Kópavogur - 21.11.2014, Blaðsíða 12
Rau
ðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
• Mylur alla ávexti, grænmeti
klaka og nánast hvað sem er
• Hnoðar deig
• Býr til heita súpu og ís
• Uppskriftarbók og
DVD diskur
fylgja með
Til í svörtu, hvítu, rauðu
og burstuðu stáli!
Tilboðsverð kr. 106.900
Með fylgir Vitamix sleif
drykkjarmál og svunta
Fullt verð kr. 125.765
Jólagjöfin í ár!
Ostabúðin Delicatessen - Skólavörðustíg 8 - Sími. 562 - 2772 - ostabudin@ostabudin.is
Opnunartími - Mánudaga - Föstudaga 11 - 18 - Laugardaga 11 - 16
Tilvalið handa sælkeranum
Glæsilegar gjafakörfur færðu hjá okkur
fyrir jólin í síma 5622772
Við erum byrjuð að taka á móti pöntunum
21. Nóvember 20148
Íslendingar geta fylgt
fordæmi Namibíu
„Mig langaði til að koma því til skila heim til Íslands sem ég upplifði og
reyndi í Afríku“ segir Stefán Jón Hafstein sem hefur fyrir eign reikning
gefið út bókina Afríka – Ást við aðra sýn. Sagt er frá ólíkum kynþáttum
í jaðarbyggðum, lífsbaráttunni lýst þar sem fólk þarf að gera sér mikið úr
litlu og ofinn þráður úr ýmsum áttum með myndum og texta sem saman
varpa ljósi á töfra Afríku, hve óvægin hún er og viðnámsþróttur fólksins
mikill. Á milli kafla er skotið dagbókarbrotum höfundar sem færa lesanda
enn nær vettvangi, segir í kynningu. „Þetta er bók um fólk, fyrir fólk,“ segir
Stefán Jón. „Ég vona bara að þegar þetta raðast allt saman fái fólk gleggri
sýn á álfuna heitu, lífskjör og náttúru og mannlíf í miklum fjölbreytileika.“
Bæjarblaðið Kópavogur birtir hér
stuttan kafla úr bókinni sem ber yf-
irskriftina Vernd og er sá fyrsti í bók-
arhluta um náttúrugersemar í álfunni
stóru:
„Framsýni sannar sig þegar maður
lítur um öxl. Eins og óafturkræf mistök
fylla mann sorg og reiði leyfir maður
sér að blessa þá sem eitt sinn sáu lengra
en sumum okkar er fært enn þann dag í
dag. Fyrir rúmri öld var friðhelgi slegið
á einhverjar fegurstu villidýralendur
Afríku. Þar sem nú heitir Etosha í
Namibíu og„náttúran nýtur vafans“
hvern einasta dag, þar sem villt dýr eiga
réttinn og maðurinn er bara gestur sem
fær að láta lítið fyrir sér fara.
Hvað mun baksýnisspeglinn segja
mönnum eftir önnur hundrað ár þegar
þeir meta framsýni okkar tíma? Prúðar
antilópur og voldugar fílahjarðir enn á
sínum stað eins og um aldir alda? Og
hér heima á Íslandi? Munu menn hafa
fetað sömu slóð og mörkuð var í Etosha
á sínum tíma?
Auðvitað þurfti djöfulskap og böðul-
skap áður en friði var lýst með dýrum.
Fyrstu hvítu mennirnir komu til Etosha
um það leyti sem þjóðfundurinn var
haldinn í Lærða skólanum í Reykja-
vík 1851. Þjóðverjar voru að brjóta
undir sig nýlenduna sem síðar varð
Namibía. . .
Þessi paradís varð fljótlega að blóð-
völlum þegar byssuvæddir innflytj-
endur hófu grimmilega slátrun sem á
örfáum árum ógnaði tilveru dýrastofna
sem áttu rætur að rekja til upphafs lífs
á jörðu, óáreittir og spakir. Einn hvítu
aðkomumannanna keypti víðar lendur
þar sem nú er hjarta Etosha garðsins
fyrir saltkjöt af einu hrossi, tunnu af
koníaki og 25 riffla. Þeirra viðskipta
naut héraðshöfðingi heimamanna.
Þegar aðkomumenn hófu nautgripa-
rækt þótti nauðsynlegt að fella öll villt
dýr og útrýma til að verjast gin- og
klaufaveiki sem þau voru talin bera á
milli búgarða. 1907 tók framsýni við.
