Kópavogur - 21.11.2014, Side 4

Kópavogur - 21.11.2014, Side 4
4 21. Nóvember 2014 Hörð gagnrýni á áfengisfrumvarp Félag atvinnurekenda gagnrýnir harðlega frumvarp um sölu áfengis í matvöruverslunum en segist samt sem áður fylgjandi inntaki frumvarpsins. Um 40 umsagnir hafa borist Al- þingi um frumvarpið en það er til umfjöllunar í allsherjar- og mennta- málanefnd þingsins. Umsagnir Sam- taka atvinnulífins, Viðskiptaráðs og nokkurra fleiri eru jákvæðar í garð frumvarpsins. Hins vegar leggjast margir á móti. Þar á meðal eru Land- læknisembættið, Barnaheill, Umboðs- maður barna, Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum, Félag félagsráð- gjafa, og ýmis sveitarfélög úti á landi. Fram hefur komið hér í blaðinu að skoðanir um málið eru mjög skiptar. Meðal röksemda gegn málinu hefur verið nefnt að núverandi fyrirkomu- lag vinni engan veginn gegn einstak- lingsfrelsi, enda þótt því hafi verið haldið fram. Einnig að það vinni gegn lýðheilsumarkmiðum. Einnig hefur komið fram að ekki er eining um málið meðal kaupmanna. Þannig hafa Fjarðarkaup í Hafnarfirði ekki lýst stuðningi við málið og Jón Ger- ald Sullenberger, kaupmaður í Kosti í Kópavogi, hefur lýst andstöðu við að sterkt vín verði selt í matvörubúðum. Auglýsingabann Félag atvinnurekenda gagnrýnir fyrst og fremst að í frumvarpinu sé ekki aflétt auglýsingabanni á áfengi. Sam- tök iðnaðarins nefna þetta einnig í umsögn sinni. Fjölmiðlanefnd sem á að framfylgja auglýsingabanni, bendir hins vegar á í sinni umsögn, að þar sem áfengi er auglýst, leiði það til vaxandi neyslu, einkum ungmenna. Vísað er í alþjóðlegar rannsóknir því til stuðnings. Fleiri lýsa sig andvíga því að aflétta auglýsingabanni, en ekki er fjallað er um það í frumvarpinu. Blaðið hefur rætt við þingmenn, nú- verandi og fyrrverandi, sem hafa lýst áhyggjum af því að auglýsingabanni yrði aflétt. Hrákasmíð? Svo gripið sé niður í eina umsögn sérstaklega þá er Félag atvinnurek- enda mótfallið því að sterkt áfengi eigi aðeins að selja yfir búðarborð, eins og gert er ráð fyrir í frumvarp- inu. Óljóst sé og tilviljanakennt hverjir megi selja áfengi, verði frumvarpið að lögum. Fleiri athugasemdir eru gerðar af hálfu Félags atvinnurekenda, en sérstaklega má nefna gagnrýni á það ákvæði frumvarpsins að þeir sem afgreiða áfengi verði að vera 18 ára hið minnsta. Hæpið sé að átján ára unglingur eigi að framfylgja því að jafnaldri eða manneskja sem getur verið tveimur árum eldri, kaupi ekki áfengi. Fleiri taka undir þennan síð- asta punkt. Gengið gegn einelti í Kópavogi Tæplega átta þúsund tóku þátt í göngu gegn einelti í Kópavogi á dögunum. Eineltisgangan fór fram í öllum skólahverfunum níu í bænum og tóku nemendur leik- og grunnskóla þátt auk kennara og starfsfólks skól- anna. Á skiltum sem börnin héldu á mátti sjá slagorð á borð við: „Við líðum ekki einelti,“ „öll dýrin í skóg- inum eiga að vera vinir,“ „allir eru vinir,“ og „stöðvum einelti.“ Markmið göngu gegn einelti er að stuðla að jákvæðum samskiptum og vekja athygli á mikilvægi vináttu og virðingar. Þetta er í annað sinn sem gengið er gegn einelti í Kópavogi. Í ár var bryddað upp á þeirri nýjung segir í tilkynningu bæjarins að afhenda leik- og grunnskólabörnum endur- skinsmerki með merki bæjarins og orðunum: Gegn einelti. Kópavogur 21. TBL. 2. ÁrgaNgur 2014 Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@fotspor.is. framkvæmdastjóri: Ámundi Steinar Ámundason, netfang: as@fotspor.is. auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. Auglýsingasími 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is. Veffang: