Fréttir - Eyjafréttir - 21.05.1998, Qupperneq 12
12
Fréttir
Fimmtudagur 21. maí 1998
udagur 21. apríl 1998
Fréttir
13
Bjartar vonir vakna í betri bæ
-Fréttir kíkja á stefnuskrár listanna sem bjóða fram í kosningunum á laugardaginn
Það fer ekki fram hjá
nokkmm manni að fyrir
dyrum standa bæjar-
stjórnarkosningar. A
þessari stundu er ó-
mögulegt að spá um
hvernig fer en val-
kostirnir hafa aldrei
verið eins kristaltærir í
Eyjum, aðeins tveir
listar í boði. D-listi
Sjálfstæðisflokks stend-
ur á gömlum merg í
pólitíkinni í Eyjum en
hinn valkosturinn, V-
listi Bæjarmálafélags
Vestmannaeyjalistans,
sem fyrst kom fram í
kosningunum 1994, er
að ná að festa sig í sessi.
í kosningunum 1994
vom það Alþýðubanda-
lag, Alþýðuflokkur og
Framsókn sem stóðu að
Vestmannaeyj al i stanum
en nú hafa óháðir bæst í
hópinn og stofnað hefur
verið Bæjarmálafélag
Vestmannaeyj al i stans.
Gæti félagið skipað
svipaðan sess á vinstri
vængnum og fulltrúaráð
sjálfstæðisfélaganna.
Fréttir hafa gluggað í
stefnuskrár beggja fram-
boðanna til glöggvunar
fyrir kjósendur. Báðar
lýsa þær vilja til góðra
verka og aðeins í
tveimur málum má
segja að línur skarist;
annars vegar hvað
varðar bæjarstjóra og
hins vegar um að leggja
fjármagn í atvinnu-
rekstur. Vestmannaeyja-
listinn telur eðlilegt að
það verði gert, tíma-
bundið en slíkt er
aðgjört eitur í beinum
sjálfstæðismanna.
Gerum
góðan
„í stefnuskránni koma fram á-
hersluatriði frantbjóðenda Sjálfstæðis-
flokksins næstu fjögur árin og þau mál
sem við munum helst beita okkur
fyrir. Við hvetjum þig til að lesa
stefnuskrána og kynna þér hana vel,“
segir í bæklingi sem sjálfstæðismenn
dreifðu urn helgina. Þar segjast þeir að
sjálfsögðu ntunu beita sér fyrir öllurn
góðum málurn sem koma upp á
kjörtímabilinu því að markmið þeirra
sé, eins og allra Vestmannaeyinga, að
stuðla að sem farsælustu og blóm-
legustu bæjarlífí hér.
Atvinnumál
í þessunt málaflokki segir að unnið
verði markvisst að því að skapa í
Eyjum störf fyrir ungt fólk að loknu
framhaldsnámi. Útgerðarfélag Vest-
mannaeyja segja þeir dæmi um
samstöðu um almenningshlutafélag,
sem hafði það að markmiði að auka
veiðiheimildir og fjölgun starfa en þar
hafi bæjaryfirvöld kornið að. Sjálf-
stæðismenn segjast munu halda áfram
á þessari braut en þvert ofan í áætlanir
Vestmannaeyjalistans, ætla þeir ekki
að leggja fé úr bæjarsjóði í fyrirtækin.
Góða stöðu atvinnumála segja
sjálfstæðismenn eitt brýnasta verkefni
á hverjum tíma og benda á að þar hafi
þeir lagt ýmislegt af mörkunt. Benda
þeir á lægstu útsvarsálögur á landinu
og segja að áfram verði lágar álögur
hjá bæjarsjóði og stofnunum hans. Þá
er Þróunarfélag Vestmannaeyja nefnt
til sögunnar og er því ætlað að leita
leiða til að efla fjölbreytni atvinnu-
lífsins og fjölga störfum í byggðar-
laginu.
