Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 22.05.1997, Síða 10

Fréttir - Eyjafréttir - 22.05.1997, Síða 10
10 Fréttir Fimmtudagur 22. maí 1997 Förum alltaf að vrfi Þorsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri KA, segist ekki naia ástæöu til aö biðja Vestmannaeyinga afsökunar á einu eöa neinu enda þvertekur hann fyrir aö hafa veriö aö þjófkenna þá í nýlegu fréttabréfi fyrirtækisins sem talsvert hefur verið til umræöu í bænum. í fréttabréfinu segir hann að tap heföi verið á verslunum fyrirtækisins í Vestmanna- eyjum á síðasta ári, m.a. vegna mikillar rýrnunar. Þor- steinn segir í viðtali viö Fréttir aö rýmun sé vandamál sem allir sem reka verslanir þurfi aö berjast viö. Þó hún hafi veriö eitthvað meiri í Eyjum en í öörum verslunum félagsins segi ekkert um það hvort einhverju hafi verið stoliö eöa ekki. Eins neitar hann því að KÁ hafi þaö aö markmiði að sölsa undir sig alla verslun í Eyjum. í því sambandi bendir hann á aö þeir hafi selt bygg- ingavöruverslunina Húsey þar sem hún var ekki á því sviði sem þeir ætia aö einbejta sér að, dagvöruverslun. í viðtalinu kemur fram að KÁ hafi tekist það ætlunarverk sitt að bjóöa sama vöruverð í öllum verslunum. Þaö hafi komið Vestmannaeyingum til góöa Koma KÁ til Eyja, liður í ákveðinni þróun Þorsteinn segir að það hafi í sjálfu sér verið liður í ákveðinni þróun þegar KÁ nam land í Vestmannaeyjum og það hafi frekar verið stigsmunur en eðlismunur að merki Kaupfélags Vestmannaeyja vék fyrir KÁ merkinu. Kaupfélag Vestmannaeyja hafi, eins og svo margar aðrar verslanir á landsbyggðinni, orðið undir í vaxandi samkeppni. I staðinn fyrir að fara í gjaldþrot hafi forráðamenn Kaupfélagsins hér leitað eftir samstarfi við KÁ. Fullyrðir hann að það hafi ekki verið slæmur kostur fyrir Eyjamenn, hvað sem hver segir. „Kaupfélag hafði verið í Vest- mannaeyjum í marga áratugi áður en KÁ kom til sögunnar. Um svipað leyti rann Kaupfélag Vestur Skaftfellinga saman við KÁ. í framhaldi af því vöknuðu m.a. spumingar um hvað félagið ætti að heita. Meðal annars kom upp sú hugmynd að félagið yrði nefnt Kaupfélag Suðurlands en KÁ varð ofan á. Það sama gerðist þegar Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum og Meitillinn í Þorlákshöfn sameinuðust. í báðum tilfellum varð að vera eitt nafn á félögunum og oftast er það nafn stærra félagsins sem verður ofan á. KÁ var orðið þekkt nafn og því eðliiegt að það yrði notað,“ sagði Þorsteinn. Úr sömu fjölskyldunni Hann vill líka benda á að bæði KÁ og KV hafi tilheyrt sömu fjölskyldunni, Sambandinu sem öll kaupfélög í landinu voru aðilar að. ,Þ>egar ég kom að þessum rekstri fyrir tveimur árum leit ég svo á að Vestmannaeyingar hefðu komið til lands og við til Eyja. í KÁ eru 4700 félagar og þar af eru 500 í Vestmannaeyjum sem sýnir að Eyjamenn eru ekki áhrifalausir innan félagsins." Rekstur KÁ hafði átt undir högg að sækja þegar Þorsteinn kom að félaginu árið 1995. Um leið var mikil gerjun í öllum verslunarrekstri í landinu og stefndi þróunin öll í eina átt, einingum fækkaði um leið og þær stækkuðu. KÁ, eins og öll stærstu kaupfélögin, var með mjög víðtækan rekstur en því vildi Þorsteinn breyta. „Þegar ég byrjaði var strax ákveðið að KÁ einbeitti sér dagvöruverslun, ferðaþjónustusviði og búrekstrarsviði. Þessar þrjár greinar eru allar af sama meiði, byggjast á að selja vöru og þjónustu beint til viðskiptavinanna. Á lægra vöruverði. þessu ári er áætlað að veltan verði 4 milljarðar og skiptist þannig: Þrír milljarðar frá dagvöruversluninni, 600 milljónir á ferðaþjónustusviðinu og búrekstrarsviðið á að velta 400 milljónum króna.“ Fljótlega eftir að Þorsteinn kom til KA bættust við verslanir á Hvolsvelli og Hellu og Tanginn í Vestmanna- eyjum sem Eyjakaup rak þá. „Þegar okkur bauðst að taka Tangann á leigu var eðlilegt að við tækjum því boði því það var eðlilegt framhald af því sem við vorum að gera. Þessar aðgerðir hafa skilað sér í aukinni veltu. Árið 1994 var veltan í dagvöruverslun hjá KÁ 1200 milljónir en á þessu ári gerum við ráð fyrir 3 milljarða veltu eins og ég sagði áðan sem er rúmlega tvöföldun á þremur ámm. Þetta hefur síðan skilað sér í því að við erum betur í stakk búin til að bæta kjör okkar hjá birgjum.