Fréttir - Eyjafréttir - 22.05.1997, Page 4
4
Fréttir
Fimmtudagur22. maí 1997
Sælkeri vikunnar - Dagný Pétursdóttir
Tælenskur eggjaréttur
Sælkeri síðustu viku
skoraði á Dagnýju
Pétursdóttur (Deng)
og hér tekur hún við.
„Eg kann ekkert
að fara eftir upp-
skriftum, nota aldrei
svoleiðis heldur
prófa mig áfram.
Þess vegna gef ég ekki mjög nákvæm
mál heldur verður hver og einn að láta
sinn smekk ráða ferðinni. En hér
kemur mjög einfaldur réttur, svona
hálfgerður hversdagsmatur sem er vin-
sæll heima hjá mér. Hann heitir á
tælensku:
SANIL PUNKU SORIO
6egg
2-3 rauðir laukar
1/2 kg nauta- eða svínahakk
engiferrót (eða pipar)
sterk sojasósa
smávegis sykur
örlítið af 3ja kryddinu
smávegis tamarind (má nota edik)
matarolfa
Harðsjóðið eggin, takið af þeim
skurnið og djúpsteikið þau sfðan í vel
heitri olíu þar til þau eru orðin fallega
brún. Takið þau þá upp úr með sigti og
látið bíða.
Saxið laukinn og kraumið hann í
matarolíu á pönnu. Bætið hakkinu, og
þunnt sneiddu engifer út í. Það má
nota pipar í staðinn fyrir engifer ef ein-
hverjum líkar ekki engiferbragðið en
það á mjög vel við þennan rétt. Bætið
síðan sojasósu, 3ja kryddi, tamarind og
sykri út í. Látið þetta malla á pönnunni
í svona 10-15 mínúturog veltið því vel
á meðan. Ef þetta verður of þykkt má
bæta vatni út f til að fá meiri sósu.
Setjið þetta síðan á fat, skerið eggin í
báta og raðið ofan á. Skreytið með
rauðri papriku og steinselju. Ef óskað
er, má bæta meira grænmeti í skreyt-
inguna, svo sem tómötum og agúrkum.
Og með þessu á svo að bera fram
Jasmín hrísgrjón.
Ég ætla að skora á Svandísi Sigurð-
ardóttur sem næsta sælkera.
HafV er ffrír satt
... að í pólitíkinni sé margt skratað
þessa dagana enda aðeins ár í
bæjarstjórnarkosningar. í bænum er
mikið spjallað um að næsti leiðtogi
íhaldsins verði apótekarinn Hanna
María. Hjá V-listanum er búist við
áframhaldandi samstarfi, a.m.k. var
það samþykkt á fundi hjá
Alþýðubandalaginu í síðustu viku.
... að mörgum finnst bærinn ekki
nógu hreinlegur þessa dagana.
Ónefndur maður hafði á orði við
Fréttamann að þýskir ferðamenn
hefðu komið að tali við sig og
dásamað náttúrufegurðina. Hins
vegar fannst þeim bærinn hálf
sóðalegur. Þá hafa náttúruunnendur
bent á pottur væri brotinn hvað
varðaði hreínsun í Herjólfsdal. Einnig
má nefna að tjörnin í Herjólfsdal er
hreinasti viðbjóður og varla hægt að
vera með krakka þarna nærri í
þessari útivistarparadís. Tjörnin
hefur reyndar verið hreinsuð
skömmu fyrir þjóðhátíð en það væri
verðugt verkefni að gera það strax á
vorin.
ORÐSPOR - ORÐSPOR -
Jónas var hjá sálfræðingnum sínum, fram úr hófi áhyggjufullur. „Ég er
orðinn einhvers konar skeppna eða skrímsli," sagði hann. „Konan mín
er svo hrædd við mig að hún þorir ekki að opna munninn á meðan ég —
er nálægur og hún gerir hvað sem ég skipa henni í lotningarfullri
undirgefni. Og tengdamóðir mín -- sem er búin að búa hjá okkur í níu ár -- hún
fór með allt sitt hafurtask um daginn og sagðist aldrei koma inn í húsið okkar á
meðan ég væri þar."