Forsendu blómlegs atvinnulífs segja
sjálfstæðismenn vera að ytri skilyrði
séu hliðholl atvinnurekstrinum og án
öflugra fyrirtækja verði launafólki
ekki búið það atvinnuöryggi sem
tryggir eðlilega byggðaþróun í Vest-
mannaeyjum. Þeir vilja hlúa að vaxt-
arbroddum og nýsköpun í atvinnu-
lífinu á hverjunt tíma.
Eins kentur frant hjá þeim að efla
þurfi ferðaþjónustu í Vestmanna-
eyjum með það að markmiði að fjölga
komum ferðamanna og lengja dvöl
þeirra hér. Forsenda blómlegrar ferða-
þjónustu eru traustar samgöngur að
mati sjálfstæðismanna. Þá skal unnið
að ýmsunt atriðum sem tíunuduð eru
nákvæmlega.
Unnið verði gegn atvinnuleysi með
því að ráða fólk af atvinnuleysisskrá til
fyrirtækja sem stuðla að nýsköpun í
atvinnulífinu. Þá er vakin athygli á að
ný fyrirtæki sem hefja starfsemi í
Eyjum og eru ekki í samkeppni við
önnur fyrirtæki sem fyrir eru fái áfram
tímabundinn afslátt af gjaldskrám
bæjarstofnana.
Stuðlað verði að því að fyrirtæki í
sjávarútvegi vinni að fullnýtingu
sjávarafla í Eyjum. Efld verði vöru- og
markaðsþróun í tengslum við starf-
serni Rannsóknasetursins í Vest-
mannaeyjum.
Fjölskyldu- og félagsmál
„Vestmannaeyjar eru paradís barna-
fjölskyldna; uppeldisskilyrði og þjón-
usta er með því besta á landinu.
Fjölskyldan er hornsteinn samfélags-
ins, hún er uppspretta lífsgilda og
vettvangur tilfinningatengsla, því
leggjunt við áherslu á málefni hennar.
Byggð verði upp markviss fjölskyldu-
stefna sem taki tillit til mismunandi
þarfa hverrar kynslóðar," segir í
málaflokknum unt fjölskyldu- og
félagsmál. Þar er boðað að komið
verði á fót Fjölskyldustofnun Vest-
mannaeyja, áhersla verði lögð á heild-
stæða ráðgjafar- og sérfræðiþjónustu
unna á þverfaglegum grunni mismun-
andi starfsstétta.
Markvisst verði unnið að forvömum
varðandi áfengis- tóbaks- og vírnu-
efnaneyslu til að spoma við neyslu og
dreiftngu vímuefna. Komið verði á
samvinnu skóla, heilsugæslu og kirkju
um fræðslu fyrir ungt fólk um stofnun
heimilis og byggt upp markvisst
fræðslustarf fyrir foreldra.
Útivistaraðstaða foreldra og barna
verði bætt og efld með skipulögðu
útivistarsvæði fyrir fjölskylduna þar
sem athafnaþrá bamanna fær útrás.
Leikskólinn er fyrsta skólastigið.
Öllum bömum sem náð hafa tilskild-
unt aidri verði tryggt leikskólapláss.
Málefni fatlaðra
Sjálfstæðisflokkurinn segir að yfirtaka
bæjarins á ntálefnum fatlaðra hafi
verið framfaraspor og telja að fatlaðir
eigi að hafa meiri áhrif á eigin mál.
„Huga þarf sérstaklega að þörfum
einstaklinga með ýmsar sérþarfir og
jafna stöðu þeirra til virks félags- og
tómstundastarfs. Markvissa uppbygg-
ingu þarf í málefnum fatlaðra, og þá
sérstaklega fullorðinna, hvað mennta.
atvinnu- og búsetumál þeina varðar.
Brýn þörf er á úrbótum í aðgengis-
málum fatlaðra," segir m.a. um
þennan málaflokk.
