Fréttir - Eyjafréttir - 30.01.1997, Page 19
Fimmtudagur 30.janúar 1997
Fréttir
19
Undirbúningur nýja félagsins gengur vel • Framhaldsstofnfundur á þriðjudaginn
Nýja félagið byrjar með tóma buddu
Framhaldsstofnfundur nýstofnaðs
aðildarfélags IBV sem varð til með
sameiningu Týs og Þórs, verður
haldinn miðvikudaginn 5. febrúar
nk. kl. 20.00 í Þórsheimilinu.
Nýráðinn framkvæmdastjóri nýja
félagsins til næstu þriggja mánaða,
Guðmundur Þ. B. Ólafsson, hefur
þegar tekið til starfa og er mikil
undirbúningsvinna framundan.
Nýja félagið tekur m.a. við öllum
helstu verkefnum Týs og Þórs eins
og t.d. Pæjumóti, Shellmóti og
þjóðhátíð, svo eitthvað sé nefnt.
Lagt verður til að nýja félagið fái
nafnið „ÍBV-íþróttafélag“
„Fyrstu verkefnin hafa aðallega
fólgist í að að móta starfið sem snýr að
knattspymudeildinni og handknatt-
leiksdeildinni. Forsendur hafa breyst
því þessar tvær deildir taka nú inn á
sig alla yngri flokkana sem voru áður
í umsjá Týs og Þórs. Það sem snýr að
aðalskrifstofunni þá er öll stjómsýsla
nýja félagsins í Þórsheimilinu en við
sjáum um reksturinn á báðum heimil-
unum. Búið er að ráða starfsmenn í
Týsheimilið og góð nýting er á íþrótta-
salnum. Verið er að hafa samband við
helstu styrktaraðila og kennitalan er
klár," segir Guðmundur.
Nýja félagið byrjar með tóma sjóði.
Aðspurður sagði Guðmundur að
Handbolti, 1. deild kar.a • Eyjamenn í rosastuði gegn Gróttu
„A fhverju ekki að prófa að
verða íslandsmeisfarar?"
„Ég er búinn að segja við strákana,
af hverju ekki að prófa að verða
íslandsmeistarar? Strákarnir eru í
rosalega góðu formi, þeir eru ekki
að glíma í leikjunum heldur spila
góðan handbolta, hafa gaman af því
sem þeir eru að gera, eiga fullt af
trixum og geta gert ýmislegt. Ég
lofa náttúrulega engu en við
sýndum það á Opna-Reykjavíkur-
mótinu í haust að IBV getur náð
langt,“ segir Zoltan Belanyi, horna-
maðurinn knái, eftir stórsigur ÍBV
á Gróttu á mánudaginn á útivelli,
28-19. Með sigrinum komst ÍB V í 4.
sæti með 18, jafnmörg og Fram en
ÍBV á leik tií góða.
ÍBV breytti stöðunni úr 3-3 í 7-3 og
lagði grunninn að góðum sigri. A
þessum kafla var lok lok og læs í
vöminni og svo vart keyrt á hraðaupp-
hlaupum þar sem Belanýi var drjúgur.
Langt er síðan vörn IBV hefur verið
jafn öflug og í þessum leik sem lofar
góðu um framhaldið. Staðan í hálfleik
var 12-8 fyrir IBV og enn dró í sundur
með liðunum í seinni hálfleik. Mestur
varð munurinn tíu mörk. A loka-
kaflanum fengu ungu varamennimir
að spreyta sig og stóðu sig vel.
Allir leikmenn IBV spiluðu vel í
Ieiknum, liðið lék sem ein heild og
enginn sem skar sig úr. Markaskor-
unin dreifðist mikið sem er jákvætt.
Meira að segja Sigmar Þröstur, sem
átti góðan leik í markinu, komst á
blað.
ÍBV liðið hefur vaxið ásmegin í
síðustu leikjum og greinilegt að
strákamir em að komast í toppform á
hárréttum tíma. Metnaðurinn er svo
mikill að flestir þeirra eru að æfa
aukalega til að komast í enn betra
form. Það segir ýmislegt. Kæmi ekki á
óvart að ÍBV færi a.m.k. í undanúrslit.
Og ef þeir taka Belanýi á orðinu væri
virkilega gaman að prófa að verða
íslandsmeistari! Ekki satt?
Mörk ÍBV: Zoltan Belanyi 8/4,
Gunnar Berg 3, AmarP. 3, Svavar 3,
Haraldur 2, Ingólfur 2, Guðfmnur 2,
Sigurður 2, Erlingur 2, Daði I,
Siginar Þröstur 1. Varin skot: Sigmar
Þröstur 13/1. Birkirívar 1.