Sálfræðingurinn hnyklaði brýrnar í góða stund í faglegum þönkum. „Ég hef
aðeins tvær spurningar," sagði hann. „Getur hver sem er gert þetta, og hvað
viltu mikið fyrir leyndarmálið?"
Jónas var hjá lækninum sínum. „Sko, læknir, vinur minn, góður félagi minn,
heldur að hann sé með kynsjúkdóm og hann vill vita hvort það er erfitt að lækna
svoleiðis."
„Það er möguleiki."
„Já, sko, vinur minn vill þá fá að vita hvort það er mjög dýrt."
„Almannatryggingar borga eitthvað af því, en að öðrum kosti er hægt að dreifa
greiðslum. Þettatekur bara nokkra mánuði og enginn þarf að vita neitt um þetta."
„Bara eitt enn," sagði Jónas, „vinur minn vill fá að vita hvort meðhöndlunin er
mjög sársaukafull."
„Ég veit það ekki," sagði læknirinn, „renndu vininum þínum út og leyfðu mér að
skoða hann!"
Mjög ánægður
Dagar lita og tóna voru
haldnir um hvítasunnuna
aðvanda. Aðstandendur
hátíðarinnar hafa fengið
mikið lof fyrir vandaðan
undirbúning og gott skipu-
lag. Það er Listvinafélagið
sem hefur haft veg og
vanda af Dögum lita og
tóna. Einn þeirra sem hvað
mest hefur mætt á við allan
undirbúning þessarar
hátíðar er Eyjólfur Pálsson
sem er Eyjamaður vikunnar
að þessu sinni.
Fullt nafn? Eyjólfur Pálsson
Fæðingardagur og ár? 20. maí
1932
Fæðingarstaður?
Vestmannaeyjar.
Fjölskylduhagir? Kvæntur
Ástu Ólafsdóttur, eigum þrjú
börn og þrjú afabörn, þrjá litla
skæruliða.
Menntun og starf?
Kennarapróf frá Háskóla íslands.
Framkvæmdastjóri Daga lita og
tóna.
Laun? Lægrienáður.
Helsti galli? Af mörgu að taka,
m.a. morgunsvæfur.
Helsti kostur? Of margir svo að
upp verði taldir í stuttu spjalli.
Uppáhaidsmatur? Saltkjöt og
baunir að viðbættum soðkökum.
Versti matur? Agúrkur.
Uppáhaldstónlist? Jazz.
Hvar myndir þú vera ef þú
yrðir fluga á vegg í einn dag?
Ég er ekki forvitinn að eðlisfari.
Uppáhalds stjórnmálamaður?
Olof Palme, heitinn.
Uppáhalds íþróttamaður?
Enginn sérstakur.
Ertu meðlimur í einhverjum
félagsskap? Já,
Vestmannaeyjadeild Rauða
kross íslands og Listvinafélagi
Vestmannaeyja.
Hvert er eftirlætissjón-
varpsefnið þitt? Fréttir og
fréttatengdir þættir svo og
umræðuþættir ýmiss konar.
Hvaða sjónvarpsrás horfir þú
mestá? Okkar sjónvarp.
Uppáhaldsleikari? Alec
Guinnes og Meryl Streep.
Uppáhaldskvikmynd? ítalska
myndin Reiðhjólaþjófurinn.
Uppáhaldsbók? Islands-
klukkan - Kristrún í Hamravík.
Hver eru helstu áhugamál
þín? Menningar- og mannúðar-
mál.
Hvað metur þú mest í fari
annarra? Að vera ekki leiðin-
legur.
Hvað fer mest í taugarnar á
þér í fari annarra? Osanngirni.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á? Gamla sveitin mín,
Austur-Eyjafjöll með útsýni til
Vestmannaeyja.
Hvað rekur ykkur Listvini til að
standa fyrir þessari uppákomu
á hverju ári? Áhugi fyrir tónlist
og myndlist.
Ertu ánægður með útkomuna
að þessu sinni? Mjög
ánægður.
Hvernig kemur þetta út
fjárhagslega? Þurfum ekki að
hafa fjárhagslegar áhyggjur.
