Fréttir - Eyjafréttir - 21.05.1998, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 21. maí 1998
Fréttir
17
töðinni
i^gluna í sumar
baráttunni. Einu sinni kom kona í
heimsókn til mfn sem er mjög næm.
Hún gekk um allt húsið og ég spurði
hana hvort hún fyndi eitthvað. Þá
sagði hún að hún fyndi fyrir stómm
þungum ljóshærðum manni. Það er
enginn annar en Jón Páll. Mér finnst
stundum að hann hafi bara rétt
skroppið til útlanda og sé væntanlegur
þá og þegar, eða að hann muni
hringja. Svo hef ég fengið skilaboð
frá honum af miðilsfundi þar sem
skilaboðin voru þau að viðkomandi
átti að hringja í mig og hvetja mig til
þess að halda áfram baráttunni. Ég
trúi á líf eftir dauðann og hallast að
því að maður fæðist aftur einu ári eftir
að maður deyr. Hins vegar er ég
ekkert sérstaklega kirkjurækin. Ég fer
kannski í kirkju ef eitthvað er um að
vera, gifting eða jarðarför, en annars
ekki. Þetta er samt ágætis stofnun og
ég hef ekkert út á hana að setja sem
slíka.“
Sigrún segist vera mjög
tilfinningarík og næm. „Það dugir
ekki einn vasaklútur ef ég horfi á
einhverja dramatíska mynd. Ég þarf
heilt handklæði til þess að hemja
táraflóðið. Hins vegar nennir
Hávarður ekki að horfa á svona
myndir. Þannig að ég verð að vera
ein í þessum dramatíska bíóheimi.“
Annars segir Sigrún að hún sé
ekkert svartsýn, heldur þvert á móti
bjartsýn. „Ég lít mjög björtum augum
til framtíðarinnar og sérstak-lega er ég
bjartsýn varðandi framtíð Bjarka
Steins og veit að hann mun ná góðri
heilsu."
.' v ; ■....
X-Bæjarstjórnarkosningarnar -Steinunn Jónatansdóttir a' Vestmannaeyjalista skrifar:
Eru heilbrígðismál okkar mál?
Heilbrigðisþjón-
ustan er miðstýrð
frá ráðuneyti heil-
brigðismála og
fjármála í höfuð-
borginni. Þar eru
ákvarðanir teknar
og fjármagninu
útdeilt. Sífellt er
verið að auka fjárveitingu til
sjúkrahúsanna á höfuðborgarsvæðinu
á kostnað landsbyggðarinnar.
Sterkar raddir eru uppi hjá ráða-
mönnum að á landsbyggðinni verði í
framtíðinni eingöngu starfræktar
heilsugæslustöðvar og öldrunar-
þjónusta. Hvað með bráðaþjónustu?
Hvað með fæðingar? Erum við sátt
við þessa stefnu? Svarið er nei, því við
teljum að öryggi í heilbrigðismálum sé
einn af þeim grunnþáttum sem skiptir
fólk máli þegar það velur sér fram-
tíðarbúsetu. Við búum við sérstöðu,
við búum á eyju og ekki alltaf hægt að
fara héðan þó líf sé í veði.
Hvernig getum við snúið þessari
þróun við?
Það þarf að standa vörð um að
heilbrigðisþjónusta okkar sé ekki
skorin niður. Það er hlutverk stjóm-
málamanna í okkar byggðalagi, bæði
þingmanna og sveitarstjómarmanna,
að leggja því málefni lið. Pólitískt
kjömir fulltrúar sitja í stjóm Heil-
brigðisstofnunarinnar, það fólk hefur
mikla ábyrgð gagnvart bæjarbúum.
