Fréttir - Eyjafréttir - 30.04.1998, Blaðsíða 6
6
Fréttir
Fimmtudagur 30. aprfl 1998
Barcelona - Benidorm - Costa del Sol - Heimsferðir, umboð í Eyjum - Straumur s. 481-1119
Kosningar verða til bæjarstjómar eftir tæpan
mánuð og aðeins farið að bera á skjálfta í
mönnum vegna þeirra. Raunar finnst skrifara
sem frekar dauft hafi verið yfir pólitíkinni fram til
þessa eins og raunar á kjörtímabilinu öllu. Það
var ekki fyrr en Ragnar Oskarsson sneri lieim úr
útlegðinni í Danmörku að lifnaði yfir hlutunum.
Að þessu sinni eru aðeins tveir listar í framboði
og segja fróðir menn að það sé í fyrsta sinn í
Vestmannaeyjum. Það em þvf einfaldir og þægi-
legir þrír kostir sem okkur standa til boða á
kjördag, að kjósa D, kjósa V eða skila auðu.
Úrslit síðustu kosninga urðu V-lista fólki mikil
vonbrigði. Þar á bæ bjuggust menn við að ekki
yrði erfitt að kollvarpa veldi íhaldsmanna með
sameinuðu framboði, sérstaklega þegar klofn-
ingur kom upp hjá íhaldsmönnum og varð til þess
að Georg Þór fór fram í sjálfstætt framboð.
Flestir urðu og undrandi yfir því mikla fylgi sem
Sjálfstæðisflokkurinn hlaut, ekki sfst sjálfstæðis-
menn sjálfir.
Sameining flokka skilar nefnilega ekki alltaf
þeim árangri sem menn búast við, þeir eru til sem
eru á móti öllu slíku samkrulli og kjósa ekki sinn
gamla flokk, taki hann þátt í slíku. Nærtækasta
dæmið er fyrrum stórkratinn Kristjana Þor-
finnsdóttir sem lýsti því yfir fyrir síðustu
kosningar að hún styddi ekki V-listann heldur
ætlaði að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Og nú hefur
hún enn bætt um betur og skipar sjálft
heiðurssætið á D-listanum. Og Kristjana er ekki
ein um þessa skoðun, þeir eru margir sem ekki
geta hugsað sér að kjósa lista sem hefur á sér
einhvem „kommastimpil“ eða „framsóknarsvip"
eða „krataeðli." Þó svo að allt eigi að vera með
kyrrum kjömm undir merkjum sameiningar þá er
því bara ekki þannig farið. Á því hagnaðist
Georg Þór síðast en nú er það spumingin hverjir
hagnast á því.
Skrifari hefurum það gmn að öllu mjórra gæti
orðið á mununum að þessu sinni en sfðast. Þrátt
fyrir að ferill sjálfstæðismanna í bæjarstjóm sé
langt í frá hnökralaus er ekki margt um stór-
skandala á tímabilinu og yfirhöfuð hafa hlutimir
mnnið þægilega í gegn. Það er helst að hundrað
milljónimar, sem bærinn óvart fékk upp í
hendurnar og þarf nú að fara að endurgreiða,
gætu reynst vont mál. Aftur á móti föttuðu
fulltrúar minnihlutans ekki heldur þessi mistök
fyrr en um seinan og því vafasamt að slá því upp
sem kosningabombu.
Það sem mesta athygli vekur að þessu sinni er
hve rnikið af nýju fólki er að kveða sér hljóðs í
pólitík. Með réttu má segja að um uppstokkun sé
að ræða á báðum listum. Þessi nýju andlit gætu
haft sitt að segja í því að úrslit yrðu á annan veg
en menn búast við. Báðir listar bjóða fram fólk
sem er fullt áhuga og verður spennandi að sjá
hvemig það stendur sig bæði fyrir og eftir
kosningar.
Skrifari er ekki spámannlega vaxinn og ætlar
ekki að velta fyrir sér væntanlegum úrslitum. Þau
koma til með að Iiggja Ijós fyrir eftir tæpan
rnánuð. Þá verða einhveijir glaðir og aðrir hrygg-
ir, rétt eins og í öðmm h'fsins leikjum. Skrifari
reiknarekki með að úrslit þessara kosninga komi
til með að valda honum andvökum. eftir því sem
gráu hámnum hefur Ijölgað á kolli hans, hefur
hann öðlast þann þroska að láta slíkt ekki koma
sér úr jafnvægi. Fyrir nú utan það að þetta er allt
Ijómandi gott fólk á báðum listum, fólk sem
segist vilja byggðarlaginu allt hið besta og meinar
það ábyggilega. Þar með ættum við að verða í
góðum höndum næstu íjögur árin, sama hvemig
allt fer.
Sigurg.
Margo með hluta af heim grípum sem hún ætlar að sýna.
eiga fyrirmyndir sýnar úr dýraríkinu,
en einnig hef ég búið til báta og aðra
hluti á þennan hátt.“
Margo segir að nú hafi hún keypt
sér tölvustýrðan glerbræðsluofn sem
hún hyggst nota til að rnóta stærri
hluti. „Eg keypti þennan ofn í júlí í
fyrra og hef verið að prófa mig áfram
við að búa til skálar og aðra nytjahluti.
Það er mjög nauðsynlegt að hafa
góðan ofn nteð fullkontinni hitastýr-
ingu þegar verið er að móta gler á
þennan hátt. Það myndast alltaf
spenna í glerinu við hitun og kælingu,
þess vegna þarf góða stýringu til að
tempra kælinguna."
