Fréttir - Eyjafréttir - 30.04.1998, Page 1
í
!
t
!
!
t
!
!
!
í
t
t
t
!
t
t
t
t
Í
Í
i
i
i
i
I
i
i
i
25. árgangur • Vestmannaeyjum 30. apríl 1998 • 17. tölublað • Verð kr. 140,- • Sími: 481 3310 • Fax: 481 1293
Fimmtán stúdentar útskrifastfrá Framhaldsskólanum á bessu uori. Nú er próflestur hafínn en að
uenju tóku hau úr sér mesta hrollinn fyrir hann slay með dimmiteringu á föstudaginn.
Fulltrúar frá Keikósjóðnum skoðuðu aðstæður í Eyjum á þriðjudaginn:
Vestmannaeyjar koma
sterklega til greina verði
Keikó fluttur Ul fslands
Fulltrúar frá Keikósjóðnum
kynntu sér aðstæður í Vest-
mannaeyjum á þriðjudaginn. Eru
Vestmannaeyjar einn þriggja
staða á landinu sem kemur til
greina sem heimili fyrir háhyrn-
inginn Keikó, verði hann fluttur til
heimalands síns frá Flórída þar
sem hann dvelur nú.
Fulltrúarnir vildu sem minnst við
blaðamenn tala en Hallur Hallsson,
sem er talsmaður Keikósjóðsins hér á
landi var mjög ánægður með ferðina.
Fóru þau m.a. í siglingu með Lóðs-
inum út í Klettsvík sent er líklegur
staður fyrir kví undir hvalinn. „Eftir
að við höfum skoðað aðstæður
verður gerð skýrsla. Um þetta hef ég
ekki meira að segja á þessu stigi,"
sagði Hallur.
Auk Vestmannaeyja stendur valið á
milli Hvammsvíkur í Hvalftrði og
Eskitjarðar en samkvæmt heimildunt
blaðsins koma Vestmannaeyjar og
Eskifjörður helst til greina. Islensk
stjómvöld eru nú nteð málið til
skoðunar og er m.a. beðið niðurstöðu
af sýnatöku úr Keikó. Þegar hún
liggur fyrir er ákvörðunar að vænta.
Gæti það orðið á allra næstu dögunt.
Það er Ijóst að mikið er í húfi því
flutningur Keikó til íslands mun
vekja óhemju athygli. meiri en nokk-
um tíma hefur þekkst hér á landi.
Búist er við að um 750 blaðamenn
fylgi honum og að einn milljarður
fylgist með flutningnum í fjöl-
miðlum. Auk þess mun hann í fram-
tíðinni draga til sín fjölda ferða-
manna.
Þó stutt sé síðan Vestmannaeyjar
komu inn í myndina er Fréttum
kunnugt um að sú staðreynd að
Háskólasetrið, Hafró, Rannsókna-
stofnun ftskiðnaðarins og Náttúru-
gripasafnið skuli vera til staðar. styrki
stöðu Vestmannaeyja í slagnum um
Keikó.
Fjarskiptanámskeið fyrir skipstjórnarmenn:
Aðeins haldin í
lyjum og Reykjauík
-Gæti dregið hingað mörg hundruð manns efstaðið verður við
bakið á Kjartani Bergsteinssyni sem á heiðurinn afþessu framtaki
Kjartan Bergsteinsson, loftskeyta-
maður, hefur undanfarin misseri
staðið fyrir námskeiðum fyrir
skipstjórnarmenn á fiskiskipa-
llotanum í meðferð nýrrar tækni í
fjarskiptum. í þessum mánuði var
hann með námskeið þar sem flestir
nemendurnir voru ofan af landi.
Astæðan er sú að aðeins er boðið
upp á þessi námskeið í Eyjum og í
Reykjavík.
Um er að ræða svokallað GMDSS-
námskeið, sem er alþjóðlegt öryggis-
og fjarskiptakerfi sem stofnsett var af
Alþjóðasiglingamálastofnuninni.
Kjartan, sem lagt hefur mikla vinnu í
að koma upp námskeiðunum, segir að
þetta kerfi nái til alls heimsins. Til þess
eru notaðir gervihnettir og land- og
strandstöðvar. „Það var ljóst að gamla
kerfið var orðið ónýtt og þá var ráðist í
þessa framkvæmd," segir Kjartan.
„Þetta kostar ný tæki í öll skip og um
leið verða loftskeytamenn óþarfir. í
staðinn þarf að kenna skip-
stjómarmönnum á tækin og það er ég
einmitt að gera.“ ,
Hvert námskeið er 72 kennslustundir
og tekur a.m.k. tíu daga. „Ég byrjaði
1996 og hef verið að þessu af og til
síðan. Alls hafa um 70 manns setið
námskeiðin og á síðasta námskeiði var
ég með níu manns, sex frá Eskifirði og
einn frá Akureyri, Fáskrúðsfirði og
Vestmannaeyjum.“
Kjartan segist sjá fram á næg verkefni
því reglugerð um notkun á GMDSS-
tækjum nær til allra skipa sem eru 24
m og Iengri. „Það verða því a.m.k.
tveir menn á hverju skipi að vera með
þessi réttindi. Vestmannaeyjar em
annar tveggja staða á landinu þar sem
boðið er upp á þessi námskeið og ég
get liaft eins mikið að gera eins og ég
hef tíma til vegna vinnu minnar.
Jafnframt þessu þarf að skipta út
fjarskiptatækjum og mér skilst að það
sé pakki upp á 2 til 3 milljónir." Þetta
framtak gæti dregið hingað mörg
hundruð ntanns og ætti að skoðast af
bæjaryfirvöldum og hagsmunaaðilum
í ferðaþjónustu.
Zoltan Beláný, sem verið hefur einn af lykilmönnum ÍBV undanfarin ár, og
Gabriella Polkovics og börn beirra brjú sjá nú loks fyrir endann á ára-
langri baráttu fyrir bví að fá íslenskan ríkisborgararétt. Bls. 4 og 19.
YGGI
IIR
LDUNA
ig þægilegan hi
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f.
RÉTTINGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 - Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ:
Græðisbraut 1 - sími 4813
T(í“5) Sumaráœtlun Herjólfs
—▼ ▼ Frá Eyjum: Frá Þorl.höfn: :
Alla daga nema sun.. Kl. 08:15 Kl. 12:00 :
sunnudaga Kl: 14.00 Kl: 18.00
aukaferð föstudaga Kl. 15.30 Kl. 19.00
Iderjólfur .BRUAR BILIÐ Simi 481 2800 Fax 481 2991
Bókabúóin
Heiðarvegi 9 - Sími 481 1434