Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 30.01.1997, Síða 12

Fréttir - Eyjafréttir - 30.01.1997, Síða 12
12 Fréttir Fimmtudagur 30. janúar 1997 Yfirtaka bæjarins á málefnum fatlaðra: Nálægð tryggir betri þjóiwstu ■og peningarnir eiga að nýtast betur, segir félagsmálastjóri. í samræmi við lög um reynslusveitarfélög frá árinu 1994 hefur Vestmannaeyjabær tekið að sér að veita fötluðum, sem eiga hér lögheimili þá þjónustu sem þeim ber lögum samkvæmt. Undirbúningur að yfirtöku bæjarins á málefnum fatlaðra var unninn á síðasta ári en skrifað var undir samninginn þann 3. janúar sl. Félagsmálastofnun Vestmannaeyja sér um daglega stjóm þessa málaflokks og til að forvitnast um hvað þessi breyting hefur í för með sér ræddu Fréttir við Heru Ósk Einarsdóttur félags- málastjóra. Hjá henni koma fram miklar væntingar til verkefnisins. Hún segir að nú hafi bærinn tekið yfir flest mál sem áður heyrðu undir svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra sem er staðstett á Selfossi. Það eitt ætti að tryggja betri þjónustu við skjól- stæðinga málaflokksins. Eins segir hún fjármagn muni nýtast betur. HERA elNARSDÓTTIR: Vona að nálægðin geri öll samskipti fyrir fatlaða í Vestmannaeyjum og aðstandendur þeirra betri. Helstu verkefni Hera segir að sveitarfélögin hafi sinnt ákveðnum þáttum í þjónustu við fatlaða. Þar á hún við félagslega liðveislu, akstursþjónustu, sérdeildir leikskólanna og heimaþjónustu sem bæði fatlaðir og aldraðir njóta. „Það sem breytist er að við tökum yfir alla þjónustu sem Svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra á Selfossi veitti," segir Hera. „Við afgreiðum umsóknir um umönnunarbætur fyrir fatlaða, útvegum stuðningsfjölskyldur, lið- veislu og frekari liðveislu. Auk þess tökum við við stjóm meðferðar- heimilins að Búhamri 17, leikfanga- safninu þar, vemduðum vinnustað og sambýlinu.“ Nánari skilgreining á þessum hugtökum er að liðveisla er félagsleg þjónusta sem ætlað er að rjúfa félagslega einangrun fatlaðra. Með frekari liðveislu er ætlað að sjá til þess að fatlaðir þurfi ekki að búa á stofnun, þ.e. vera eins sjálfbjarga og kostur er. Er hún breytileg eftir því hver á í hlut. , Jdvað sambýlið varðar þá verðum við nú að vera opin fyrir öðrum búsetu- möguleikum fyrir íbúana þar. Sumir verða þar eðlilega með fasta búsetu en aðrir tímabundna. Það þarf að aðstoða við útvegun annarra búsetuúrræða þegar dvöl á sambýlinu lýkur." Fleiri störf fyrir fatlaða A Vemduðum vinnustað, Kertaverk- smiðjunni Heimaey, hefur ákveðinn fjöldi fatlaðra haft vinnu undanfarin ár en Hera segir að fötluðum standi orðið til boða fleiri möguleikar á vinnu, einkum sumarvinnu. „Bærinn og Landakirkja hafa verið opin fyrir því að ráða til sín fatlaða á sumrin en nú þarf að leita fleiri verkefna fyrir þetta fólk. Eins þarf að kanna hvort ekki sé möguleiki á að koma þeim í vinnu hjá fyrirtækjum í bænum. Það verður okkar verkefni að reyna að spila þetta saman. Verður það einfaldara þegar málaflokkurinn er alfarið kominn í okkar hendur." Kostírnir margir Hera segist sannfærð um að breytingin hafi marga kosti í för með sér. Nefnir hún í því sambandi að dagleg þjónusta við fatlaða, sem áður heyrði undir svæðisskrifstofuna, hefur einnig færst undir félagsmálastofnun bæjarins. ,£g vona að nálægðin geri öll samskipti fyrir fatlaða í Vestmannaeyjum og aðstandendur þeirra betri. Öll afgreiðsla mála kemur til okkar og í þeim tilfellum sem þarf að leita annað getum við útbúið og sent umsóknir fyrir fólk. Allt verður þetta miklu þægilegra og einfaldara." Hún segir líka að áður hafi þau verið háð því að fá hingað starfsmann frá skrifstofunni á Selfossi til að afgreiða ýmis mál. J því sambandi get ég nefnt t.d. viðtöl við stuðningsijölskyldur. Reyndar voru stofnanir hér mjög sjálfbjarga en lokaorðið átti svæðis- skrifstofan." Haukar í Horni Hópar sem eiga undir högg að sækja í Vestmannaeyjum hafa alla tíð átt hauka í homi og þar em fatlaðir