Málefní aldraðra
Sjálfstæðismenn ætla áfram að vinna
að uppbyggingu aukinnar og breyttrar
heimaþjónustu. „Til að fyrirbyggja
einangrun við starfslok eða heilsubrest
þarf að konta á nýjum þjónustu-
úrræðunt eins og félagslegri liðveislu.
Dagvistun aldraðra verði efld enn
frekar og þeir virkjaðir til samstarfs í
eigin málefnum. Með skipulags-
breytingum á Hraunbúðunt hafa þær
verið efldar sem þjónustumiðstöð
aldraðra. Við munurn áfram vinna í
samstarfi við Félag eldri borgara að
málefnum þeirra," segja þeir.
Skólamál
Sjálfstæðismenn eru sáttir við stöðu
grunnskólanna sem þeir segja mjög
glæsilega og það starf sem þar fari
fram sé til mikillarfyrirmyndar. Þeir
segja að nýsamþykkt skólastefna, sem
nær yfir leikskóla, grunnskóla,
Framhaldsskólann. Listaskólann og
fullorðinsfræðslu, marki tímamót og
séu Vestmannaeyjar fyrsta sveitar-
félag á landinu sent samþykkir sant-
fellda skólastefnu.
Verkefni sem þeir nefna eru
framkvæmdir við grunnskólana og
einsetningu verði að fullu lokið á
tilskildum tíma, efling Framhalds-
skólans, m.a. með enn frekari fjölgun
menntaðra kennara og að lokið verði
samningum við ríkið urn byggingu
bóknámsálmu.
Þá vilja þeir auka kennslu á
sjávarútvegsbraut og hún verði efld og
jafnframt verði tryggt að nám í
stýrimanna- og vélstjómarfræðum
verði áfram í Vestmannaeyjum. Talið
er mikilvægt að starfsemi útibús
Háskólans í Eyjunt og annarra
stofnana Rannsóknasetursins tengist
Framhaldsskólanum enn frekar.
Stefnt verði að því að auka samstarf í
tölvukennslu rnilli grunnskóla,
Framhaldsskólans og Athafnavers og
að Listaskólinn verði efldur og boðið
upp á sem fjölbreyttast nám. Þá segir
að Vestmannaeyjabær sé bakhjarl
Athafnaversins og ntuni verða það
áfram.
Æskulyós-ogílirottamal
Sjálfstæðismenn segja nýja möguleika
hafa skapast við sameiningu Þórs og
Týs og brýn þörf sé á að nýta þau
tækifæri. Þeir minnast einnig á góðan
árangur Eyjamanna í íþróttum og
stuðla beri að því að svo verði áfram.
Á loforðalistanum er að finna
uppbyggingu íþróttamannvirkja og að
íjrróttamiðstöðin verði endurbyggð
skv. fyrirliggjandi teikningum. Æsku-
lýðsstarfsemi verði endurskipulögð og
efld í samráði við unglinga og áhugi
þeirra á fjölþættu og upp-byggjandi
tómstunda- og íþróttastarfi í samvinnu
við hin ýmsu félagasanttök og skóla
verði efldur. Leggja á áherslu á
forvamir gegn vímuefnanotkun með
þátttöku foreldra, íþróttafélaga og
annarra frjálsra félagasamtaka. Því er
lofað að aðstaða til félags- og
tómstundastarfa ungmenna verði
stórlega efld nreð nýjungum sem
mæta þeirra þörfum til samveru og
virkrar þátttöku í samfélaginu.
Unglingunt, sem hafa áhuga á að
stofna hljómsveitir eða stunda aðrar
músíktilraunir, verði sköpuð aðstaða.
Vestmannaeyjabær mun áfram styðja
Athafnaver ungs fólks.
Umhverfismál
„Umgangast þarf náttúm og auðlindir
í og við Vestmannaeyjar nteð
varfærnum hætti. Soipeyðingarmál í
Vestmannaeyjum eru til fyrirmyndar
og munu Vestmannaeyingar áfram
verða í forystu á því sviði,“ segir í
upphafi greinar unt þennan málaflokk.
