Fréttir - Eyjafréttir - 30.04.1998, Síða 16
16
Fréttir
Fimmtudagur 30. aprfl 1998
Sumarið heilsa
Sumardagurinn fyrsti var haldinn hátíðlegur á fimmtudaginn í
blíðskaparveðri en þó sólarlausu. Veg og vanda af dagskránni
höfðu Félagið Þroskahjálp og Skátafélagið Faxi Mikill fjöldi fólks
safnaðist saman fyrir ofan Stakkagerðistúnið, þaðan sem skrúð-
ganga lagði af stað með skáta í broddi fylkingar ásamt Lúðrasveit
Vestmannaeyja. Mikil og góð stemmning var í göngunni og greini-
legt að sumarið er handan við hornið.
Skrúðgangan hélt svo sem leið lá upp í íþróttamiðstöð þar sem flutt
voru skemmtiatriði við góðar undirtektir gesta. Meðal skemmtiatriða voru
fimleikasýning fimleikafélagsins Ránar, dansatriði frá stelpum úr
Barnaskólanum og eróbiksýning frá Hressó. Tilhlýðilegt þótti að fá fram-
bjóðendur þeirra lista sem hafa boðið sig fram til sveitar-
stjórnarkosninganna i vor og sprella svolítið með þeim. Meðal annars
tókust þeir á í sjómanni, þríhjólakeppni, pallapuði auk þess sem
karlkandidatar listanna tóku nokkrar „pósuh1 með Smára Harðarsyni. Allir
skemmtu sér hið besta, þrátt fyrir hina pólitísku skophlið sem var á
sumum skemmtiatriðunum. Félagið Þroskahjálp var einnig með köku-
og blómasölu í anddyri íþróttamiðstöðvarinnar og Skátafélagið Faxi var
með kaffisölu í félagsheimili sínu til styrktar starfseminni.
Frambjóðendurnir Björn Elíasson, Drífa Kristjánsdóttir
og Guðjón Hjörleifsson sýndu listir sínar uið góðar
undirtektir áhorfenda.
Góð þátttaka uar í skrúðgöngunni.
X-Bæjarstjórnarkosningarnar -Lára Skæringsdóftir á V-lista
Búum okkur snyrtilegri eyju
-Sjálfstæðisflokkurinn er steinsofandi í umhverfismálum
Eldhresst
skemmti-
kuöld hjá
Eldhressum
Gleðilegt sumar.
Nú þegar sumarið
er gengið í garð og
náttúran að vakna
til lífsins, blæs
Vestmannaeyja-
listinn til sóknar
fyrir bæjarstjórn-
arkosningamar 23.
maí nk. Meðal þess sem Vest-
mannaeyjalistinn setur á oddinn í
kosningabaráttu sinni eru UM-
HVERFISMÁL sem hangir auðvitað
á sömu spýtu og ferðamál.
Fyrir skömmu fóru frambjóðendur
Vestmannaeyjalistans f vinnuferð um
okkar fallegu eyju vegna málefna-
vinnu í umhverfismálum. Það var
samdóma álit frambjóðenda Vest-
mannaeyjalistans að okkar helsta
aðdráltarafl í ferðamannabransanum
síðastliðinn 25 ár, nýja hraunið, sé að
breytast í stóran ruslahaug ef ekkert
verður að gert. Sjálfstæðisflokkurinn
hefur nefnilega gjörsamlega sofíð á
verðinum í umhverfismálum. Ut-
sýnispallurinn á Eldfelli, þar sem
ferðamenn eiga væntanlega að sjá
nýja hraunið, ósnortna náttúm, sjá þeir
í staðinn sorpeyðingarstöð, spýtur,
járnadrasl og rusl. Við göngu- og
hjólreiðastíga fyrir neðan Sorpu er
sama sagan, msl og aftur msl og
jafnvel heilu tölvuhræin á víð og dreif.
Inni á gamla hitaveitusvæðinu er
búið að sturta múrbroti og spýtnadrasli
ásamt fleim í hauga hingað og þangað
og stingur ákaflega illa í augun. Ef
okkur er alvara með að vilja fá fleiri
ferðamenn til Eyja verður að hagræða
hlutunum þannig að draslið blasi ekki
við á helstu útsýnisstöðum. Að mínu
mæti ætti helst að friðlýsa það land
sem ósnortið er enn á nýja hrauninu
því það er búið að ganga ansi nærri
því.
