Kópavogur - 21.11.2014, Blaðsíða 2

Kópavogur - 21.11.2014, Blaðsíða 2
2 21. Nóvember 2014 Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar: Reikna með afgangi Gert er ráð fyrir ríflega 100 milljóna króna afgangi af rekstri A-hluta bæjarsjóðs Kópavogs, samkvæmt fjárhagsá- ætlun sem lögð var fyrir bæjarstjórn á dögunum. Reiknað er með 357 milljóna króna afgangi af samstæðu Kópavogsbæjar á næsta ári. Gert er ráð fyrir að skatttekjur nemi 19,5 milljörðum króna. Sam- kvæmt áætlun þessa árs er reiknað með 17,8 milljörðum króna í skatt- tekjur og aukast þær því milli ára. Í A-hluta kópavogsbæjar eru meðal annars útgjöld vegna fræðslumála, fé- lagsþjónustu, menningarmála, hrein- lætismála, skipulags- og byggingar- mála og æskulýðs- og íþróttamál. Í B-hlutanum eru til dæmis Tónlist- arhús, Hafnarsjóður, vatnsveita og fráveitumál. Í áætluninni kemur fram að A- hluti bæjarsjóðs verður rekinn með 106 milljón króna rekstrarafgangi á næsta ári. Sé skoðuð niðurstaða sam- stæðu Kópavogsbæjar þá verður hún rekin með 357 milljón króna rekstr- arafgangi á næsta ári samkvæmt fjár- hagsáætluninni. Stærsti útgjaldaliðurinn er fræðslu- mál, en alls er gert ráð fyrir 12,5 millj- örðum þar sem tæpir átta milljarðar eru fólgnir í launakostnaði. Gert er ráð fyrir að fjórum milljörðum króna verði varið til æskulýðs- og íþrótta- mála, en um 3,3 milljörðum til félags- þjónustu, svo stærstu útgjaldaliðir séu nefndir. Haft er eftir Ármanni Kr. Ólafs- syni, bæjarstjóra, í fréttatilkynningu frá bænum, að áætlunin sýni sterka stöðu Kópavogs og skattar lækki. Almennar gjaldskrárhækkanir séu tvö prósent milli ára, sem sé undir 3,4 prósenta verðbólguspá næsta árs. Hann segir einnig í tilkynningunni að kjarasamningar hafi „veruleg áhrif á reksturinn á næsta ári,“ samt sem áður sé rekstrarafgangurinn viðun- andi. Í áætluninni sé ekki gert ráð fyrir óreglulegum tekjum, líkt of af lóðasölu. Það muni væntanlega bæta stöðuna frekar. Einnig sé gert ráð fyrir að skuldahlutfall bæjarsins lækki. Um síðustu áramót var skuldahlut- fall Kópavogsbæjar rúmlega 185 pró- sent, en gangi fjárhagsáætlunin eftir verður það komið niður í 166,6 pró- sent áramótin 2015/2016. Eftirlits- nefnd með fjármálum sveitarfélaga miðar við að skuldahlutfall sé minna en 150 prósent af tekjum. Kærunefnd útboðsmála: Stöðvar risasamning Sorpu Milljarðasamningur Sorpu um byggingu gas- og jarðgerðar-stöðvar í Álfsnesi hefur verið stöðvaður, af kærunefnd útboðs- og auð- lindamála. Þetta kemur fram í úrskurði kærunefndarinnar frá 29. október. Sorpa hefur staðið í samningum við fyrirtækið danska fyrirtækið Aikan A/S um málið og hefur það verið mörg ár í undirbúningi. Samþykkt var í stjórn Sorpu 12. maí í vor að ganga til samn- inga Aikan. Þá hafði Sorpa í febrúar birt tilkynningu á útboðsvef Evrópusam- bandsins um að semja ætti við Aiken án útboðs. Íslenska gámafélagið og Metanorka kærðu samningsgerðina, en þau telja að bjóða eigi verkefnið út. Þrír milljarðar Nefnt hefur verið í þessu sambandi að aðferð Aikan verksmiðjunnar þjóni ekki markmiðum Reykjavíkurborgar varðandi