fotspor.is. Ritstjóri: Ingimar Karl Helgason, sími: 659-3442 netfang: ingimarkarlhelgason@ gmail.com. Matarblaðamaður: Svavar Halldórsson. Sími. 869-4940. Netfang. svavar@islenskurmatur.is. Umbrot: Prentsnið, Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 11.000 eintök. dreifing: Póstdreifing. Fríblaðinu er dreiFt í 11.000 e intökum í allar íbúðir í kópavogi Þeir eru ófáir í okkar samélagi sem hafa grátlega lítið á milli handanna. Félagar í Öryrkjabandalagi Íslands eru margir í þeim hópi.Samtökin hafa í vikunni sætt árásum tveggja þingmanna stjórnar- meirihlutans, Vigdísi Hauksdóttur og Pétri H. Blöndal, fyrir að voga sér að láta í sér heyrast. Þingmenn eiga alla jafna mjög greiðan aðgang að fjölmiðlum. Ræðustjóll Alþingis er gjallarhorn sem í heyrist um allt samfélagið. Talsmenn Öryrkja- bandalagsins búa ekki við sama lúxus. Í auglýsingum samtakanna hafa verið rifjuð upp ummæli þessara þingmanna tveggja. Í sömu auglýsingum er vitnað í Bubba Mortens. Er það „persónuleg árás“ að endurtaka orð ráðamanna? Er bannað að vitna í Bubba til að lýsa upplifun sinni? Skorið er niður í helstu stofnunum landsins og gjöld fyrir velferðarþjón- ustuna hækkuð enda þótt tugir milljarða virðist liggja á lausu hjá ríkinu. Formaður fjárlaganefndar segir þrátt fyrir sýnilega góða stöðu ríkissjóðs eigi samt að skera meir, enda verði „að minnka ríkisbáknið“ ef rétt er eftir haft úr fréttum vikunnar. Þetta lýsir viðhorfinu. Sömuleiðis má rifja upp nokkur ummæli hins þingmannsins. Hann var á sínum tíma óþreytandi við að tala um að það væri ekkert mál að lifa af lágum launum. Tvisvar ef ekki þrisvar talaði hann úr ræðustól Alþingis um gamla bóndann sem gat léttilega lifað á 90 þúsund krónum á mánuði. Hann drakk vatn og keypti ekki pitsur. Skilaboðin til hinna tekjulægstu gætu ekki verið skýrari: Ef þú átt erfitt með að ná endum saman, þá geturðu sjálfum þér um kennt. Það er svo aftur merkilegt að þegar Öryrkjabandalagið vill vekja athygli á kjörum sinna félagsmanna, að fólk sem úr ræðustól Alþingis jarmar eilíflega um „frelsi“, skuli snúast á punktinum og vilja takmarka rétt annarra til að ráða baráttu sinni. Að mati þessara þingmanna á Öryrkjabandalagið nefnilega ekki að hafa þetta frelsi. Um leið og þetta valdafólk fær spurningu um efndir orðanna, er byrjað að væla. Hver er sinnar gæfu smiður, þangað til það kemur að þeim sjálfum. Ingimar Karl Helgason Bubbi á bannlista Leiðari Aukin sala hjá Kraftvélum Ef við skoðum bara innflutn-ingstölur þá sést að á sama tíma í fyrra var búið að flytja inn fimm beltagröfur en nú eru þær 22. Annað dæmi er svo að í fyrra var flutt inn ein hljólagrafa en í ár hafa þær verið fjórtán,“ segir Viktor Karl Ævarsson, sölustjóri Kraftvéla á Dal- veginum, í viðtali við Sleggjuna, nýtt fréttablað um íslenskan iðnað. Fram kemur í viðtali við Viktor að stærri vélar seljist síður. „Við bjóðum náttúrlega upp á þannig tæki. Það eru vélar sem voru að seljast fyrir hrun en enginn er að kaupa þannig núna.“ Þannig hafi ein jarðýta verið flutt inn í fyrra, en fyrir hrun hafi verið fluttar inn tíu til tólf jarðýtur á ári. Sleggjan er mánaðarrit sem fjallar um íslenskan iðnað og nýsköpun. Fjallað er um einstök fyrirtæki, vöru- þróun, stefnumótun og fjármögnun. Í inngangi fyrsta tölublaðs segir að íslenskur iðnaður sé hátækniiðnaður sem mótist af nálægð við sjávarút- veginn. Atli Þór Fanndal ritstýrir Sleggj- unni. Útgáfan Fótspor gefur blaðið út.

x

Kópavogur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kópavogur
https://timarit.is/publication/987

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.