Kópavogur - 21.11.2014, Side 11

Kópavogur - 21.11.2014, Side 11
Bílaverkstæði Varahlutaverslun Smurstöð Dekkjaverkstæði Bremsur, spindilkúlur, stýrisendar, o.fl., o.fl. Allar gerðir bætiefna fyrir vél, drif og gírkassa www.bilaattan.is Allt á einum stað 1121. Nóvember 2014 Á að vinna á nóttunni? Kristín Loftsdóttir er 39 ára sellóleik- ari og tónlistarkennari í verkfalli. Hún hefur stundað tónlistarnám frá sex ára aldri en byrjaði á sellóinu átta ára. Hún hefur stundað kennslu frá því snemma á þrítugsaldri en var einnig mörg ár í framhaldsnámi við erlenda háskóla, í Finnlandi og Lundúnum, en í framhaldsnáminu lagði hún stund á kennslufræði samfara tónlistarnám- inu. „Ég væri ekki sellóleikari, tónlist- arkennari og raftónlistarmaður í dag nema vegna þess að ég hef lagt svo ótrúlega mikið á mig í mínu námi og starfi í gegn um tíðina. Og ég veit að kollegar mínir gera slíkt hið sama. Menntun, reynsla, óreglulegur vinnu- tími og stöðugar æfingar meðfram kennslu - allt er þetta lítils metið. Við fáum ekki hærra kaup. Mér var sagt síðast fyrir nokkrum dögum af bæjarstjóra Mosfellsbæjar að ég ætti að leggja meira á mig til þess að fá hærra kaup. Síðan spurði aðstoðar- maður hans hvar við gætum gefið meiri sveigjanleika á móti hærra kaupi. Hvar sjáið þið sveigjanleik- ann? Að vinna á nóttunni? Þurfum við virkilega að brjóta vinnulöggjöf- ina varðandi hámarks vinnutíma til að fá sæmileg laun? Er ekki hægt að sýna okkur meiri virðingu en svo?“ segir Kristín Loftsdóttir í samtali við blaðið. Hvað bjóða sveitarfélögin? Fram kemur í minnisblaði sem Inga Rún Ólafsdóttir sendi sveitarstjórn- armönnum á dögunum að samn- inganefnd Sveitarfélaganna hafi gert tónlistarkennurum fjögur tilboð, sem Bæjarblaðið Kópavogur birtir hér í tímaröð hér að neðan. Síðasta tilboðið var lagt fram daginn fyrir verkfall: 1. 2,8% hækkun launatöflu. Þrjár eingreiðslur á samningstímanum; 14.600 kr., 20.000 kr. og 20.000 kr. – engar efnislegar breytingar á samningi. Viðræðuáætlun til að ræða mögulegar breytingar á kjarasamningi aðila. Gildistími samnings yrði frá 1. mars 2014 til 31. ágúst 2015. 2. 4,4% hækkun á launatöflu – engar efnislegar breytingar á samningi. Viðræðuáætlun til að ræða mögu- legar breytingar á kjarasamningi aðila. Gildistími samnings yrði frá 1. mars 2014 til 31. ágúst 2015. 3. 7,5% hækkun á launatöflu á samningstíma – litlar efnislegar breytingar en þær snéru ekki að greinum 2.1.5 og 2.1.6.4 og fólu ekki í sér tillögu um aukið kennsluframlag. Viðræðuáætlun til að ræða mögulegar breytingar á kjarasamningi aðila. Gildistími samnings yrði frá 1. mars 2014 til 31. ágúst 2015. 4. 7,5% hækkun á launatöflu – smá- vægilegar efnisbreytingar. Við- ræðuáætlun til að ræða mögu- legar breytingar á kjarasamningi aðila. Gildistími samnings yrði frá 1. mars 2014 til 31. ágúst 2015. Aukið vinnuframlag fyrir hærri laun? Sveitarfélögin hafa sagt við samninga- borðið að til að verða við kröfum Fé- lags tónlistarkennara verði að koma til hagræðing á móti. Í minnisblaði Ingu Rúnar Ólafsdóttir segir að á samn- ingafundum hjá Ríkissáttasemjara hafi verið lagt til að vinnuframlag tónlistarkennara verði aukið á móti launahækkunum. Að auka „sveigj- anleika varðandi lengd skólaársins“. Að finna leiðir til að milda kostnað- aráhrif vegna álags vegna samkennslu og hlutanemenda. Breytingar á formi álagsgreiðslna, og einnig hafi verið viðraðar hugmyndir um að taka viðbótarlaun tónlistarkennar inn í grunnlaun. „Við samningaborðið hefur öllum tilraunum SNS til að opna á umræðu um þessi atriði verið hafnað,“ segir í minnisblaðinu. Fram kom í umræðum í borg- arstjórn Reykjavíkur á þriðjudags- kvöldið að tilboð hefðu gengið milli samningsaðila. Fram kom í máli Hall- dórs Halldórssonar, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins en hann er jafn- framt formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga að sér þætti sem bilið milli samningsaðila væri minna en áður. „Ég er bjartsýnni í dag en ég var fyrir helgi, en það getur brugðið til beggja vona,“ sagði Halldór Hall- dórsson í umræðunum. Besta gjöfin „Tónlistarnám er einhver besta gjöf sem hægt er að gefa barni og ætti að vera aðgengileg öllum grunnskóla- börnum. Það er deginum ljósara að tónlistarlífið í dag byggir á þeim grunni sem tónlistarkennarar hafa lagt í gegnum tíðina.“ sagði Arna K. Einarsdóttir framkvæmdastjóri Sin- fóníuhljómsveitar Íslands í viðtali við Reykjavík vikublað á dögunum, þegar hún var spurð um verkfall tónlistarkennar og hvort starf þeirra væri vanmetið. börn syngja í Hörpunni. „Það er deginum ljósara að tónlistarlífið í dag byggir á þeim grunni sem tónlistarkennarar hafa lagt í gegnum tíðina,“ segir framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Tónlistarkennarar hafa meðal annars komið á fund bæjarstjórnar Kópavogs þar sem þessi mynd var tekin.

x

Kópavogur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kópavogur
https://timarit.is/publication/987

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.