ÍBV á ansi erfiða leiki eftir. Næsti
leikur ÍBV er gegn FH á útivelli á
miðvikudaginn. Auk þess á ÍBV eftir
Fram og KA á útivelli en ÍR,
Stjömuna, Hauka og HK á heimavelli.
Knattspyrnuráð tekur við tippinu
Tipparar! ÍBV býður ykkur velkomna til leiks.
Getraunastarfsemi Týs og Þórs hefur fengið á
sig nýtt útlit, þar sem Knattspymudeild IBV
hefur tekið við rekstri Islenskra Getrauna.
Breytingar á starfseminni verða nokkrar til að
byija með og verða vonandi til að auka áhuga
knattspymuáhugamanna og allra Eyjamanna á að
tippa og styrkja um leið knattspymuna í Eyjum.
Getraunanúmer ÍBV verður eftir sem áður 900
og minnum við tippara á að merkja það númer á seðilinn áður en
honum er rennt í gegnum kassann. Einnig hvetjum við alla til að
tippa sem mest í Týsheimilinu á opnunartíma þar sem góð
þjónusta er fyrir hendi.
Helstur breytingar á starfseminni em þær að tippaðstaðan í
Týsheimilinu verður tekin í gegn og mun taka talsverðum
breytingum. Beinar útsendingar verða sýndar hér eítir á 46” risas-
kjá og þá verða veglegar veitingar einnig í boði. Auglýst verður
vel þegar beinar útsendingar verða í boði fyrir utan venjulegan
opnunartíma, t.d. á sunnudögum og mánudögum frá stærstu
liðunum. Öll aðstaðan verður máluð í hólf og gólf og þá í litum
allra stærstu knattspymuklúbba á Englandi. Félagsmerki helstu
félaganna verða máluð á veggi ásamt öðmm fylgihlutum, s.s.
fánar, treflar, húfur, myndir ofl.. Því má segja að aðstaðan fái öll
nýjan svip til að skapa sem besta stemmingu á enskan hátt eins og
hún gerist best. Ætlunin er að gera getraunastarfið að sterku og
fjölþættu starfi þar sem fólk á öllum aldri getur verið þátttakandi.
Annars er sjón sögu ríkari og því best að mæta á staðinn n.k. lau-
gardagsmorgun.
Um síðustu helgi var ekki leikið í ensku deildinni þar sem deil-
darbikarinn var í fullum gangi. Einn heppinn tippari varð til hér á
landi um sfðustu helgi, er hann var með 13 rétta og hlaut fyrir það
4 millj. króna. Sá seðill sem var þá í gangi var með mörgum
“fyrirfram” ömggum leikjum sem brugðust svo en kom þessum
tiltekna aðila vel. Hann hefur augljóslega ekki haft mikla trú á
svonefndum stórliðum eins og Liveipool og Newcastle, sem hlutu
slæma útkomu um síðustu helgi. “Púlurunum” tókst að fá á sig
fjögur mörk á styttri tíma en skiptimiði í strætó gildir. Kenny
Dalglish hefur ekki náð að rétta þá röndóttu við en þá er bara að
fjárfesta í leikmönnum. Það vantaði svo sem!!! Annars eiga
Newcastle og KR meira sameiginlegt en búningana, þeir halda að
meistaratitillinn sé alltaf til sölu.
Annars em ánægjulegar fréttir að Man. Utd. ér á réttri leið, Arsenal
er að reyna að koma meðalaldri leikmanna liðsins niður í 33 ár,
Chelsea er að verða fyrsta landsliðið f heiminum sem kemst að í
deildarkeppni, Middlesbourogh þurfti sjálfsmark til að sigra
utandeildarlið og sfðast en ekki síst er Leeds Utd. komið á skrið í
deild og bikar, enda tími til kominn.
Hópleiknum var frestað um s.l. helgi vegna ofangreindra
breytinga en hann hefst laugardaginn l.febrúar með miklum
látum. Þessi leikur er flestum kunnugur og stendur yftr 110 vikur
og er hópunum skipt niður í fjóra riðla og er það sama fyrirkomu-
lagið og í fyrravetur. Árangurinn f 8 bestu vikunum gildir, þannig
að henda má út 2 lélegustu vikunum. Þátttökugjald er kr. 4.000 pr.
hóp.
Þá hefst einnig nýr leikur sem er sniðinn fyrir fyrirtæki og báta.
Þar verður keppt í einni deild og stendur keppnin yftr í 10 vikur.