Landstjóri Þýsku Suð-vestur Afríku,
Dr Friedrich von Lindquist friðlýsti
verndarsvæði á stærð við Ísland. Eitt-
hvað var það við fegurð merkurinnar
sem hreyfði svo mjög við tilfinn-
ingalífi þeirra sem réðu för að jafn-
vel ábatastöm niðursuðuverksmiðja
á sebrahestakjöti varð að víkja þegar
fram liðu stundir. Einhver hefur eftir
munnmælum að þeir hafi ráðið ráðum
sínum og sagt: Þetta er of fagurt til að
það glatist. . .
Villidýralendurnar í Etosha eru eins
ólíkar Íslandi og hægt er að hugsa sér.
Þessi ótrúlegi grúi dýra og ógnar-
legu andstæður. Ekki andstæður elda
og ísa, heldur þurrka og vætu. Um
þurrkatímann fer hitinn langt upp í
fjörutíu gráður. Stóra saltsléttan sem
einkennir landið þornar upp og verður
eins og bakarofn. Ekki stingandi strá.
Dýrin þjappast saman kringum vatns-
bólin sem halda þeim á lífi. Þegar svo
hrannast upp skýjabólstrar og þéttast
og dökkna yfir hvítri sléttunni kemur
lemjandi regn. Eins og hendi sé veifað
verður allt grænt. Runnar, tré og gras-
lendi blómgast, fuglar syngja og endur
svamla glaðhlakkalegar á flæðiengjum
innan um flamengóa og storka. Allt
er syngjandi svalt og ungviðið kemur
í heiminn til að spretta eins hratt og
hægt er upp úr kafgresinu, í leyni fyrir
rándýrum.
Eins ólíkt Íslandi og hægt er - í
fleiri en einum skilningi. Hugsum um
hálendið okkar sem er jafn víðáttu-
mikið og þetta verndarsvæði. Í stað
þess að fylgja fordæmi Namibíu er
draslaramenning á hálendinu. Engin
heildarstefna í gildi. Þingvellir kom-
ast á heimsminjaskrá UNESCO og við
leggjum hraðbraut í gegn.
Ethosa er vandlega afmarkað og
girt, þangað fer enginn inn nema um
ákveðnar leiðir gegnum mönnuð hlið.
Ökutæki og fjöldi farþega er skráður.
Hvergi má gista nema á mörkuðum
svæðum sem tekin eru frá, þar bjóðast
góð hótelherbergi með þægindum og
þjónustu sem og tjaldstæði fyrir þá sem
kjósa einfaldan kost.
Engir sjoppuskálar, að hruni komnir
bensínskúrar eða ruslgámar á víð og
dreif. Allir verða að vera í náttstað fyrir
sólsetur. Umferð er bundin við valda
slóða, sums staðar bönnuð. Merkingar
eru látlausar og falla vel að umhverfi,
allir fá vandað kort sem sýnir það helsta
og hvar má fara. Fólk fer bara úr bifreið
á afmörkuðum hvíldarsvæðum og út-
sýnisstöðum. Ströng viðurlög gilda ef
reglur eru brotnar. Hófleg gjöld standa
undir hluta kostnaðar.
Það veit sá sem víða hefur ratað að
villidýralendur um sunnanverða Afr-
íku eru óviðjafnanlegar. Upplifunin af
því að ferðast innan um dýrin í náttúru-
legu umhverfi er ekki himnesk heldur
jarðnesk eins og best getur orðið.
Hér opinberast að heimurinn er
fagur.
Að koma út í dagrenningu og sjá rán-
dýrin læðast í skjól. Sjá blettatígra við
termítahrauk og hitta villihundahjörð
við moldarslóða. Reka augu í ljónahjörð
undir tré, pakksödd á meltunni. Gap-
andi augntóftir af vísundi á afnöguðum
haus.
Tugir fíla þramma hljóðlaust gegnum
skógarrjóður, 70 tonn þeir stærstu og
yngstu kálfarnir vel varðir milli fóta
sem eru gildir eins og trjábolir. Sjá lit-
ríka spörfugla á blómguðum greinum,
perluhænur á vappi og hegra í tjörn.
Mörg hundruð stökkhafra innan um
lágvaxna runna og kliðmjúkur ómur
fyllir loftið þegar þeir bíta laufin.
Það veit sá sem víða hefur ratað að
hér verður mannskepnan agndofa. Og
trúleg þau orð Davids Attenboroughs
að hvergi í heiminum setji Móðir nátt-
úra á svið jafn stórbrotna sýningu og
í Afríku.
Manneskja sem skynjar svona fegurð
getur aldrei orðið annað en betri mann-
eskja. Þá lifir maður fágætt augnablik
og óskar þess heitt og innilega – ómeð-
vitað og ósjálfrátt - að allir menn fái
einhvern tíman að lifa slíka stund.
Svona er Afríka.“