Fréttir - Eyjafréttir - 22.05.1997, Page 16
16
Fréttir
Fimmtudagur 22. maí 1997
Dagar lita og tóna:
Þelr bestu til þessa
Aö vanda voru dagar lita og
tóna haldnir hér um hvíta-
sunnuna. Þetta var í 6. sinn
sem þessi listahátíð er
haldin og hún festir sig æ
betur í sessi með hverju
árinu sem líöur. Auk þess
sem framlag heimamanna
er talsvert, kemur lunginn
úr bestu hljóðfæraleikurum
á íslandi hingaö, sumir hafa
verið með allt frá upphafi.
Vestmannaeyingar eru
þekktir fyrir að skipuleggja
vel hátíöir og stórmót, svo
sem þjóðhátíðir, fótbolta-
mót og golfmót. Og þegar
um tónlistaruppákomur er
aö ræða, á borð viö Daga
lita og tóna, þá er skipu-
lagningin ekki síðri þar. pað
var samdóma álit þeirra
tónlistarmanna sem Fréttir
ræddu við að allt skipulag
hefði verið frábært og þeim
Listvinafélagsmönnum til
mikils sóma.
Dagar lita og tóna hófust á föstu-
dagskvöld með opnun ntálverka-
sýningar Kristjáns Jónssonar. Þá léku
Léttsveit Tónlistarskólans og Vinir
Óla. Einnig kontu fram tónlistar-
mennirnir Guðjón Pálsson. Huginn
Sveinbjörnsson, Haukur Ágústsson.
Michelle Gaskell, Þorbjörg Olafsdóttir
og íris Guðmundsdóttir.
En aðaljazzdagamir voru á laugardag
og hvítasunnudag. Þá voru tónleikar
sem hófust kl. níu að kvöldi og stóðu
fram á nótt. Þær sveitir sem komu
fram voru auk heimamanna í Létt-
sveitinni og Vinum Óla, Kvartett
Gunnars Gunnarssonar. Swingbandið
sent er skipað nemendum Reynis
Sigurðssonar, vibrafónleikara, Kvart-
ett Ómars Axelssonar, Tríó Þóru
Þórisdóttur, Hljómsveit Guðjóns
Pálssonar, Kunningjar Grönwalds og
Tríó Tinu Palmer. Þá söng Vest-
mannaeyingurinn íris Guðmundsdóttir
við undirleik Ama Elfars.
Kvartett Gunnars Gunnarssonar
píanóleikara er auk hans skipaður
þeim Sigurði Flosasyni á saxófón,
Tómasi R. Einarssyni á bassa og Pétri
Grétarssyni trommuleikara. Það má
kannski segja að þarna sé á ferð
landsliðið í jazzleik og hafi einhverjir
verið öðrum fremri þá voru það þeir.
Þá kom Swingbandið, sem er skipað
fimm ungum tónlistarmönnum, mjög
á óvart og greinilegt að þar er Reynir
Sig. að gera góða hluti.
En undirrituðum fannst hlutur kven-
fólksins í tónlistinni bera af. íris
Guðmundsdóttir hefur aldrei sungið
betur og er að komast í heimsklassa.
Ekki skemmir sá frábæri undirleikari
Árnir Elfar fyrir. Þá var Tríó Þóru
Þórisdóttur mjög gott. Þóra beitir
röddinni skemmtilega og hafði sér til
fulltingis ekki lakari menn en Gunnar
Gunnarsson á píanó og Tómas R. á
bassa. En albesta atriðið fannst undir-
rituðum Tríó Tinu Palmer. Tina er
dönsk en het'ur dvalið hér á landi í
Hlutur kvenfólksins í tónlistinni bar af aö mati greinar-
höfundar. Tina og Þóra Gréta voru meðal þeirra kvenna sem
fram komu á hátíðinni.
Jazztónleikar Daga lita og tóna voru vel sóttir. Var
Akógeshúsið þéttsetið báða dagana.
rúmt ár. Með henni léku Hilmar
Jensson á gítar og Pétur Grétarsson á
trommur. Nú kynnu menn að ætla að
slík hljóðfæraskipan hentaði ekki fyrir
jazz en því fór fjarri. Þetta var frábært
frá fyrstu til síðustu mínútu, talsvert
öðruvísi en maður hefur vanist, ný-
stárlegt og umfram allt stórskemmti-
legt. Fyrrum voru skemmtikraftar
ýmiss konar við konungshirðir til að
konta tignu fólki í gott skap. Þar fóru
fremstir svokallaðir, jesters” á enska
tungu og vom ranglega nefndir hirðfífl
á íslensku. Þeirra starf var að létta
lund kóngafólks með skemmtileg-
heitum, söng og tónlist. Og flutningur
þeirra þriggja var virkilega í ætt við
það sem undirritaður hefur gert sér í
hugarlund um flutning .jestera." Þau
höfðu greinilega gaman af því sem
þau voru að gera, voru að skemmta
fólki og tókst það heldur betur.
Fullt hús var bæði kvöldin í
Akógeshúsinu þar sem Dagar lita og
tóna hafa verið haldnir frá upphafi og
undirtektir áheyrenda bám því vitni að
þeir vom ánægðir. Kynnir var „Vest-
mannaeyingurinn" Vemharður Linn-
et sem er fróðastur íslendinga um
jazztónlist, næst á eftir Jóni Múla.
Skilaði hann sínu hlutverki vel að
vanda.
Á sama hátt og sjóstangveiðimót og
Flugleiðamót í golft eru orðnir fastir
punktar í tilverunni á hvítasunnu í
Eyjum, þá eru Dagar lita og tóna
orðnir það Ifka. Það væri einhvern
veginn erfitt að hugsa sér hvítasunnu
án þeirra. S.J.
Guðjón Pálsson var að sjálfsögðu niættur og er hann greinilega í
toppformi.
Eyjamönnum hefur bæst góður liðsstyrkur í Erlendi Jónssyni sem er
liðtækur jazzleikari.
Vernharður Linnet:
••
Nils Henning Orsted
Petersen ó næstu hátíð
Vernharður Linnet, kynnir á tón-
lcikunum. hefur verið viðloðandi
þessa hátíð frá upphafi. „Eg hef
verið með í fimm skipti af sex,”
sagði Vernharður.
„Eitt árið var ég staddur úti á
Guernsey og dauðsá eftir því. Sem
gamall Eyjapeyi hef ég reynt að vera
þeim Listvinum innanhandar. Svo
má nú ekki gleyma því að afi minn
var danskur fógeti og ég hef reynt að
læða dönskum áhrifum inn. I fyrra
kom Anne Farholt með sína sveit og
núna Tina Palmer. Og á næsta ári em
allar líkur á því að sjálfur Nils
Henning Örsted Petersen, bassaleikati
mæti. Ég hringdi í hann á laugar-
daginn og sagði honum Itvað morg-
unverðurinn væri frábær hjá Else
læknisfrú. Ég held að það haft gert
útslagið með að hann sagðist mæta á
næsta ári.” sagði Vernharður. En
hvaða atriði þótti kynninum
skemmtilegast? „Það er Hljómsveit
Guðjóns Pálssonar og sá sem hefur
kornið mér mest á óvart er sá
gamalreyndi Bjöm R. Einarsson.”
Vernharður ásamt Hugin Sveinbjörnssyni, saxófónleikara sem
verið hefur með frá upphafi Daga lita og tóna.