og ráðning atvinnufulltrúa er góð viðleitni en spuming er hvort ekki sé nauðsynlegt að koma upplýsingum um starfsemi félagsins til bæjarbúa með skilvirkari hætti. Við það mætti hnýta upp- lýsingum frá bönkunum um fjármögnunarmöguleika. Eins gæti bæjarstjóm staðið fyrir almennum borgarafundum þar sem farið yrði yfir sviðið ásamt forráðamönnum stærstu fyrirtækjanna, bankanna og fleiri. Komi fram jákvætt viðhorf hjá þessum aðilum til búsetu í Vest- mannaeyjum smitar það út frá sér og umræðan yrði á jákvæðari nótum. Það gæti orðið fyrsta skrefið í að snúa við byggðaþróuninni. Er kvótakerfið afhinuilla? Um áramótin vom 13 ár frá því kvóti var settur á fiskveiðar við ísland. Frá þeirri stundu hafa umræður um kvótann verið heitar og oft hafa tilfinningamar verið skynseminni yfirsterkari. Einkum er það framsalið sem fer fyrir brjóstið á fólki. Það er aftur á móti ekki hægt að horfa fram hjá þeirri staðreynd að framsalið er undirstaða þess að kvótakerfið virki og aðeins lítill hluti er seldur gegn greiðslu. Að stærstum hluta eru skipti á aflaheimildum gagnkvæm, þ.e. skipst er á tegundum milli skipa sem í mörgum tilfellum em skilyrði fyrir því að hægt sé að gera út áfram. Ekki er ætlunin að taka upp þráðinn í þessari umræðu heldur líta á sífellt háværari kröfur um að kvótinn verði aflagður og í staðinn tekið upp aflagjald og eða auðlindaskattur, sókn- armark eða jafnvel að rykið verði dustað af skrapdagakerfinu. Nú ætla ég ekki að halda því fram að kvótakerfið sé alfullkomið en áður en því verður kastað fyrir róða verða menn að hafa á reiðum höndum nýtt kerfi sem hægt verður að vinna eftir. Það verður þó að segjast eins og er að ennþá hefur ekki verið bent á kerfi sem tekur kvótakerfinu fram. Ekki er þó hægt að ganga fram hjá þeirri staðreynd að til eru þeir sem fóru á hausinn eftir að kvótinn var settur á en það var ekki kerfinu um að kenna heldur samdrætti í aflaheim- ildum. Stjórnmálamönnum illa treystandi fyrir meiri peningum Stjórnmálamenn hafa ekki sýnt að þeim sé treystandi fyrir meiri pen- ingum en þeir hafa nú þegar til umráða. Gleggsta dæmið um það er stanslaus peningaaustur í landbún- aðinn. Það er ótrúlegt, en á tíu ára tímabili, frá 1985 til 1994, fóru 100 milljarðar úr vösum skattborgaranna til að styrkja landbúnaðinn. En hvert fara þessir peningar? Samkvæmt nýjustu könnunum eru bændur fátækasta stétt landsins og er nú svo komið að núverandi félagsmála- ráðherra og fyrrum landbúnaðar- ráðherra er farið að blöskra; talar um að setja upp vinnuhóp til að kanna hvað veldur. Ofan á þetta allt saman eru settir ofurtollar á innfluttar landbúnaðarvömr til styrktar bændum sem neytendur þurfa að borga. Er þama e.t.v. komin ástæðan íyrir þvf að sveitarfélög sem byggja afkomu sína á landbúnaði þenjast út á meðan sjávarplássum blæðir? Og minnir þetta ekki á þá tíma þegar fiskur var seldur frá landinu Iangt undir markaðsverði til að hægt væri að selja útlendingum vaðmálið sem framleitt var í sveitunum. Ekki er þetta sagt af óvild til bænda heldur til að sýna fram á að það kann ekki góðri lukku að stýra þegar forsjá atvinnuveganna kemst f hendur stjómmálamanna. Þetta ásamt svo ótal mörgum öðmm dæmum segir manni bara eitt: Stjórnmálamenn hafa ekkert með meiri peninga að gera. En viljinn er fyrir hendi og þar hafa þeir augastað á aflagjaldi. Auðvitað eru þeir að lofa skattalækkunum á móti en hvenær hafa skattar, sem einu sinni hafa verið settir á, verið lækkaðir á íslandi? Og hætt er við að aflagjald í einhverri mynd yrði bara enn frekari skattheimta á sjávarplássin sem bitnaði harðast á fiskverkunarfólki. Horft til íslands Margir hafa horft til sóknarstýringar á fiskveiðum en þegar horft er til reynslunnar getur hún ekki talist fysi- legur kostur. Þar sem sóknarstýring er notuð hafa fiskveiðar verið á fallanda fæti og er nú svo komið að aðrar fiskveiðiþjóðir horfa til Islands við skipulagningu fiskveiða. Það má heldur ekki gleymast að íslenskur sjávarútvegur hefur náð að rétta úr kútnum svo um munar þrátt fyrir að eiga í samkeppni við sjávarútvegs- fyrirtæki erlendis sem em meira og minna rekin á ríkisstyrkjum. Um skrap-dagakerfið þarf ekki ræða; það var reynt einu sinni og reyndist handónýtt. Kvótinn hefur styrkt Vestmannaeyjar Vestmannaeyingar hafa náð að aðlaga sig kvótakerfinu. Auðvitað hefur það ekki gengið þrautalaust en það hefur skilað Vestmannaeyjum á ný í fremstu röð útgerðarstaða í landinu. Sagt er að pólitískt minni og veðurminni fólks nái ekki langt aftur í tímann. í því sambandi er athyglisvert að minna á að nokkrum ámm áður en