Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 21.05.1998, Síða 15

Fréttir - Eyjafréttir - 21.05.1998, Síða 15
Fimmtudagur21. maí 1998 Fréttir 15 Leifur Ársælsson skrifar: Örugg bæjarstjórn undir forustu sjalfstæðismanna Það er ákaflega mikilvægt fyrir afl- mikla verstöð eins og Vest- mannaeyjar að reglusemi og fyrir- hyggja sé í stjóm bæjarfélagsins. Þetta eru þau atriði sem mér þykja vega þyngst hjá okkar bæjarstjóm og það er mikið lán Vestmannaeyja að undir forustu sjálfstæðismanna er allt undir kontrol eins og kallinn í brúnni myndi orða það. Athafnasemi bæjarins er mikil og stór hluti af tekjum bæjarsjóðs er fyrirfram bundinn ákveðnum verkefnum í sameiginlegu velferðar- og þjónustukeifi okkar og fjánnagn til framkvæmda verður síðan að markast af því sem eftir stendur og áhersla er lögð á í samræmi við vilja og óskir bæjarbúa. Allir eru þessir hlutir á réttri leið hjá okkur undir fomstu sjálfstæðismanna og Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri hefur verið sérlega laginn og lipur við að koma málum í rétt horf bæði hjá bænum sjálfum og einnig einstaklingum sem hafa leitað til hans. alveg sama hver hefur átt í hlut. Auðvitað er ekki alltaf hægt að leysa öll vandamál, en það skiptir miklu að menn fái þá aðstoð sem hver og einn getur veitt þegarilla stendur á. 011 fjármál bæjarins era nú í góðu formi, lán í skilum og innheimta ágæt og jafnframt hefur verið unnið að mörgum góðum málum. bæði í skólamálum og til dæmis hafnar- málum, veitumálum og orku. Það segir sig sjálft að bæjarfélag sem er með sitt á hreinu á mun betri aðgang og hagstæðari en ella að lána- stofnunum og lánastofnanir bjóða slíkum betri kjör og hagstæðari en öðrum sem búa við óreiðu eða upp- safnaðan óleystan vanda. Ég vil hvetja alla bæjarbúa til þess að standa vörð um öryggi í stjóm Vestmannaeyjabæjar og veita Sjálf- stæðisflokknum áfram brautargengi til þess að fara með stjóm bæjarins næstu fjögur árin. Það er ekki aðeins að sagan hafi sýnt okkur að við höfum náð mestum árangri í stóru og smáu undir forastu sjálfstæðismanna sem standa ávallt þétt saman um metnað fyrir hönd Vestmannaeyja, vænting-amar og leikgleði sjálfstæðismanna á líðandi stund hrífa fólk með og það kallar á jákvæða lund og bjartsýni. Höfundur er útgerðarmaður. X-Bæjarstjórnarkosningarnar -Georg Þ. Kr.istjánsson skrifar: Bæjarstjóri meiri- eða minnihluta Já, það á að kjósa um helgina. Þá verður kosið um þá fulltrúa sem koma til með að sitja við stjórn bæjarins næstu fjögur árin. Það hefur verið ótrúlega rólegt í kosn- ingabaráttunni og virðist áhugaleysi vera allsráðandi. Ekki veit ég hveiju er um að kenna, en ætli ástæðan sé sigurvissa í herbúðum beggja framboða? Nú er í fyrsta skipti val á milli tveggja lista, hægri og vinstri. Áhugaleysið sýnir að ekki veitir af einu framboði í viðbót, ÓHÁÐU FRAMBOÐI. Ekki er ætlun mín að blanda mér í dægurþrasið sem fylgir öllum kosn- ingaundirbúningi, en ég get ekki orða bundist varðandi allt tal um BÆJARSTJÓRA MEIRJHLUT ANS. Þann tíma sem ég hef verið bæjar- fulltrúi hef ég leitast við að vera samkvæmur sjálfum mér, hvort sem ég hef starfað í meiri- eða minnihluta bæjarstjómar. Ég hef ekki skipt um ham við að starfa sem óháður, eða í meiri- eða minnihluta sem bæjar- fulltrúi