Sigurvegarinn hlýtur að launum glæsilegan farandbikar ásamt
eignarbikar. Heimilt er að senda fleiri en eitt lið frá hverju
fýrirtæki og er þátttökugjald kr. 10.000 pr. lið. Fyrirtæki og bátar
geta þá sent sína spá á faxi í Þórsheimilið alla virka daga eða í
Týsheimilið á opnunartíma.
Einnig em fleiri hugmyndir á döftnni um nýjungar og má þar helst
nefna svonefndan “Milljónapott” sem gengur út á kaup í hlut í
ákveðnu kerfi sem er annað hvort stillt upp fyrirfram eða eftir að
hlutasöfnun fer fram. Svoleiðis kerft sem nefnast “húskerfi” hafa
vakið mikla lukku hjá jreim félögum sem hafa tekið það form upp,
en þetta form verður betur kynnt síðar þegar ákveðið verður að
byija með það.
Knattspymudeildin hefúr nú geftð út „Getraunafréttir ÍBV” þar
sem farið er yftr það sem er að gerast í getraunastarfseminni og
l.tbl. kom út í gær miðvikudaginn 29.feb. og á sá bæklingur að
vera kominn í hús og einnig liggur hann á sölustöðum hér í bæ.
Ætlunin er að gefa út slíkt fréttabréf vikulega og mun það þá liggja
frammi á sölustöðum á miðvikudögum.
Við viljum benda tippurum á að opið er í Týsheimilinu á lau-
gardögum frá kl.l 1-14 og frá og með föstudeginum 8.febrúar
verðureinnigopiðáfösmdögumfrákl.19.30-22. Einnig er
upplagt fyrir þá sem vilja fá fféttír af karla- og kvennafótboltanum
hér í Eyjum að láta sjá sig því knattspymuráðsmenn, leikmenn og
þjálfarar munu einnig láta ljós sitt skt'na!
Að endingu viljum við minna knattspymuáhugamenn á beina
útsendingu á laugardaginn frá ensku deildinni er Leeds Utd og
Arsenal mætast á Elland Road, en þar mun George Grahammæta
sínum gömlu félögum. Knattspyrnudeild ÍBV
vissulega væri það ekki sú staða sem
menn höfðu vonast eftir í upphafi.
Þegar farið var að af stað með nýtt
félag var það á þeim forsendum að
það hefði úr einhverjum fjármunum
að spila í byrjun. Svo er ekki og því
séu nokkrir mánuðir í að félagið fái
inn tekjur af starfseminni. „Fram að
því verðum við að treysta á skilning
bæjarbúa og þreyja þorann. Við
höfum víðast hvar fengið góð
viðbrögð enda hafa flestir skilning á
því að við erum að reyna að búa til
farveg fyrir nýja og betri tíma. En það
er alveg ljóst að miðað við hvernig
rekstrarumhverfið var orðið var
kominn tími til að stokka upp spilin í
íþróttahreyfingunni," segir Guðm-
undur.
Sökum þess að nýja félagið byrjar
með budduna tóma má búast við því
að lengri tíma taki að ýta félaginu úr
vör. Undirbúningur gengur samt vel.
Þessa dagana er verið að leita að fólki
í Pæjumótsnefnd, Shellmótsnefnd,
þjóðhátíðamefnd og stuðningskvenna-
deild. Að sögn Guðmundur gengur
það ágætlega. Flestir þeir seirt talað
hefur verið við hafa tekið vel í að
starfa áfram en einnig er vonast til að
ný andlit bætist við.
„Þeir sem hafa unnið mikið fyrir
Týrvog Þór í gegnum tíðina verða
margir áfram. En sumir ætla að taka 1
sér frí og höfðu reyndar ákveðið það
fyrir löngu. Það er ljóst að við þurfum
á öllu góðu fólki að halda og það
mætti endilega hafa samband við
okkur. Vonandi gera allir sér grein
fyrir því að hlutimir gerast ekki
sjálfkrafa, það er mikil vinna framund-
an," segir Guðmundur.
Nýja félagið, ÍBV-íþróttafélag, er
aðili að héraðssambandinu IBV.
Ársþing ÍBV fyrir árið 1995 (seinni
þingdagur) verður haldinn fimm-
tudaginn 13. febrúar í ÍBV heintilinu
við Hamarsveg kl. 20. Að honum
loknum verður fyrri þingdagur fyrir
árið 1996. Ljóst þykir að hlutverk
aðalstjómar mun breytast að einhverju
leyti þar sem stjóm KH ÍBV mun taka
við nokkmm verkefnum aðalstjómar
ÍBV, til að mynda að skera úr um
ágreiningsmál serft upp kunna að
koma á milli handknattleiksdeildar og
knattspymudeildar.
20 milljón kr. gat?
