Fréttir - Eyjafréttir - 30.04.1998, Qupperneq 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 30. apríl 1998
Færslumflölgar
Sumarblíðan um helgina virðist
hafa haft talsverð áhrif á bæjarbúa
því að færslur í dagbók lögreglu
voru talsvert fleiri en á undan-
fömum vikunt. Alls voru 198
færslur bókaðar enda var talsverður
erill í vikunni. Af þessum færslum
voru 30 frá því á föstudagskvöldi
og fram á sunnudagsmorgun.
Sérstæður
sumarfagnaður
Það mun nokkuð misjafnt hvemig
fólk fagnar sumarkomu. Hjá flest-
um fer slíkt fram án þess að það
trufli aðra. En ekki þó hjá öllum.
Að morgni sumardagsins fyrsta var
tilkynnt til lögreglu að bíl hefði
verið stolið frá netaverkstæðinu
Net. inni á Eiði og stuttu síðar var
tilkynnt unt innbrot íHótel Bræðra-
borg. Á föstudagsmorgun var svo
tilkynnt að brotist hefði verið inn í
Net og þar hefði lyftara verið ekið
um. Fljótlega bárust böndin að
fjórum mönnum úr áhöfn skips sern
lá við bryggjukantinn við netaverk-
stæðið. Eftir yfirheyrslur viður-
kenndu þeir að hafa tekið bílinn,
ekið að Hótel Bræðraborg og
brotist þar inn. Þá viðurkenndu
þessir athafnasömu fjórmenningar
einnig að hafa farið inn í Net og
ekið þar um á lyftaranum. Þar með
lauk þessum sérkennilega sumar-
fagnaði þeitTa.
Enn einn öluaður
Um helgina hafði lögregla afskipti
af 11 ökumönnum vegna umferðar-
lagabrota og var í flestum þeimt urn
minniháttar brot að ræða. En einn
þessara ökumanna var ölvaður og
það telst alvarlegt brot.
Nagladekkin burtá
stundinni
Rétt er að benda ökumönnum og
eigendum ökutækja á að tírni
nagladekkjanna er liðinn. Þó svo
að enn megi búast við hálku á
fjallvegum landsins þá á það ekki
við f Vestmannaeyjum. Fljótlega
verður farið að sekta þá sent enn
aka á nöglum. Þess má geta að sekt
við því er hærri en nemur kostnaði
við að umfelga bflinn.
Vinnudagurog
flaggakeppni hjá
golfurum
Á morgun, föstudaginn I. maí, er
hinn árlegi vinnudagur golfara. Þá
verður unnið við hreinsun og tiltekt
á golfvellinum. Allir félagsmenn
eru hvattir til að mæta en
undanfarin ár hefur mæting verið
með afbrigðunt góð á þessum
vinnudegi. Mætingerkl. 12.00 og
endað verður með grillveislu og
fleiru.
Á laugardaginn kenuir verður
Flaggakeppnin á dagskrá hjá GV.
Leiknar verða 18 holur nteð
forgjöf. Athygli er vakin á því að
leikið verður á öllum velUnum,
bæði þeim nýja og gamla og
sumarflatimar verða í leik. Þetta er
í fyrsta sinn á árinu sem það er gert
en völlurinn hefurkomið vel undan
vetri. Hér verður því um „alvöru-
golf' að ræða. Bent skal á að
lokaskráning er á föstu-dagskvöld
kl. 20.
Afli hefur verið mjög góður í apríl:
Drangairík VE hefur landað
460 tonnum á 24 dögum
„Það hefur verið mokafli hjá okkur,“
segir Magnús Ríkharðsson skipstjóri á
Drangavíkinni VE. „Þó að veiðin haft
verið góð á sama tíma í fyrra þá slær
þettaalltút. Við erum búnir að landa
milli 430 til 460 tonnum á 24 dögum í
10 löndununt.'1
Magnús segir að aflinn sé að stórum
hluta ýsa. Hins vegar sé mikíl
þorskgengd á miðunum. „Við höfum
fengið þennan afla á
Selvogsbankanum og það eru margir
bátar að veiðum. Hins vegar höfum
við fregnir af mikilli þorskgengd á
Eldeyjarbanka, en hann syndir þar í
rólegheitum óáreittur. Það er aðallega
vegna þess að bátarnir eru búnir nteð
kvótann. Við erum aftur á móti vel
settir með kvóta, en þetta hefur verið
mikill handleggur og menn varla haft
undan á stundum. Einnig hefur tíðin
hefur verið sæmileg þennan mánuð
svo ekki spillir það,“ segir Magnús að
lokum.
Stefán Friðriksson útgerðarstjóri
Vinnslustöðvarinnar segir að það haft
verið hálfgert nudd hjá þeim bátum
sem verið hafa á kolmunnanum. „Þeir
hafa verið að fá þetta 100 tonn á dag.
Kap var búin að fá 500 tonn, en ekki
er vitað nteð Huginn. Zephyr kom inn
ýgærmeðum 1700 tonn. JónVídalín
ÁR landaði 125 tonnum á mánudag
og var aflinn mest karfi.“
Friðrik Már Sigurðsson útgerðar-
stjóri hjá Isfélaginu segir að veiðin
hafi verið þokkaleg. „Álsey landaði á
mánudaginn 140 körum mest ýsu og
Bergey landaði í gær 200 körum en
hún var með nteiri blandaðan afla.
Alla aðra báta er verið að undirbúa
fyrir sfldarvertíðina."