ekki undanskildir. „Við eigum marga góða að sem er alveg sérstakt fyrir Vestmannaeyjar. Félagið Þroskahjálp hefur verið vakandi yfir því sem við emm að gera og gefið gjafir sem hafa komið í góðar þarfir. Annað dæmi sem ég get nefnt er að áhöfnin á Vestmanney VE hefur gefið andvirði allra dósa sem til falla um borð til Sambýlisins. Samtals hafa þetta verið um 80 þúsund krónur á ári sem fara í ferðasjóð íbúanna. Þá hafa konumar í Vorinu gefið kaffisjóðinn sinn til fatlaðra. Hefur þetta skipt stofn- animar miklu máli og er dæmi um þá nálægð og samhug sem oft kemur fram hjá Vestmannaeyingum," segir Hera. Nær inn á mörg svið Þjónusta við fatlaða nær inn á öll svið mannlífsins og alltaf er spuming hvað er brýnast hverju sinni. Hera segir spumingu hverju eigi að brydda upp á reynslutímanum. „Foreldrar bama á meðferðarheimilinu við Búhamar vilja t.d. lengja opnunartímann. í dag er opið frá klukkan 8 á morgnana til hálf fimm síðdegis sem er óþægilegur tími fyrir vinnandi fólk. Helgarvistun hefur verið frá föstudegi til sunnudags en foreldrar vilja fá hana framlengda fram á mánudagsmorgun. Félags- málaráð hefur tekið ákvörðun um að verða við óskum foreldranna en boltinn er nú hjá bæjarráði og bæjar- stjóm. Vonumst við eftir jákvæðum viðbrögðum þar á bæ. Annars verðum við að fikra okkur áfram og sjá í samvinnu við þjónustuþega hvar skórinn kreppir að.“ Þrettán stöðugildi Þrettán stöðugildi heyra undir málefni fatlaðra í Vestmannaeyjum og flytjast þau frá ríki yfir á bæ. „Tuttugu starfsmenn skipta á milli sín þessum 13 stöðugildum og þá em ekki talin með tíu stöðugildi fatlaðra í Kertaverksmiðjunni. Áætlaður launa- kostnaður er 31.7 milljónir á þessu ári. Þar fyrir utan er Framkvæmdasjóður fatlaðra sem sér um að fjármagna ákveðin verkefni. Til dæmis emm við að sækja um peninga til að útbúa aðgengi fyrir fatlaða að Ráðhúsinu. Ur honum kemur fast fjárframlag til fatlaðra vegna verkfærakaupa. Slíkir styrkir miða að því að auðvelda fötluðum að skapa sér atvinnu af heimavinnu eða sjálfstæðri starfsemi.. Viðhald fasteigna og stofnkostnaður, ef hann kemur til, kemur einnig úr sjóðnum auk framlags frá bænum. I heild gætu þetta verið um 40 milljónir sem við höfum úr að spila á ári.“ Peningarnir nýtast betur Hera segir að fjárframlög hækki ekki en með samræmingu megi nýta það betur. „Sem dæmi get ég nefnt að einstaklingur gat ekki fengið frekari liðveislu nerna að fá heimilisþjónustu. Ríkið greiddi fyrir frekari liðveislu en bærinn heimilisþjónustuna. Neitaði ríkið að borga fyrir hana nema að bærinn borgaði heimilisþjónustuna og skipti engu máli hvort viðkomandi þurfti á henni að halda eða ekki. Ég held líka að hægt verði að reka þjónustuna á hagkvæmari hátt. Fyrir einstaklinginn felst hagkvæmnin í því að sömu þjónustu er hægt að veita með færri starfsmönnum.'1 Aðspurð um fjölda skjólstæðinga segir Hera að fimm búi á Santbýlinu og sex njóta þjónustu meðferðar- heimilisins. „En ef allt er talið nieð held ég að við séum að tala um allt að 30 einstaklinga sem njóta þjónustu í einhverri mynd.“ Nokkur atriði breytast ekki Málafiokkurinn heyrir undir ýmsar stofnanir bæjarins. Félagsmálastofnun sér um daglegan rekstur en yfirstjóm er í höndum félagsmálaráðs sem heyrir undir bæjarráð og bæjarstjórn. „Eftirlitshlutverk Svæðisráðs er óbreytt og trúnaðarmaður fatlaðra, sem býr uppi á landi, verður áfram sá sami. Hlutverk Greiningarstöðvar ríkisins verður líka óbreytt." Þar sem um reynsluverkefni er að ræða voru aðilar sammála um að fá óháðan aðila til að fylgjast með hvernig til tekst. „Hagvangur hefur verið ráðinn til þess. Munu menn frá þeim koma einhvern tíma á reynslustíma og kynna sér aðstæður og svo í lokin til að sjá hvemig verkefnið hefur gengið fyrir sig. Þá fáum við úr því skorið hvemig til hefur tekist með að sinna málefnum fatlaðra undir okkar stjóm." Þó Hera sjái marga kosti við það að bærinn yfirtaki málefni fatlaðra og að mörgu leyti sé vel búið að fötluðum