sjálfstæðisflokksins. Eins og allir vita fékk ég spark í rassinn frá fyrrverandi flokksfélögum mínum fyrir síðustu kosningar og fór því í sérframboð ásamt félögum mínum með þeim árangri að ég hef setið sem bæjarfulltrúi fyrir H-listann þetta kjörtímabil. SLAGORÐ OG ÁHERSLUR Auðvitað eru ýmiss konar meðöl og slagorð notuð í kosningaslagnum og allir ánægðir með sitt ágæti, hvað annað? Það sem rekur mig til að tjá mig núna er að mér finnst ómaklega vegið að bæjarstjóranum með því að kalla hann BÆJARSTJÓRA MEIRJ- HLUTANS. Það verður að segja hlutina eins og þeir eru. Hvað mig áhrærir sem MINNIHLUTAFULL- TRÚA íbæjarstjóm getég ekki annað en hrósað Guðjóni fyrir öll þau viðvik sem hann hefur leyst úr og unnið fyrir mig. Það hafa verið hin ýmsu mál og málefni sem ekki hafa farið hátt og hefur hann alltaf brugðist vel við og vil ég að hann njóti sannmælis. Hins vegar höfum við ekki alltaf verið sammála í þeim mörgu málum sem við höfum rætt, en það er bara eins og gengur og gerist. Við erum alla vega bæjarfulltrúar allra bæjarbúa, sama hvaða pólitískum flokki við tilheyram. Það hlýtur að vera akkur okkar allra að vinna að framgangi Eyjanna númer L2og3. Svo að lokum, er ekki orðið tímabært að breyta kosningalög- gjöfinni svo að vægi einstaklingsins vegi meira en flokksræðið minna? Höfundur er bœjarfulltriíi H-listans. X-Bæjarstjórnarkosningarnar - Guðjón Hjörleifsson á Iista Sjálfstæðisflokksins skrifar: Samstaða, jákvæðni og bjarisýni Næsta Iaugardag velja kjósendur stjómendur fyrir bæjarfélagið okkar næstu tjögur árin og því er mikilvægt að við sem búum hér nýtum okkur lýðræðislegan rétt að taka þátt í kosningunum. Orð og efndir Fyrir síðustu kosningar kynntu fram- bjóðendur Sjálfstæðisflokksins stefnu- skrá sína fyrir kjósendum. Flest mál stefnuskrárinnar hafa verið fram- kvæmd og nokkur eru í vinnslu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið við stjóm sl. 8 ár og kjósendur þekkja störf okkar sem höfum verið í trúnað- arstörfum fyrir bæjarfélag okkar. Við látum verkin tala og á þessum árum hefur uppbygging verið mikil og sú þjónusta sem boðið er upp á hér í Eyjum er ein sú besta á landinu. Um hvað snúast kosningarnar? Kosningamar snúast fyrst og fremst um það hvorum framboðslistanum kjósendur í Vestmannaeyjum treysta betur til þess að stjóma bæjarfélaginu okkar næstu fjögur árin. Þróunarfélag Vestmannaeyja Þróunarfélag Vestmannaeyja sem er eign bæjarsjóðs og stofnana hans, fer með atvinnu- og ferðamál í Eyjum. Ég hef gegnt stöðu stjómarformanns í Þróunarfélaginu og það era mörg spennandi mál framundan. Ef ein- göngu hluti af þeim málum gengur upp hjá okkur þá erum við svo sannarlega komnir á beinu brautina og framundan eru sóknarfæri sem við munum nýta okkur. V-listinn og áhættuféð Vestmannaeyjalistinn hefur það á stefnuskrá sinni að útsvarsgreiðslur okkar skattborgaranna verði notaðar í áhættufé til þess að koma að stofnun fyrirtækja. Það eiga ekki allir samt að fá styrk. heldur verður það pólitísk geðþóttaákvörðun þeirra V-lista manna sem ræðurferðinni. Slíkar hug- myndir stangast á við hugmyndir almennings um samkeppni og hlut- verk opinberra aðila í atvinnurekstri. Gott umhverfi Sjálfstæðismenn hafa haft það á stefnuskrá sinni að skapa hér gott umhverfi fyrir