Friðrik Már segir að gert sé ráð fyrir
að hetja síldarveiðar 5. maí. „Það er
hins vegar óljóst ennþá með útlið.
Færeyingar og Danir hafa verið að
leita fyrir sér en ekkert fengið. En það
er verið að undirbúa rannsókna-skip til
þess að fara á miðin og kanna hvort
eitthvað er af síld,“ segir Friðrik Már.
Samræmdu prófunum hjá 10. bekkingum lauk á priðjdaginn og nú voru bað ekki bara nemendur sem fögnuðu bví
foreidrarnir slógust í hópinn. Foreldrar og jafningjafræðslan í Framhaldsskólanum buðu upp á hljómleika með D7 á
Stakkó síðdegis en um kvöldið var slegið upp grillveislu í Hrafnaklettum. Tilgangurinn var að koma i veg fyrir fyllírí á
krökkunum sem tókst ekki alueg en viðleitin er góðra gjalda verð.
Skjálfti í bæjarráði
útafdrætti
Eins og sagt var frá í síðustu
Fréttum hefur farið nokkur óþol-
inmóður skjálfti urn Ragnar Osk-
arsson bæjarfulltrúa V-listans
vegna þess hve seint honum finnst
ganga hjá meirihlutanum að Ieggja
frarn ársreikninga vegna ársins
1997.
Bæjarstjóri sagði frá því á fundi
bæjarráðs á þriðjudaginn að reikn-
ingamir yrðu lagðir frant í
bæjarráði þann 5. rnaí nk. Við það
tækifæri lét Ragnar Óskarsson bóka
að sér fyndist drátturinn óþarflega
langur og að núverandi bæjarstjóm
geti ekki afgreitt reikningana nema
nteð því að boða til sérstaks
aukafundar í bæjarstjóm.
Elsa Valgeirsdóttir og Guðjón
Hjörleifson óskuð þá að fært yrði til
bókar að reikningarnir væru lagðir
fram fyrr í ár en f fyrra og vildu
meina að aðeins væri verið að gera
störf embættismanna bæjarins og
endurskoðenda tortryggileg. Töldu
þau að lesa mætti slíkt úr óþolin-
ntæði Ragnars. jafnframt því sent
væntanlegar kosningar yllu honum
einhverju hugarangri.
Ragnar lýsti furðu sinni á bókum
tvímenninganna og lýsti yfir fullu
trausti á embættismönnum bæjarins
og endurskoðendur. Hann lýsti
hins vegar fullri ábyrgð á drætt-
inurn á hendur meirihluta bæjar-
stjómar. Hann benti einnig á að á
kosningaári væri mun nauðsynlegra
en við aðrar aðstæður að leggja
reikningana sem fyrst frarn og það
hafi verið gert fyrir kosningamar
1990 og 1994.
Tvímenningamir óskuðu þá eftir
að bóka að aldrei í sögu Vest-
mannaeyjabæjar hafi reikningar
verið lagðir fram í bæjarráði fyrr en
þeir væru tilbúnir.
Við þessa bókun þakkaði Ragnar
fróðlegar upplýsingar og fór fram á
í einni bókun til viðbótar að
bæjarstjóm tæki á sig rögg og legði
af dráttinn.
Annar í fermingu á sunnudaginn
Annar í fermingum á þessu vori er á sunnudaginn þegar 28 börn verða
fermd í Landakirkju
í messu klukkan ellefu fermast Dóra Dúna Sighvatsdóttir Brekkugötu 11,
Garðar Heiðar Eyjólfsson Hrauntúni 59. Birgir Magnússon Búhantri 52, Gísli
Steinar Jónsson Birkihlíð 14, Viktor Smári Kristjánsson Miðstræti 14,
Ástvaldur Helgi Gylfason Brekastíg 24, Birgit Ósk Baldursdóttir Brimhólabraut
32, Hanna Guðný Guðmundsdóttir Áshamri 57. Bjartey Hermannsdóttir
Hásteinsvegi 32, Sindri Haraldsson Höfðavegi 59, Hildur Jóhannsdóttir
Austurvegi 2, Grettir Heimisson Dverghamri 34, Sigurður Ámi Tryggvason
Dverghamri 19 og Guðrún Ósk Sigurjónsdóttir Miðstræti 16.
í messunni klukkan 14:00 fennast íris Elíasdóttir Vestmannabraut 57. Marý
Njálsdóttir Miðstræti 9a. Ema Dögg Sigurjónsdóttir Illugagötu 55, Sigurlaug
Aðalsteinsdóttir Fjólugötu 17, Elva Dögg Jónsdóttir Foldahrauni 42f, Friðrik
Guðmundsson Goðahrauni 24. Kristjana Ingibergsdóttir Höfðavegi 45, Sólveig
Jónsdóttir Illugagötu 19. Hörður Snær Pétursson Vestmannabraut 72. Heiða
Rós Ólafsdóttir Foldahrauni 41 d, Aníta Ýr Eyþórsdóttir Hólagötu 38. Aron
Ingvar Stígsson Kirkjuvegi 39 og Sigurður Freyr Pétursson Búhamri 12.
Á myndunum em fermingarbömin með prestunum, Jónu Hrönn Bolladóttur
og Bjama Karlssyni.
FRETTIR
Utgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson.
Iþróttir: Rútur Snorrason. Abyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-1293.
Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum Friðarhöfn. Tvistinum, Amigo, Kránni, Vöruval, Herjólfi,
Flugyallarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. I Reykjavík: hjá Esso Stóragerði og í Flugteríunni á Reykjavíkurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum
FRETTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.