Fréttir - Eyjafréttir - 30.10.1997, Side 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 30. október 1997
SÆLKERI VIKUNNAR: HELGA BJÖRG □LAFSDGTriR
Mánudagsfiskréttur og lasagna
íris Róbertsdóttir,
sælkeri síðustu viku.
skoraði á vinkonu
sína, Helgu Björgu
Ólafsdóttur að taka
við sem hún gerir
hér með.
„Ég vil byrja á
því að þakka henni
vinkonu minni fyrir áskorunina og það
er gott að vita til þess að maður
gleymist ekki í borginni. Héðan úr
Reykjavfk er svo sem allt gott að frétta
en heima er alltaf best. Ég ætla að
bjóða upp á „Fjölbreyttan mánudags-
fiskrétt” og „Lasagna al Fomo.” Það
er mjög auðvelt að elda báða þessa
rétti og lasagnað má elda degi áður og
geyma í ísskáp yfir nótt..
Fjölbreyttur fiskréttur
500 g ýsa eða þorskur
4 dl hrísgrjón (eða passlegt í botninn á
eldföstu móti)
1 dós Heinz spaghetti
1 dós Sweet and sour sósa (Uncle
Bens)
3 tómatar (má sleppa)
2 msk. fiskikrydd (t.d. frá Potta-
göldrum)
ostur
steinselja
Sjóðið hrísgrjónin í u.þ.b. 15
mínútur og ftskinn f 5 mínútur. Setjið
hrísgrjónin neðst í eldfast mót og
súrsætu sósuna yfir. Raðið fiskinum
ofan á og kryddið. Þar ofan á kemur
spaghettíið og ofan á það annaðhvort
tómatar í sneiðum og ostur eða þá bara
ostur. Þetta er svo hitað í ofni þar til
osturinn er orðinn fallega gullinn, 10 -
15 mínútur, og skreytt með saxaðri
steinselju. Með þessu er borið ferskt
salat, snittubrauð og vatn eða mjólk.
Lasagna al Fomo
tæpur pakki af lasagnablöðum
1/2 kg nautahakk
2 laukar
1 dós tómatpuré, millistærð
I pk. spaghettisósa
3/4 dl vatn
salt og pipar
2-3 tsk. paprikuduft
1 -2 tsk. Season All
1 tsk. hvítlauksduft
1-2 tsk. Italian Seasoning
2 súputeningar (nauta)
1/2 dl mjólk
4 msk. hveiti
1/2 gráðostur (eða eftir smekk)
smjör
rifinn ostur
Brytjið lauk og steikið ásamt
hakkinu. Kryddið vel með salti, pipar,
paprikudufti, hvítlauk og Season All.
Bætið vatni, tómatpuré og súputen-
ingum út í og sjóðið. Látið spag-
hettisósuna út í og sjóðið með síðustu
mínútumar. Lagið jafning úr mjólk,
hveiti og örlitlu smjöri, kryddið með
salti, pipar og Season All. Myljið
síðan gráðaost út í sósuna og látið
hann bráðna. Blandið síðan saman
kjötsósunni og jafningnum. Setjið
hluta af blöndunni neðst í eldfast mót,
raðið lasagnablöðum ofan á svo aftur
sósu og svo koll af kolli. Efst kemur
rifinn ostur og paprikuduft. Bakið í
ofni í 30-40 mínútur við 180°C. Með
þessu er gott að hafa salat, snittubrauð
og einhvem ískaldan og góðan drykk.
Ég ætla að senda boltann aftur yfir
sundið, rétt að halda sig við Eyjar, en
halda honum innan fjölskyldunnar um
sinn. Ég skora á Ingu Birnu Sigur-
steinsdóttur að taka við sælkeranum."
Fjölnota atvinnuhúsnæði
til sölu
Húseignin Flatir 25 er til sölu.
Ásett verð kr. 12,5 milljónir
Mjög hagstæðir greiðsluskilmálar.
Upplýsingar veita Benedikt Ragnarsson eða
Þröstur Gunnarsson
«Sparisjóður
Vestmannaeyja
Splæsa gulri málningu á skólann
Stysta kennaraverkfalli
sögunnar á íslandi lauk á
mánudaginn var. Þaðstóð
nákvæmlega yfir í einn dag.
Flestir höfðu búist við
miklu lengra verkfalli og
sagt er að margir í hópi
nemenda hafi verið mjög
óhressir með hvað þetta
var stutt verkfall, höfðu
vænst þess að fá a.m.k.
nokkurra daga frí.
Formaður Kennarafélags
Vestmannaeyja er Bryndís
Bogadóttir og hún er
Eyjamaður vikunnar í tilefni af
því hve málin leystust skjótt.
Fullt nafn? Bryndís Bogadóttir.
Fæðingardagur og ár? 15. júní
1967.
Fæðingarstaður?
Vestmannaeyjar.
Fjölskylduhagir? Einhleyp (með
öllum þeim kostum og göllum sem
þvífylgja).
Menntun og starí? Utskrifaðist úr
Kennaraháskóla Islands 1991.
Starfa sem kennari við Barnaskóla
Vestmannaeyja.
Laun? Égerkennari. Segirþað
ekki allt sem segja þarf?
Helsti galli? Það skulu aðrir
dæma um.
Helsti kostur? Það sama hér.
Uppáhaldsmatur? Góð steik
klikkar aldrei.
Versti matur? Allur innmatur og
svið.
Uppáhaldsdrykkur? Sódavatn
(með einhverju saman við, við
hátíðleg tækifæri).
Uppáhaldstónlist? Ég hlusta á
nær alla tónlist.