„Brotajám og spilliefni sem til falla
verða flutt frá Eyjunt. Settar verði
skipulagsreglur um efnistöku á
Heimaey. Unnið verði með ein-
staklingum og félagasamtökum að
uppgræðslu sælureita á Eldfells-
hrauninu. Áfram verði unnið nteð
skipulögðunt hætti að uppgræðslu og
heftun vikurfoks og unnið gegn
uppblæstri. Með samstilltu átaki
bæjaryfirvalda og bæjarbúa verði
Vestmannaeyjabæ áfram haldið hrein-
urn og snyrtilegum.
Menningarmál
Á kjörtímabilinu verður tekin
ákvörðun urn framtíðaruppbyggingu
Náttúrugripa- og fiskasafnsins og
hugsanlega útvíkkun starfsemi þess,
segja sjálfstæðismenn sem stefna nt.a.
að því að koma á fót sjóminjasafni og
ljúka á útgáfu ömefnaskrár. Þeir boða
áframhaldandi góð samskipti við
félagasamtök sem sinna menningar-
málum og að undir forystu menning-
armálanefndar verði áfram farið í
skoðunarferðir á sögustaði í
Vestinannaeyjum. Endurbyggingu
Landlystar verði lokið á kjörtímabilinu
og unnið verði markvisst að viðhaldi
sögulegra minja í Eyjum.
Heilbrigðismál
Áfranthaldandi viðræður við Heil-
brigðisráðuneytið unt yfirtöku
bæjarins á heintahjúkrun aldraðra eru
boðaðar og að heimaþjónusta verði
samræmd og betur sniðin að þörfum
hvers og eins. Efla á öldrunarþjónusta
enn frekar og stefnt skal að því að
þjónusta Heilbrigðistofnunarinnar í
Vestmannaeyjum verði sem best og
fjölbreyttust, iðju- og sjúkraþjálfun
verði aukin enn frekar og aðstöðu
verði komið upp fyrir dýralækna til
þess að sinna dýralæknaþjónustu í
Vestmannaeyjum.
Efling miðbæjarins og
samgöngur
Sjálfstæðismenn sjá ástæðu til að hafa
sérstaka grein um miðbæinn sem á að
endurskipuleggja með eflingu og
framtíðarsýn í huga. og konta á upp
fjölskyldugarði á Stakagerðistúni.
Leiktækjum, bekkjum og borðum
verði komið þar fyrir og frágangi
gangstétta í miðbænum verði lokið á
kjörtímabilinu.
I samgöngumálum er athyglinni
beint að jarðgöngum eða annarri
vegtengingu milli lands og Eyja. Sjálf-
stæðismenn fagna líka lækkuðum
fargjöldum með Herjólfi og boða að
fljótlega verði boðin út stækkum
flugstöðvarinnar. Þungamiðjan er að
traustar samgöngur séu skilyrði efl-
ingar byggðar í Eyjum.
Ferðamáloghöfnin
„Bæjaryfirvöld ntunu beita sér fyrir
stofnun Ferðamálasamtaka Vest-
mannaeyja í samvinnu við hags-
munaaðila í ferðaþjónustu. Settur
verði á stofn vinnuhópur í samvinnu
við hagsmunaaðila í ferðaþjónustu
sem kannar og kynnir áhrif þess á
ferðaþjónustu ef vegtengingu (jarð-
eða flotgöngum) verður kornið á milli
lands og Eyja. Með varðveislu
sögulegra minja verði ýtt undirfrekari
möguleika í ferðaþjónustu. Nýir
möguleikar varðandi afþreyingu fyrir
ferðamenn verði kannaðir," segja
sjálfstæðismenn um þennan mála-
flokk.
Greinin um höfnina er heldur ekki
löng en þar er boðað að áfram verði
unnið að því að koma í veg fyrir að
Skansfjara þrengi meira að inn-
siglingunni. „Framkvæmdir við smá-
bátaaðstöðu eru vel á veg komnar.
