Fréttir - Eyjafréttir - 30.04.1998, Page 15
Fimmtudagur30. aprfl 1998
Fréttir
15
Skólamálaráð samþykkir breytingar á leikskólunum:
Sveigjanlegur vistunartími
meðal þess sem koma skal
Nýr tími á sumarlokunum og tekin upp aldursskipting deilda
Á fundi skólumálaráös í síðustu
viku voru kynntar hugmyndir um
breytingar á leikskólunum sem
taka eiga gildi í sumar og haust. Um
er að ræða suniarleyfislokanir,
aldursskiptingu deilda á Sóla og
Kirkjugerði og sveigjanlegan
vistunartíma.
í skoðanakönnun meðal foreldra
bama á leikskólum um tíma til sumar-
leyfislokunar kom fram mestur áhugi
fyrir tímabilinu 15. júlf til 15. ágúst.
Ellý Gunnlaugsdóttir, leikskólakenn-
ari á Kirkjugerði og fulltrúi í skóla-
málaráði, segir að fallist hafi verið á
að loka leikskólunum á þessu tímabili
en tímanum þó hnikað til þannig að
upphaf og lok beri upp á helgi.
„Samkvæmt því hefst sumarlokun
allra leikskólanna mánudaginn 20. júlí
og verða þeir opnaðir aftur
mánudaginn 23. ágúst,“ segir Ellý.
„Komi fram vilji foreldra um að einn
leikskóli verði opinn á þessu tímabili,
verður það skoðað seinna í sumar.“
Á fundinum var einnig samþykkt
að taka upp aldursskiptingu deilda
sem nær til Kirkjugerðis og Sóla. „Á
þessum tveimur leikskólum er
deildunum ekki skipt upp eftir aldri en
ætlunin er að taka upp aldursskiptingu
í haust. Á leikskólunum eru tveggja til
sex ára börn og verður skipt upp í
deildir við fjögurra ára aldur. Nánari
útfærsla verður unnin í hveijum skóla
fyrir sig og verður hún kynnt
foreldrum," segir Ellý.
Jafnframt þessu samþykkti
bæjarráð að á Sóla verði að öllu jöfnu
ekki innrituð yngri en þriggja ára
böm.
Þá samþykkti ráðið að reynt verði
að mæta eftirspum eftir öðrum
möguleikum á vistunartíma á
leikskólunum. Skólaskrifstofu var
falið í samráði við leikskólastjóra að
leggja fram áætlun um hvemig unnt
verði að taka þetta upp á hverjum
leikskóla frá og með 1. september nk.
Jafnframt verði raunveruleg þörf
könnuð og hún ásamt kostnaðaráætlun
verði lögð fyrir fyrsta fund ráðsins í
maí.
Að sitja i sópunni
Það var vel til fundið hjá þeim sjálf-
stæðismönnum að hafa hringborðs-
umræður um miðbæinn sl. laugardag.
Málefni miðbæjarins eru nefnilega
lýsandi dæmi um vinnubrögð sjálf-
stæðismanna í hinum ýmsu mála-
flokkum sl. átta ár.
Ekkert - nákvæmlega ekkert - hefur
verið gert í málefnum miðbæjarins í
tvö heil kjörtímabil, eða eins og
Ársæll Sveinsson orðaði það á
ofangreindum fundi: „Þetta er auðn,
þetta er hörmung,“ og er það í
samræmi við afskipta- og fram-
kvæmdastefnu þeirra sjálfstæðis-
manna.
Ekkert gert. og þó! Ævintýramaður
að norðan varfenginn til að setja fram
„hugmyndir" um miðbæinn og fékk
greiddar háar fjárhæðir fyrir. Að
einungis örfáir útvaldir hafa barið
þessar „hugmyndir“ augum og að
ævintýramaðurinn fór til Kína að opna
lakknsverksmiðju um svipað leyti
með fríðu föruneyti. þar á meðal
ónefndum þingmanni, er sjálfsagt
einskærtilviljun.
Einkaframtak núverandi bæjarstjóra
gagnvart miðbænum felst síðan í þvf
sem ekki er hægt að kalla annað en
umhverfisskemmdarverk. Við fjöl-
fömustu umferðargötu blasir við allt í
senn: ömurleg sjónmengun, leiðinda
hávaðamengun og svo óþefur af alls
konar lökkum, þynni og öðrum
eiturefnum. Ég fullyrði að hvergi í
heiminum yrði slíkt liðið nema í
Vestmannaeyjum, þar sem þó er talað
um að gera átak í ferðamálum!
