Fréttir - Eyjafréttir - 30.10.1997, Blaðsíða 18
18
Fréttir
Fimmtudagur 30. október 1997
Landakirkja
Fimmtudagur 30.11.
Kl. 11:00 Kyrrðarstund á Hraun-
búðum
Kl. 17:00TTT fundur
Kl. 20:30 Öldungadeild KFUM-
&K
Sunnudagur 2.11.
Kl. 11:00 Sunnudagaskólinn
Kl. 14:00 Almenn guðsþjónusta
-Barnasamvera meðan á prédik-
un stendur. - Messukaffi
Kl.15:15 Almenn guðsþjónusta
á Hraunbúðum
Kl. 20:30 KFUM & K Landa-
kirkju - unglingafundur
Mánudagur 3.11.
Kl. 20:00 Saumafundur Kvénfé-
lags Landakirkju
Kl. 20:30 Bænasamvera og
Biblíulestur (KFUM & K-húsinu.
Þriðjudagur4.11.
Kl. 16:00 Kirkjuprakkarar (7-9
ára)
Kl. 20:00 Fullorðinsfræðslan I
KFUM & K-húsinu
Miðvikudagur 5.11.
Kl. 10:00 Mömmumorgunn
Kl. 12:10 Kyrrðarstund í hádegi
Kl.15:30 Fermingartímar -
Barnaskólinn
Kl.16:30 Fermingartímar - Ham-
arsskóli
Kl.20:00 KFUM & K-húsið opið
unglingum
Fimmtudagur 6.11.
Kl. 17:00 T.T.T. (10-12 ára)
Kl.20:30 Öldungadeild KFUM &
K fundar [ húsi félaganna.
Hvítasunnu-
KIRKJAN
Þriðjudagur
Kl. 17:00 fyrir börn á aldrinum
9-12 ára.
Fimmtudagur
Kl. 20.30 Biblíulestur (Stein-
grimur A Jónsson)
Föstudagur
Kl. 17:00 Krakkakírkja
Kl. 20:30 Unglingasamkoma,
með gleði og fögnuði.
Laugardagur
20.30 Brotning brauðsins
Sunnudagur
15:00 Vakningasamkoma -
Vitnisburðir - Lofgjörð -Prédikun
Fjölbreyttur söngur og lifandi
orð. Hjartanlega velkornin!
Aðventkirkjan
Laugardagur1.11..
Kl. 10.00 Biblíurannsókn
Kl. 11:00Guðjþjónusta
Gestur helgarinnar er Derek
Beardsell
Allir velkomnir.
Baháí sam-
FÉLAGIÐ
Opið hús að Kirkjuvegi 72B,
fyrsta föstudag hvers mánaðar
kl. 20:30.
Allir velkomnir.
Heitt á könnunni
Biblían
talar
Sími
481-1585
Vestmannaeyjameistaramótið í sundi 1997:
Ólafur og Eva Lind sund-
kóngur og sunddrottning
Vetmannaeyjameistaramótið í
sundi var haldið um síðustu helgi.
Sigurvegarar voru Olafur Jónsson
og Eva Lind Ingadóttir sem eru
sundkóngur og sunddrottning Vest-
mannaeyja árið 1997.
Mótið fór fram fimmtudag, föstu-
dag og laugardag og var keppt í 19
greinum. Er þetta í annað skiptið sem
mótið fer fram á þremur dögunt.
Ástæðan fyrir því er að þá geta
krakkarnir keppt í fleiri greinum en
áður.
Kynslóðaskipti hafa átt sér stað hjá
Sundfélagi IBV undanfarið og eru
yngri krakkar að taka við af þeim
eldri. Árangurinn á mótinu vargóður
og voru bæði yngri og eldri krakkar að
bæta tíma sína.
Smári Harðarson, þjálfari Sundfél-
agsins, segir að að rnikil efni séu á
ferðinni nteð yngri krakkanna.
„Vonandi halda þau áfram að æfa og
þá eigum við eftir að sjá frekari afrek
hjá þeim.sagði Smári.
Æfingatímar eru nú á þægilegri
tíma fyrir krakkana og nú eru
krakkamir búnir fyrir kvöldmat en
áður voru æfingar til klukkan tíu á
kvöldin. „Þá eru við orðnir tveir sem
sjáum um þjálfunina, annar sér um
eldri krakkana og hinn um þá eldri. Ég
vil nota tækifærið og óska Ólafi og
Evu Lind til hamingju með
árangurinn. Um leið vil ég hvetja fleiri
krakka til að mæta og sjá hvort sundið
hentar þeim. Æfingar eru klukkan
fjögur á mánudögum, miðvikudögum
og föstudögum.
Keppendur ásamt þjálfurunum Guðnýju Jensdóttur og Smára
Harðarsyni. Á myndinni til hliðar eru Olafur og Eva Lind með
verlaun sín.