kvóta- kerfinu var komið á var stór hluti Eyjaflotans auglýstur til sölu í Morgunblaðinu. Astæðan var sú að útgerðarmennimir sögðu engan gmndvöll vera fyrir rekstrinum. Ekkert varð af sölunni en sumir þeirra sem þá sáu ekki til sólar em í dag með útgerðir sem skila góðum hagnaði. Verða að nó sáttum við þjóðina Þetta segir sfna sögu um kosti kvótakerfisins en ætli útgerðarmenn að fá áframhaldandi umráðarétt yfir auðlindinni verða þeir að ná sáttum við þjóðina sem ennþá á fiskinn. Öflugur sjávarútvegur er undirstaða velsældar í landinu. Um það er ekki deilt en það verður að sjá til þess að fiskverkunarfólk fái sinn hluta af kökunni. Það verður líka að leggja áherslu á betri umgengni um auðlindina. Vilji menn skattleggja sjávarútveg umfram aðrar atvinnu- greinar á að gera það þegar menn em að selja sig út úr greininni. Nýleg dæmi sýna að sölugróði er langt umfram allt velsæmi. Auðvitað eiga menn að fá eðlilegan hagnað af eigum sínum en allt þar umfram á að skattleggja og það hressilega. Með því er eignarhald þjóðarinnar staðfest og réttlætiskennd fólks yrði ekki misboðið. Að lokum verður löggjafinn að sjá til þess að kvótinn safnist ekki á fáar hendur. I síðasta lagi verður að opnu nýju fólki leið inni í kvótakerfið með einhverjum hætti. Náist þetta í gegn verða helstu agnúar kvótakerfisins skomir af og þjóðin og útgerðarmenn og sjómenn geta unað glaðir við sitt. Blikur á lofti Loðnuvertíðin í fyrra er sennilega sú gjöfulasta hingað til. Hún skilaði miklu til vinnslu og útgerða, sjómenn fóm með góðan hlut frá borði og fiskvinnslufólk mikla vinnu en eftirtekja þess hefði mátt vera meiri. Utlit fyrir komandi vertíð er gott þó markaðsaðstæður á Japansmarkaði séu lakari en á síðasta ári. Eins getur veður og önnur ytri skilyrði haft áhrif. Það eru þó ekki hinir náttúmlegu þættir sem ógna vertíðinni heldur liinn mannlegi þáttur. Allir kjarasamningar em lausir og deiluaðilar eru byrjaðir að brýna kutana fyrir komandi átök. Eins og staðan er í dag bendir ýmislegt til verkfalla. Ekki skal gert lítið úr því neyðarúrræði launþega að grípa til verkfallsvopnsins en er nauðsynlegt að grípa til þess nú? Allir geta verið sammála um að hækka þurfi lægstu laun sem varla getur sett þjóðar- skútuna á hliðina. Þjóðarsáttar- samningar urðu þess valdandi að lægst launaða fólkið sat eítir. Þar brást verkalýðshreyfingin sjálf því strax á eftir fylgdu aðrar stéttir og fengu ennþá meira af kökunni. Smiðshöggið ráku svo alþingismenn þegar þeir skömmtuðu sjálfúm sér hærra kaup og skattafríðindi. Eigi að nást samkomulag verða aðilar að huga að þessum atriðum nú þegar gengið er til samninga. Eins ríkisstjómin að láta af þeirri skattpíningu sem hér er við lýði og leyfa fólki sem vill, að bjarga sér upp á eigin spýtur. Það kemur stöðum eins og Vestmannaeyjum best og verði þetta haft að leiðarljósi verður hægt að koma í veg fyrir verkföll á vertíðinni. Nú reynir á okkur sjálf Þessi hugleiðing, hvemig framtíðin er í Vestmannaeyjum, hefur farið út um víðan völl en öll þau mál sem drepið hefur verið á skipta okkur máli með einum eða öðmm hætti. Það sem flestir horfa til, er hvemig íbúaþróun verður hér á næstu ámm. Sumir segja að hér verði íbúatalan komin niður í 3500 manns innan ekki margra ára. Fari svo getum við engum um kennt nema okkur sjálfum. Auðvitað verður það ekki auðvelt verk en fýrsta skrefið gæti orðið að bæjarstjóm gerði bæjarbúum grein fyrir stöðu mála í bænum. Gæti hún fengið fólk úr hinum ýmsum atvinnugreinum, bankastofnunum og verkalýðs- félögunum í lið með sér. Takist þessum aðilum ekki að vekja bjartsýni á framtíð Vestmannaeyja gera það ekki aðrir. Eins verðum við að taka nýju fólki opnum örmum. Það kemur inn með nýjungar sem við þurfum á að halda. Þá verðum við að huga að mannlífinu og sjá til þess að ekki verði leiðinlegt að búa í Eyjum. Stórt framfaraskref var stigið í lok síðasta árs með sameiningu íþrótta- félaganna Þórs og Týs. Þar brutu margir odd af oflæti sínu ef það mætti verða til að styrkja æskulýðs- og íþróttastarf. Þetta er fordæmi sem fleiri þyrftu að taka upp. Þó var of seint gripið í taumana sem kallar á mikla vinnu þeirra sem taka við. Þeir gera sér grein fyrir því að öflugt íþróttalíf smitar út frá sér. Það sem kannski háir okkur mest er að oft er verið að verja ímyndaða hagsmuni og þegar svo er komið tapa allir. Er ekki kominn tími til að hætta að velta sér upp úr því hvað aðrir geti gert og em að gera og spýta í lófana og meta upp á nýtt hvað við getum sjálf. Omar Garðarsson.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.