Framkvæmdum við hana verði lokið á
kjörtímabilinu. Haldið verði áfram
uppbyggingu hafnarmannvirkja með
því að bæta núverandi hafnaraðstöðu
og stækka viðlegukanta eftir því sem
þörf krefur."
Orkumál
í orkumálum er lækkuðu orkuverði til
húshitunar fagnað og boðað að
viðræðum við iðnaðarráðuneytið unt
milliliðalaus raforkukaup Bæjarveitna
af Landsvirkjun, verði haldið áfram en
slfkt mun leiða til enn frekari
lækkunar orkuverðs. Frekari athuganir
verði gerðar á aukinni varmaorku-
framleiðslu í Sorpeyðingarstöðinni
með brennslu orkuríkra úrgangsefna
og kannaðir verði möguleikar á
nýtingu jarðvarma í framhaldi af
niðurstöðum rannsókna á borholu við
Skiphella.
Fjármál, yfirstjórn og
gjaldastefna
Að lokunt eru það fjármálin en þar er
boðað að álögur á einstaklinga og
fyrirtæki verði áfrant í lágmarki, öll
lán verði áfram í skilum og enginn
yfirdráttur á hlaupareikningi og áfram
verði skilvísar greiðslur til við-
skiptamanna. „Það er gæfa bæjar-
félagsins að atvinnurekstur í Vest-
mannaeyjum hefur verið í höndum
einstaklinga og fyrirtækja.
Vestmannaeyjabær hefur ekki veitt
bæjarábyrgðir og því ekki tapað pen-
ingum vegna ábyrgða. Mörg
sveitarfélög í landinu hafa tapað
tugum eða hundmðum milljóna vegna
bæjarábyrgða. Engar bæjarábyrgðir
verða veittar,“ segja sjálfstæðismenn,
sem ásamt því að bjóða fram bæjar-
stjóra, er það helsta sem skilur að
D-lista Sjálfstæðisflokksins og V-lista
Bæjarmálafélags Vestmannaeyjalist-
ans í kosningunum á laugardaginn en
að lokum boða sjálfstæðismenn að
með lágunt álögum og gjaldskrám
verði áfram stuðlað að eflingu
atvinnulífs í Vestmannaeyjum.
Bjartar
vakna
„Stefna Vestmannaeyjalistans byggir
á því að snúa vöm í sókn fyrir
Vestmannaeyjar með bjartsýni að
vopni, hverfa frá stöðnun til framfara.
Lýðræðislegir stjómarhættir, efling
atvinnulífs og fjölmargir aðrir þættir
eru forsenda þess að ná þeim
markmiðum. Vestmannaeyjalistinn
gengurtil bæjarstjórnarkosninga árið
1998 undir kjörorðinu „Bjartar vonir
vakna“ með eftirfarandi stefnumál að
leiðarljósi:
Þannig hljóðar upphafið að því sem
Vestmannaeyjalistinn kallar stefnulýs-
ingu sína. Helstu málaflokkar eru.
atvinnumál, umhverfis- og ferðamál,
skóla- og menningarmál, félags- og
heilbrigðismál, íþrótta- og æskulýðs-
mál og stjórn bæjarfélagsins. Þar
kemur fram góður vilji til góðra verka.
„Blómstrandi atvinnulíf er megin-
forsenda fyrir alhliða framfömm í
Vestmannaeyjum,“ segir í stefnulýs-
ingunni og Iögð áhersla á að
bæjaryfirvöld hafi þar tvímælalaust
skyldum að gegna.
Að öðru leyti er stefnulýsingin al-
mennt orðuð, stuðla á að fjölbreyttara
atvinnulífi með nýsköpun í sjávar-
útvegi, iðnaði og í þjónustugreinum.
Skapa þarf aðstæður fyrir fólk sem
leitað hefur sér menntunar til að geta
fengið störf við sitt hæfi f Vestmanna-
eyjum.