Hvað er þér minnisstæðast frá
tónleikunum núna? Vil ekki
gera upp á milli flytjenda.
Hvað dettur þér í hug þegar þú
heyrir þessi orð:
-Jazz? Mikil tilfinning.
-Akóges? Dagar lita og tóna.
-Vernharður Linnet?
Jazzgeggjari.
Eitthvað að lokum? Nei.
Stuð að eilífu!
Hvítasunnuhelgin er orðin
einhver skemmtilegasta
helgi ársins. Hér rekur
hverja uppákomuna á fætur
annarri á fjörur okkar. Þar
ber að sjálfsögðu hæst
jasshátíð þrjú kvöld í röð þar sem fjöldi
fólks mætti og var gaman að sjá hversu
breiður hópur fólks það var. SJÓVE
fólk reri þrátt fyrir leiðindaveður og hélt
sitt ball. Á skemmtistöðunum var mikið
fjör og loksins opið aðfaranótt hvíta-
sunnu til þrjú en ekki lokað á miðnætti
eins og áður. Svo var ýmislegt annað
um helgina?
elgi!
um að vera eins og golfmót,
fermingar, árgangsmót o.fl.
o.fl.
Næsta helgi er full bókuð.
Á Höfðanum verða Sixties,
á Lundanum eru Sunnan
tveir og allt opið upp á gátt
á Mánabar og tekin ný limrukeppni.
Sigurlimran í síðustu keppni var svona:
Mánabar er kráin mín
þar erjullt affljóði.
Þœr vilja upp í rúm til mín
með svonaflottu Ijóði.
Hvað er að gerast
Hvílík h
Harmoníkufónleik-
at á sunnudaginn
Sunnudaginn 25. maí, kl. 16 heldur
finnski harmonikuleikarinn Tatu
Kantumaa tónleika í Bæjar-
leikhúsinu í Vestmannaeyjum.
Aðgangseyrir er kr. 1000 fyrir ful-
lorðna og 500 fyrir 12 ára og yngri.
Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt,
bæði íslensk og erlend lög. Tatu
Kantomaa fæddist í Norður-Finnlandi
1974. Sjö ára að aldri hóf hann að
læra á harmoníku hjá föður sínum.
Ári síðar hjá Veikko Ahvenainen og
þar næst hjá rússneska harm-
onikileikaranum Viktor Kouzowlev.
Ellefu ára gamall hélt hann sína fyrstu
einleikstónleika. 1986 lék hann inn á
sína fyrstu hljómplötu, síðan inn á tvo
geisladiska og nú er framundan útgáfa
á nýjum diski. Tilefni þessara tón-
leika er að kynna þá tónlist sem á
honum er, m.a. meistaraverk á borð
við Raddir vorsins eftir J. Strauss.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur
Kantomaa haldið tónleika víða um
heim og á hann án efa eftir að skipa
veglegan sess meðal færustu harm-
onikuleikara heims.
(Fréttatilkynning).
Nýfœddir Vestmannaeyingar
Stúlka
Þann 10. apríl sl.
eignuðust
Sigrún Ágústsdót-
tir og Magnús
Guðmundsson
stúlku sem nefnd
hefur verið
Kolbrún Sara.
Hún
vó 11 merkurog
var 47 sm. Systur
hennar heita Inga
Hrund og Guðrún
Dís.
Fjölskyldan er
búsett í Hull í
Englandi.
Stúlka
Þann 8. aprfl sl.
eignuðust Sólveig
Sigurðardóttir og
Daði Ragnarsson
stúlku. Hún vó 17
merkur og var 54
sm. Systkini
stúlkunnar heita
Ingibjörg, Sæþór
og Sara Rósalind.
Fjölskyldan er
búsett í
Reykjavík.
Linda vann
Linda Hannesdóttir vann 14
tommu sjónvarp í skafmiðaleik
Hróa Hattar sem Café María
hefur umboð fyrir. Hverri pizzu
fylgir skafmiði og datt Linda í
lukkupottinn fyrir tveimur vikum
en vikulega verður dregið út eitt
sjónvarp fram í ágúst. Á myndinni
er Linda ásamt Rannveigu
Hreinsdóttur, eiganda Café María.