Stjómun öldrunarþjónustunnar og
Heilbrigðisstofnunarinnar þarf að
vera á sömu hendi. Óhagræðing fylgir
því skipulagi sem nú ríkir og fjár-
munum er ekki nógu vel varið. Auka
þarf sérfræðiþjónustu á ýmsum
sviðum. Gera þarf skipulagsbreytingu
í hjúkrunarþjónustu, bæði stofnana-
og heimahjúkrun. Félagslegri heima-
þjónustu þarf að stjórna frá sama
kjama. Gera þarf miklar kröfur um að
stjómað sé af fagmennsku og ábyrgð,
bæði hvað varðar gæði þjónustunnar
og fjármálastjórnun. Stofna þarf
starfshóp heilbrigðisstétta þar sem
allar fagstéttir heilbrigðismála tilnefna
sinn fulltrúa. Þessi faghópur getur svo
lagt fram tillögur til sjúkrahússtjómar
um framtíðarskipulag, bæði hvað
varðar þjónustu og nýtingu húsnæðis.
Það er óþolandi að allar tilskipanir
komi „að sunnan" nauðsynlegt er að
snúa vöm í sókn, heimamenn verða að
láta til sín taka og krefjast róttækra
breytinga. Það er margt hægt ef viljinn
er fyrir hendi.
V-listinn vill að Heilbrigðistofnunin
fái aukið hlutverk með fjörbreyttari og
öflugri þjónustu. Ef þú ert á sama máli
settu þá x við V.
Höfundw skipar 9. Sceti á
Vestmannaeyjalistanum
X -Bæjarstjórnarkosningarnar -Aðalsteinn Sigurjónsson á lista sjálfstæðismanna skrifar:
Styðjum Sjálfstæðisflokkinn til
áframhaldandi góðra verka
Þegar við göngum
til kosninga þurfa
kjósendur að meta
þá valkosti sem í
boði em. Að þessu
sinni em valkostir
kjósenda aðeins
tveir og ég tel að
þeir séu óvenju-
lega skýrir.
Hvorum treystið þið?
Kosningar hljóta að snúast um það
hverjum kjósendur treysta best til að
stjóma bænum næstu fjögur árin. D-
listinn hefur á að skipa mjög hæfu
fólki sem hefur fjölbreytta reynslu og
er albúið að takast á við það krefjandi
verkefni að stýra málefnum bæjarins
vel.
Jákvæðni
Þegar Vestmannaeyingar fjalla um
mál líðandi stundar er mjög mikilvægt
að fjalla um þau með jákvæðum hætti
og vera með jákvæðar lausnir. Það
færir engum neitt að finna öllu alltaf
allt til foráttu og finna að öllu sem gert
er en koma ekki með neinar lausnir
sem horfa til bóta og framfara.
Sjálfstæðismenn hafa fyrir þessar
kosningar sagt frá hvað þeir hafa gert
og ætla að gera á næsta kjörtímabili.
Sjálfstæðismenn vilja nálgast málefni
bæjarins með jákvæðum hætti og
byggja upp en ekki brjóta niður og
finna að öllu.
Bærinn er fyrirtæki okkar allra
Bæjarsjóður og stofnanir hans velta á
ári 1260 milljónum. Það þarf að taka
margar ákvarðanir í svo
umfangsmiklum rekstri, hvemig
hlutum er komið fyrir og hvaða
ráðstafanir eru gerðar. Eignir bæjarins
eru miklar og því skiptir máli að
bæjarbúar geti treyst því að vel sé
haldið á í fjármálum.
Góð fjármálastjórn
Ég tel að fjármálastjóm Vestmanna-
eyjabæjar undir stjóm Guðjóns
Hjörleifssonar hafi verið rnjög farsæl
undanfarin ár og Vestmannaeyjabær
nýmr mikils trausts á lánamarkaðnum.
Slíkt traust hefur myndast vegna þess
að öll lán hafa verið höfð í skilum og
gætt aðhalds í rekstri og fram-
kvæmdum. Vextir hafa farið lækkandi
undanfarin ár og það hefur hjálpað
Vestmannaeyjabæ verulega.