Þá vilja V-listamenn gera Vest-
mannaeyjahöfn að þjónustumiðstöð í
sjávarútvegi sem lætur kunnuglega í
eymm. Af sama meiði er vilji til að
efla Vestmannaeyjar sem miðstöð
rannsókna í sjávarútvegi og nátt-
úrufræði, þannig segja þeir að nýtist
og eflist sú þekking sem hér er fyrir í
Rannsóknasetri Vestmannaeyja.
Þá er komið að því atriði sem skilur
framboðslistana algjörlega að. Reynd-
ar eru menn sammála um að bæjar-
yfirvöld hafi frumkvæði að stofnun
almenningshlutafélaga á ýmsum
sviðum en Vestmannaeyjalistinn vill
leggja tímabundið fram fjármagn til
hlutabréfakaupa í því skyni sem er
algjört eitur í beinum sjálfstæðis-
manna.
Þeir vilja styrkja uppbyggingu
iðngarða og efla frumkvöðla til dáða í
atvinnulífinu, efla Þróunarfélag Vest-
mannaeyja, hvetja fjárfestingaraðila
innanbæjar sem utan til að taka þátt í
sókn í atvinnulífi Vestmannaeyinga,
auka fjölbreytni í störfum fyrir fólk
með skerta starfsorku og fá til
Vestmannaeyja þjónustu opinberra
stofnana.
Umhverfis-ogferðamál
Á sviði umhverfis- og ferðamála segir
Vestmannaeyjalistinn að stór verkefni
séu framundan og að umhverfismálin
skipi sífellt hærri sess í hugum fólks
og að ferðamál bjóði upp á ótæmandi
möguleika fyrir Vestmannaeyjar.
Stefna Vestmannaeyjalistans í
umhverfismálum er: Áð gera átak í
fráveitumálum, hreinsa strandlengju
Heimaeyjar og heimalandið, vemda
einstök svæði óspilltrar náttúru fyrir
komandi kynslóðir og gæta þess að
verklegar framkvæmdir taki mið af
náttúmvemdar- og minjasjónarmið-
um. I ferðamennsku vilja þeir m.a.
efla og stuðla að markvissri ferða-
mannaþjónustu með vísun til sérstöðu
Vestmannaeyja, stuðla að öflugri og
fjölbreyttri gistiaðstöðu, m.a. með
áherslu á sumarhúsabyggð og gera
Vestmannaeyjar að aðlaðandi
ráðstefnubæ. Þá vilja þeir byggja upp
fallegan og lifandi miðbæ t.d með því
að gera Stakkagerðistún að skipulögðu
útivistarsvæði fjölskyldunnar, skipu-
leggja Herjólfsdal og önnur sérstök
svæði sent útivistarsvæði fjölskyld-
unnar, að Ieita allra leiða tii að nýta þá
orkugjafa sem hér eru nýtanlegir og
stuðla að bættum samgöngum milli
lands og Eyja.
Skóla-og menningarmál
í þessum málaflokki er boðað að
öflugir skólar, metnaðarfull skóla-
stefna og lífleg menning séu nauð-
synlegir þættir í samfélagi sem stefnir
til framfara. I þessum málaflokkum er
stefna Vestmannaeyjalistans þessi: Að
fýlgjaframsækinni skólastefnu sem þó
er í stöðugri endurskoðun, tekinn
verði upp sveigjanlegur vistunartími á
leikskólum og sumarlokunum verði
hætt, hraðað verði einsetningu grunn-
skólanna og skóladagurinn lengdur.
Boðið verði upp á gæslu og skapandi
starf innan veggja skólanna í fram-
haldi af kennslu. Tónlistamám yngri
bama verði tengt samfelldum
skóladegi, kennarar á öllum skóla-
stigum verði hvattir og styrktir til
endurmenntunar bæði innanlands og
utan, framhaldsnám verði eflt og að
ungmenni geti stundað nám á sem
flestum sviðum í sinni heimabyggð og
sérstök áhersla verður lögð á endur-
reisn iðnnáms og nám tengt sjávar-
útvegi og vinnslu.