atvinnufyrirtæki í Vestmannaeyjum. Álögur eru mjög lágar hérna, við erum með lægstu útsvör á landinu, þjónustugjaldskrá er einnig lág, við eram einir með lægsta afla- og vörugjald og svona mætti lengi telja. Samstaða, jákvæðni og bjartsýni Við sem skipum framboðslistann höfum mikla trúa á því samfélagi sem við búum í hér í Vestmannaeyjum og ætlum okkur að halda áfram þeirri uppbygggingarstarfsemi sem hefur átt sér stað og höfum það sameiginlega markmið að gera góðan bæ enn betri, fáum við til þess umboð í næstu kosn- ingum. Við erum bjartsýn á framtíð okkar byggðarlags og það er ekki stíll okkar Eyjamanna að vera með svartsýni og sjá alltaf dökku hliðarnar á öllum málum. Það hefur oft reynt á sam- stöðu okkar og þegar á reynir þá hefur það sannast að það fara engir í „skóna okkar“ þegar á samstöðuna reynir. Eitt atkvæði getur ráðið úrslitum I kosningunum á laugardaginn eru mjög skýrir valkostir. Það era aðeins tveir framboðslistar í kjöri og því sigrar sá sem fær einu atkvæðinu meira. Ég vil því hvetja þig kjósandi góður til þess að taka afstöðu í þessum kosningum og nýta kosningaréttinn. Höfimdur skipar 4. sœti á lista Sjálfstceðisflokksins. Árni Johnsen alþingismaður skrifar: Megi laugardagurinn verða Eyjamönnum fll luhku Samstarfið við meirihluta bæjar- stjórnar á því kjörtímabili sem nú er að Ijúka hefur verið bæði skemmtilegt og árangursríkt og það hefur nýst Vestmannaeyjum mjög vel að sjálfstæðismenn fara með forustu bæði í landsmálum og bæjarmálum. Við höfum því getað margfaldað afl okkar sameiginlega í mörgurn baráttumálum og allt hefur það orðið til þess að styrkja stöðu Vestmannaeyja. Það er engin tilviljun að árangurinn blasir hvarvetna við, í vegamálum, hafnarmálum, skólamál- um, menningarmálum, flugvallar- málum, í- þróttamálum og lengi mætti telja stórt og smátt sem allt skiptirmáli. Það hefur reynst ákaflega nota- drjúgt fyrir Vestmannaeyjar hve samheldni hefur verið mikil í baráttu fyrir hinum fjölmörgu baráttumálum okkar. Auðvitað greinir okkur stund- um á í aðferðum og áherslum en það hefur aldrei tafið fyrir framgangi og árangri, því ágreiningnum eyðum við snarlega. Það skiptir öllu máli að við getum haldið áfram á sömu braut og fylgt eftir í því sem nú er í farvatninu, svo sem átak í endurbyggingu Vest- mannaeyjahafnar, endurbyggingu Flugstöðvarinnar, bæði stækkun og breytingar, áframhaldandi Iagfæringar á sjúkrahúsinu, átak í ferðaþjónustu og fullnaðarskoðun á möguleikum vegtengingar við fastalandið svo nokkuð sé nefnt.Ég held að það sé ekkert ofsagt þó maður segi sjálfúr frá að við sjálfstæðismennimir sem era í broddi fylkingar á vettvangi lands- málanna og bæjamiálanna höfum nýst Vestmannaeyjum vel og þeim hagsmunum sem þarf að sækja og verja fyrir íbúa Vestmannaeyja. í hverju einasta máli er það lykilatriði okkar að láta árangur sitja í fyrirrúmi. Samstarf okkar Guðjóns bæjarstjóra er mjög gott og það hefur létt róð- urinn. Ég hvet bæjarbúa til þess að tryggja áframhaldandi hlutverk hans sem bæjarstjóra og kjósa hinn sterka og litríka lista sjálfstæðismanna á laugardaginn kemur. Megi laugar- dagurinn verða til lukku. Höfimdur er alþingismaður. styðjum IBV hvetjum fólk til að mæta á völlinn augardaginn Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.