Kópavogur - 21.11.2014, Blaðsíða 6

Kópavogur - 21.11.2014, Blaðsíða 6
6 21. Nóvember 2014 S y r u s s o n H ö n n u n ar h ú s Fallegar vörur fyrir heimilið Hver er stærsti sigur þinn? Að lifa þannig að börnin mín sæki í mig styrk. Að finna að sálarbatterí þeirra hlaða sig í nærveru manns. Hver eru þín helstu áhugamál? Bókmenntir og heimspeki. Hver er þinn helsti kostur? Að sjá hlutina úr fjarlægð, gæti ég trúað. En galli? Get orðið allt of fjarlægur og týndur í eigin hugarheimi. Konan mín kannast við þetta og sendir mig þá gjarnan á Eyrarbakka þar sem ég hef aðstöðu til að skrifa. Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi? Eyrarbakki. En í Kópavogi? Kjarrhólmi 2. Hvað áttu marga „vini“ á Facebook? Ef ég tel þá sem ég “læka” hjá og “læka” hjá mér stundum þá svona 200. Uppáhaldstónlistarmaður eða tón- listarstefna? Klassísk tónlist. Jóhannes Brahms og Sergei Rachmaninoff. Uppáhaldsmatur og drykkur? Cappussino og hvítt croissant á kaffi- húsi, með penna og dagbók á borðinu. Hvaða bók eða listaverk hefur haft mest áhrif á þig og hvers vegna? Histories eftir Herodotus. Fyrir þá sem ekki kannast við hana en hafa séð myndina, The English patient, þá er það bókin sem sjúklingurinn er alltaf að blaða í þar til hann líður út af. Þetta er fyrsta sagnfræðiritið, skrifað á 5 öld fyrir krist. Þetta er líka eitt fyrsta stóra prósaverkið í bókmenntasögunni, það er sem sagt ekki kvæði eins og Hó- merkviðurnar. Það sem heillandi er að í gegnum textann fær maður innsýn í fornan, goðsagnakenndan hugarheim, einmitt þegar grundvöllurinn að vest- rænni nútímahugsun er að fara að verða til hjá Grikkjunum. Prósinn sem höfundurinn leyfir sér gerir að verkum að það er eins og fornaldar- hugsun sé að leysa af sér bönd í hverri setningu og vísir að allskyns fræðum framtíðarinnar er að finna þarna, landafræði, mannfræði, félagsfræði, trúarbragðafræði, og svo framvegis. Þetta er bókin til að taka með sér á eyðieyju, því í henni er allur heimur- inn eins og menn skynjuðu hana á áhugaverðum tíma í sögunni. Ég las hana á ensku en íslenska útgáfan sem ber heitið Rannsóknir, og er í þýðingu Stefáns Steinssonar, sem einnig þýddi Gilgameshkviðju eftirminnilega vel, virðist mér afar vönduð. Hvert sækirðu afþreyingu? Sjónvarp, útvarp, bók eða net? Í bókalestur. Það má segja að ég sé háður lestri, því ef ég næ ekki að sökkva mér í texta reglulega þá leys- ist heimurinn upp fyrir mér, verður óraunverulegur. Með því að stíga inn í hliðarveruleika textaheimanna, þá endurnýjast veruleikaskyn mitt og umhverfið verður aftur ferskt og áhugavert. Hvað vildirðu verða þegar þú yrðir stór? Ég hafði aldrei rænu á að velta því mikið fyrir mér, þótti alltaf eitthvað vandræðalegt við spurninguna. Eins og hún fæli í sér undirspruninguna: hvaða hlutverk ætlarðu að leika í stóra leikritinu framundan þegar þú hættir að vera þú sjálfur? Þegar ég ákvað að gerast rithöfundur þá var það afþví að ég áttaði mig á að það sem ég hafði verið að gera í samfellt tvö ár, var nákvæmlega það sem rithöf- undar gera. Þannig held ég að það sé með ýmsa, starfsvalsákvörðunin tekur þá frekar en öfugt. Hvert var fyrsta starfið, og hvað hefurðu tekið þér fyrir hendur fram að þessu? Fyrsta alvöru starfið var að vera vinnu- maður í sveit eitt sumar þegar ég var 15 ára. Síðan vann ég í fiski og var eitt sumar á sjó á línubáti frá Hornafirði. Eitt sumar og í afleysingum var ég bíl- stjóri hjá Kópavogshæli, og svo fyrir Eymundsson. Ég var þjónn á nokkrum stöðum, til dæmis Hótel Óðinsvéum og á Hótel Borg, og svo skúraði ég gólf í bíóum. Um tíma var ég öskukall. Það góða við að skúra bíó og vera í öskunni er að maður er búinn snemma og hefur daginn fyrir sig. Ef þú værir ekki rithöfundur, hvað