“ Breytingum lokið Um leið og KÁ hefur aukið umsvif í dagvöruverslun hefur allt verið selt sem ekki féll að rekstrinum og í dag hefur félagið selt einingar sem veltu milli 600 og 700 milljónum. „Við teljum að þessum breytingum hafi ekki lokið fyrr en í lok síðasta árs. Þá hafa verið stofnuð hlutafélög um rekstur trésmiðju og vélsmiðju." Þegar KÁ er borið saman við stærstu verslunarkeðjur landsins sést að félagið er í hópi þeirra stærstu. „Við erum með verslanir um allt Suðurland en við erum vfðar. Við höfum styrkt stöðu okkar með því að kaupa 50% hlut í 11 - 11 búðunum í Reykjavík. Þá erum við aðilar að Innkaupa- fyrirtækinu Búr ásamt Olíufélaginu hf. og Nóatúnsbúðunum. Velta Búrs er 2,5 milljarðar króna og er það annað stærsta innkaupafyrirtæki landsins á eftir Baug sem Hagkaup og Bónus eiga og reka. KÁ er í dag fjórði stærsti matvörusali landsins. Aðeins Hagkaup, Bónus og Nóatún eru stærri en við. Einnig erum við sterkir í ferða- þjónustu. KA rekur sex bensínskála á Suðurlandi ásamt veitingasölu. Sölu- skálinn í Goðahrauni er einn hlekkurinn í þeirri keðju,“ sagði Þorsteinn. Góðar við- tökur í Eyjum Ekki segist Þorsteinn geta kvartað yfir þeim viðtökum sem KÁ hefur fengið í Vestmannaeyjum. „Eyjamenn hafa Þorsteinn Pálsson framkvæmdastjóri KÁ: Eyjamenn hafa tekið okkur vel. Þeir vilja sa sjálfstæði en þeir gera sér grein fyrir hagkvæmni þess að vera hlekkur í stærri keðju. tekið okkur vel. Þeir vilja samt halda sínum sérkennum og sjálfstæði en þeir gera sér grein fyrir hagkvæmni þess að vera hlekkur í stærri keðju. Málið er að menn eru alls staðar að stækka einingamar, í sjávarútvegi, land- búnaði, iðnaði og verslun til að standast samkeppnina. Við teljum að okkur hafi tekist það og Vest- mannaeyingar finna það í vöruverðinu sem er svipað hér og Reykjavík.“ Þorsteinn segir fáránlegt að ætla að halda því fram að í Félags-Fréttum KÁ hafi hann verið að þjófkenna Eyjamenn eða starfsfólk KA í Eyjum. „Þar sagði ég að verslanir í Vestmannaeyjum hafi verið reknar með talsverðu tapi á síðasta ári, meðal annars vegna mikillar rýmunar. Einnig sagði ég að samkeppni á matvörumarkaði hefði verið mjög hörð. Okkur hefur tekist að snúa vöm í sókn í Vestmannaeyjum með því að laga til í rekstrinum en samkeppnin verður áfram sú sama í greininni." Rýrnun þekkt vandamál Rýmun x verslun er vandamál sem allir kaupmenn þuifa að berjast við og segir Þorsteinn að eðlileg rýmun sé talin vera á bilinu eitt til eitt og hálft prósent. „Ástæður fyrir rýrnun eru einkum þrjár; vörur skemmast. þær skila sér ekki frá birgjum og svo er það þjófnaður. í þessum tveimur verslunum í Eyjum var rýmunin heldur meiri, en hvers vegna höfum við ekki hugmynd um. Venjulega hafa menn ekki hugmynd urn hvað gerist og kalla þetta rýmun. En það voru fleiri þættir en rýmunin sem þurfti að taka á og það var gert. En það hefur aldrei komið upp á borðið að Vestmannaeyingar séu þjófar og við höfum yfirleitt verið heppnir með starfsfólk í Eyjum.“ Ýktar sögur af uppsögnum Sögusagnir um stórfelldar uppsagnir hjá KÁ em líka stórlega ýktar að sögn Þorsteins. „Við höfum gengið í gegn- um miklar breytingar á undanförnum tveinxur ámm. Það á við allan reksturinn. Nú erum við m.a. að taka inn nýjar tölvur og taka upp ný vinnubrögð. Við þetta fækkar störfum um sjö, þar af tvö í Vestmannaeyjum. Hver er Þorsfeinn Pálsson? Þorsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri KÁ, er 43 ára, kvæntur og flmm barna faðir. Hann er fæddur og uppalinn í Reykjavík og bjó þar til fyrir tveimur árum að hann fluttist á Selfoss. Hann lauk verslunarprófi frá Verslunarskólanum og starfaði þar á eftir hjá Flugleiðum í fjögur ár. Þar á eftir hóf hann störf hjá Hagkaup og vann þar ýmis stöif f 14 ár, síðast sem framkvæmdastjóri. Þá tóku við stöif hjá tölvufyiiitæki áður en hann réðst til KÁ. Helstu áhugamál eru þjóðmálin, útivera og íþróttir, sérstaklega þó stangaveiði sem honum þykir á-nægjuleg. ekki síst vegna úti vemnnar. Þorsteinn kemur vel fyrir og eins og algengt er um stjómendur sem náð hafa árangii þá virðist hann ekki taka sjálfan sig of alvaiiega. Að sumu leyti minnir hann á farsælan skipstjóra, talar hreint út án þess að mæla illt til nokkurs rnanns. Hann er leiðtogi, sem blaðamanni, senx er Eyjamaður, finnst eiginlega of góður fyrir Selfyssinga.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.