sorpflokkun eða mark- miðum um að draga úr úrgangslosun. Metanorka hefur enn fremur kynnt aðrar lausnir og ódýrari fyrir stjórnar- mönnum í Sorpu ef marka má fundar- gerðir. Gas- og jarðgerðarstöðin hefur verið árum saman á borði Sorpu. Áætlaður kostnaður við jarð- og gasgerðarstöðu Aikan mun vera um þrír milljarðar króna. Metanorka hefur talið sig geta reist stöð sem þjónar markmiðum borgarinnar og annarra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu fyrir helming þeirrar upphæðar. Undanþága átti ekki við Kærunefndin segir meðal annars í úr- skurði sínum að Sorpa hafi ekki sýnt fram á að lausn Aiken sé sú eina sem fullnægi kröfum Sorpu. Þá geti hún ekki réttlætt fyrri ákvörðun sína með vísan í undanþágur í lögum um opin- ber innkaup. Kærunefndin stöðvar því samnings- gerðina tímabundið, þangað til hún hefur sjálf fjallað efnislega um málið í heild. „Þetta kostar bara tafir“ „Þetta var þeirra ákvörðun, en ekki end- anleg efnisleg ákvörðun,“ segir Björn Halldórsson, framkvæmdastjóri Sorpu, í samtali við blaðið. „Nú er unnið að því að afla frekari gagna,“ segir hann og bætir því við að skoðanir Sorpu á málinu séu augljóslega aðrar en þeirra sem kærðu samninginn. Um hvaða af- leiðingar ákvörðun kærunefndarinnar hafi segir Björn: „Þetta kostar bara tafir.“ Hann segir Sorpu hafa talið sig vera í fullum rétti með því að semja án út- boðs og hefði talið það fullnægjandi að birta tilkynningu um samninginn á útboðsvef ESB. „Við töldum að þetta myndi duga ef einhver vildi gera við þetta athugasemd.“ Björn segir að staða málsins hafi verið kynnt fyrir stjórn Sorpu, en þar á Kópa- vogur fulltrúa. Fimleikafélagið Gerpla, Skólahljómsveit Kópavogs og Kjarninn, félagsmið- stöðin í Kópavogsskóla og Kópavogsskóli eru handhafar jafnréttis- og mann- réttindaviðurkenningar Kópavogs í ár. Á myndinni má sjá Ármann Kr. ólafsson, bæjarstjóra, á vel heppnuðu aðventumóti Gerplu um síðustu helgi. 15 í námsleyfi Bæjarráð hefur samþykkt um-sóknir 15 starfsmanna Kópa- vogsbæjar um launað námsleyfi. Starfsmenn eru flestir að ljúka framhaldsgráðum í háskóla, en leyfin eru frá tveimur og hálfum mánuði og upp í hálft ár. Bæjarráð samþykkti allar umsóknir sem lagðar voru fyrir ráðið, með því skilyrði þó að viðkomandi héti því að koma aftur til starfa hjá bænum að námi loknu. Ljóðstafurinn Lista- og menningarráð Kópavogs-bæjar efnir í fjórtánda sinn til ljóðasamkeppninnar Ljóðstafur Jóns úr Vör. Framtakið er auglýst á vef Kópa- vogsbæjar og kemur þar fram að veg- leg verðlaun verði veitt hlutskarpasta skáldinu, auk þess sem það varðveiti Ljóðstafinn í eitt ár. Dómnefnd velur úr þeim ljóðum sem berast. Öllum skáldum er vel- komið að senda ljóð í keppnina en skilafrestur rennur út 21. desember. Ljóðum skal skilað með dulnefni. Nafn, heimilisfang og símanúmer skáldsins skal fylgja með í lokuðu umslagi, sem auðkennt er með sama dulnefni. Ljóðin mega ekki hafa birst áður segir á vef bæjarins og hver má bara senda inn eitt ljóð. Greint verður frá niðurstöðum samkeppninnar og verðlaun veitt á afmælisdegi Jóns úr Vör 21. janúar á næsta ári. Jón