tækirðu þér fyrir hendur? Þá mundi akademían toga mig til sín. Ég hef gaman af rigerðarforminu, og hef gefið út eitt greinasafn sem heitir Boðskort í þjóðarveislu, gildi, bók- menntir og samfélag. Í því held ég því meðal annars fram að helsti áhrifa- valdur Halldórs Laxness þegar hann skrifaði Kristnihald undir Jökli, hafi verið Drakúla eftir Bram Stoker, og íslenska útgáfan af henni: Makt myrkranna. Áttu þér fyrirmynd í leik eða starfi? Nei, ég hef aldrei getað gert mér einn einstakling, eða verk að fyrirmynd, og heldur ekki hugmynd. En ég fór nokkuð ungur frá foreldrum mínum, ellefu frá móður og fjórtán frá föður, og þurfti því að hugleiða fyrirmyndir. Afi minn, Pétur Sumarliðason, sem ég bjó hjá hérna í Kópavogi seinasta árið sem hann lifði, var mér mikil fyrirmynd á ýmsan hátt. En það er mergurinn málsins. Ég fór þá leið að gera góða eig- inleika í fari fólks að fyrirmynd. Maður þarf að geta greint það góða í öllum og sjá það, og gera það að einhverju eftirsóknarverðu fyrir sjálfan sig. Hvað varð annars til þess að þú gerð- ist rithöfundur? Það gerðist bara, en spurningin er kannski hversvegna ég hef enst í því. Ástæðan er sennilega ekkert flóknari en svo að ég hef gaman af að segja sögur. Sagnamennska er ennþá lif- andi á íslandi og liggur nokkuð í fjöl- skyldum. Þegar maður rekst á fólk sem segir sögur til að bregða ljósi í tilfinn- ingar sínar og stöðu sína í lífinu, þá er maður að hlusta á sagnamennsku. Í minni móðurætt er fólk gert með þessum hætti. Þar var aldrei talað um tilfinningar, en hinsvegar sagði fólk sögur í tíma og ótíma, oft af sínum nán- ustu. Smámsaman áttaði maður sig á að í sögunum voru allar tilfinningarnar sem fólk bar í brjósti hvert til annars. Þótt maður temji sér síðan þann grein- andi hugsunarhátt sem á betur við samtímann, og nútíma samskipti, þá er mér, líkt og fjölmörgum íslendingum eiginlegt að tjá mig í sögum þegar ég á að segja eitthvað sem skiptir mig máli. Hvaða stundir í lífinu eru gleðileg- astar? Þegar litlu kallarnir vakna á nóttunni og kalla á mann, vilja láta sækja sig og kúra uppí hjá mömmu og pabba. Þegar maður sækir þá í leikskólann, þeir kasta öllu frá sér og koma hlaupandi. Þegar öll fjölskyldan, og helst ömmur og afar líka, fá allt í einu tíma til að sitja saman við matarborðið og ræða um hvers- daginn. Þegar konan kemur manni á óvart með enn einni hugmyndinni um hvað við getum gert okkur til skemmt- unar og maður þarf ekki nema að segja, já, einmitt, gerum það! Lífsmottó: Taktu eftir því að allt fólk er áhugavert. Bjarni Bjarnason: „Taktu eftir því að allt fólk er áhugavert“ Bjarni Bjarnason rithöfundur er innfæddur Kópavogsbúi en hefur komið víða við á sínum ferli, meðal annars búið í Noregi, Svíþjóð og Færeyjum. Hann segir um samanburðinn að Íslendingar séu fyrirferðarmeiri „og dálítið klikkaðri en íbúar þeirra landa annarra sem ég hef búið í. Þetta eru eiginleikar sem fara stundum í taugarnar á manni þegar maður býr hérna, en þegar ég bý erlendis þá sakna ég þeirra, því eiginleikarnir skapar dýnamískt og lifandi samfélag sem er áhugavert fyrir rithöfunda.“ Bjarni býr nú í Kópavogi ásamt konu sinni Katínu Júlíusdóttur, alþingis- manni, og fjórum börnum. Hann sendi á dögunum frá sér skáldsöguna Hálfsnert stúlka, sem hlotið hefur góðar viðtökur. Bjarni segist mestan áhuga hafa á bókmenntum og heimspeki. Hann er fyrst og fremst sjálfmenntaður í gegnum ritstörfin, en hefur lagt stund á guðfræði og er núna í bókmenntafræðinámi við Háskóla Íslands. Bjarni Bjarnason er í yfirheyrslunni að þessu sinni.

x

Kópavogur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kópavogur
https://timarit.is/publication/987

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.