Þannig má segja að í stefnu þeirra
sjálfstæðismanna, gagnvart miðbæn-
um kristallist þrjú aðalstefnumið
núverandi meirihluta: í fyrsta lagi
afskipta- og framkvæmdaleysi, í öðru
lagi kunningjapólitík á kostnað
bæjarbúa og Ioks grímulaus einka-
hagsmunagæsla í blóra við velferð
íbúanna. Og síðan eru þessir sömu
menn steinhissa á fólksflótta úr
bænum!
Ég tel hinsvegar tímabært sé að
spúla dekkið og gefa þessum
súpugutlurum frí, a.m.k. næstu ljögur
árin, þannig að þeir geti orðið sér úti
um nýjar og ferskari uppskriftir.
Jón Hauksson.
Höfundur býr í miðbœnum.
Orlofshús á sér-
stöku Eyjatilboði
Á síðasta ári hóf fyrirtækið Rang-
árflúðir rekstur á sex orlofshúsum
sem staðsett eru á bökkum Ytri-
Rangár. Alls er rúm fyrir 30 manns í
húsunum auk þess sem á staðnum er
baðhús með gufubaði og búnings-
klefum fyrir karla og konur.
Húsin rúma frá þremur upp í sjö
gesti í tveggja til þriggja manna
herbergjum. I þeim eru uppábúin
rúm, setustofa, sjónvarp, eldhús með
öllum búnaði, sólpallur, útigrill og
salemi með sturtu.
Umhverfi húsanna er sérlega
fallegt og kyrrlátt á bökkum Ytri-
Rangár um tvo km frá Hellu. Hið
rómaða mótssvæði sunnlenskra
hestmanna á Gaddstaðaflötum blasir
við handan árinnar. Bústaðirnir eru
vel staðsettir miðsvæðis á Suður-
landi og stutt í allar helstu nátt-
úruperlur svæðisins. Héðan er hægt
að ferðast vítt og breitt um Suður-
land á dagsstund.
Á Hellu er alla almenna þjónustu
að finna, s.s. verslun. banka, pósthús,
sundlaug og ýmis þjónustufyrirtæki.
Lax- og silungsveiði er í Ytri-Rangá
og víðar í nágrenninu. Átján holu
golfvöllur er á Strönd í níu km
fjarlægð og hyggjumst við brydda
upp á þeirri nýjung að bjóða ókeypis
vallargjöld með tveimur húsanna ef
gist er a.m.k. í tvær nætur. Frá
Helluflugvelli er liægt að fljúga til
Vestmannaeyja og þægilegar
gönguferðir eru unt nágrennið, t.d.
að Ægissíðufossi og hinum fornu
Ægissíðuhellum sem taldir eru vera
gerðir af írskum munkum fyrir
kristnitöku.
Fyrirhugaðar breytingar í sumar
eru að koma upp heitum potti í
baðhúsið og leiktækjum fyrir bömin
ásamt því að gróðursetja og hlúa að
nánasta umhverfi húsanna.
Núna erum við með sérstök tilboð
til kynningar á fyrirtækinu og er
hægt að fá upplýsingar í s. 487-5165
eða 895-6915.
Fréttatilkynning.
Smáey VE lengd um
þrjá metra á Seyðisfirði
Tíu tilboð bárust í þriggja metra
lengingu á Smáey VE sem Bergur-
Huginn gerir út. Helmingur
tilboðanna kom erlendis frá en það
var Vélsmiðjan Stál á Seyðisfirði
sem átti lægsta tilboðið.
„Við gemm ráð fyrir að Smáey fari
austur í byrjun september nk. og á
verkið að taka um sex vikur,“ segir
Magnús Kristinsson framkvæmda-
stjóri Bergs-Hugins. „Smáey er rétt
tæpir 29 metrar en verður tæplega 32
eftir lenginguna. Lestunum verður
einnig breytt þannig að hægt verður
að setja allan fisk í kör. Það bætir
meðferð aflans og á að tryggja hærra
afurðaverð. Með því teljum við að
kostnaður við breytingarnar muni
skila sér á skömmum tíma.“
Smáey mun eftir sem áður hat'a rétt
til veiða allt að þremur mflum frá
landi eftir breytingamar.
X-Bæjarstjórnarkosningarnar - Ragnar Óskarsson á V-lista
Fjármálastjórnin hefur brugðist
Hvimleitt
Það hefur alltaf verið að aukast
að ólíkustu fyrirtæki styrki hvers
konar starfsemi. Ekki á það síst
við um íþróttir og menningar-
dagskrá af ýmsu tagi.
