Fréttir - Eyjafréttir - 30.10.1997, Síða 12
12
Fréttir
Fimmtudagur 30. október!997
Útibússtjóraskiptin hjá íslandsbanka í Eyjum:
Höfum miklar
skyldvr við
Vestmasmaeyjar
-Bæði í efnahagslegu og menningarlegu tilliti, segir Börkur Grímsson sem tekið
hefur við starfinu afAðalsteiniSigurjónssyni
-Þetta er nú bara til málamynda, sagði Steini þegar hann
afhenti Berki lyklana. -Ég kem til með að hafa lykil að
Bankanum eitthvað áfram, bætti hann við.
„Þad getur vel verið að
útibú Islandsbanka í
Vestmannaeyjum standi á
tímamótum í dag, nú þegar
ég læt af störfum og
Börkur tekur við,“ segir
Aðalsteinn Sigurjónsson
fráfarandi útibússtjóri en
Börkur Grímsson hefur
tekið við starfi hans. „Við
lifum á miklum breyt-
ingatímum. Allt gerist með
svo miklum hraða en hann
á eftir að aukast. Það getur
vel verið að okkur finnist
þróunin hafa verið ör
síðustu ár en hún verður
ennþá örari og er alveg eins
víst að eftir tvö ár standi
bankinn aftur á
tímamótum og þá miklu
meiri,“ bætir Aðalsteinn
við og vill með þessu segja
að mannaskipti séu kannski
ekki svo merkileg í sögu
einnar stofnunar.“
Börkur tók undir þetta með breyt-
ingamar. „Við erum að horfa upp á
breytt hlutverk bankans í náinni
framtíð. Fólk á eftir að sækja hingað
fjölbreyttari þjónustu og á hærra stigi.
Það getur ekki t.d. ekki orðið langt í að
húsnæðislán, lífeyriristryggingar, svo
fátt eitt sé nefnt, verði afgreitt í
gegnum bankana,“segir Börkur.
Útibússtjóraskiptin hafa gengið á-
takalaust fyrir sig og voru ákveðin hér
heima án þess að yfirstjómin hefði
nokkuð um þau að segja. „Við
ákváðum þetta fyrir þá,“ segir Steini
og hlær. „Það var hringt í höfuð-
stöðvamar og sagt að ég væri að hætta
og Börkur ætti að taka við. Þannig
gekk þetta nú fyrir sig.“
Steini, það er bara ekki hægt að kalla
manninn Aðalstein, byrjaði í bank-
anum 27. mars árið 1959. Húsnæðið
var það sama en stofnunin önnur. Þá
hét bankinn Útvegsbanki Islands og
var eign íslenska ríkisins. Seinna var
hann hann gerður að hlutafélagi og hét
þá Útvegsbanki Islands hf. Loks
sameinaðist hann Verslunarbankanum
hf., Iðnaðarbapkanum og Samvinnu-
bankanum og íslandsbanki hf. varð til.
Steini segir að breytingin í
Bankanum á þessum tæplega 40 ámm
sé mikil. „Bankastaifsemi hefur breyst
á allan hátt og í dag hefur banki allt
annað hlutverk en fyrir bara tíu árum.
Hlutverk hans hefur aukist og
þjónustan hefur margfaldast um leið.“
Börkur og Steini eru sammála um að
útibú íslandsbanka í Vestmannaeyjum
eigi tilveru sína öllu leyti undir
sjávarútvegi og eigi það santmerkt
með íbúunum og bæjarfélaginu í
heild. „Útlán em á bilinu 85% til 90%
til sjávarútvegs og hinn hlutinn tengist
sjónum með einum eða öðrum hætti.
Úppsprettan hér í Eyjum er alls staðar
sú sama og ég sé ekki að þessi hlutföll
hafi breyst eða eigi eftir að breytast,"
segir Steini.
Þegar þeir eru spurðir um stöðuna í
sjávarútvegi í dag segir Steini að hún
sé almennt góð. „Vinnsla og veiðar á
síld og loðnu eru í góðum gangi en
staðreyndin er sú að ekki er sömu
sögu hægt að segja um bolfisk-
vinnsluna."
