Kópavogur - 21.11.2014, Qupperneq 14
14 21. Nóvember 2014
Matar-vörumerkið Ísland
Um helgina hefst heimsmeistara-
mótið í matreiðslu í Lúxemborg og
stendur út vikuna. Mótið er haldið
á fjögurra ára fresti og vekur
jafnan mikla athygli víða um
lönd. Flestir sem til þekkja reikna
með því að íslenska kokkalands-
liðið muni standa sig vel í harðri
keppni við færustu matreiðslu-
menn heims. Til þess að komast
á pall þarf margt að koma til og
flest að ganga upp. Gerð er krafa
um útlit rétta og frumleika, ekki
síður en bragð og áferð. Íslenska
kokkalandsliðið leggur áherslu á
íslenskt hráefni og rammíslenskur
barðbúnaður úr rekaviði gefur
kalda borðinu enn íslenskara yf-
irbragð. Sem fyrr er nokkuð víst
að kokkalandsliðið verði landi og
þjóð til sóma.
Sendiherrar Íslands
Þessi glæsilegi flokkur íslenskra karla
og kvenna (aðallega karla þó) verður
því í hlutverki nokkurs konar sendi-
herra fyrir Ísland, íslenskan mat og
íslenska matarmenningu . . . og allt
saman er þetta gert í sjálfboðavinnu.
Eins og áður hefur verið farið yfir á
þessum síðum væri þetta ómögulegt
nema með dyggum fjárhagslegum
stuðningi nokkurra íslenskra fyr-
irtækja. Ríkið leggur nú reyndar til
dálítið fé í gegnum Íslandsstofu, en
annars hefur stuðningur hins opin-
bera við kokkalandsliðið í gegnum
árin verið í mýflugumynd. Á þessum
síðum hefur líka verið bent á að aðrar
þjóðir sjá bein og sterk tengsl á milli
útbreiðslu eigin matarmenningar
og aukins útflutnings á matvælum,
fjölgun ferðamanna og meiri efna-
hagslegrar velsældar.
Afreksfólk og
frumkvöðlar
Það er svosem ekkert skrítið að
stuðningur hins opinbera við íslenska
matarfrumkvöðla eða afreksfólk í
matreiðslu sé lítill, fálmkenndur og
ómarkviss. Hér er reyndar rétt að
halda því til haga að MATÍS hefur
staðið sína vakt af ótrúlegri seiglu -
að segja má ein íslenskra stofnanna.
Ástæður þessa er ekki að finna í fjand-
skap eða fordómum hins opinbera eða
þeirra sem velja sér starfsvettvang í
stjórnmálum. Þetta snýst miklu frekar
um stefnuleysi. Eins og matarblaða-
maður hefur áður bent á er ekki til
neitt sem heitir matarstefna fyrir Ís-
land. Hvað þá að til sé framtíðarsýn í
þessum málum. Hvorutveggja er hins
vegar hægt að finna hjá nágranna-
þjóðunum, t.d. Svíum, sem hafa titil
að verja í komandi heimsmeistara-
keppni í matreiðslu í Lúxemborg. Eins
og áður hefur verið drepið á í þessum
pistlum hafa Svíar mótað sér sérstaka
víðtæka matarstefnu og að fenginni
nokkurra ára reynslu telja þeir ávinn-
inginn ótvíræðan – jafnvel þegar talið
er í beinhörðum krónum og aurum.
Skýrslur og stólar
En af hverju ætli þessi sofandaháttur
stafi? Hefur engum hér á landi dottið
í hug að móta íslenska matarstefnu,
setja markmið eða forgangsraða í þágu
matarmenningar? Jú, svo merkilegt
sem það er, þá er búið að benda ítrekað
á þetta, gera úttektir og skrifa skýrslur.
Ein þessara skýrslna kom út á haust-
mánuðum 2002 og ber yfirskriftina
„Íslenska eldhúsið, þróun og markaðs-
setning íslenskrar matargerðarlistar.“
Hún var afrakstur margra mánaða
vinnu sérstaks starfshóps sem stofn-
aður var að frumkvæði Tómasar Inga
Olrich, sem þá var alþingismaður og
formaður Ferðamálaráðs. Enginn
þeirra sérfróðu manna eða kvenna
sem matarblaðamaður leitaði til
kannast við að skipulegt framhald
hafi orðið á þessari vinnu. Skýrslan
er þó forvitnileg lesning. Í henni má
í senn skynja stórhug og vanmáttar-
kennd okkar Íslendinga þegar kemur
að menningu okkar og siðum. Fátt ís-
lenskt virðist nógu gott í okkar augum
nema útlendingar segi það.