Hún segir að hún noti mót sem hafi
söntu lögun og sá hlutur sem hún ætli
að búa til, en mótin geti verið úr leir
eða stáli. „Eg legg síðan glerplötu í
mótið og við hitann leggst glerplatan
yftr mótið og tekur á sig lag þess. Það
er einnig hægt að lita glerið áður en
það er brætt, með því að strá lituðu
glerdufti á það. Einnig er hægt að
leggja fleiri lög af gleri á mótið og fá
þannig fjölbreytt mynstur."
Hvað ætlar Andri að vera með á
sýningunni?
„Hann ætlar að sýna hálsmen og
bindisnælur. Mótífin hjá honunt eru
úr íslenskri eða erlendri mynt. Hann
sker út úr peningnum þær myndir sem
á honum eru, hvort heldur skjaldar-
merki eins og á tíkallinum eða
dýramyndir eins og höfrungamir á
fimmkallinum. Síðan festir hann
myndimar í umgjörð sem hæfir hverju
Sigurgeir Jónsson
skrifar
udegi
Helgina 1. til 3. maí næstkomandi
verður haldin stór og mikil sýning í
Laugardalshöllinni í Reykjavík.
Það er ferðaþjónusta Akureyrar í
samstafl við Handverk og Hönnun
sem stendur fyrir sýningunni.
Sýningin er tvískipt. Annars vegar
verður um handverkssýningu að
ræða og hins vegar ntunu ferða-
þjónustuaðilar kynna þjónustu sín.
Að sögn aðstandenda sýningarinnar
telja þeir að þessar atvinnugreinar fari
vel saman og þess vegna var ákveðið
að hafa þann háttinn á. Sýningin er
sölusýning á listhandverki og heim-
ilisiðnaði af öllu landinu, auk þess
sem kynnt verður það helsta sent
ferðaþjónustan hefur upp á að bjóða.
Mikill tjöldi handverksfólks og fólks í
ferðaþjónustu hefur skráð sig til
þátttöku í 94 sýningarbásum. Einnig
ntun verða sérstök sýning á verð-
launuðunt og athyglisverðum tillögum
úr minjagripasamkeppni Átaks til
atvinnusköpunar og Handverks og
Hönnunar í tengslum við sýninguna.
Margo Renner og Andri Run-
ólfsson, sonur hennar, munu taka þátt
í sýningunni. Margo er löngu þekkt í
Eyjurn fyrir listsköpun sína og er einn
þeirra aðila sem reka Gallerí
Heimalist.
Margo segir að hún muni sýna
glerverk á sýningunni en Andri sýni
skartgripi. ,,Ég hef verið að vinna
smáskúlptúra úr gleri sem ég móta yfir
opnum eldi. Það hafa ekki verið
nytjahlutir, heldur skrautniwáf sem
Af framboðum
sinm.
Margo segir að oft sé erfitt að draga
línu milii handverks og listar. „Sumt
sem maður gerir er kannski ekki list
samkvæmt hörðustu skilgreiningu.
Hins vegar þarf einhverja listræna
gáfu til þess að skapa eitthvað, hvort
heldur um er að ræða nytjahluti, eða
skrautmuni. Hugtakið er teygjanlegt
en módelhlutir. þar sem enginn þeirra
er eins, er alltaf list fyrir mér, hvort
sem það eru skartgripir eða nytja-
hlutir."
Hér má sjá hluta af handuerki Andra.
Frá tónleikunum á sunnudaginn.
Á sunnudaginn var hélt Ingveldur
Yr Jónsdóttir messosópran, söng-
tónleika í Safnaðarheimili Landa-
kirkju. Undirleikari á píanó var
Guðmundur H. Guðjónsson. Tón-
leikarnir voru vel sóttir og áheyr-
endur greinilega glaðir og ánægðir
þegar þeir gengu út í aprílblíðuna
að tónleikunum loknum.
Dagskrá tónleikanna stóð saman af
erlendum og íslenskum lögum. Ing-
veldur Yr hóf sönginn á ástarljóðum
eftir Paisiello, B. Pergolesi og
Giordani, sem hún sagði að væru oft
notuð til þess að kynna byrjendum
ópemsöng. Því næst söng hún lög
eftir Jón Þórarinsson, Jón Ásgeirsson
og Jón Nordal. Það voru hin þekktu
íslensku lög við ekki síður þekkt ljóð
og oft talin með því fegursta sem
samið hefur verið á íslensku. Lögin
vom íslenskt vögguljóð á hörpu, Hjá
lygnri móðu. Vísur Vatnsenda Rósu
og Hvert örstutt spor. Að þessum
hluta tónleikanna loknum var gert
stutt hlé.
Eftir hlé söng Ingveldur Ýr þrjú
ástarljóð eftir spænska tónksáldið
Enrique Granados. Þessi lög eiga sér
rætur í spænskri þjóðlagahefð og fór
Ingveldur Ýr á kostum í þeim
flutningi. Því næst sögn hún fjögur
lög eftir Atla Heimi Sveinsson við
íslensku ljóðin, Fömmenn, Spurðu
mig ekki. Ég hef farið um víða veröld
og Snert hörpu mína, falleg og
krefjandi fyrir söngkonuna.
Að lokum söng Ingveldur Ýr tvö
aukalög við mikla hrifningu tónleika-
gesta. Þau voru. L’amour úr Carmen
og Draumalandið eftir Sigfús Einars-
son.
Ingveldur er glæsileg kona með
hrífandi útgeislun, ekki síður en fagra
og þróttmikla söngrödd. Samhæfing
Ingveldar Ýrar og Guðmundar H.
Guðjónssonar sem Iék undir á píanó
var með miklum ágæturn og tónleika-
gestir kunnu vel að meta góða tón-
leika.
Söngtónleikar Ingveldar Ýrar Jónsdóttur:
Kraftmikill söngur
og hrffandi útgeíslun