Steini segir að óneitanlega fylgi það
starfi útibússtjóra að hafa hönd á púlsi
bæjarlífsins og atvinnulífsins í heild.
„Vestmannaeyjar, sjávarútvegurinn og
útibú íslandsbanka verða ekki að-
skilin," segir Steini og Börkur bætir
við. „Miðað við íbúaíjölda er útibúið í
Vestmannaeyjum líka stórt. Höfuð-
stöðvar bankans eru á Kirkjusandi og
út frá honum eru rekin 33 útibú og
afgreiðslustaðir með útibús- og af-
greiðslustjórum. Sem dæmi um stærð
útibúsins héma má geta þess að í
efnahag bankans er útibúið við
Lækjargötuna stærst með 15% en við
emm með 10%. Þannig að samanlagt
eru þessi tvö útibú fjórðungur af efna-
hag Islandsbanka. Hlutdeildin er
hvergi meiri en hér. Það er því Ijóst að
útibú Islandsbanka í Vestmannaeyjum
hefur haft miklu efnahagslegu og
menningarlegu hlutverki að gegna í
bænurn."
Hefur yfirstjóm bankans í Reykjavík
haft skilning á þessu hlutverki?
„Mín reynsla er sú,“ svarar Steini.
„Bankinn kont t.d. að sameiningu
frystihúsanna hér með miklum
skilningi á mikilvægi þeirra fyrir
bæjarfélagið. Það hefur líka sýnt sig
að sameiningin var rétt skref.
Auðvitað gekk hún ekki átakalaust
fyrir sig en okkar tilfmning er sú að
hún hafi heppnast mjög vel. Hún hefur
skilað sér í sterkari fyrirtækjum og
afkoma almennings í Eyjum hefur
sjaldan eða aldrei verið betri. Það
sjáum við best af stöðu hins almenna
viðskiptamanns hjá okkur. Eins og því
að vanskil í dag em hverfandi."
Steini segir að útibúið hér hafi
stækkað á undanfömum ámm og það
hafi þróast með breyttum áherslunt í
bankastarfsemi. „Það eru ekki ýkja
mörg ár síðan gjaldeyrir var
skammtaður og í skjóli þess þreifst
alls konar brask. í dag getur þú labbað
inn í hvaða banka sem er og keypt
þann gjaldeyri sem þig vantar. Eins
getur hver sem er keypt hér gjaldeyri í
hvaða mynt sent er og látið senda
hann út urn allan heim.“
Börkur segir að aukinn sveigjanleiki
banka og meiri þekking starfsmanna
sé krafa dagsins í dag. „Við sjáum
bara hvað er að gerast í rafrænunt
viðskiptum sem aukast sífellt með
vaxandi kortanotkun. Skjáþjónustan er
líka að aukast sem sparar mörgum
sporin og svo eigum við eftir að sjá
hvemig Intemetið á eftir að þróast.
Bankamir og starfsfólk þeirra hafa
tekið þátt í þessari þróun og náð að
laga hana að þörfunt viðskiptavin-
anna. Banki dagsins í dag er ólíkur því
sem hann var fyrir tíu árum og við
eigum eftir að sjá enn meiri breytíngú
í banka morgundagsins," segir Börkur.
Steini neitar því ekki að hann standi á
ákveðnum tímamótum en það má
skilja á honum að hann ætli ekki að
skilja Börk eftír einan og yfirgefinn í
stól útibússtjórans. „Ég er ekki búinn
að skila inn lyklununt og ég hef ekki í
huga að gera það alveg á næstunni."
segir hann og hlær. „Ég er sáttur en ég
er ekkert að hafa fyrir því að líta í
baksýnisspegilinn. Dagurinn í dag er
góður og ég sé enga ástæðu til annars
en að morgundagurinn verði enn betri.
