Fréttir - Eyjafréttir - 02.04.1998, Qupperneq 14
14
Fréttir
Fimmtudagur 2. apríl 1998
Landakirkja
Fimmtudagur 2. apríl
KL. 17:00 T.T.T. fundur (10-
12 ára)
Sunnudagur 5. apríl
Kl. 11:00 Sunnudagaskólinn -
Súpermann kemur í heimsókn
og ræðir um baráttu ills og
góðs. (Snrári Harðarson vaxtai-
ræktarmaður leikur hetjuna í
fullurn skrúða.)
Kl. 14:00 Almenn Guðs-
þjónusta - Bamakór Landakirkju.
Litlir lærisveinar, syngur lög af
nýja geisladiskinum undir stjórn
Helgu Jónsdóttur - Barna-
samvera meðan á prédikun
stendur. ATH! Strax að lokinni
Guðsþjónustu hefst hið árlega
kristniboðskaffi KFUM & K í
safnaðarheimilinu. Allir bæjar-
búar hvattir til að koma.
Kl. 20:30 KFUM & K Landa-
kirkju - unglingafundur.
Mánudagur 6. apríl
Kl. 20:30 Bænasamvera í
KFUM & K húsinu
Miðvikudagur 8. apríl
Kl. 12:10 Kyrrðarsmnd í hádegi.
Orgelleikur frá 12:00. Léttur
málsverður f boði að stundinni
lokinnni.
Kl. 20:00 KFUM & K húsið
opið unglingum
Hvítasunnu-
KIRKJAN
Pálmasunnudagur
Kl. 15:00 Samkoma
Skírdagur
Kl. 20:30 Brotning brauðsins
Föstudagurinn langi
Kl. 9 Bæn og fasta
Kl. 15:00 Hátíðarsamkoma
Kl. 20:30 Myndasýning í Bíósal,
The Silent Witness
Páskadagur
Kl. 15:00 Hátíðarsamkoma.
Ræðumaður Qintin Johns.
2. Páskadagur
Fjölbreyttur söngur og lifandi
orð. Hjartanlega velkomin.
Aðventkirkjan
Laugardagur 4. apríl.
Kl. 10:00 Biblíurannsókn
Kl. 11:00 Guðsþjónusta. Gestur helg-
arinnar Einar Valgeir Arason.
Allir velkomnir.
Baháísam-
FÉLAGIÐ
Opið hús að Kirkjuvegi 72B
fyrsta föstudag hvers mánaðar kl.
20.30. Allir velkomnir.
Heittá könnunni.
Biblían
talar
Sími
481-
1585
Sundfélag ÍBV á unglingamóti KR:
Þau yngstu bættu sig
-Kiwanismótió í sundi fer fram um helgina
Tíu krakkar úr Sundfélagi ÍBV
fóru á unglingamót KR, sem lialdið
var dagana 7. og 8. mars sl. í
Sundhöll Reykjavíkur. Gist var í
Austurbæjarskóla sem er rétt við
Sundhöllina.
Mótið var mjög skemmlilegt og
fjölmennt og tóku krakkar víðsvegar
af landinu þátt í því. Þjálfarar og
farastjórar hrósuðu okkar fólki fyrir
mikinn dugnað og góða framkomu.
starfsfólk mótsins hrósaði þeim einnig
fyir jákvæða og kurteisa framkomu.
Þau sem tóku þátt í mótinu voru:
Þórey Jóhannsdóttir. Rannveig Rós
Ólafsdóttir, Halla Ólafsdóttir. Sunna
Dís Klemensdóttir, Eva Lind
Ingadóttir, Dorthy Lísa Woodland,
Jóhann Jóhannsson, Vignir Svafars-
son. Viktoría Guðmundsdóttir og
Guðrún Marta Þorleifsdóttir.
Nánast allir yngri krakkamar bættu
sína fyrri tíma. Eva Lind vann til
silfurverðlauna í 100 m baksundi á
tímanum 1.13,52.
Þjálfarar með hópnum voru sund-
konumar fyrrverandi Sigfríð Björg-
vinsdóttir og Lilja Þórarinsdóttir og
fararstjóri var Guðnín Jónsdóttir.