úr Vör bjó nánast allan sinn starfsaldur í Kópavogi en tilgangur keppninnar er að efla og vekja áhuga á íslenskri ljóðlist Tólf þúsund gestir á Náttúrufræðistofu Kópavogs: Risaeðlubein í Kópavogi? Síðustu ár hafa skólahópar verið ríflega þriðjungur safngesta en hlutfall grunn- og framhalds- skólanema hefur farið vaxandi. Þá hefur borið á því síðustu tvö ár að nemar úr erlendum framhaldsskólum, einkum frá Danmörku, sæki safnið heim,“ segir Finnur Ingimundarson, forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs. Hann bendir á í viðtali við Bæjar- blaðið Kópavog að aðsókn að stofunni hafi aukist til muna eftir að hún flutti árið 2002 í Safnahúsið, Hamraborg 6a. Þar er nú eina náttúrugripasafnið á höfuðborgarsvæðinu sem opið er almenningi. Fyrir flutninga hafi á milli 1-2 þúsund gestir heimsótt stofuna ár- lega. Eftir flutningana hafi þeim strax fjölgað í sjö þúsund en síðan hafi á bilinu 10-12 þúsund manns heimsótt stofuna árlega. Finnur segir í samtali við blaðið að ferskvatns- og sjávarlífverur veki gjarnan mikinn áhuga en á safninu er einnig afð finna merka beinagrind, sem gjarnan vekur spurningar gesta. „Beinagrind háhyrningsins veldur einnig miklum heilabrotum um hvort þar sé risaeðla á ferð.“ Sjá bls. 8. Verkfall tónlistarkennara: Sveitarstjórnarmenn gagnrýndir Starfi tónlistarskóla er nú stefnt í hættu af kjörnum fulltrúum sem á annan áratug hafa setið aðgerðarlausir á meðan kjör tónlist- arkennara hafa smám saman dregist aftur úr kjörum sambærilegra hópa,“ segir meðal annars í ályktun sem sam- þykkt var á fjölmennum samstöðufundi Kennarasambandsins í Hörpu í vikunni. Þar segir jafnframt að sú gróska sem einkennt hafi tónlistarlífið hérlendis undanfarna áratugi sé ekki sjálfsprottin „heldur á hún rætur í því metnaðarfulla starfi sem fram fer daglega í tónlistar- skólum landsins.“ Í ályktuninni segir enn fremur að tónlistarkennarar fari fram „með þá sanngjörnu kröfu að störf þeirra verði metin til jafns á við aðra kennara og að laun þeirra verði leiðrétt. Þeirri kröfu hefur fram að þessu verið svarað með skeytingarleysi og hrópandi þögn þrátt fyrir að tónlistarkennarar hafi nú verið í verkfalli í fjórar vikur og nám tónlist- arnemenda beðið mikinn skaða.“ Sveitarstjórnarfólk er harðlega gagnrýnt í ályktuninni: „Sveitarstjórn- armenn stæra sig á tyllidögum af blóm- legu menningarlífi. En með hverjum deginum sem líður án þess að samið sé við tónlistarkennara sést að orð þeirra eru innantóm. Mál er að linni. Við krefjumst þess að samið verið strax við tónlistarkennara svo að þeir geti snúið aftur til sinna mikilvægu starfa.“ Halldór Halldórsson, formaður Sambands Sveitarfélaga, upplýsti á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í vikunni að tilboð hefðu farið milli samninganefndar tónlistarkennara og samninganefndar sveitarfélaganna. Hann væri bjartsýnni en áður, en brugið gæti „til beggja vona“. Sjá umfjöllun bls. 10-11.

x

Kópavogur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kópavogur
https://timarit.is/publication/987

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.