Þá er ástandið fyrir utan Þrælaeiði í
skolpmálum okkar ekki nógu gott og
þyrfti að taka þessi mál föstum tökum.
Stefna núverandi meirihluta er nú
reyndar að lengja skólplögnina um 20
m á meðan hún er lengd um 4 km í
Reykjavík. En það er náttúrulega ekki
við öðru að búast þegar holræsa-
gjaldinu er eytt í rekstur bæjarins eins
og ílialdið gerir í Eyjum á sama tíma
og holræsagjaldið hjá Reykjavíkur-
listanum fer í umhverfisvænar fram-
kvæmdir. Að þeim loknum ætlar
Reykjavíkurlistinn að lækka holræsa-
gjaldið.
Að vakna til lífsins
Sprangan er einnig staður sem er mjög
vinsæll viðkomustaður hjá ferða-
mönnum enda á sprang að heita
gömul þjóðaríþrótt okkar Eyjamanna.
Og þeir sem hafa gaman af gömlu
ryðguðu drasli, sem er í námunni við
Sprönguna, fá auðvitað eitthvað fyrir
sinn snúð. En ég hygg að flestir eru
sammála mér að gamla ryðgaða
draslinu í námunda við Sprönguna,
þyrfti að koma þaðan í burtu sem
fyrst.
Væri ekki nær að laga til og skapa
notalegan stað fyrir fjölskylduna og
útivistarfólk. Leyfa unga fólkinu
kannski að spreyta sig og taka þátt í
skemmtilegu verkefni og skapa því
atvinnu um leið. Það má til dæmis
breyta ryðgaða og ljóta vatnstankinum
í eitthvað skemmtilegt, til dæmis
mætti skrá á hann sögu vatns í
Vestmannaeyjum.
Herjólfsdalur er önnur náttúruperla
sem nýta mætti betur sem
útivistarsvæði. Tjömin er vægast sagt
drullug. Þama fara ferðamenn um í
hundraða tali og það hlýtur að vera
lágmarks kurteisi að tjömin sé hreins-
uð á vorin en ekki bara rétt fyrir
þjóðhátíð. Þetta sýnir okkur enn og
aftur hversu steinsofandi Sjálfstæðis-
flokkurinn er í umhverfismálum. Það
virðist bara ekki koma þessum
einræðishermm við að okkur stendur
ekki á sama hvemig farið er með
umhverfi okkar.
Eyjan okkar er náttúruperla sem við
eigum öll og okkur ber skylda til að
hugsa sem best um hana. Með breyttu
hugarfari Vestmannaeyjalistans getum
við ekki bara fegrað umhverfi okkar
heldur einnig laðað til okkar
ferðamenn í auknum mæli. Það ætti
um leið að bæta atvinnuástandið í
bænum.
Framtíðin er okkar. Leggjum lín-
umar fyrir framtíðina og höfum kjark
til að breyta. Bjartar vonir vakna með
X - V þann 23. maf nk.
Lára Skæringsdóttir
Höfundur skipar 4. sætið á V-lista
Klúbburinn Eldhress var með
skemmtikvöld í Safnaðarheimili
Landakirkju miðvikudaginn 22.
aprfl. Margt var sér til gamans
gert á skemmtuninni, jafnt í söng,
hljóðfæraslætti og leikjum.
Foreldrar, ættingjar og vinir mættu
á skemmtunina og tóku að sjálfsögðu
virkan þátt í leikjum og söng. Stjóm-
andi ásamt eldhressum félagsmönn-
um var séra Bjami Karlsson og hans
skelegga frú. séra Jóna Hrönn, og lék
hann við hvum sinn fingur í
spaugleikjum og léttum hrekkjum.
Var góður rómur gerður að geimflugi,
flöskutipli og frúnni í Hamborg sem
mætti galvösk og meinaði fólki að
segjajá og nei, og svart og hvítt. Að
því loknu vom bomar fram veitingar
ásamt meðlæti sem bráðnaði í munni
og gestir gerðu góð skil.
Hér er hópurinn ásamt Maríu
Gunnarsdóttur og Bjama Karlssyni
presti. Frá vinstri: Marfa, Bjami,
Fimmbogi Gunnarsson, formaður,
Þóra Magnúsdóttir, Ylfa Óladóttir,
Hulda Ólafsdóttir, Júlíana Haralds-
dóttir og fyrir framan hana situr
Guðríður Haraldsdóttir.