Ísland hefur þetta allt
Í skýrslunni er fyrst farið yfir stöðu
mála en svo eru lagðar fram ítar-
legar tillögur um hvað má betur fara.
Eitthvað af þessum tillögum virðast
hafa orðið innblástur til breytinga
eða aðgerða. En betur má ef duga
skal. Kostir Íslands sem matarlands
eru miklir og ótvíræðir. Við eigum
fagmenn á heimsvísu, hvort sem er
í matreiðslu eða framreiðslu. Fáar
þjóðir er jafn vel í sveit settar hvað
varðar fiskimið og íslenskur sjávar-
útvegur er í farabroddi þegar kemur
að nútímalegum aðferðum við veiðar
og vinnslu sem skilar sér í einstaklega
góðri vöru. Landbúnaðurinn okkar
hefur líka þróast gríðarlega á síðustu
árum, við búum orðið að fjölbreyttri
grænmetisflóru og íslenska lambakjöt
er einstakt hvað varðar mýkt og bragð-
gæði. Áhugi almennings og þorsti eftir
matartengdum nýjungum og góðum
mat fer vaxandi í stórum stökkum,
samhliða aukinni fagmennsku og
meiri vörugæðum.
Orðstír deyr aldregi
Matartengd nýsköpun kraumar um
allar koppagrundir eins og berlega
má sjá, m.a. á sívaxandi vöruúrvali
og ekki síður því hversu Matarmarkaði
Búrsins í Hörpunni hefur vaxið fiskur
um hrygg. Þetta byggir hins vegar að
stórum hluta á einstaklingsbundnu
frumkvæði, ósérhlífni og gríðarlegri
vinnu fjölda fólks. Þessi þróun er
auðvitað frábær, sjómenn, bændur,
kokkar og frumkvöðlar af ýsmu tagi
standa sig með eindæmum vel. En
eins og áður sagði er hér engin sam-
eiginleg matarstefna eða markmið.
Því staðreyndin er auðvitað sú að öll
erum við að vinna undir merkjum
íslensks matar og matarmenningar. Í
öllu sem gert er í matargeiranum, rétt
eins og í ferðaþjónustunni, er vöru-
merkið Ísland í húfi, svo gripið sé til
leiðinda frasa. Þess vegna þurfum við
sameiginlega stefnu og markmið. Þeir
einu sem ekki virðast skilja þetta eru
leiðtogar þjóðarinnar. Sjómennnirnir
veiða, bændurnir rækta, kokkarnir
kokka – ættu ekki leiðtogarnir að
leiða?
Matarsíða svavars svavar@islenskurmatur.is.
VILT ÞÚ ÖÐLAST
STARFSRÉTTINDI ?
FINNDU ÞÍNA FRAMTÍÐ
Í SKEMMTILEGUM OG
PERSÓNULEGUM SKÓLA
Opið er fyrir innritun
frá 1. nóv. til 20. des.
í gegnum menntagatt.is
Flatahrauni 12
220 Hafnarfirði
sími 585 3600
www.idnskolinn.is
Eftirfarandi námsleiðir í boði:
Almennt nám
Grunnnám bíliðna
Grunnnám rafiðna
Grunnnám bygg. og mannvirkja
Hársnyrtibraut 2. 3. 4. og 5. önn
Húsasmíði
Húsgagnasmíði
Listnám hönnun og handverk
Málmiðngreinar fyrri hluti
Pípulagnir
Rafvirkjun
Rennismíði
Stálsmíði
Tækniteiknun
Vélvirkjun
ALLIR ALDURSHÓPAR
ERU VELKOMNIR
Kokkalandsliðið er í Lúxemborg og keppir um helgina á heimsmeistaramótinu. Útlit og frumleiki skipta máli í eldamennskunni ekki síður en áferð og bragð.
Mynd: Kokkalandslið Íslands.