hér í bæ vantar ýmislegt. „Brýnast er að fá hingað fagfólk, t.d. þroskaþjálfa eða iðjuþjálfa. Okkur bráðvantar t.d. þroskaþjálfa að leikfangasafninu. Hann getur leiðbeint foreldium um val á leikföngum og hvemig á að nota þau. Eins gæti hann sinnt starfsþjálfun fatlaðra á Vemduðum vinnustað,“ sagði Hera að lokunt. Samningur Vestmannaeyjabæjar og félagsmálaráðuneytisins: Yfirgripsmikill málaflokkur Félagsmálaráðuneytið og reynslu- sveitarfélagið Vestmannaeyjabær hafa í samræmi við lög um reynslu- sveitarfélög frá 1994 gert með sér samning um málefni fatlaðra. Samkvæmt honunt á Vestmannaeyja- bær að veita fötluðum, sem eiga hér lögheimili, þá þjónustu sem þeir eiga lögum samkvæmt á vegum félags- málaráðuneytins. Þetta felur í sér að bærinn tekur að sér verkefni svæðis- skrifstofu Suðurlands í málefnum fatlaðra gagnvart íbúunum. Samning- urinn nær ekki til þjónustu sem önnur ráðuneyti eiga að veita fötluðum. Hlutverk Greiningar- og ráðgjafa- þjónustu ríkisins verður óbreytt. Hlut- verk svæðisráðs og trúnaðarmanns fatlaðra helst einnig óbreytt. Bærinn skal veita þjónustu í sam- ræmi við ákvæði laga um málefni fatlaðra og samþykkt bæjarstjómar þai- að lútandi. Fjárhagshlið samningsins er staðfest af fjármálaráðuneyti sem er ábyrgð- araðili fyrir útgjöldum. Meginmarkmið samningsins er að færa stjóm og ábyrgð á þjónustu við fatlaða yfir á eina hendi, þ.e. Vest- mannaeyjabæjar og stuðla að betri nýtingu á því fjármagni sem fer til málafiokksins og bættri þjónustu við fatlaða. Stjórn og skipulag: Þjónusta við fatlaða verður felld inn í félagsþjónustu bæjarins. Fram- kvæmdanefnd um reynslusveitarfélög hefur yfimmsjón með með verkefn- inu, Félagsmálaráð fer með yfirstjóm málaflokksins í umboði bæjarstjómar, félagsmálastofnun mun annast daglega stjórn og félagsmálastjóri, sem fram- kvæmdastjóri félagsmálaráðs, mun hafa umsjón með þjónustu við fatlaða og þann rekstur sem henni fylgir. Verkefni Við gildistöku samningsins tekur Vestmannaeyjabær að sér þjónustu og rekstur heimila og stofnana fýrir fatlaða sem hér segir: Verkefni svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra, stoðþjónustu, frekari lið- veislu, atvinnuleit og starfsráðgjöf og aðstoð til starfa á almennum vinnu- markaði. Rekstur sambýlis að Vestmannabraut 58 b, rekstur leikfangasafns að Bú- hamri 17. rekstur skammtímavistunar að Búhamri 17 og rekstur Heimaeyjar, vemdaðs vinnustaðar. Framlag til verkefnisins á fjárlögum verður 31,7 milljónir í ár, 32 milljónir árið 1998 og 32,3 milljónir árið 1999. Auk þess er gert ráð fyrir fé úr Framkvæmdasjóði fatlaðra. Undir hann heyra stofnkostnaður, styrkir til verkfæra- og tækjakaupa og vegna námskostnaðar, viðhald húseigna og styrkir til aðgengismála. Ákveðið er að 200 þúsund krónur komi úr sjóðnum á árunum 1997, 1998 og 1999 til verkfæra- og tækjakaupa og námskostnaðar. Mun ráðuneytið beita sér fyrir því að fjárveitingamar taki mið af breyt- ingum vegna kjarasamninga og al- mennra verðlagsbreytinga. Verði breytingai' á ákvæðum laga um málefni fatlaðra skal endurskoða ofangreindar fjái’veitingar. ítarlegur kafli er um starfsmannamál. Þar kemur m.a. fram að engin form- breyting verður á ráðningasamningum og lífeyrisréttindi haldast óbreytt. Starfsmenn munu greiða til sömu stéttarfélaga og lífeyrissjóða og áður. Vestmannaeyjabæ er ekki heimilt að segja starfsmanni upp störfum, breyta launaflokkaröðun eða leggja niður stöðu hans nema með samþykki félags- og fjármálaráðuneytis. Nýir starfsmenn verða staifsmenn bæjarins og þær lífeyrisskuldbindingar sem koma til greiðslu að tímabilinu loknu eru á ábyrgð ríkissjóðs. Þetta eru helstu ákvæði samningsins en þar er líka að finna ákvæði um eftirlit, úttekt á verkefninu og endurskoðunarákvæði. Undir hann skrifuðu Páll Pétursson félagsmála- ráðherra, Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri og Friðrik Sophusson fjármálaráðheiTa.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.