Auðvitað eru þetta ákveðinn tímamót
en þau leggjast vel í mig. Hvað ég ætla
að fara að gera? Það verður bara að
koma í ljós en ég verð ekki lengi
atvinnulaus. Reyndar hef ég þegar
fengið atvinnutilboð. Finnbogi
Gunnarsson, sem er einn af ágætum
götusópurum bæjarins, stoppaði mig
um daginn og bauð mér að taka við af
sér. Hann hefur hug á að snúa sér
alfarið að því að bera út Moggann
fyrir Sigurgeir."
Börkur Grímsson er 33 ára og
Vestfirðingur. Hann er uppalinn á
Króksfjarðarnesi í Austur-Barða-
strandarsýslu og þekkir því vel tíl út á
hvað lífið gengur við sjávarsíðuna.
Hann er stúdent frá Bifröst þaðan sem
leiðin lá í viðskiptafræði í Há-
skólanum. í Reykjavík kynntist hann
eiginkonu sinni, Guðrúnu Sigurgeirs-
dóttur frá Eyjurn, sem dró hann
hingað í sumarfrium og seinna settust
þau hér að. Eitt suntar vann hann hjá
Steina og Olla, síðan var hann þrjú ár
á Endurskoðunarskrifstofu Sig.
Stefánssonar. Arið 1995 vann hann í
sex mánuði í Islandsbanka eða þar til
hann tók við starfi fjármálastjóra
Vinnslustöðvarinnar. Þar var hann þar
til hann var ráðinn aðstoðarúti-
bússtjóri 1. febrúar á þessu ári og þann
15. október sl. tók hann við stöðu
útibússtjóra. Þann dag voru
nákvæmlega tfu ár liðin frá því Steini
settist í þennan sama stól.
Nýir siðir fylgja alltaf nýjunt
mönnurn en Börkur segir að
viðskiptavinir bankans ntuni ekki
verða svo mikið varir við manna-
skiptin. „Það verðaekki teknar miklar
beygjur á næstunni enda tek ég við
góðu búi eins og sjá má af tölulegum
staðreyndum um reksturinn. Það er
sama hvar litið er. Vanskil eru
ótrúlega lítíl, afskriftir litlar sem engar
og afkoman er góð. Þetta er styrk
stofnun sem notið hefur góðrar stjóm-
unar og stendur traustum fótum í
bæjarlífinu. Hlutverk mitt verður að
mæta auknum kröfum sem verða um
sveigjanlegri þjónustu. Viðskiptavinir
eru orðnir meðvitaðri urn að
samkeppnin um þá er að aukast. í dag
eru bankaviðskipti á allan hátt
heilbrigðari en áður og Iitið er á
peningalán eins og hverja aðra vöru.
Aukin samskiptatækni gerir fólki
mögulegt að vera með sín viðskipti
hvar sem því þykir henta best. Við
horfum því fram á vaxandi samkeppni
sem við erum tilbúnir að takast á við.
Þessi vettvangur er mjög spennandi og
útibúið hefur verið að þróast úr banka
í fjármálastofnun. Allt er að opnast
upp á gátt og starfsumhverfi banka í
dag og fyrir nokkmm árum er eins og
dagur og nótt. Af þessu má sjá að ég
og annað starfsfólk útibúsins höfunt í
mörg hom að líta í framtíðinni. Um
leið munum við gæta þess að
Islandsbanki standi undir þeim kröfum
sem til hans em gerðar af bæjarbúum.
Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka
bæði starfsfólki bankans og við-
skiptavinum fyrir góðar viðtökur,"
segir Börkur.
„Ég óttast ekki framtíð stofn-
unarinnar og tel mig geta verið sáttan
við viðskilnaðinn. Við höfum alltaf
getað státað af góðu fólki og á þessu
ári höfum við fengið inn ungt
velmenntað fólk sem hefur alla burði
til að takast á við nýja tíma, bankanum
og bæjarfélaginu til heilla," sagði
Steini að lokum.
eyjum.
Steini er mikill áhugamaður um íþróttir. Hér er hann að ræða málin að loknum leik ÍBV og FH á laugardaginn. ÍBV fór með sigur
af hólmi eins og sjá má á svipnum.