Þrír Eyjmenn á
vaxtarræktarmótið
Islandsmótið í vaxtarækt verður í
Loftkastalanum í Reykjavík laug-
ardaginn 22. nóvember. Eftir því
sem næst verður komist taka tveir
eða þrír Eyjamenn þátt í keppninni
að þessu sinni.
Þeir eru Smári Kristinn Harðarson
sem er að keppa í þriðja sinn, Kristján
Sigurðsson en þetta er frumraun hans
og Hermann Haraldsson. Hermann er
gamalreyndur í vaxtarræktinni en
hann hann var ekki endanlega búinn
að taka ákvörðun þegar síðast fréttist.
Smári ætlar að mæta öflugur til leiks
enda reynslunni rikari. Hann ætlar að
nýta reynsluna úr fyrri keppnum.
Einnig ætlar hann að styðja við bakið
á Kristjáni enda segir hann að fyrsta
skiptið sé alltaf erfitt.
Smári varð þriðji í fyrra en hann er
ákveðinn að gera betur næst. „En það
eru engir titlar gefins í þessari keppni
og ég fæ þá ekki á silfurfati frekar en
aðrir,“ sagði Smári.
Fréttatilkynning:
Áhugamenn og hags-
munaaðilar í ferðamáium
Mánudaginn 4. nóvember verður haldinn kaffifundur í Rannsóknasetri
Vestmannaeyja, þriðju hæð klukkan 20.00
Ætlunin er að skiptast á skoðunum um hin ýmsu mál er varða ferðaþjónustu í
Vestmannaeyjum og markaðssetningu hennar.
Ætlunin er að halda slíkan fund fyrsta mánudag hvers mánaðar fram á vor.
Allir eru velkomnir, kaffi á könnunni.
Páll Marvin Jónsson,framkvæmdastjóri Ferðamálaráðs Vestmannaeyja.
Ásmundur Friðriksson:
Að gefnu tilefni
Eins og áhugafólki um íþróttir er
kunnugt, var leik ÍBV og KA, sem
fram átti að fara sl. föstudagskvöld,
frestað til kl. 13 á laugardag þar sem
dómarar leiksins komust ekki til
Eyja. Sl. laugardag háttaði þannig til
að fram fóru tvær jarðarfarir frá
Landakirkju. Sú fyrri kl. 11 um
morguninn og hin seinni kl. 14. Það
hefur verið viðtekin venja hér í
Eyjum að stæiri íþróttaviðburðir, svo
sem kappleikir í úrvalsdeild knatt-
spymu og handknattleiks, séu ekki
háðir á þeirn tíma sem kirkjulegar
athafnir fara fram.
Þegar undirrituðum, ásamt hand-
knattleiksráði, varð kunnugt um það
sl. föstudagskvöld að leikur ÍBV og
KA hefði verið settur á kl. 13 á
laugardag, höfðum við samband við
starfsmann HSÍ vegna þessa og
tjáðum honum þær venjur sem hér
væru í gildi. Fórum við fram á að
leikurinn færi fram kl. 16 að loknum
útförunum. Við þessum óskum var
ekki unnt að verða. Hörmum við
það. biðjum hlutaðeigandi velvirð-
ingar og vonurn að slíkt gerist ekki
aftur.
F.h. IBV Ásmundur
Friðriksson, formaður.
Nú er komið að
skemmtun ársins
ÁTVR. Kvenfélagið Heimaey og
Vestmannaeyingafélagið á Suðumesj-
um hafa ákveðið að hóa saman öllu
sínu liði til haustfagnaðar. Hug-
myndin er að hleypa nýju fjöri í
lundaballið en þá bregður svo við að
lundinn lætur ekki plata sig í háfinn.
Því verða aðrar kjöttegundir að duga
þetta árið. Við sjáum svo um alit hitt.
Haustfagnaðurinn verður haldinn í
Gullhömrum. Iðnaðarmannahúsinu
við Hallveigarstíg í Reykjavík föstu-
daginn 7. nóvember og hefst kl. 19.30
stundvíslega. Miðaverð er 3500
krónur og forsala verður í Iðnaðar-
mannahúsinu mánudaginn 3. nóv-
emberkl. 16.00 til 19.00 og fimmtu-
daginn 6. nóvember frá 17.00 til
19.00. Seldir verða 300 miðar á mat-
inn og því eins gott að tryggja sér
miða. Gómsætur matur verður á
borðum, Guðjón Hjörleifsson bæjar-
stjóri flytur hátíðarræðu, fjöldasöngur
og fleira. Hljómsveitin Flauel og
Berglind Björk leika fyrir dansi.
Árlegt bjórkvöld ÁTVR verður haldið
föstudagskvöldið 28. nóvember. Að
þessu sinni verður það á írlandi, áður
Amma Lú. Mæting er kl. 22.00.
Fréttatilkynning.