Aðeins einn keppandi, Eva Lind. fór
frá Sundfélagi ÍBV á sundmót
Ármanns, sem haldið var dagana 28.
febrúar og 1. mars s.l. Keppti hún í
fjórum greinum, og vann hún til
bronsverðlauna í 200 m flugsundi á
tímanum 2:46,60.
Nú um helgina, eða á föstudags-
kvöld og á laugardag fer fram hið
árlega sundmót Kiwanis, sem er eitt
stærsta innanfélagsmótið hjá félaginu.
Vill stjóm sundfélagsins eindregið
hvetja tjölskyldur krakkanna til að
mæta og hvetja sundfólkið.
llr1 1
i 1II j.
IU
I« WB H
w _ A i:,4
11 IrA&'é
UJ (yHrvX-
Félagar í Sundfélagi ÍBV sem þátt tóku í KR-mótinu ásamt þjálfurum og
fararstjóra. Á myndina vantar Vigni Svafarsson.
6. flokkur ÍBV í
2. sæti.
Það er ekki bara meistaraflokkur
ÍBV sem gert hefur það gott í
handboltanum í vetur.
Mikil gróska er í yngri flokkunum,
ekki síst hjá kvenfólkinu. 6. flokkur
IBV stúlkna keppti fyrir skömmu í
úrslitum umjslandsmeistaratitilinn í
handbolta. Úrslitaleikurinn var gegn
Haukum úr Hafnarfirði og töpuðu
okkar stúlkur naumlega, eða 7-6.
Haukar eru því íslandsmeistarar í 6.
flokki stúlkna en IBV varð í 2. sæti
sem er frábær árangur. Þjálfarar 6.
flokks eru þau Óskar Jósúason og
Guðbjörg Guðmannsdóttir.
Myndin var tekin þegar
hópurinn kom heim að lokinni
keppni og á henni eru, auk hinna
efnilegu hand-boltastúlkna,
þjálfarar og fararstjórar.
Aðal-
fundur
Aðalfundur Oðins verður
haldinn fimmtudaginn 16.
apríl nk. í Félagsheimilinu,
efstu hæð, kl. 20.
Dagskrá:
1. Venjuleg
aðalfundarstörf.
2. Verðlaunaafhendingar.
3. Kaffiveitingar.
Stjórnin
í\ 7 íMt, ’ 'li -h jwf; jm. v * Wf w K.y M B J ;Uyl l |iff H
\æ P mL®mn Wfm HJjlV r- Hu rjrm
, .f .1«- 1
Handknattleiksdeild Víkings:
Ekki talsmenn okkar
Stjóm handknattleiksdeildar Víkings
og stuðningsmenn félagsins harma
þá umræðu, sem skapast hefur vegna
símhringinga til þjálfara og leik-
manna IBV eftir lokaumferð Nissan-
deildarinnar þar sem Víkingur féll í
2. deild þegar ÍBV tapaði á
heimavelli gegn IR.
Okkur hefur verið tjáð að hringt
hafi verið úr Víkinni f þjálfara og
leikmennn ÍBV og haft í hótunum
við þá. Sá eða þeir sem þetta gerðu
eru á engan hátt að tala fyrir munn
okkar Víkinga, enda hæfir slíkt
engan veginn íþróttahugsjóninni.
Vissulega sámar okkur Víkingum að
Eyjamenn skyldu ekki að okkar mati
leggja sig fram í heimaleik gegn IR
og tryggja sér þar með betra sæti í
átta liða úrslitum. Hitt er svo annað
mál að við Víkingar höfum ekki haft
í hótunum, hvorki við IBV eða aðra.
Við höfum frétt að í Vest-
mannaeyjum séu menn að setja þetta
í samband við það að nokkrir okkar
bestu stuðningsmanna mættu í Safa-
mýrina og hvöttu Framara gegn ÍBV
í fyrsta leik liðanna í átta liða
úrslitum. Þetta var af þeirra hálfu
hugsað sem hrekkur til þess að stríða
Eyjamönnum svolítið, enda eru
Eyjamenn landsfrægir fyrir hrekki
sbr. hið landsfræga Hrekkja-
lómafélag. Ef þessi litli hrekkur
liefur farið fyrir brjóstið á Eyja-
mönnum biðjumst við afsökunar á
því. Samskipti IBV og Víkings í
gegnum tíðina hafa verið mjög mikil
og góð og vonumst við tii þess að
svo verði áfram. Það er okkar ósk að
mál þetta hafi ekki neina eftirmála.