Ég get því óhræddur mælt með því
við Vestmannaeyinga að þeir velji D-
listann á laugardaginn því þannig er
vel séð fyrir málum bæjarins.
X-D fyrir trausta stjórn
Vestmannaeyjabæjar.
Höfundur skipar 8. sœti á D-lista.
• , • ' i • n • v r • ' i • . • ' 11 i \ • i . p
'jarstjornarkosningarnar -Sigurour fcinarsson a lista sjaltstæoismanna skritar:
Verum jákvæð, byggjum
upp og gerum góðan bæ betri
Á laugardaginn
verður kosin ný
bæjarstjóm. Fram-
bjóðendur hafa
undanfarið kynnt
kjósendum það
sem liðið er, hvað
er framundan og
hvemig þeir ætla að taka á hlutunum.
Hvorum treystið þið betur?
Það er ljóst að frambjóðendur á
báðum framboðslistunum hafa áhuga
á að gera ýmsa góða hluti fái þeir
umboð til þess. Grundvallarspumingin
sem kjósendur standa frammi fyrir er
því sú hvomm þeir treysta betur til að
koma hlutunum í framkvæmd og haga
málum þannig að vel takist til.
Ég er sannfærður um að fram-
bjóðendur Sjálfstæðisflokksins em
traustsins verðir og munu reyna að
starfa þannig að málum bæjarins að
vel muni reynast.
Hvað er framundan?
Það er alltaf svo að framtíðin er óráðin
og óviss. Ýmislegt er á döfinni og
ýmis verkefni sem taka þarf á.
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins
munu leggja sig alla fram við að taka
á þeim málum sem em framundan,
reyna að leysa úr þeim í samræmi við
stefnuskrána sem þeir hafa lagt fyrir
kjósendur og vinna úr þeim málum
sem þar eru uppi á borði.
Framboð Sjálfstæðisflokksins hefur
komið heiðarlega fram við kjósendur
með því að segja hver verður
bæjarstjóri. Ef Sjálfstæðisflokkurinn
fær meirihluta vita bæjarbúar það
fyrirfram hver verður bæjarstjóri en
þurfa ekki að velkjast í neinum vafa
um það.
Allir Vestmannaeyingar þekkja
Guðjón Hjörleifsson og störf hans. Ég
er sannfærður um að almenn sátt ríkir
um hann sem bæjarstjóra.
Eitt atkvæði getur ráðið úrslitum
í þessum kosningum þar sem listamir
eru aðeins tveir fer sá listi með stjóm
bæjarins næstu fjögur ár sem fær einu
atkvæði fleira en hinn listinn. Það er
því mjög mikilvægt fyrir alla að nýta
sér atkvæðisrétt sinn og sitja eícki
heima á kjördag því með slíku er tekin
áhætta á því að V—listinn gæti fengið
meirihluta í kosningunum á laugar-
daginn.
Gerum góðan bæ betri
Það eru margir kostir sem fylgja
búsetu hér og nauðsynlegt er að líta á
þá í samanburði við annað. Sú
félagslega þjónusta og það skólahald
sem boðið er upp á er með þeim hætti
að það gerist ekki betra á landinu. Það
verður alltaf hlutverk Vestmanna-
eyinga sjálfra að gera góðan bæ betri.
Það gera það engir aðrir en þeir sjálfir.
Þeir sem skipa bæjarstjóm á hverjum
tíma geta leitt starfið en verkefnið
verður aðallega Vestmannaeyinga
sjálfra.
Ég hvet að lokum kjósendur til að
kjósa Sjálfstæðisflokkinn í kosning-
unum næsta laugardag og ég er
sannfærður um að geri þeir svo verður
bænum vel stjómað.
Gerum góðan bæ betri með því að
setja X við D á laugardaginn.
Höfundur er oddviti lista
Sjáilfstœðisflokksins.
Við styðjum IBV
og hvetjum fólk til að mæta á völlinn
álaugardaginn
Frambjóðenaur Sjálfstæðisflokksins