Eins og kemur fram í viðtali við
framkvæmdastjóra ÍBV-íþróttafélag,
byrjar nýja félagið á núlli. Vonast
hafði verið eftir því að nýja félagið
hefði eitthvað á milli handanna í
byrjun en svo er ekki. Hins vegar er
ljóst, samkvæmt heimildum blaðsins,
að töluvert af skuldum standa enn út
af borðinu þegar búið verður að gera
dæmið upp að fullu með
sameininguna. Það mun vera í
verkahring skilanefndarinnar að klára
þau mál og er verið að vinna í því að
ftnna flöt á því máli. Líklega er vel á
annan tug milljóna um að ræða sem
verður að klára með einum eða öðmm
hætti, samkvæmt heimildum blaðsins.
íþróttahúsið
Vikan 30. jan. til 5. febr.
Laugardaginn 1. febrúar
13.30 íslandsmót í handbolta
2. fl. karla ÍBV-Haukar
17.00 íslandsmót í innanhússfótb.
3. fl. karla
Þriðjudagur 4. febrúar
kl. 20.00 íslandsmót 1. deild kvenna
ÍBV til Kýpur í mars
ÍBV fer í átta daga æfingaferð til
Kýpur 16. mars nk. Þar tekur ÍBV
þátt í alþjóðlegu æfingamóti. ÍBV
kom sá og sigraði á mótinu í fyrra.
Öllum á óvart vann ÍBV mótið í
fyrra og var fyrst íslenskra knatt-
spymuliða til að vinna alþjóðlegt
mót.
Keppt verður í tveimur riðlum.
Meðal liða fkeppninni verður Flora
Tallin frá Eistiandi, nokkur lið úr
sænsku 1. deildinni eins og
Hammarby, Sundsvall og Gavle.
Ferðin er liður í undirbúningi
ÍBV fyrir átökin f sumar. Um 20
manna hópur fer utan. Þess má geta
að íslandsmeistararar ÍA hættu við
þátttöku í mótinu þar sem þeim
þótti það of dýrt.
Friðrik S. er hættur!
Nú er endanlega Ijóst að Friðrik
Sæbjömsson, vamarmaðurinn
sterki, er hættur að leika með ÍBV.
Hann hefur ráðið sig á sjóinn og
getur því ekkert sinnt fótboltanum.
Hann mun hins vegar spila tneð
Smástund næsta surnar. Áðrir sem
hafa yfirgefið ÍBV eru Nökkvi
Sveinsson sem er líklega hættur og
Jón Bragi Arnarsson sent lagði
skóna á hilluna.
Hvað gera
markverðirnir?
Knattspyrnuráð ÍBV gekk frá
samningum við Leif Geir Haf-
steinsson og ívar Bjarklind í síðustu
viku. Nú á eftir að ganga frá
samningum við þrjá leikmenn. Það
eru markverðirnir Friðrik Friðriks-
son og Gunnar Sigurðsson og svo
Sumarliði Ámason. Allt er á huldu
hvað Friðrik og Gunnar eru að spá
en allar líkur eru taldar á því að
Sumarliði verði áfram í herbúðum
ÍBV.
Kristinn til Þýskalands
Kristinn Hafliðason, leikntaður
ÍBV, fór í síðustu viku til
Þýskalands að spila þar í 4. deild.
Kristinn náði sér ekki á strik í fyrra
enda enn að jafna sig eftir meiðsli
sem hafa gert honum lfflð leitt
undanfarin misseri. Kristinn hefur
verið að byggja sig upp frá því í
haust og vildi fara út til að ná í
leikreynslu fyrir sumarið. Kristinn
kemur aftur í tæka tíð til ÍBV til að
vera nteð í slagnutn í sumar.
Bjarnólfur í víking
Bjamólfur Lárusson er þessa
dagana staddur við æftngar hjá
úrvalsdeildarliðinu Hibernian í
Skotlandi. Að því loknu fer hann í
viku til Bristol City á Englandi en
það lið er í toppslag 2. deildar þar í
landi.
2. fl. ÍBV lék tvo útileiki um st'ðustu
helgi og nenntu allir að mæta að
þessu sinni! ÍBV tapaði fyrst fyrir
FH 30-22 og svo fyrir Vfkingi 23-
22. Sigurður Bragason skoraði
samtals 18 mörk í leikjunum og Jón
Þór Klemensson 7.
3. fl. ÍBV lék einnig tvo útileiki
unt helgina. ÍBV tapaði fyrir Gróttu
23-21 en sigraði Hauka 19-18.
Jóhann Halldórsson skoraði samtals
10 mörk en Richard Guðmundsson
var markahæstur í fyrri leiknum
með 8 mörk og Gottskálk Ágústs-
son í þeim seinni með 7 mörk.