Á sumardaginn fyrsta var haldin
mikil og skemmtileg dagskrá í
íþróttamiðstöðinni. Athygli vakti
upptalningaruna kynnisins á þeim
tjölda fyrirtækja sem lögðu hátíð-
inni lið á einhvem hátt. Ekki þótti
það duga að því er virtist því ítreka
þurfti hluta þessara styrktaraðila að
minnsta kosti einu sinni í miðri
dagskránni og svo í lok hennar.
Þótti fólki þetta hvimleitt og óvíst
hvert erindi slík romsa á við þann
bamafjölda sem saman var kominn
á hátíðinni og var í miklum
meirihluta. Þótti auglýsingaskörin
vera farin að færast all verulega upp
á siðferðisbekkinn, þrátt fyrir það
ágæta hugarfar sem liggur að baki
hjá fyrirtækjum sem leggja góðum
og gildum málefnum lið. Töldu
menn að hófleg kynning styrktar-
aðila skilaði betri og meiri árangri
þeirra.
Þegar sjálfstæðis-
menn komust til
valda í bæjarstjóm
Vestmannaeyja
fyrir tæpum átta
árum gáfu þeir
fögur fyrirheit um
ábyrga og örugga
fjármálastjóm. Nú skyldi koma í Ijós
hverja yfirburði þeir hefðu á sviði
tjármála, í áætlanagerð og þar fram
eftir götum.
Vafasöm fyrirheit
Snemma kom þó í ljós að fyrirheitin
var erfitt að standa við og mjög stóð á
árangri í þeim efnum. Skuldirnar
héldu áfram að aukast og er nú svo
komið að skuldastaða bæjarfélagsins
er komin á alvarlegt stig. Nú nema
skuldimar um 2.000.000.000, tveimur
milljörðum króna, en það jafngildir að
hver fjögurra manna fjölskylda
skuldar hart nær 2 milljónum. Þannig
hafa fyrirheitin tekið á sig þveröfuga
mynd en sanna á sama hátt að ábyrgð
og öryggi sjálfstæðismanna í fjármál-
um er vafasamt fyrirbæri.
Onákvæmar áætlanir
Fjölmargar meiriháttar framkvæmdir
hafa farið langt fram úr þeim fjár-
hagsáætlunum sem meirihluti sjálf-
stæðismanna hefur gert. í þessu
sambandi má nefna framkvæmdir við
Listaskólann, Bæjarveituhúsið, Lóðs-
inn og Sorpu. Þar eru framkvæmdir
tugum ef ekki hundruðum milljóna
dýrari en áætlað var. Hér er ekki verið
að efast um nauðsyn þessara verkefni
heldur þann þátt að sjálfstæðismenn
virðast ekki geta gert nákvæmari
áætlanir er dæmin sýna. Allt slíkt
hlýtur að vera bænum dýrkeypt í
meira lagi.
Milljónirnar ofgreiddu
Ekki alls fyrir löngu kom í Ijós að
ríkissjóður hefði ofgreitt Vestmanna-
eyjabæ um eitt hundrað milljónir
vegna skila á fé ríkisins til sveit-
arfélagsins. Þessar ofgreiðslur fóru
með öllu framhjá fjármálastjóm sjálf-
stæðismanna og verður það að sæta
furðu þar sem ekki er um neinar
smáupphæðir að ræða eða tæpar tvær
milljónir á hverri einustu viku miðað
við heilt ár.
Hvað líður reikningunum
Mikill dráttur hefur orðið á því að
leggja fram reikninga bæjarfélagsins
fyrir árið 1997. Þess má geta hér að á
kosningaárinu 1990 vom reikningamir
lagðir fram 22. mars og á kosn-
ingaárinu 1994 voru þeir lagðir fram
hinn 21. mars. Nú er maí að heilsa og
enn eru reikningamir óafgreiddir.
Hvers vegna skyldi þetta vera svo?
Skyldu vera einhverjar óþægilegar
tölur í reikningunum, svo óþægilegar
að ekki megi þær líta dagsljósið fyrr
en í lengstu lög? Allt á það eftir að
koma í ljós en mér býður í grun að hér
sé á ferðinni ein enn sönnun þess hve
illa sjálfstæðismenn hafa staðið sig í
tjármálastjórn bæjarfélagsins þau ár
sem þeir hafa setið að völdum.
Tími til að breyta
23. maí verður gengið til kosninga. Þá
er sannarlega tími til að segja upp
fjármálastjóm sjálfstæðismanna. Þá er
tími til að velja til stjórnar bæjarins
fólk sem vill fara nýjar leiðir í stjóm
bæjarfélagsins, einnig í stjórn
fjármálanna. 23. maí er tími til að
breyta frá stöðnun til framfara í
Vestmannaeyjum.
Ragnar Oskarsson.
Höfimdur skipar 2. sœti á V-lista.