Og áfram er haldið og komist Vest-
mannaeyjalistinn til valda á að stórefla
tengsl foreldra og skóla og auka sam-
starf leik- grunn- og framhalds-
skólastigs, stórefla samvinnu þeirra
við tónlistar- og listmenntun svo og
samstarf skóla og félaga og auka
tengsl atvinnulífs og skóla.
Einnig á að gera veg safnanna í
Vestmannaeyjum sem mestan og
varðveita með þeim hætti mikilvæga
menningar- og atvinnusögu,
sérstaklega segja þeir að efla þurfi þá
sérstöðu sem Náttúrugripasafnið hefur
og styrkja tengsl þess við rannsókna-
stofnanir.
Félags- og heilbrígðismál
í þessum málaflokki segir að góð
félags- og heilbrigðisþjónusta sé lykill
að traustu og öruggu samfélagi. I
þessum málaflokkum er höfuðstefnan
að tryggja örugga þjónustu við sjúka,
öryrkja og aldraða, haft verði náið
samstarf við lífeyrisþega um hús-
næðismál þeirra, Hraunbúðir verði
efldar sem þjónustumiðstöð aldraðra,
gert verði heildarskipulag leiksvæða
fyrir böm í bænum og haft verði
skipulegt eftirlit með svæðunum, taka
upp virka jafnréttisstefnu, vinna
markvisst að uppbyggilegum for-
vömum gegn vímuefnum og að
Heilbrigðisstofnunin í Vestmanna-
eyjum fái aukið hlutverk með
fjölbreyttari og ötlugri þjónustu.
íþrótta-ogæskulýðsmál
í stefnulýsingunni segir að öflug
íþrótta- og æskulýðsstefna beri vott
um framsýni. Sú stefna stuðli að
jákvæðu lífsviðhorfi og sé mikilvægur
þáttur í að gera ungt fólk hæfara til
þátttöku í nútíma samfélagi.
Stefna Vestmannaeyjalistans í
þessum málum er að móta raunhæfa
stefnu um framtíðaruppbyggingu í-
þróttamannvirkja og hafa fullt samráð
við íþróttahreyfinguna þar um,
tryggja sem besta félagsaðstöðu fyrir
unglinga. Sérstaklega skal tekið á
aðstöðuleysi aldurshópsins 15-18 ára.
Setja á stofn nefnd ungs fólks til að
taka þátt í ákvörðunum um málefni sín
og skapa möguleika fyrir ungt fólk að
auka víðsýni sína með erlendum
samskiptum.
Stjórn bæjarfélagsins
Vestmannaeyjalistinn ætlar að breyta
stjóm bæjarfélagsins að loknum
kosningum fái hann til þess umboð Ifá
kjósendum, segir í stefnulýsingunni.
Teknir verða upp lýðræðislegir
stjómarhættir þar sem virtur er réttur
meiri- og minnihluta.
Þá er komið að öðru atriði sem
skilur framboðin að, það er hvemig
staðið er að ráðningu bæjarstjóra.
Sjálfstæðismenn tefla fram bæjar-
stjóraefni en í stefnulýsingu V-listans
segir að ráðinn verði bæjarstjóri allra
bæjarbúa, ekki einungis meirihluta
bæjarstjómar.
Þá segir að bæjaryfirvöld muni
sinna upplýsingaskyldu sinni við
bæjarbúa, teknir verða upp fastir
viðtalstímar bæjarfulltrúa þannig að
bæjarbúar eigi greiðari leið að
málefnum bæjarfélagsins. Gerbreytt
vinnubrögð verða tekin upp um
ákvarðanatöku þar sem nefndir og
stjómir verða gerðar virkari og
ábyrgari. leitað verður eftir skoðunum
bæjarbúa við þýðingarmiklar ákvarð-
anir og síðast en ekki síst þá verða
álögur á bæjarbúa og gjaldskrár
stofnana Vestmannaeyjar í lágmarki
komist Vestmannaeyjalistinn til valda.