Með íþróttakveðju.
Handknattleiksdeild Víkings
Bæjarins bestu hafa byrjað ótrúlega í úrslitakeppni
hópleiksins. I fyrstu vikunni fengu þeir 9 rétta og svo
10 rétta um síðustu helgi og em þeir þvf efstir í sínum
riðli. Tóku þeir aðeins með sér 1 stig áfram í úrslit.
Kári Herjólfs-kokkur skipar Bæjarins bestu ásamt
Gunnari Kristjánssyni, en svo er það spurningin með
Kára og uppáhaldsliðið hans, Arsenal, livort hann
þoli pressuna þegar hann ógnar þeim „stóru".
Annars er árangurinn í úrslitakeppninni búinn að vera
ágæturen staðan í riðlunum er eftirfarandi þegartvær
umferðireru eftir:
Riðill 1: Bæjarins bestu 20, Dautt á Vatni 19. Geiri
Smart 19, Pörupiltar 16, Charlotta 16. Flug-eldur 15,
Villta vestrið 15,Tveirflottir 14.
Riðill 2: Don Revie 19, ER 19, Búðarráp 16, Sigló-
spon 15. Styðjum Roy Evans 15, ÍBV 14. Burt með
íhaldið 13 og loks Reynistaður 13.
Það em helst Dautt á Vatni og Geiri Smart sem
gætu strítt Bæjarins bestu í riðli 1. en Pörupiltamir em
þekktir fyrir endaspretti sína og nýttu þeir sér einn
slíkan til að komast í úrslitin. Sibbi Tedda ieiðir riðil
2 ásamt þeim félögum Einari Friðþjófs og Ragnari
Óskarssyni. Búðarrápsmenn gætu náð þeim með
sm_á heppni.
I Monrad-leiknum er „prinsinn" f Eyjabúð.
Friðfinnur Finnbogason, sem á sér þann stóra draum
að vinna Sigfús Gunnar í þessum leik sem nú er
hálfgerð tilraun hjá Getraunaþjónustunni. Friðfinnur
er efstur með 27 stig, en Sigfús er með 26. Ef þeir
gleyma sér eitthvað, þá er Haraldur Þór tilbúinn í 3ja
sæti með 25 stig. Þetta er eiginlega eins og staða
toppliðanna í Englandi. Friðfínnur United-maður
efstur, Arsenalúlpuljósmyndarinn Sigfús Gunnar f 2.
sæti og í þriðja sæti er Haraldur Þór Þórarinsson. sem
enn telst til Liverpool-aðdáenda, en hann er
ófáanlegur til að ræða það félag eftir að það datt út úr
Coca-Cola cup. Næstir koma svo Huginn Helga 22,
Andy Cole 20. Hlynur Sigmars 20, Jakob Möller 19
og Georg og félagar 18.
Um næstu helgi munu eigast \ ið Hlynur Sigmars -
Huginn Helga. Kári Fúsa - Ólafur Guðmundss,
Bjössi Ella - Klaki. Siguijón Þorkels - Haraldur Þór,
ER- Friðfinnur, Jakob Möiler - Georg og félagar,
Andy Cole - Þmmað á þrettán, Guðni Sig - Eddi
Garðars, Haukur Guðjónss - Sigfús Gunnar og
Siguijón Birgisson situr hjá að þessu sinni.
Þeir tipparar sem skulda hjá Getraunaþjónustunni
em beðnir um að gera upp hið fyrsta. því það er svo
leiðinlegt að mkka. Nú em nýbúin mánaðamót, svo
tækifærið er gott.
Athugið breyttan opnunartíma, en sala fyrir
getraunir lokar kl. 12:45 í stað 13:45 næsta laugardag
þar sem klukkunni liefur verið breytt í Englandi.
Sjáumst á iaugardaginn.