Hvað er það skemmtilegasta
sem þú gerir? Að vera í góðra
vina hópi.
Hvað er það leiðinlegasta sem
þúgerir? Aðþvo.
Hvaö myndirðu gera ef þú ynnir
milljón í happdrætti? Eitthvað
óskynsamlegt, á borð við að
splæsa gulri málingu á
Barnaskólann. Svo færi restin í
mig sjálfa.
Uppáhalds stjórnmálamaður?
Mér finnst enginn skara fram úr
þessa dagana.
Uppáhalds íþróttamaður? ÍBV
liðið í fótbolta eins og það leggur
sig.
Ertu meðlimur í einhverjum
félagsskap? Já, ég er í
Þroskahjálp og líka í getuskiptum
saumaklúbbi.
Hvert er eftirlætissjónvarpsefnið
Bráðavaktin.
Uppáhaldsbók? Enginein
sérstök. Ég les mikið og held upp
á margar bækur en vil ekki tiltaka
neina sérstaka.
Hver eru helstu áhugamál þín?
Útivist og lestur svo að eitthvað sé
nefnt.
Hvað metur þú mest í fari
annarra? Heiðarleika.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari annarra? Það gagnstæða.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á? Vestmannaeyjar.
Áttirðu von á svona stuttu
verkfalli? Nei, fyrst það skall á þá
átti ég von á meiru en einum degi.
Eru þetta góðir samningar? Það
verður hver og einn að meta
sjálfur. Þeir koma vel út fyrir suma
en ekki fyrir aðra. Svo á eftir að
greiða atkvæði um þá.
Voru nemendur þínir ánægðir
með að verkfallið skyldi leysast
svona fljótt? Nei, þeir hefðu víst
gjarnan viljað fá nokkurra daga frí
til viðbótar.
Hvað dettur þér í hug þegar þú
heyrir þessi orð?
-Kennsla? Skemmtilegt starf.
-Verkfall? ísland í dag.
-Laun? Hlægileg.
Eitthvað að lokum? Nei, ekkert
sérstakt. Bara takk fyrir mig.
Nýfqzddir Vestmqnnqcyingqr
9
Stúlka
Þann 1. okt.. s.l.
eignuðust þau
Helen
Kjartansdóttir og
Baldur Þór
Bragason stúlku
sem hefur verið
nefnd Elísabet
Bára. Hún var
3740 gr. og 51
cm. og fæddist á
Sjúkrahúsinu á
Selfossi. Stóra
systir, Birta
Baldursdóttir
heldur á henni.
ORÐSPOR - ORÐSPOR
- Þau eru mörg spakmælin sem komafrá íþróttaáhugamönnum í hita leiksins. Um
daginn heyrðist á handboltaleik. „Þessi leikur klárast ekki fyrr en hann er búinn.”
- Það erýmislegt í sambandi við nýja listaskólann sem vekur mönnum furðu. Hann
var vígðurfyrir bráðum hálfum mánuði. Nemendur Tónlistarskólans hafa verið að
mæta í sína tíma upp í Listaskóla en ekki komist I kennslu þar, því hún fer enn fram í
Arnardrangi. Myndlistardeildin hefur ekki hafið starfsemi enn og því síður leiklistardeildin. Enda
herma fregnir að húsnæðið sé alls ekki tilbúið. Kosningar eru ekki fyrr en í vor og því spyrja
menn sig: Hvað lá á að vígja hálfkláraðan skóla sem ekki er hægt að taka í notkun strax. Og hvað
var verið að vígja? En þetta er auðvitað bara sama gamla neikvæðnin í öllum hér.
Framtfðarstarf
íþróttamiðstöðin auglýsir lausartil umsóknartvær 100%
stöður. Um erað ræða sundlaugarvörð og einnig
baðvörð í karlabúningsklefum. Unnið er á dag-, kvöld- og
helgarvöktum. Leitað er að starfsmönnum með góða
þjónustulund sem eiga gott með að umgangast jafnt
börn sem fullorðna. Umsækjendur þurfa að standast
hæfnispróf sundstaða skv. reglugerð.
Umsóknareyðublögð liggja frammi í afgreiðslu Ráðhúss
og þangað ber að skila umsóknum. Umsóknarfrestur er
til 15. nóvember. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður
ísíma481 2400 og 481 1589
Iþróttamiðstöðin í Vestmannaeyjum
Fiáreiqendur
Hrútasmölun fer fram laugardaginn 1. nóvember nk.
Mæting við réttina kl. 9 árdegis
Fjáreigendafélagiö
Húsaieiqustyrkir námsfólks
Umsóknarfrestur um húsaleigustyrk á haustönn 1997
rennur út á morgun 31. október en umsóknum ber að
skila í afgreiðslu Ráðhúss. Framvísa ber Ijósriti af
húsaleigusamningi. Umsækjendureigi lögheimili í Eyjum
og stundi starfsmenntunarnám utan Eyja, sem ekki er
unnt að stunda heima í héraði.
Stuðnincisfulltrúi - Atvinna
Stuðningsfulltrúi óskast á Meðferðarheimilið Búhamar,
þarf að geta byrjað nú þegar. Um er að ræða tímabundið
50% starf, sem felst í vaktavinnu þá viku og helgi sem
skammtímavistun er á Búhamri.
Æskilegt er að umsækjendur hafi uppeldismenntun og
eða reynslu af vinnu með börn.
Nánari upplýsingar gefur Ásta Halldórsdóttir
forstöðumaður í síma 481 2127 eða hs. 481 3213.
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu Ráðhússins,
jarðhæð.
Umsóknarfrestur rennur út 6. nóv. nk.